Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.08.2014, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 02.08.2014, Qupperneq 16
2. ágúst 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 16 Óttinn var erfiðastur af öllu Ibrahem Faraj flúði frá Líbíu þegar hann lenti á svörtum lista einræðisherrans Muammars Gaddafi. Hann sótti um hæli á Íslandi og beið í tíu ár eftir langþráðum ríkisborgararétti. Á Íslandi fann hann í fyrsta skipti fyrir öryggi og frelsi í lífi sínu. Við Ibrahem Faraj hitt-umst á kaffihúsi úti á Granda. Hann af þakkar kaffi enda er ramadan og hann er múslími. Þá borðar hann hvorki né drekkur á milli sólarupprásar og sólarlags. Það skín smitandi gleði úr augum Ibrahems og hann segir mér að hafa ekkert samvisku- bit yfir kaffibollanum sem ég fæ mér, og hvort ég vilji ekki bara fá mér kökusneið með honum. Ég hafði undirbúið mig undir erfitt viðtal þar sem Ibrahem er búinn að reyna margt sem ég, og flest- ir aðrir, get aldrei skilið. En hann er afslappaður, ljúfur og einlægur. Hann segist ekkert hafa að fela lengur, í fyrsta skipti á ævi sinni. Hann hafi upplifað óöryggi frá því hann var lítill drengur, þvinganir og kúgun öll sín uppvaxtarár undir stjórn einræðisherrans Gaddafis í Líbíu og óttast um líf sitt í felum á Íslandi frá árinu 2002. Því sé nú lokið. Á dauðalista Gaddafis Þegar Ibrahem var 28 ára komst hann að því að hann væri á lista yfir andófsmenn í Líbíu. Það þýddi aðeins eitt; að hann þyrfti að flýja. Enda var vitað að þeir sem lentu á þessum lista hyrfu eins og jörðin hefði gleypt þá. Ibrahem lenti á þessum svarta lista stjórnarinnar fyrir að ástunda gagnrýna hugsun og hvetja aðra til þess sama. Hann neitaði að gangast undir áróður einræðisherrans, Muammars Gad- dafi, sem hafði stjórnað landinu frá því að hann fæddist og þannig varð hann andófsmaður. Ibrahem fór því á flakk um Evrópu í leit að öruggu skjóli. „Maður hafði heyrt af Líbíu- mönnum í Bretlandi, Þýskalandi og öðrum löndum sem voru skotnir úti á götu. Þá hafði stjórn Gaddafis frétt af þeim og ráðið mafíu til að myrða þá eða látið sækja þá og drepið þá í Líbíu. Ég velti fyrir mér að sækja um hæli í Svíþjóð en komst að því að arabasamfélagið þar er mjög stórt og þorði því ekki að setjast þar að af ótta við njósn- ara Gaddafis.“ Var alltaf hræddur Ibrahem fann út að afar fáir arabar byggju á Íslandi og ákvað því að sækja um hæli hér. Hann kom til landsins með engin skilríki eða skjöl um sig. Hann þorði ekki einu sinni að segja hvað hann raun- verulega héti af ótta við að hann myndi finnast, og því gekk hann undir nafninu Muhamed Ali. Við tók mikil barátta við að fá hæli. Fyrstu sjö árin fékk hann dvalar- leyfi sitt endurnýjað til aðeins sex mánaða í senn. Hann gat því ekki sótt nám eða vinnu og stundum var hann næstum búinn að gleyma að hann væri manneskja, að hann væri Ibrahem. „Auðvitað var erfitt að hafa ekkert að gera og sjá enga fram- tíð. En óttinn var erfiðastur. Ég var alltaf hræddur um að ég yrði sendur úr landi eða að menn Gaddafis myndu finna mig. Ég átti þar af leiðandi mjög erfitt með að treysta og þurfti að berjast við að treysta sjálfum mér og muna hver ég í raun og veru væri. Þegar ég kynntist konunni minni árið 2009 var ekki auðvelt að opna hjartað á ný. Ég þorði ekki að segja henni of mikið og hún fékk ekki einu sinni að vita mitt raunverulega nafn.“ Hjartað opnaðist á ný Ibrahem og kona hans, Lina Falah, eiga margt sameiginlegt enda er VILL MIÐLA AF REYNSLU SINNI Ibrahem Faraj langar að fræða almenning í Líbíu um mannréttindi og raunverulegt lýðræði. Einnig vill hann miðla af reynslu sinni sem hælisleitandi og er nú bók um líf Ibrahem í vinnslu sem Anna Lára Steindal skrifar. Þau safna fyrir útgáfukostnaði á Karolinafund.is. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Erla Björg Gunnarsdóttir erlabjorg@365.is hún palestínskur flóttamaður sem bjó í Írak og þurfti að flýja stríðshörmungar þar. Hún kom til Íslands með hópi kvenna sem sett- ust að á Akranesi. Hjónakornin búa þar í dag, ásamt fjórum börn- um, þrjú börnin átti Lina af fyrra hjónabandi. „Reynsla okkar færði okkur saman og vegna trúar okkar gátum við ekki búið saman fyrr en eftir hjónaband. Við ákváðum því að eyða lífinu saman og byggja það á vináttu og svo hefur ástin vaxið.“ Ibrahem eignaðist því fjöl- skyldu hér á Íslandi. Hann hugs- aði þó stanslaust til fjölskyldunnar í Líbíu. Fyrstu árin vissu þau ekki hvort hann væri lífs eða liðinn. Svo tókst honum að koma skilaboðum til þeirra í gegnum milliliði en þau fengu þó aldrei að vita hvar hann væri staddur í heiminum. Þegar borgarabyltingin hófst í Líbíu árið 2011 varð Ibrahem órólegur og ótt- aðist að hann myndi aldrei sjá fjöl- skyldu sína aftur á lífi. „Ég fann að ég varð að komast heim. Ég fór á fullt í að útvega skjöl og vottorð um mig sem tók töluverðan tíma. En eftir að ég gat sannað hver ég var þá tók aðeins ár að fá ríkisborgararétt. Á þess- um tíma fylltist ég von, bæði um framtíð mína og framtíð lands- ins míns. Daginn sem ég fékk lög- heimili á Íslandi og líbískt vega- bréf í hendurnar upplifði ég í fyrsta skipti öryggi og frelsi. Hjartað opnaðist aftur. Það var ótrúlegt. Yndislegt.“ Vaknaði til lífsins Ibrahem fór og heimsótti fjöl- skyldu sína í kjölfarið. Hann lýsir fyrir mér hvernig tilfinningin var á flugvelli í Tyrklandi þegar hann var á leið í flugið til Líbíu. Þar hitti hann fjöldann allan af Líbíu mönnum eftir 12 ára útlegð. „Það var eins og mig hefði verið að dreyma og ég væri loksins að vakna til lífsins. Mamma svaf ekki fyrstu sólarhringana, bara hélt utan um mig og klappaði. Hún hefði aldrei hleypt mér aftur úr landi ef ég ætti ekki konu og barn hér á Íslandi.“ Ibrahem segir þó líf sitt vera nú á Íslandi því hér eigi hann heima. Hér eigi hann fjölskyldu, góða vini og hér hafi hann eytt helmingi full- orðinsára sinna. Hann vill samt halda góðu sambandi við Líbíu og fólkið þar. „Mig langar að deila reynslu minni af íslensku stjórn- kerfi og mannréttindum. Fræða þau um hvað lýðræði er í raun, reyna að útskýra hvernig frelsistil- finningin er og hversu mikilvægt það er að berjast fyrir henni.“ Auðvelt að kynnast Íslendingum Ég velti fyrir mér hvort Ibrahem sé ekkert reiður út í Ísland og Íslendinga fyrir að hafa látið hann bíða svo lengi. „Auðvitað er margt ómanneskju- legt við biðina en ég skil þetta. Ég gat ekki sannað mál mitt, með engin skilríki. Það hefur margt gott gerst í þessum málaflokki síðustu árin með lagabreytingum. Einnig finnst mér Íslendingar vera opnari gagnvart útlendingum. Ég hef aldrei fundið fyrir illsku eða fordómum. Sumir eru vissulega með ranghugmyndir um múslíma en mér finnst að um leið og þeir kynnast mér þá breytist við- horfið.“ Ibrahem er jákvæður og hann sér fyrir sér bjarta framtíð á Íslandi, þar sem múslímar og kristnir menn geti vel búið saman. „Við erum öll manneskjur og þetta er bara trú. Mér finnst auð- velt að opna hjarta mitt fyrir Íslendingum og verða náinn þeim. Mér finnst það á ábyrgð innflytj- enda að einangra sig ekki og verða frekar hluti af íslensku samfélagi. Þeir sem upplifa samfélagið lokað og að það sé svo erfitt að kynnast Íslendingum þurfa að líta í eigin barm. Þeir þurfa að breyta sjálfum sér, verða jákvæðari og vongóðir, en ekki bara gagnrýna samfélagið. Ef þú lokar sjálfum þér þá nærðu að sjálfsögðu ekki sambandi við neinn.“ Ég átti mjög erfitt með að treysta og þurfti að berjast við að treysta sjálfum mér og muna hver ég í raun og veru væri. Þegar ég kynntist konunni minni árið 2009 var ekki auðvelt að opna hjartað á ný. Ég þorði ekki að segja henni of mikið og hún fékk ekki einu sinni að vita mitt raunverulega nafn. Ibrahem og Lina eignuðust dótturina Yasmin Ibrahem A.M Faraj fyrir fjórum árum. Ibrahem lítur á Yasmin sem Íslending enda er hún fædd hér á landi. Hann er óendanlega þakklátur fyrir hversu mikla möguleika hún hefur í fram- tíðinni og finnst yndislegt að horfa á hana vaxa úr grasi í heilbrigðu samfélagi. Hann mun fara með dótturina til Líbíu í haust þar sem hún mun hitta ömmu sína og frændfólk í fyrsta skipti. Með konu sinni og barni á Akranesi 1969–2011 Einræðisherrann Muammar Gaddafi réð ríkjum í Líbíu í 42 ár. Honum var steypt af stóli í borgarastyrjöld árið 2011 sem stóð yfir í hálft ár eða þar til uppreisnarsveitir yfirtóku síðustu borgina sem laut stjórn Gaddafis. LÍBÍA 2012 Fyrstu frjálsu kosningarnar í landinu í meira en sextíu ár voru svo haldnar árið 2012. Mikil upplausn hefur þó ríkt í Líbíu eftir byltinguna og standa stjórnvöld höllum fæti. Aldrei hefur tekist að stilla almennilega til friðar í landinu og vígahópar sem stofnaðir voru í styrjöld- inni berjast sín á milli og á móti stjórnvöldum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.