Fréttablaðið - 02.08.2014, Side 8

Fréttablaðið - 02.08.2014, Side 8
2. ágúst 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | GASA Tæplega tveimur klukku- stundum eftir að vopnahlé, sem átti að standa í þrjá sólarhringa, hófst á Gasa í gærmorgun tóku bæði Ísra- elar og Palestínumenn til við að skjóta sprengjum. Ísraelar sökuðu Hamas-liða um að hafa rofið vopna- hléið, en Hamas sakaði Ísraela um slíkt hið sama. Stórtækar sprengjuárásir Ísraels- hers kostuðu tugi Palestínumanna á Gasa lífið, en Palestínumenn urðu tveimur ísraelskum hermönnum að bana og virðast hafa náð að hand- sama einn yfirmann í ísraelska hernum. Alls hafa árásir Ísraela kostað meira en 1.500 Palestínumenn lífið frá því þær hófust þann 8. júlí síð- astliðinn. Að sögn Palestínumanna eru langflestir þeirra almennir borgarar og margir á barnsaldri. Á móti höfðu 66 Ísraelar látið lífið. Hið mikla mannfall á meðal almennra borgara á Gasasvæð- inu hefur vakið spurningar um það hvort Ísraelar skeyti engu um mannslíf eða hvort ísraelski her- inn hafi ekki burði til þess að vanda sig, annaðhvort þá vegna þess að þjálfun hermanna sé ábótavant eða að vinnureglur hersins fyrir hernað á þéttbýlum íbúasvæðum séu ekki nógu skýrar. Breska dagblaðið The Guardian hefur eftir Andrew Exum, fyrrver- andi yfirmanni í bandaríska hern- um, að ísraelski herinn hafi löngum verið þekktur fyrir að gera mistök sem kosti fjölda almennra borgara lífið. Nú síðast létu fimmtán manns lífið þegar gerð var árás á skóla Sameinuðu þjóðanna aðfaranótt fimmtudags og sautján manns lét- ust á fjölförnu markaðstorgi, sem sprengt var upp síðar sama dag. „Ég veit ekki alveg hvað málið er,“ segir Exum á fréttavef The Guardian. „Ég veit ekki hvort málið er léleg þjálfun, vöntun á því að mið- unarsérfræðingar hersins ræði við þá sem stjórna þungavopnum og loftárásum, eða yfirmenn sem ein- faldlega telja ekki að það sé neitt forgangsatriði að forðast mannfall meðal almennra borgara.“ Mannréttindasamtök hafa lagt ríka áherslu á að öllum hernaði inni á íbúasvæðum, eins og nú stendur yfir á Gasasvæðinu, fylgi alþjóð- legar skuldbindingar um að gæta vel að öryggi almennra borgara. „Skyldan til að vernda er greini- lega til staðar þegar ráðist er í hern- að. Þótt annar aðilinn bregðist þá er það engin afsökun fyrir gerðum hins aðilans,“ sagði John Ging, yfir- maður flóttamannastarfs Samein- uðu þjóðanna á Gasa, í viðtali í kan- adíska ríkissjónvarpinu. Hann sagði jafnframt að þótt ástandið á Gasa væri vissulega margbrotið og flókið, þá væri það Guðsteinn Bjarnason gudsteinn@frettabladid.is 8 www.forlagid.is – alvöru bókabúð á netinu „Sagnagáfa Ejersbo er ótvíræð og persónu- sköpun með því betra sem gerist ... Sögurnar grípa þéttingsfast ...“ Anna Lilja Þórisdóttir / Morgunblaðið Meistaraleg flétta með sárum undirtón, saga af styrk mannsandans andspænis kúgun. BYLTINGAR- ANDI! Standa í stríði inni í miðri íbúabyggð Gríðarlegt mannfall óbreyttra borgara á Gasa vekur enn á ný alvarlegar spurn- ingar um aðferðir ísraelska hersins, sem lætur ekki nálægð almennings stöðva sig. Andrew Exum, yfirmaður hjálparstarfs SÞ á Gasa, segir ástandið ekkert flókið. SKRUPPU HEIM Í GÖTUNA Íbúar á Gasa fóru að huga að rústum heimila sinna þegar hlé varð stutta stund á sprengjuárásum í gær. NORDICPHOTOS/AFP ÓSPRUNGIN SPRENGJA Íbúar á Gasa fara ferða sinna fram hjá sprengju frá Ísraelsher sem liggur ósprungin á göt- unni. NORDICPHOTOS/AFP SPRENGJUFLAUGUM SKOTIÐ ÚR ÍBÚAHVERFI John Ging, yfirmaður flóttamanna- starfs Sameinuðu þjóðanna á Gasa (UNRWA), segir engan vafa leika á því að liðsmenn Hamas og annarra vopnaðra hópa á Gasa hafi skotið sprengjuflaugum sínum yfir til Ísraels frá íbúasvæðum, þar á meðal úr næsta nágrenni skóla sem Sam- einuðu þjóðirnar hafa notað sem neyðarskýli fyrir flóttafólk. SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR TIL- KYNNA STAÐSETNINGU SÍNA Hins vegar hafi Sameinuðu þjóðirnar gætt þess vandlega að tilkynna ísraelskum stjórnvöldum reglulega um nákvæma stað- setningu allra þeirra skóla á Gasa sem eru undir stjórn Sameinuðu þjóðanna, þar á meðal skólans í Jabalíja-flóttamannabúðunum sem sprengjum var varpað á aðfaranótt fimmtudags. Á annan tug manna létu þar lífið í svefni, þar á meðal fjögur börn sem sváfu við hlið for- eldra sinna. SPRENGJUBROT ÚR ÍSRAELSKRI SPRENGJU Þegar starfsmenn Sameinuðu þjóðanna skoðuðu vegsummerki árásarinnar fundust sprengjubrot, sem hann segir augljóslega hafa verið úr sams konar sprengjum og þeim sem Ísraelsher hefur notað. „Þegar átökin í næsta nágrenni þessa skóla hörðnuðu minntum við ísraelska viðmælendur okkar aftur á að skólinn væri notaður sem skýli fyrir flóttamenn, hverjir væru í skýlinu og einnig staðsetningu, GPS-staðsetningu skólans,“ sagði Ging í viðtali við kanadíska ríkis- sjónvarpið CBC á fimmtudag. Ísraelar hafa ítrekað réttlætt árásir sínar á sjúkrahús, skóla og íbúðarhús með því að vopnaðir Palestínumenn hafi hreiðrað þar um sig og skotið þaðan á Ísraela. Ging fullyrðir hins vegar að í hvert skipti sem Sameinuðu þjóð- irnar taki skólabyggingu eða annað húsnæði í notkun á Gasasvæðinu sé Ísraelum skýrt frá því og jafnframt gengið úr skugga um að þar séu hvorki vopn né vígamenn. YFIRFARA BYGGINGARNAR Fréttum um að vopn hafi fundist í skólum sem Sameinuðu þjóðirnar hafa notað til að hýsa flóttamenn, svarar hann á þá leið að það hafi gerst í þremur skólum sem stóðu auðir eftir að starfsmenn Sam- einuðu þjóðanna höfðu neyðst til að yfirgefa og rýma byggingarnar vegna hernaðar í nágrenninu. Ísraelar fá reglulega upplýsingar um staðsetningar skóla 86 neyðarskýli á vegum SÞ eru á Gasa 225 þúsund manns hafa leitað þar skjóls ekkert flókið í augum saklausra borgara sem lenda í miðjum hernaði og vita ekki hvert þeir eiga að leita eða hvar öruggt skjól geti leynst. „Þetta er harmleikurinn við átök á þéttbýlasta svæði heims. Ég meina, þetta er í raun og veru borg,“ segir Ging. „Þetta er ruglingslegt fyrir almenning sem svo sannarlega vill koma sér burt af átakasvæðum en lendir svo ítrekað í því að flækj- ast inn í átökin á stöðum sem það heldur að eigi að vera öruggir.“

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.