Fréttablaðið - 30.10.2014, Side 22

Fréttablaðið - 30.10.2014, Side 22
30. október 2014 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 22 Allt frá stofnun RÚV árið 1930 hafa skoðanir verið skiptar meðal þjóðarinnar um hlutverk þess og stöðu. Það er bara eðlilegt í heil- brigðu lýðræðissamfélagi, ekkert væri verra en þögn og skeytingarleysi. Íslenska þjóðin, eigandi RÚV, gerir miklar kröfur til þess að vel sé farið með það fé sem til þess rennur og það skili sér í sem allra bestri þjón- ustu, góðri og vandaðri dagskrá í útvarpi, sjónvarpi og á vefnum. Það er og verður síðan alltaf mats- og smekksatriði, en mestu skiptir að þjóðin treysti Ríkisútvarpinu og líti á það sem einn af burðarásum íslensks nútímasamfélags. Traustið grundvallaratriði Hlustenda- og notendakannanir eru bestu mælikvarðarnir á það traust sem fólk ber til fjölmiðla. Hér eru nokkrar beinharðar staðreynd- ir: Segja má að nánast allir lands- menn njóti dagskrár RÚV á einn eða annan hátt í viku hverri. 87% landsmanna horfa á RÚV að meðal- tali í hverri viku, 30% hlusta á Rás 1 og 62% á Rás 2 í viku hverri. Vefur- inn ruv.is er í 5. sæti í vefmælingu Modernus með 212 þúsund notendur í viku 41 (6. til 10. október s.l). Í við- horfskönnun sem Capacent gerði í september 2013 sögðust 70,5% landsmanna telja RÚV vera mikil- vægasta fjölmiðilinn fyrir þjóðina og þrátt fyrir stöðugar umkvartan- ir stjórnmálamanna nýtur frétta- stofa RÚV meira trausts en nokk- ur annar fjölmiðill. Í könnun sem MMR gerði í desember 2013 sögð- ust 76,5% þeirra sem tóku afstöðu bera mikið traust til Fréttastofu RÚV. Þetta sýnir glögglega að enda þótt RÚV eigi sér nokkra háværa og áhrifamikla óvildarmenn og -konur treystir íslenska þjóðin mjög vel þeim upplýsinga- og mannræktar- miðli sem RÚV er. Brugðist við vandanum Ég hef setið í stjórn RÚV frá því í byrjun þessa árs og þekki því nokk- uð vel til mála þar. Magnús Geir Þórðarson tók við starfi útvarps- stjóra um miðjan mars, kynnti breytingar í rekstrinum sem hann taldi nauðsynlegar og hlaut til þess fullt umboð stjórnar RÚV. Meðal þess var að stokka upp í fram- kvæmdastjórn, minnka yfirbyggingu og einfalda allar boðleiðir. Með öðrum orðum, minna bákn og meiri skilvirkni í rekstr- inum og starfseminni, allt í þágu betri þjónustu við þjóðina. Útvarpsstjóri og framkvæmda- stjórn hafa síðan unnið sleitulaust að því undanfarna fimm mánuði að hagræða í rekstri RÚV og fá skýrari mynd af fjárhagnum. Eins og fram hefur komið hjá útvarps- stjóra og formanni stjórnar RÚV er nú unnið hörðum höndum að því að koma skikk á fjármál RÚV, leigja út hluta hússins, selja lóð og/eða hús- næði, en ekki síst að fá Alþingi til að samþykkja þá eðlilegu beiðni að RÚV fái þann markaða tekjustofn sem því er ætlað, útvarpsgjaldið, óskertan. Hluta af útvarpsgjald- inu hefur ríkið notað í önnur verk- efni. Þessar skertu tekjur duga ekki fyrir óbreyttri starfsemi, en verði það látið renna óskert til RÚV, sem er líka heiðarlegra gagnvart skatt- greiðendum, ætti það að duga til að koma rekstrinum í jafnvægi. Stöðugt ræktarstarf Staðan er sannarlega ekki góð, það hefur verið vitað lengi, og á m.a. rætur sínar að rekja til þess að RÚV var gert að opinberu hluta- félagi árið 2007 og látið taka á sig óheyrilegar skuldbindingar. En nú er loks verið að gera eitthvað í mál- inu. Þess vegna er hann heldur hjá- rænulegur, sá heilagi vandlæting- artónn sem nokkrir fjölmiðla- og stjórnmálamenn hafa sent RÚV undanfarið. Þeir minna einna helst á foreldri sem hundskammar ung- linginn á heimilinu fyrir að drattast loks til að taka til í herberginu sínu. „RÚV á að rækta mann,“ segir góð kona stundum í mín eyru. Það er hárrétt, en þá þurfum við líka að rækta RÚV, hlúa að því og efla það til að geta tekist á við ýmis verk- efni sem markaðsfyrirtæki ræður ekki við. Þá munum við öll, íslenska þjóðin, uppskera ríkulega í enn fjöl- breyttara, umburðarlyndara og betra mannlífi. Mannræktarstarf RíkisútvarpsinsYfirvaldið boðar enn þyngri bókaskatt á heims- ins minnsta bókamarkað – skattahækkun á afurðina sem bókaþjóðin kennir sig við og skilgreinir sig út frá. Skattheimta á bækur skal nú hækka úr sjö prósentum í tólf. Þetta ku yfirvaldið gera til að einfalda kerfin og tilvistina. Engar rannsókn- ir liggja að baki, engar hug- mynda- og hagfræðilegar úttektir á því hvort menn- ing, tungumál og bókaþjóð þoli aukið skattaálag. Aðeins einföld hugmynd um einföldun sem er púss- uð og potað á blað. Svo veltist blaðið manna á milli þar til einhver gríp- ur og meitlar í stein. Orð eru lögð á borð og verða að lögum. Enginn veit alveg af hverju ekki var gripið í tauma áður en það var of seint. Ferli ákvarðana virðist oft á þessa lund á sögueyjunni. Þó er löngu vitað að undirstaða þess að viðhalda þjóðtungu er öflug útgáfa á prentuðu máli. Sú barátta er töpuð ef stjórnvöld snúa ekki vörn í sókn og beita sértækum aðgerðum til að auðvelda sem allra mest og víðast aðgengi að rituðu máli – fjöl- breyttum bókmenntum á auðugri tungu. Afnám bókaskatts væri liður í slíkri varnarbaráttu. Bókaútgáfa í landinu stendur nú þegar höllum fæti og minni forlög berjast í bökk- um. Barnabókatitlum fækkar og nýliðun í þeirri stétt er lítil. Útgáfa myndskreyttra íslenskra barna- bóka heyrir nú þegar nær sögunni til. Aukin skattlagning á greinina gæti veitt náðarhögg. Sjálfsmynd þjóðar Fótgönguliðar ganga þessa dagana frá Heródesi til Pílatusar til að biðja bókinni griða. Áheyrn hjá menntamálaráðherra hefur skilað skilningi og samúð ásamt óljósum vangavelt- um um mótvægisaðgerðir í formi styrkja. Áheyrn hjá viðskiptanefnd hefur skilað skilningi og samúð ásamt fyrirspurnum um mótvæg- isaðgerðir. En læsi og þjóð- tunga er ekki einkamál rit- höfunda og bókaútgefenda heldur hagsmunamál og sjálfsmynd heillar þjóðar. Því skýtur skökku við að ráðherra menntamála ferðist nú eyj- una þvera og endilanga og boði læsi og málrækt um leið og hann leggur harkalega til atlögu gegn bókaút- gáfu. Það er skrítinn skottís. Enska er okkar mál Með ört vaxandi rafmenningu þrengir mjög að bókinni, læsi og tungumáli. Kynslóðir vaxa sem beita í auknum mæli fyrir sig enskri tungu í daglegum tjáskipt- um. Sú þróun er ógnvænleg. Um það votta framhaldsskólakennarar og háskólakennarar sem lýsa hraðri þróun í eina átt. Ein öflugasta mót- vægisaðgerðin gegn þeirri þróun er að auðvelda sem mest aðgengi að rituðu móðurmáli, meðal annars með því að afnema bókaskatt. Það er jafnframt viðurkennd og meðvituð aðgerð í nágrannalöndum sem hafa metnað fyrir menningu og framtíð- arvon fyrir tungumál. Meistaradeild í bókaskatti Fimm Evrópulönd leggja ekki virð- isaukaskatt á bækur þar sem slíkt stríðir gegn menningar- og mennta- stefnum þessara þjóða. Meðal þeirra landa eru Bretland, Írland og Noregur sem þó eru ekki örsmá málsvæði líkt og Ísland og að auki með margfalt stærri bókamarkað en okkar litla samfélag. Tuttugu lönd eru með lægri en 7% bókaskatt og aðeins fjögur lönd Evrópu eru með 12% virðisaukaskatt á bókum eða meira. Við skipum okkur á bekk með þeim Evrópumeisturum í bóka- skattheimtu ef af hækkun verður. Skilaboð frá sögueyju Hækkun virðisaukaskatts á bækur sendir sterk skilaboð til landsmanna og nágrannalanda um þá menning- arstefnu sem stjórnvöld vilja standa fyrir. Skattahækkun á bækur sýnir framtíðarsýn fyrir bókmenntir, tungu og læsi í landinu. Alþjóðlegi bókmenntaheimurinn er ekki stór og það fregnast fljótt ef stjórnvöld á sögueyju leggjast af fullum þunga á bókaútgáfu með skattaálögum. Slík tilraun hefur langvarandi afleiðing- ar, rétt eins og að naga af sér fót- inn. Útgefendur fækka fljótt titlum, aðgengi ungra höfunda minnkar enn. Nýjum höfundum, einkum barnabókahöfundum, fækkar hratt og kostnaðarsamasta og metnaðar- fyllsta útgáfan hverfur af sjónar- sviðinu. Stjórn Rithöfundasambands Íslands krefst þess að bókaskattur verði aflagður með öllu og þar með snúið af þeirri ógæfuleið sem slig- að gæti stóran hluta bókaútgáfu í landinu og haft hraðvirk hrunáhrif á viðkvæma menningu bókaþjóðar. Að naga af sér fótinn Gerum ráð fyrir ríkið ákveði einn daginn að nú geti fólk ekki lengur keypt brauð í kjörbúðum. Fara verði í sérstök bakarí til þess. Hver yrðu líkleg við- brögð fólks við slíku vald- boði? Samkvæmt könnun, sem birt var nýlega varð- andi frumvarp til laga um að heimilt verði að selja áfengi í matvöruverslun- um, er sennilegt að viðbrögð fólks yrðu eftirfarandi: Um 30% fólks myndi finnast það skerðing á einstaklingsfrelsi að fá ekki að kaupa sér brauð í næstu kjörbúð um leið og það keypti ýmiss konar annan varning til heimilisins. Að þurfa að taka á sig krók eftir einu brauði sem vantaði í matarkörf- una fæli í sér hömlur og óþægindi sem það kærði sig ekki um. Á hinn bóginn er líklegt út frá ofannefndri skoðanakönnun að um 70% fólks yrði hæstánægt með þessa lagasetningu. Þetta fólk kæmi ekki auga á með hvaða hætti persónu- frelsi þeirra hefði verið skert því það gæti jú áfram keypt sér brauð. Það þyrfti að vísu að hafa meira fyrir því, en brauðið fengi það að lokum. Sambærilegar vörur? Nú kann einhver að hugsa, að ekki sé um sambærilega vöru að ræða, vín og brauð. Vín geti vald- ið skaða, bæði fyrir einstak- linginn og samfélagið, sé þess neytt í óhófi. Því er til að svara, að hið sama má segja um brauð. Gæti menn ekki hófs í brauðáti, fitna þeir og líkur aukast á hjarta- og æða- sjúkdómum með tilheyrandi kostn- aði fyrir heilbrigðiskerfið. Vín og brauð eru því sambærilegar vörur í þessu samhengi. Báðar vörurnar eru löglegar, báðar valda skaða við óhóflega neyslu og báðar kalla fram ánægju sé þeirra neytt af skynsemi. Sjónarmiðin sætt En viti menn! Til er lausn sem gerir báðum þessum hópum til hæfis. Annars vegar getum við leyft 30% hópnum að kaupa vín og brauð í kjörbúðum en einnig í vínbúðum og bakaríum. Hins vegar skulum við leyfa 70% hópnum að sniðganga vín og brauð í matvöruverslunum og gera sér í staðinn sérstaka ferð í vínbúð eftir víni og aðra sérstaka ferð í bakarí eftir brauði. Þannig geta 30 prósentin og 70 prósentin orðið vinir og lifað hamingjusömu lífi ævina á enda. Vín eða brauð? RÚV Friðrik Rafnsson þýðandi og stjórn- ar maður í RÚV MENNING Kristín Helga Gunnarsdóttir formaður Rithöfundasam- bands Íslands ➜ Þessar skertu tekjur duga ekki fyrir óbreyttri starfsemi. Nánari upplýsingar er að finna á www.thjodarspegillinn.hi.is Allir velkomnir - Aðgangur ókeypisÞ jó ða rs p eg ill in n 20 14 Rannsóknir í félagsvísindum XV Opnir fyrirlestrar Föstudaginn 31. október 2014 kl. 9-17 við Háskóla Íslands • Félags- og mannvísindadeild • Félagsráðgjafardeild • Hagfræðideild • Lagadeild • Stjórnmálafræðideild • Viðskiptafræðideild ➜ Báðar vörurnar eru löglegar, báðar valda skaða við óhófl ega neyslu ... ➜ Fimm Evrópulönd leggja ekki virðisaukaskatt á bækur þar sem slíkt stríðir gegn menningar- og mennta- stefnum þessara þjóða. VIÐSKIPTI Guðmundur Edgarsson málvísindamaður

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.