Fréttablaðið - 02.08.2014, Side 4
2. ágúst 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 4
10%
fj ölgun hafði um
miðja vikuna orðið á
fj ölda félaga í Íslandi-
Palestínu.
350%
aukning hefur orðið á
komum skemmtiferða -
skipa til Ísafjarðar á
síðustu fimm árum.
mínútur liðu áður
en tókst að koma
símkerfi Landspítal-
ans aftur í gang á
miðvikudagsmorgun-
inn var. Neyðarsímar og innanhússlínur biluðu
þó ekki. Ekki var hægt að hringja í spítalann
frá 10.01 til 11.33.
298.700
króna verðmunur er á dýrari og ódýrari
pakka sem karlkyns hjólreiðamanni
býðst til að græja sig upp að fullu hjá
hjólreiðaversluninni Erninum.
92706selir sáust í sela-
talningunni miklu sem
haldin var á vegum
Selaseturs Íslands 27. júlí.
6 ára hámarks-refsing liggur við því hér á landi
að smána erlent ríki.
Hér er refsirammi við
slíkum brotum mun
þyngri en í öðrum
ríkjum Evrópu.
íslenskir skákstjórar héldu í
vikulokin til Tromsö í Noregi
til að vera á Ólympíuskák-
mótinu sem þar fer fram.5
VIÐSKIPTI Virði skráðra félaga
á Aðalmarkaði og First North-
markaði Kauphallar Íslands
(Nasdaq OMX Iceland) var í
nýliðnum mánuði tæpum fjórð-
ungi, 24,6 prósentum, meira en í
júlí í fyrra. Samanlagt mark-
aðsvirði félaganna 17 nam í lok
mánaðarins 608 milljörðum
króna, samanborið við 488 millj-
arða í júlí 2013.
Fram kemur í tilkynningu
Kauphallarinnar að viðskipti
með hlutabréf hafi numið 13.897
milljónum í júlí eða 604 milljón-
um á dag. „Þetta er 15 prósenta
hækkun á milli ára,“ segir þar,
en viðskipti í júlí 2013 námu 527
milljónum króna á dag. - óká
Velta eykst um 15 prósent:
Virði félaga í
Kauphöll eykst
Félag Velta
Icelandair Group 2.935
Hagar 1.822
Sjóvá 1.450
HB Grandi 1.337
Eimskipafélagið 1.198
Heimild: Nasdaq OMX Iceland
VELTUMESTU Í JÚLÍ
Milljónir króna
EFNAHAGSMÁL Gjaldeyrisforði
Seðlabanka Íslands er nánast
orðinn óskuldsettur. Í júní námu
skuldir umfram eignir í erlendri
mynt á efnahagsreikningum
bankans um tuttugu milljörðum
króna en þegar mest var í árs-
lok 2009 námu þær yfir 190
milljörðum.
Bankanum hefur tekist að
kaupa yfir 800 milljónir evra á
millibankamarkaði frá haustinu
2010. Þetta kemur fram í útreikn-
ingum greiningardeildar Arion
banka, sem segir það jákvætt að
Seðlabankanum sé að takast að
safna óskuldsettum forða. - bá
Erlendar skuldir minnka:
Góð staða á
gjaldeyrisforða
BANDARÍKIN, AP Banda rískur
maður að nafni Christopher
Renzi hefur höfðað mál á hendur
portúgölsku fótboltastjörnunni
Christiano Ronaldo og fatafram-
leiðandanum JBS Textile.
Málið höfðaði hann eftir að
JBS hótaði lögsókn fyrir notkun
á vörumerkinu CR7 á fatnað og
íþrótta vörur
sem Renzi
framleiðir.
JBS fram leiðir
nærbuxur og
sokka með
sama merki
þar sem vísað
er til númers
Ronaldo á leik-
vellinum. Renzi
fékk einkaleyfi á merkinu
2008, en það vísar til nafns
hans og afmælisdags. Ronaldo,
sem er 29 ára gamall, er einn
vinsælasti knattspyrnu maður
í heimi. Hann leikur með
spænska úrvalsdeildaliðinu
Real Madrid og landsliði Portú-
gal.
- óká
Bitist um vörumerkið CR7:
Ronaldo fer
fyrir dómstóla
CRISTIANO
RONALDO
FRAKKLAND
Airbus fer í hunangið
Flugvélaframleiðandinn Airbus hefur
hafið framleiðslu á hunangi. Fyrirtækið
hefur komið upp býflugnabúum nálægt
flugvöllum í Þýskalandi og greinir
hunangið sem verður til í búunum til
að athuga áhrif flugumferðarinnar á
umhverfið. Forsvarsmenn Airbus taka
umhverfisvernd mjög alvarlega og
segja þeir að það sé ein ástæða þess að
farið var út í hunangsframleiðsluna. - fb
UTANRÍKISMÁL Ísland var á meðal
fyrstu 13 aðildarríkja Evrópu-
ráðsins til að undirrita samning
um að koma í veg fyrir og berj-
ast gegn ofbeldi gagnvart konum
og heimilisofbeldi. Skrifað var
undir samninginn í Istanbúl í
Tyrklandi 11. maí 2011. Samning-
urinn tók í gær gildi í 11 löndum.
Ísland er þó ekki í þeim hópi.
Samkvæmt upplýsingum frá
utanríkisráðuneytinu er fullgild-
ing alþjóðasamninga tímafrek og
kallar á skoðun á íslenskri löggjöf
af hálfu viðkomandi fag ráðuneytis
og í mörgum tilvikum á lagabreyt-
ingar. Í tilviki Istanbúl-alþjóða-
samningsins er það fagráðuneyti
innanríkisráðuneytið.
Samkvæmt heimildum blaðsins
eru kvaðirnar sem samningurinn
leggur á ríki svo viðamiklar að
kallar á breytingar á lögum hér.
Unnið hefur verið að frumvarpi
um breytingar í innanríkisráðu-
neytinu, án þess þó að það hafi
enn litið dagsins ljós.
Ríki sem fullgilda samninginn
skuldbinda sig meðal annars til
að þjálfa sérfræðinga í nánum
samskiptum við fórnarlömb;
standa reglulega að kynningar-
herferðum til vitundarvakn-
ingar um ofbeldið og skaðsemi
þess; taka markviss skref til
aukins kynjajafnréttis og fram-
leiða kennsluefni um ofbeldis-
lausa úrlausn vandamála í nánum
samböndum; koma á fót með-
ferðarúrræðum fyrir gerendur
í heimilisofbeldi og fyrir kyn-
ferðisofbeldismenn; starfa náið
með sjálfstæðum félagasamtök-
um; og vinna með fjölmiðlum
og einkageiranum í að útrýma
Fullgilding bíður
breytinga á lögum
Istanbúl-samningurinn um að berjast gegn heimilisofbeldi og ofbeldi gegn konum
tók gildi í gær. Þetta er fyrsti bindandi alþjóðasamningurinn sem tekur á málinu.
Ísland var með fyrstu ríkjum til að skrifa undir, en hefur ekki fullgilt samninginn.
KRÖFUGANGA Í LÍBANON Kona heldur á lofti kröfuspjaldi í göngu í Beirút í apríl-
byrjun þar sem líbönsk stjórnvöld voru hvött til að skrifa undir lög sem tækju á
heimilisofbeldi. NORDICPHOTOS/AFP
Auk Íslands undirrituðu Istanbúl-samninginn í maí 2011 löndin Austurríki,
Finnland, Frakkland, Grikkland, Lúxemborg, Portúgal, Slóvakía, Spánn, Svart-
fjallaland, Svíþjóð, Tyrkland og Þýskaland. Síðan þá hafa 23 lönd til viðbótar
skrifað undir og eru þau því 36 í allt.
Fjórtán lönd hafa svo staðfest samninginn og fékk hann lagagildi í ellefu
þeirra í gær, en það eru Albanía, Andorra, Austurríki, Bosnía og Hersegóvína,
Danmörk, Ítalía, Portúgal, Serbía, Spánn, Svartfjallaland og Tyrkland. Fyrsta
nóvember næstkomandi tekur samningurinn svo einnig gildi í Frakklandi,
Svíþjóð og á Möltu.
Ísland á meðal 13 fyrstu landa
staðal ímyndum og ýta undir
gagnkvæma virðingu fólks í sam-
skiptum.
Þegar samningurinn var undir-
ritaður hjá Evrópuráðinu kom
fram að hann væri fyrsti bind-
andi alþjóðasamningurinn sem
tæki heildstætt á baráttunni gegn
ofbeldi gegn konum.
olikr@frettabladid.is
26.07.2014 ➜ 01.08.2014
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kkolbeins@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
RAFTÆKJAVERSLUN • SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI 568 9090 • WWW.SM.IS
FÁÐU ÞRÁÐLAUSAN
AÐGANG AÐ
TÓNLISTINNI Í ÖLLUM
HERBERGJUM
Sonos er kerfi þráðlausra hátalara og hljómtækja. Það sameinar
stafræna tónlistarsafnið þitt og útvarpsstöðvar í einu appi sem þú
getur stjórnað frá hvaða síma eða spjaldtölvu sem er.
Vordís Eiríksdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
VERSLUNARMANNAHELGIN Útlit er fyrir bjartviðri N og A-lands og um tíma
á Vestfjörðum. Heldur svalt í veðri þó, hiti þetta 8–15 stig yfir daginn. Víða líkur á
síðdegisskúrum og rigning á köflum S- og V-lands í dag en úrkomulítið á morgun.
10°
5
m/s
11°
7
m/s
12°
6
m/s
11°
8
m/s
Austlæg
3-10m/s
en
7-13m/s
með
S-strönd-
inni.
8-15m/s
hvassast
með
S-strönd-
inni.
Gildistími korta er um hádegi
23°
32°
25°
24°
23°
25°
28°
24°
24°
26°
22°
34°
32°
32°
26°
29°
26°
29°
9°
3
m/s
11°
3
m/s
10°
2
m/s
10°
2
m/s
11°
2
m/s
12°
3
m/s
6°
2
m/s
13°
14°
11°
10°
11°
10°
12°
9°
12°
11°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
MÁNUDAGUR
Á MORGUN