Fréttablaðið - 02.08.2014, Page 56
NÆRMYND
Embla Guðrúnar
Ágústsdóttir
háskólanemi og verkefnastjóri
hjá Tabú
ALDUR 24 ára
FORELDRAR Ágúst Hjörtur Ingþórs-
son og Guðrún Hjartardóttir.
Embla hélt skelegga ræðu í Druslugöng-
unni 26. júlí.
„Embla er stöðugt að koma mér á óvart
á svo margan hátt og er afar einbeitt
í því sem hún tekur sér fyrir hendur,
réttsýn og kjarkmikil. Hún er ekki
bara dóttir mín heldur líka vinkona,
fyrirmynd og leiðbeinandi
og hefur náð að breyta
viðhorfum mínum til
margs. Það eru forrétt-
indi að eiga dóttur sem
hefur kjark og getu til
að breyta heiminum–
og mömmu sinni.“
Guðrún Hjartardóttir
móðir
„ Embla er gríðarlega ákveðin og veit
hvað hún vill í lífinu. Hún virðist ná
að gera flest sem hún reynir og gera
það vel. Þannig hefur það alltaf verið.
Hún hefur enga ókosti sem hún hefur
ekki náð að snúa upp í kosti. Ákveðnin,
sem allt að því jaðrar
við frekju, er það sem
hefur komið henni
þangað sem hún er
í dag og mun koma
henni áfram.“
Hjörtur Ágústsson
bróðir
„ Hún er ótrúlega opin og hress og
alltaf til í allt. Þar af leiðandi er gaman
að vera í kringum hana. Ofboðslega
þver og þrjósk og getur gert nákvæm-
lega það sem henni sýnist en líka mjög
klár og fróðleiksfús og með puttann
á púlsinum. Svo er hún með mikið og
stórt mannrétt-
indahjarta.“
Freyja
Haralds-
dóttir,
vinkona
og sam-
starfs-
maður
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
Opið alla helgina
í Engihjalla, Vesturbergi
og Arnarbakka
RAFTÆKJAVERSLUN • SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI 568 9090 • WWW.SM.IS
FÁÐU ÞRÁÐLAUSAN
AÐGANG AÐ
TÓNLISTINNI
Í ÖLLUM
HERBERGJUM