Fréttablaðið - 16.08.2014, Page 18
16. ágúst 2014 LAUGARDAGUR| SKOÐUN | 18
Eitt af fyrstu verkum
ríkisstjórnarinnar að
hausti er að leggja fram
fjárlagafrumvarp fyrir
næsta starfsár. Það frum-
varp vekur alltaf mikla
athygli enda segir það til
um hvernig ríkisstjórnin
ætlar að útdeila fjármagni
þjóðarinnar.
Undanfarið hefur farið
fram umræða um að
stofnanir ríkisins séu að
keyra fram úr fjárlaga-
heimildum og hafa heil-
brigðisstofnanir verið nefndar í
þeirri umræðu, þó eink-
um Landspítalinn.
Starfsemi sjúkrahúsa
er þess eðlis að erfitt er
að áætla nákvæmlega
um kostnað þeirra. Hægt
er að taka meðaltöl yfir
fjölda sjúklinga og legu-
tíma þeirra undanfarinna
ára en slíkar forsendur
geta orðið rangar á auga-
bragði. Frávik frá áætlun-
um sjúkrahúsa geta kost-
að gríðarlega fjármuni.
Sem dæmi má nefna
auknar innlagnir á vökudeild
Landspítalans. Í áætlunum er gert
ráð fyrir 12-16 börnum en innlögð
börn hafa verið yfir 20 meirihluta
ársins. Það kostar sjúkrahúsið um
60 milljónir aukalega samkvæmt
fréttaflutningi um málið. Ég held
að við séum öll sammála um að
slíkan kostnað teljum við ekki
eftir okkur að greiða.
Heilbrigðisstofnanir hafa lög-
bundið hlutverk sem þeim ber
að sinna. Þær taka á móti þeim
sem þangað leita og gera það sem
nauðsyn krefur til að koma þeim
á fætur og þannig aftur út í þjóð-
félagið eða bæta líðan þeirra sem
ekki munu ná bata. Þær hafa ekki
möguleika á að vísa skjólstæðing-
um sínum annað og þá sérstaklega
ekki Landspítalinn. Hann er oft og
tíðum eina heilbrigðisstofnunin
sem getur leyst ákveðin vandamál
skjólstæðinga heilbrigðiskerfisins.
Ég veit af eigin raun að ekki er
verið að fara illa með fé almenn-
ings innan ríkisrekinna heilbrigð-
isstofnana. Dregið hefur verið
saman í rekstri þeirra svo um
munar og getur hvaða heilbrigðis-
starfsmaður sem er verið til vitnis
um það. Heilbrigðisstarfsmenn og
stjórnendur hafa unnið þrekvirki
við að halda uppi gæðum þjónust-
unnar þrátt fyrir minna fjármagn.
Ég hvet ríkisstjórnina til að
leggja áherslu á að efla heilbrigð-
iskerfið líkt og kveðið er á um í
stjórnarsáttmálanum þegar fjár-
lög næsta árs verða samin. Gera
þarf raunhæf fjárlög sem gera
stofnunum kleift að standast þann
ramma sem um þær eru settar.
Það vilja allir Íslendingar hafa
aðgang að góðri, öflugri og öruggri
heilbrigðisþjónustu þegar þeir
þurfa á henni að halda og ég tel
það skyldu ríkisstjórnarinnar að
tryggja að slík þjónusta sé í boði.
Tryggjum öfl uga og örugga heilbrigðisþjónustu
Í dag ganga sóknarbörn í
Seljasókn að kjörborðinu.
Í fyrsta sinn í tæp þrjátíu
ár fara fram almennar
prestkosningar í Reykja-
vík. Aðdragandinn að
þessum kosningum er
sá að á vormánuðum fór
um það bil helmingur
sóknarbarna í Seljasókn
fram á að þegar valinn
yrði nýr sóknarprestur
yrði það gert með þess-
um hætti. Nú hefur því skap-
ast stórkostlegt tækifæri, þar
sem nýr sóknarprestur verður
kjörinn af söfnuðinum. Ég hef
boðið mig fram til þeirrar þjón-
ustu og starfa. Ég hef starfað við
Seljakirkju undanfarinn áratug,
fyrst sem starfsmaður í æsku-
lýðsstarfi en var svo vígður sem
prestur til kirkjunnar árið 2007
og því mun þessi kirkja ávallt
skipa sérstakan sess í huga mér.
Á þessum tíma hef ég fengið að
njóta þess að starfa með þessum
góða söfnuði og ganga með fólki
á stærstu gleðistundum
lífsins sem og í gegnum
dimma dali þegar sorg-
ir og þrengingar steðja
að. Jafnframt hef ég lagt
mig fram, ásamt frá-
bæru samstarfsfólki í
kirkjunni, um að tryggja
það að safnaðar starfið
í Seljakirkju sé lifandi
og kröftugt og þar finni
fólkið sig velkomið. Við
eigum að leitast við að
bjóða upp á ólíka starfsþætti
fyrir alla aldurshópa sem sam-
einast í kirkjunni undir merkj-
um Jesú Krists.
Í þessum kosningum legg ég
mitt starf undir og þess vegna
bið ég um stuðning að fá að leiða
starfið í Seljakirkju næstu árin.
Í þessum kosningum sem öðrum
skiptir hvert atkvæði máli og
þess vegna vona ég að söfnuður-
inn nýti þetta einstaka tækifæri,
mæti á kjörstað og láti sig þetta
mikilvæga málefni varða. Guð
blessi ykkur öll.
Prestkosningar
í Seljasókn
Afar ógeðfelld og óvægin
umræða fór fram um mús-
lima og byggingu mosku í
aðdraganda borgarstjórn-
arkosninganna í maí síðast-
liðnum. Upphafið má rekja
til umdeildra ummæla odd-
vita Framsóknarflokks-
ins. Umræðan sem fór af
stað í kjölfarið var mun
grófari í garð múslima en
þekkst hefur. Ein af ástæð-
unum er vafalítið sú að
opinberar persónur – fram-
bjóðendur til borgarstjórn-
ar og áhrifafólk – gáfu
umræðunni samfélagslegt sam-
þykki með orðum sínum og gjörð-
um. Það er í það minnsta niður-
staða umfangsmikillar greiningar
á hatursorðræðu í ummælakerfum
íslenskra netfréttamiðla sem Bjarn-
ey Friðriksdóttir, doktorsnemi í
Evrópulöggjöf, vann að frumkvæði
mannréttindaráðs Reykjavíkur og
var nýverið kynnt. Greininguna má
nálgast á vef Reykjavíkurborgar
www.reykjavik.is.
Hótað lífláti
Sá hluti úttektarinnar sem snýr að
moskumálinu byggir á um tæplega
6.000 ummælum. Þar má finna
ummæli sem gætu verið skilgreind
sem hatursorðræða samkvæmt
almennum hegningarlögum, t.a.m.
var fyrrverandi formanni Félags
múslima á Íslandi hótað lífláti. Á
umræðuþráðum eru ummæli sem
einkennast af nýrasisma, kynþátta-
hyggju og þjóðernishyggju. Rauður
þráður í þessum ummæl-
um er að hættulegt sé að
leyfa byggingu mosku, það
muni leiða til þess að mús-
limum fjölgi gríðarlega
mikið og að þeir taki að
lokum yfir landið. Í mörg-
um tilfellum settu þátttak-
endur inn slóðir á mynd-
bönd sem ætlað er að sýna
fram á slæmar afleiðingar
þess að leyfa múslimum að
búa á Íslandi og byggingu
mosku.
Samfélagslegt
samþykki áhrifafólks
Upphaf þessarar ógeðfelldu
umræðu má rekja til ummæla
oddvita Framsóknarflokksins, en
framboð flokksins mældist ekki
með mann inni í skoðanakönnun-
um þegar þau féllu. Það breyttist
skömmu eftir að umræðan hófst og
skilaði að lokum tveimur sætum í
borgarstjórn Reykjavíkur. Kjörnir
fulltrúar Framsóknarflokksins, þar
á meðal ráðherra jafnréttismála,
tjáðu sig ekki um málið í langan
tíma og leyfðu þannig umræðunni
að grassera.
Óstjórntækur flokkur
Þögn forsætisráðherra og for-
manns Framsóknarflokksins var
æpandi. Þegar hann loksins tjáði
sig um málið var innihaldið afar
rýrt. Hann hafnaði ekki málflutn-
ingi oddvitans og sagði þess í stað
umræðuna hér á landi ekki nógu
frjálslynda og að mjög fáir stjórn-
málamenn þyrðu að ögra og vekja
athygli á málum sem skipta máli.
Skömm Framsóknarflokksins er
mikil. Þrátt fyrir fjölmörg tækifæri
og úrsagnir úr Framsóknarflokkn-
um hefur flokksforystan og flokk-
urinn ekki gert hreint fyrir sínum
dyrum. Réttast væri að Fram-
sóknarflokkurinn bæðist formlega
afsökunar. Framsóknarflokkurinn
er ekki stjórntækur eins og málin
standa og er í rauninni ótrúlegt að
Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekki
gert athugasemdir við þetta útspil
samstarfsflokksins í ríkisstjórn.
Fjölbreytt þjóðfélag
Íslenskt þjóðfélag er fjölbreytt og
því ber að fagna. Að mati mannrétt-
indaráðs Reykjavíkur er mikilvægt
að uppræta hinar ýmsu staðalmynd-
ir m.a. þjóðerna og trúarbragða,
líkt og fram kemur í bókun ráðs-
ins í tilefni af útgáfu greiningar-
innar. Til þess þarf að efla fræðslu
og umræðu og temja sér virðingu
gagnvart samborgurum sínum.
Virðingarvert væri ef Framsókn-
arflokkurinn gerði einmitt það og
bæðist afsökunar á hlut sínum í
moskumálinu.
Framsókn hatursins
Mörgum svelgdist eflaust
á þegar þeir heyrðu um
fyrirhugað bann á kraft-
miklar ryksugur sem
ganga á í garð um næstu
mánaðamót. Íslendingar
eru oft lítið hrifnir af evr-
ópskri forræðishyggju og
hafa einnig sérstaka ást á
krafti, enda eru örugglega
til breyttar ofurryksugur á
einhverjum heimilum sem
auðveldlega geta gleypt
meðalgæludýr án þess að
hósta. Annað eins höfum við nú
gert með saklausa jeppa sem breytt
hefur verið í fjallaófreskjur sem
illa passa við eðlilegar innanbæjar-
samgöngur. Þessar nýju evrópsku
reglur eiga að tryggja neytendum
betri ryksugur sem eru hljóðlátari,
þéttari og orkunýtnari. Þrátt fyrir
að hafa ryksugað í áratugi hef ég
lítið vit á gæðum þessara heimil-
isvina en starfs míns vegna vil ég
aðeins koma inn á orkuþáttinn.
Afl og orkunotkun
Þegar orkusparandi kröfur á vörur
lenda á Íslandsströndum koma
ævinlega upp efasemdaraddir um
gagnsemi slíkrar forræðishyggju.
Íslendingar búa jú við þá einstöku
aðstæður að allt rafmagn fram-
leitt hér á landi er bæði ódýrt og
umhverfisvænt. Auk þess býst ég
við að margir telji að orkunotkun
sem brúkuð er á tæki sem nýtt er
í tiltölulegan stuttan tíma í senn
skipti varla sköpum. Hér skiptir
orkumagnið reyndar minna máli
en aflið sem markmiðið er að tak-
marka. Að kveikja á 2.200W ryk-
sugu krefst nefnilega sama afls
og ræsing á 200 sparperum. Við
Íslendingar eigum nóg af glæsileg-
um virkjunum sem geta framleitt
óhemju magn af rafmagni. Þess-
ar sameiginlegu eignir okkar eru
dýrar í byggingu og arður okkar af
þeim byggist að verulegu leyti á því
að nýtingin sé góð. Stór-
iðjan er í því tilfelli mjög
heppilegur kaupandi þar
sem hún tekur við fram-
leiðslunni nánast 24 tíma
á dag allan ársins hring.
Ryksuga er hins vegar
slæmur kaupandi raforku
því hún heimtar mikið afl
en í mjög skamman tíma.
Sett í samhengi
Búðarhálsvirkjun er nýj-
asta stórvirkjun Íslendinga
en hún er með uppsett afl upp á 95
MW og framleiðslugetu upp á 585
GWst. Ef Búðarhálsvirkjun væri
ótengd dreifikerfi og myndi selja
beint til notenda þá væri áhugavert
að bera saman tvo mögulega orku-
kaupendur, þ.e. álver og ryksug-
ur. Gerum ráð fyrir hefðbundnu
álveri og ryksugum, 2.200W, sem
keyrðar væri einu sinni í viku, 20
mínútur í senn. Á einu ári myndi
álverið kaupa og nota allar 585
gígavattstundirnar en ryksugurn-
ar myndu aðeins kaupa 1,6 GWst.
Báðir notendur þyrftu samt sem
áður 95 MW virkjun. Það er því
talsvert fengið með því að tak-
marka afl tækja svo framarlega
sem ekki er gengið á gæðin. Þegar
við erum sameiginlegir notendur
risaraforkukerfis eigum við oft
erfitt með skilja áhrif hvers og
eins á kerfið. Ef við værum hins
vegar íbúar í blokkinni Sótlundi 56
sem væri ótengd raforkukerfinu og
dísilrafstöð mallaði í sameigninni
þá væri dæmið augljósara. Þegar
Auðbjörg gamla í kjallaranum
ákvað að kaupa 2.200 W ryksugu,
eins og allir hinir áttu í blokk-
inni, þá sló rafmagninu alltaf út á
stórhátíðum. Hvort ætti húsfélag-
ið að kaupa aðra dísilrafstöð til að
anna nýjum afltoppi eða hreinlega
gefa Auðbjörgu glæsilega 1.400 W
ryksugu sem virkar alveg jafnvel
eða betur? Það er spurning.
Stóra ryksugubannið
HEILBRIGÐISMÁL
Ólafur G.
Skúlason
formaður Félags
íslenskra hjúkrunar-
fræðinga
SAMFÉLAG
Magnús Már
Guðmundsson
varaborgarfulltrúi
Samfylkingarinnar
og situr í mannrétt-
indaráði
➜ Þögn forsætisráðherra
og formanns Framsóknar-
fl okksins var æpandi. Þegar
hann loksins tjáði sig um
málið var innihaldið
afar rýrt.
ORKUMÁL
Sigurður Ingi
Friðleifsson
framkvæmdastjóri
Orkuseturs
TRÚMÁL
Ólafur Jóhann
Borgþórsson
prestur í Seljakirkju
ÚTHLUTUN ÚR HÖNNUNAR SJÓÐI
AURORU Í APRÍL 2014
FRESTUR TIL AÐ SKILA INN UM SÓKNUM
RENNUR ÚT 15. FEBRÚAR
HÖNNUNARSJÓÐUR Auroru hefur að mark miði að skjóta styrkum stoðum undir íslenska hönnun með því að veita hönnuðum og
arkitektum fjárhags lega aðstoð Nánari
upplýsingar um út hlutaða styrki og leið-
beiningar vegna um sókna er að finna á
www.honnunarsjodur.is Umsóknir og
fyrir spurnir sendist á info@honnunarsjodur.
isHönnunarsjóður Auroru