Fréttablaðið - 16.08.2014, Qupperneq 8
16. ágúst 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 8
Styrkir frá SORPU/Góða hirðinum
Ágóði af sölu nytjahluta í Góða hirðinum rennur til góðra málefna. Styrkirnir eru
veittir til líknar- og félagasamtaka og er markmiðið að styðja fólk til sjálfshjálpar.
Verkefnin geta til dæmis snúist um menntun, endurhæfingu og sjálfsbjörg og er
sérstaklega leitast við að styrkir nýtist efnaminni börnum og ungmennum.
Nánari upplýsingar eru á vef SORPU, www.sorpa.is.
Umsóknarfrestur fyrir haustúthlutun er til 1. september.
Vinnustaða-
námssjóður
Umsóknarfrestur til 29. ágúst
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
ÚKRAÍNA, AP Rússneska bílalestin
sem sögð var eiga að flytja hjálp-
argögn til Úkraínu beið við landa-
mærin í gær og fengu Úkraínu-
menn heimild til að leita í henni.
Óvíst var hvenær þeirri leit lyki.
Úkraínski herinn gerði hins
vegar árás í fyrrinótt á rússneskar
herbifreiðar sem höfðu fylgt bíla-
lestinni en héldu að sögn Úkraínu-
stjórnar inn yfir landamærin til
Úkraínu.
Petro Porosjenkó Úkraínuforseti
fullyrti þetta í gær og Úkraínuher
sagði herbifreiðarnar hafa verið
eyðilagðar með öllu. Rússnesk
stjórnvöld neita því hins vegar
að herlið frá þeim hafi farið yfir
landamærin.
Laurent Corbaz, yfirmaður hjá
Alþjóðanefnd Rauða krossins í
Evrópu, sagði að bráðabirgða-
samkomulag hefði náðst um að
rússnesku flutningabifreiðarnar
fengju að fara yfir landamærin
til Úkraínu, en aðeins ein í einu og
enginn nema einn ökumaður yrði
í hverri bifreið. Starfsmenn Rauða
krossins tækju þar við hjálpar-
gögnunum og dreifðu þeim í hinu
stríðshrjáða Luhansk-héraði án
herfylgdar.
Átökin í austanverðri Úkraínu,
sem hófust síðla vetrar, hafa nú
kostað nærri 2.100 manns lífið.
Hörðust hafa átökin verið á allra
síðustu vikum.
Ástandið hefur verið einna verst
í borginni Luhansk, sem hefur
verið að mestu án vatns og raf-
magns auk þess sem símasamband
er afar stopult.
Rússneskir ráðamenn hafa
ítrekað verið sakaðir um að kynda
undir ólgunni í austanverðri
Úkraínu og aðstoða uppreisnar-
menn, sem vilja margir hverjir
aðskilnað frá Úkraínu og samein-
ingu við Rússland.
Til stendur að utanríkiráðherr-
ar Úkraínu og Rússlands hittist í
Berlín á morgun, ásamt utanríkis-
ráðherrum Frakklands og Þýska-
lands.
„Við þurfum að ræða saman,“
sagði Pavlo Klimkin, utanríkis-
ráðherra Úkraínu, á Twitter-síðu
sinni í gær.
Utanríkisráðherrar Evrópusam-
bandsins ræddu ástandið í Úkraínu
á fundi sínum í Bruss el í gær, og
sendu frá sér sameiginlega yfirlýs-
ingu þar sem segir meðal annars:
„Evrópusambandið myndi líta á
allar einhliða hernaðaraðgerðir af
hálfu Rússa í Úkraínu, undir hvaða
yfirskini sem það er, þar á meðal
undir yfirskini mannúðaraðstoð-
ar, sem gróft brot á alþjóðalögum.“
gudsteinn@frettabladid.is
Gerðu árás á bílalest
Úkraínustjórn segir að brynvarðir bílar frá rússneska hernum hafi ekið yfir landa-
mærin í fyrrinótt með bílum sem fluttu hjálpargögn. Árás hafi verið gerð á þá.
BÍLALEST MEÐ HJÁLPARGÖGN Úkraínumenn fengu að leita í rússneskri bílalest
með hjálpargögn. NORDICPHOTOS/AFP
Við þurfum að ræða
saman.
Pavlo Klimkin,
utanríkisráðherra Úkraínu.