Fréttablaðið - 02.08.2014, Side 54

Fréttablaðið - 02.08.2014, Side 54
2. ágúst 2014 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 42 „Ég er ekki búin að ná því að þetta sé að verða að veruleika. Mig er búið að dreyma um þetta síðan ég var barn,“ segir tón- listarkonan Unnur Eggerts- dóttir, sem komst inn í leiklistar- nám við The American Academy of Dramatic Arts í New York. „Ég ákvað fyrir um ári að hefja leit að skólum og fann þrjá skóla sem mig langaði í. Við tók langt umsóknarferli.“ Unnur hélt til New York í sumar í prufur hjá öllum skólunum þar sem hún átti að flytja einleiki og syngja. „Ég hef starfað með hæfileikaríku fólki hér heima og fékk fimm frá- bæra leikstjóra til þess að gefa mér nótur. Ég flaug með mömmu í prufurnar en þetta var stressandi ferli. Ég hugsaði með mér að ef ég myndi klúðra þessu væri draum- urinn úti.“ Áhyggjur Unnar reyndust ástæðulausar því hún flaug inn í alla skólana. „Þetta gekk allt vel og skólarnir lofuðu að hafa sam- band innan fjögurra vikna. Í einni prufunni fékk ég að heyra að þeim hefði litist svo vel á mig að ég komst inn í skólann á staðnum.“ Unnur valdi The American Aca- demy of Dramatic Arts, hefðbund- inn leiklistarskóla. „Ég valdi hann þar sem ég tel að ég þurfi mest á því að halda að bæta mig í leiklist. Ég hef verið að dansa og syngja undanfarin ár og leiklistin hefur orðið dálítið undir en samt alltaf verið það sem mig langar mest að læra. Ég finn mér dans- og söng- kennara samhliða náminu svo ég geti viðhaldið öllu saman.“ Unnur flytur út 12. september og hlakkar til. „Þetta eru blendnar til- finningar. Ég á eftir að sakna fjöl- skyldunnar og vinanna en á sama tíma hlakka ég til.“ Unnur segir skólagjöldin há en að skólinn hafi veitt henni háan styrk. „Ég fer svo í það að selja eitthvað af fötunum mínum. Ef það er einhver þarna úti sem á sjúklega mikinn pening þá má hafa samband,“ segir Unnur og hlær. kristjana@frettabladid.is Eltir æskudrauminn og fl ytur til New York Langþráður draumur tónlistar- og dagskrárgerðarkonunnar Unnar Eggertsdóttur rættist þegar hún komst inn í virtan leiklistarskóla í New York á dögunum. GETUR EKKI BEÐIÐ Unnur segist vera orðin ótrúlega spennt fyrir flutningunum, enda mikið líf í New York. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI VONAST TIL AÐ KOMA VONARSTRÆTI ÚT Í HEIM Um 44.000 Íslendingar hafa þegar séð Vonarstræti eftir Baldvin Z en á dögun- um var samið um sölurétt á kvikmynd- inni við virt, þýskt sölufyrirtæki, Films Boutique. Aðrir viðskiptavinir sölufyrir- tækisins eru leikstjórar á borð við Bela Tarr og framleiðslufyrirtæki Angelinu Jolie, en myndir á snærum fyrirtækisins hafa hlotið Óskarstilnefningar, Silfurbjörninn, Gullljónið og verðlaun á Sundance, svo eitthvað sé nefnt. Sýningar á myndinni hefjast í Kan ada, Tékklandi, Dan mörku, Svíþjóð, Finn- landi og Nor egi á næsta ári. - ósk DRYKKJUMANNALAG FLUTT Á EDRÚHÁTÍÐ Leikarinn Þorsteinn Guðmundsson fór með gamanmál og stjórnaði bingói á Edrúhátíðinni á Laugalandi í Holtum í gærkvöldi. Þar flutti hann lag um drykkjumann sem þó endar vel, því róninn nær sér á strik, fær stinnan rass og vinnu í Nettó. Þorsteinn er nokkuð litríkur gítarleikari og samdi lagið sjálfur. Hann hefur fengið góð viðbrögð. „Ég flutti það í Eyjum um daginn og þar var fólk byrjað að taka undir enda þekkja Eyjamenn drykkjumannalög almennt vel,“ segir Þorsteinn. - glp „Við handskrif- uðum bréf hvort til annars sem gerði okkur kleift að tengjast vel. Við hugsuðum um fólk sem var í sundur í marga mánuði, jafnvel ár í senn.“ ANGELINA JOLIE LEIKKONA UM FJAR- VISTIR FRÁ EIGIN- MANNINUM, BRAD PITT Í einni prufunni fékk ég að heyra að þeim hefði litist svo vel á mig að ég hefði komist inn í skólann á staðnum. „Ég fór fyrst á Þjóðhátíð árið 1986 og hef bara einu sinni misst af Þjóðhátíð síðan þá en það var árið 2008, enda hef ég heyrt að sú Þjóðhátíð hafi verið afleit,“ segir hinn 43 ára gamli Mar- teinn Sveinsson en hann er mikill Þjóðhátíðarunnandi. Hann er þó ekki úr Eyjum heldur er hann frá Reykjavík. „Þetta er bara orðið að hefð sem má ekki breyta.“ Hann man vel eftir hátíðinni 1986. „Þetta var stór Þjóðhátíð og það voru um tólf þúsund manns þarna, Stuðmenn og Geirmundur héldu manni í góðu stuði,“ segir Marteinn og hlær. Þjóðhátíðin hefur breyst með árunum og er til dæmis komið nýtt og glæsilegt aðalsvið í Dal- inn. „Þetta er allt mjög svipað en hefur auðvitað stækkað undan- farin ár. Mér þykir þetta nýja svið mjög glæsilegt og er ánægður með það,“ bætir Marteinn við. Hann segir þó að minna beri á áfengisdauðu fólki á seinni árum. „Maður sér mun á fólkinu, fyrst var fólk meira áfengisdautt, það var víða sem fólk lá áfengisdautt en gæslan hefur líka orðið betri með árunum sem lagar svona hluti,“ segir Marteinn. Hann lætur lítið stoppa sig og hefur ekki alltaf farið til Eyja í fullkomnu standi. „Árið 1993, tíu dögum fyrir Þjóðhátíð, lenti ég í bílslysi en lét það ekki á mig fá. Ég fór með 60 spor í hausnum og þrjá hryggjarliði brotna en dreif mig samt.“ Af þessum 29 skiptum hefur hann bara tvisvar sinnum verið í tjaldi. „Ég fer yfirleitt með hjólhýsi eða sendibíl sem ég set sófa eða rúm inn í.“ Marteinn ætlar að sjálfsögðu ekki að láta sig vanta í Herjólfsdal í ár. gunnarleo@frettabladid.is Missir ekki af Þjóðhátíð ótilneyddur Marteinn Sveinsson hefur farið 29 sinnum á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum á síðustu 30 árum. HJÓLHÝSIÐ KLÁRT Marteinn Sveinsson ásamt Maríu Dís Marteinsdóttur við hjól- hýsið en þau eru á leið til Eyja. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Inspiral.ly MURE Authenteq ViralTrade Boon Music /S ÍA – 1 4 - H V ÍT A ÍT A H Ú S IÐ /S 1 6 5 4 Startup Reykjavík verkefnið er í fullum gangi. Tíu sprotafyrirtæki þróa hug- myndir sínar með aðstoð frá Arion banka og Klak-Innovit. Fylgstu með á www.startupreykjavik.com og á Facebook.com/StartupReykjavik. SPENNANDI HUGMYNDIR VERÐA AÐ VERULEIKA SÖNG MEÐ GLEÐI Í HJARTA Kristjana Stefánsdóttir söngkona situr ekki auðum höndum um verslunar- mannahelgina. Fjörið hófst á fimmtu- dag þegar hún skemmti í Neskaupstað. Í dag djassar hún svo á Jómfrúnni. „Um leið og ég er búin þar þá stekk ég upp í næstu vél og skemmti á Þjóðhátíð með Jónasi Sig og Ritvélunum. Ég á síðan frí á sunnudaginn og fer á Selfoss til að hitta glænýjan frænda.“ Það er systurson- ur hennar en hún frétti af fæðingu hans rétt áður en hún steig á svið á fimmtudag. „Það var fallegt að fara inn á svið með þær fréttir. Ég var með svo mikla gleði í hjartanu.“ - nej

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.