Fréttablaðið - 02.08.2014, Side 6

Fréttablaðið - 02.08.2014, Side 6
2. ágúst 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6 EFNAHAGSMÁL Enn er gert ráð fyrir að fjárlög fyrir árið 2014 verði hallalaus þrátt fyrir að ýmsir útgjaldaliðir stefni á að fara langt fram úr áætlunum. Þetta segir Vigdís Hauksdóttir, formaður fjár- laganefndar Alþingis. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður VG og nefndarmaður í fjárlaganefnd, er ekki jafn viss um að hallalaus fjárlög náist. „Það er ekki útséð með það að markmið ríkisstjórnarinnar gangi eftir. Margir liðir eru á leið fram úr áætlun. Það sem skiptir kannski hvað mestu í þessum málum er að ríkissjóður verður af tekjum á ýmsum sviðum og stjórnarflokk- arnir verða að fara að svara því hvaðan þeir ætla að fá fjármagn til að mæta þessu tekjutapi,“ segir Bjarkey. Þegar fjárlög fyrir árið 2014 voru kynnt, þann 1. október í fyrra, var gert ráð fyrir því að ríkis- sjóður myndi skila 500 milljóna króna afgangi á árinu 2014. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra fór þá yfir fjárlagafrumvarpið og sagði þá að meginstefið í vinnu við fjárlögin væri að skila halla lausum rekstri ríkissjóðs, þeim fyrsta frá hruni. Fréttablaðið sagði frá því í gær að rekstur Sjúkratrygginga ríkisins stefndi í að fara um 2,7 milljarða fram úr áætlunum í fjár- lögum. Að mati Ríkisendurskoðun- ar hefur ekki verið gripið til nægi- lega markvissra aðgerða til að stemma stigu við kostnaði Sjúkra- trygginga þannig að tryggt sé að hann verið í samræmi við heim- ildir fjárlaga í lok árs. Í skýrslunni er einnig bent á fleiri útgjaldaliði sem stefna fram úr þeim áætl- unum sem settar voru í fjárlaga- frumvarpinu. Vigdís Hauks- dóttir, formaður fjárlaganefndar Alþingis, sagði í vikunni að ekki væri hvikað frá því markmiði að skila ríkissjóði hallalausum þótt fjárlaganefnd sjái rauð blikkandi ljós á stöku stað. Tómas Brynjólfsson, skrifstofu- stjóri í fjármála- og efnahagsráðu- neytinu, telur útgjaldaaukningu ekki breyta því að stefnan sé enn sett á hallalaus fjárlög. „Ef við horfum á árið í heild þá sjáum við að tekjuhlið ríkissjóðs er betri en ráð var fyrir gert í fjárlagafrum- varpinu. Það er rétt að nokkrir útgjaldaliðir eru yfir áætlunum. Þessar auknu tekjur ríkissjóðs munu að öllum líkindum ná yfir þá útgjaldaaukningu. Því er enn þá stefnt að því að ríkissjóður verði rekinn með hagnaði á þessu ári, í fyrsta sinn síðan 2007,“ segir Tómas. sveinn@frettabladid.is Margir liðir á leiðinni langt fram úr áætlun Ríkisendurskoðun bendir á fjölmarga útgjaldaliði í ríkisrekstrinum sem hafa vaxið fram úr fjárheimildum í fjárlögum. Þrátt fyrir það stefna stjórnvöld að halla- lausum fjárlögum. Þingmaður VG er efins um að stjórnvöld nái að efna loforðið. EYJAFJARÐARSVEIT Sveitarstjórn Eyja- fjarðarsveitar ákvað eftir kosningar í maí að auglýsa stöðu sveitarstjóra lausa til umsóknar. Capacent ráðn- ingar voru fengnar til þess að meta umsækjendur og fór svo að 49 sóttu um stöðuna. Sveitarstjórn ákvað hins vegar að hafna öllum umsækj- endum um sveitarstjórastöðuna og réð Karl Frímannsson, fyrrverandi skólastjóra grunnskóla Eyjafjarðar- sveitar, sem sveitarstjóra. Minnihluti sveitarstjórnar sat hjá við afgreiðslu málsins og harm- aði þau vinnubrögð sem meirihluti sveitar stjórnar viðhafði. Stóð minni- hlutinn í þeirri trú að málið væri í faglegum höndum ráðningarfyrir- tækis og vonaðist til að ráðningin myndi byggja á faglegu mati á þeim sem sóttu um starfið. Jón Stefánsson oddviti var spurður hverju þetta sætti. „ Okkur bauðst betri kostur, það voru vissulega innan um hæfir einstaklingar. Það sem ræður mestu var að við fengum þarna einstakling sem við þekkjum vel til og við treystum. Við hefðum ekki ráðið hann nema að hafa verið viss um að hann hafi verið besti kost- urinn.“ Þegar Jón var spurður hvernig nafn Karls hefði komið upp í ferlinu segi hann að meirihlutinn hafi verið að skoða málið og reynt að velta fyrir sér fólki sem hann treysti. „Við vorum bara svona að hugsa þetta. Við vorum ekki alveg ákveðin og hans nafn kom upp í samtali meirihlutans þannig að við höfðum samband við hann og buðum honum starfið,“ segir Jón. -sa Meirihluti sveitarstjórnar hafnaði öllum 49 umsækjendum og réð skólastjórann sem sveitarstjóra: Fóru ekki að ráðum ráðningarfyrirtækis EYJAFJÖRÐUR Sveitarstjórnin hafnaði öllum umsóknum og réð Karl Frímanns- son, fyrrverandi skólastjóra. Það er ekki útséð með það að markmið ríkisstjórnar- innar náist. Bjarkey Olsen Gunnars dóttir, þingmaður VG. FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ Bjarkey Olsen Gunnars- dóttir segir ríkissjóð verða af tekjum. VIGDÍS HAUKSDÓTTIR SAMFÉLAGSMÁL Innanríkisráðu- neytið hyggst ráða fjóra ráð- gjafa til að annast ráðgjöf við nauð ungarvistaða einstaklinga á sjúkrahúsi. Einn þeirra verður tilgreindur sem verkefnisstjóri og munu ráðgjafarnir vinna saman í teymi. Ráðgjaf arnir verða tveir af hvoru kyni og munu ekki starfa á sjúkrahúsi. Á meðal verkefna ráðgjafa er að veita nauðungarvistuðum ein- staklingum upplýsingar um rétt- indi sín og stöðu. -jhh Nauðungarvistaðir fá ráðgjöf: Skipa fjögurra manna teymi

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.