Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.08.2014, Qupperneq 25

Fréttablaðið - 02.08.2014, Qupperneq 25
atvinna Allar atvinnuauglýsingar vikunnar á visir.isSÖLUFULLTRÚAR Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441 VIÐ LEITUM AÐ YFIRÞJÁLFARA HJÁ YNGRI FLOKKUM KNATTSPYRNUDEILDAR Yfirþjálfari hefur yfirumsjón með öllu faglegu barna- og unglingastarfi knattspyrnudeildar í samráði við barna- og unglingaráð og framkvæmdastjóra. Leitað er að kraftmiklum leiðtoga í fullt starf sem hefur brennandi áhuga á að vinna með Stjörnunni að uppbyggingu öflugustu yngri flokka landsins í knattspyrnu. Knattspyrnudeild Stjörnunnar er ein metnaðarfyllsta knattspyrnudeild landsins. Barna- og unglingastarf deildarinnar ber ábyrgð á rekstri 2.-8. flokks og eru skráðir iðkendur deildarinnar nú 750. Hjá knattspyrnudeild starfa um 40 faglega sterkir og metnaðafullir þjálfarar. Starfssvið yfirþjálfara yngri flokka • Fagleg forysta um þjónustu við iðkendur. • Uppbygging mannauðs og liðsheildar ásamt ábyrgð á þjálfaramálum. • Yfirumsjón með skipulagi og daglegum rekstri starfsins. • Þjálfun hjá einum flokki og þátttaka í æfingum annarra flokka. • Forysta um þjálfunarleg gæði í starfinu og umbótastarf. • Stefnumótun, markmiðasetning og áætlanagerð í samvinnu við barna- og unglingaráð. Menntunar- og hæfniskröfur • Brennandi áhugi á uppbyggingu yngri flokka knattspyrnudeildar og innleiðingu stefnu hennar. • Jákvætt lífsviðhorf og framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar. • Frumkvæði, drifkraftur og stefnumótandi hugsun. • Þjálfaramenntun — viðbótarmenntun æskileg. • Framtíðarsýn og ósérhlífni. UMF Stjarnan · Stjörnuheimilið v. Ásgarð · 210 Garðabæ · 565 1940 · stjarnan@stjarnan.is Umsóknarfrestur er til og með 10. ágúst 2014 Umsækjendur eru beðnir að skila ítarlegri ferilskrá, kynningarbréfi og rökstuðningi fyrir hæfni til þess að sinna verkefninu til Jóhannesar Egilssonar, framkvæmdastjóra Stjörnunnar, á netfangið johannes@stjarnan.is, merkt yfirþjálfari knattspyrnudeildar. Framleiðslustarfsmaður - Fullt starf á Reykhólum Skrifstofustarfsmaður - 70% hlutastarf í Reykjavík Við leitum að starfsmanni í framleiðslu á Reyk hólum. Unnið er eftir vaktaplani og er starfs mönnum séð fyrir ferðum til og frá Reykjavík til Reykhóla, ásamt gistiaðstöðu á staðnum. Vegna aukinna umsvifa leitum við eftir starfsmanni á skrifstofu okkar í Reykjavík til að taka þátt í örum vexti fyrirtækisins. Nánari upplýsingar veitir Garðar Stefánsson, framkvæmdastjóri. Sími: 5379090 Umsóknir berist til Garðars á: gardar@nordurco.com Umsóknarfrestur er til og með 13. ágúst. Starfssvið: • Framleiðsla • Pökkun • Þrif • Annað tilfallandi Hæfniskröfur: • Sjálfstæð vinnubrögð og löngun til að læra nýja hluti • Hæfni í mannlegum samskiptum Starfssvið: • Reikningagerð og önnur bókhaldsvinna • Símsvörun, afgreiðsla og rafræn samskipti. Hæfniskröfur: • Góðir samskiptahæfileikar • Reynsla og þekking á DK hugbúnaði • Reynsla af skrifstofustörfum • Menntun sem nýtist í starfi sími: 511 1144

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.