Akureyri


Akureyri - 17.05.2012, Side 8

Akureyri - 17.05.2012, Side 8
8 17. MAÍ 2012 Söngur á Siglufirði Blásið var til mikilla söngtónleika í Siglufjarðarkirkju sunnudaginn 5. maí 2012. Til leiks komu Karlakór Akureyrar-Geysir undir stjórn Val- mars Väljaots, Karlakór Siglufjarð- ar en stjórnandi hans er Guðrún Ingimundardóttir, og Kvennakór Akureyrar sem Daníel Þorsteinsson stjórnar. Karlakór Akureyrar-Geysir hóf leikinn. Kórinn er vel skipaður hvað fjölda snertir. Í röddum hans eru þó gallar, svo sem í 1. tenór, sem er ekki verulega styrkur á háum tónum og einnig ekki alveg hreinn. 2. bassi mætti líka vera heldur breiðari og fyllri einkum á lægstu tónum. Báðar þessar raddir mætti án efa lagfæra mikið með ákveðinni raddþjálfun, af því að í raun virðist ekki efniviðinn vanta. Kórinn gerði nokkuð vel í nokkrum þeirra laga sem hann flutti. Nefna má til dæmis „Ár vas alda“, sem flutt var af ákveðni og þrótti, og einnig „Nú yfir heiði háa“, þar sem náðist fram fjörlegur og vel þéttur flutningur. Næstur til leiks var Kvennakór Akureyrar. Föngulegur hópur kvenna sem hóf söng sinn á laginu „Ísland ögrum skorið“. Hér kvað við fagran tón. Hljómur kórsins í þessu lagi var sérlega samstilltur og þéttur. Styrkbreytingar í hinu besta lagi og flutningur allur greinilega mót- aður af miklum metnaði bæði söngstjóra og kórfélaga. Hið sama var um þjóðlagasyrpu úr safni sr. Bjarna Þorsteinssonar í útsetningu Jóns Þórarinssonar tónskálds og átti hún sérlega vel við á þessum stað, auk þess sem í syrpunni gaf að heyra nokkur sjaldheyrð lög úr safni sr. Bjarna, svo sem síðasta lag syrpunnar, „Sólin þaggar“, sem Jón Þórarinsson hefur klætt í skemmti- legan búning í útsetningu sinni. Ann- að lag á söngskrá kvennakórsins sem mikla athygli vakti var japanska barnalagið „Hotaru koi“ í útsetn- ingu eftir Ogura, en það gerði um- talsverðar kröfur sem kórinn stóðst. Flutningur kórsins á lagi Megasar „tvær stjörnur“ stakk nokkuð í stúf. Það verkaði líkt og kantað og skorti flæði, sem aftur náðist í næsta lagi, „Árstíðir“ eftir söngstjórann við ljóð Önnu Dóru Gunnarsdóttur, eins kór- félaganna, en flutningur þess fór vel úr hendi. Kvartett skipaður félögum úr Karlakór Akureyrar-Geysi, þeim Erlingi Ara, Sigurgeiri Sigurð- ar, Baldvini Aðalsteins og Þórólfi Ingvars, flutti tvö lög við undirleik Valmars Väljaots. Það er lofsvert að mynda kvartett. Það form sönghóps á sér glæsilega sögu. Til þess að svo takist til að þetta lýsingarorð megi nota verður mjög vel að takast, af því að nóg er um kvartetta, þó liðnir séu, sem bera má saman við. Því miður á þessi kvartett nokkuð langt í land til þess að samanburður verði gerður honum hallkvæmur. Það táknar ekki að láta eigi deigan síga. Miklu heldur ber að halda á og stefna áfram, því að nú á tímum skortir einmitt góðan söngflokk af þessu tagi hér á landi og þessi gæti orðið það ef unnið er af metnaði og aga. Karlakór Siglufjarðar er því mið- ur afar fáskipaður. Því kom hann ekki fram sér á parti á tónleikunum í Siglufjarðarkirkju heldur bættust söngmenn hans í raðir Karlakórs Ak- ureyrar-Geysis og flutti hinn aukni kór fjögur lög undi lok tónleikanna. Hinn stækkaði kór var nánast ótrú- lega miklu annar en Karlakór Akur- eyrar-Geysir hafði verið einn og sér. Hljómur varð fyllri, tónn þéttari og styrkur ákveðnari. Sérlega vel tókst flutningur á fyrsta lagi hinna sam- einuðu kóra, en það var „Ísland (þú álfu vorrar...), sem Valmar Väljaots stjórnaði, þar sem ríkti þróttur og náðist góður stígandi. Einnig fórst vel úr hendi hið klassíska karlakór- alag „Brennið þið vitar“ sem Guðrún Ingimundardóttir stýrði. Ljóst er að siglfirskir karlar geta sungið – og það vel. Þeir ættu fleiri að flykkjast í kórinn svo að vegur hans verði sá sem efni virðast geta staðið til. Tónleikunum lauk á því að allt söngfólkið, karlar og konur, sam- einaðist í mikinn blandaðan kór sem flutti „Yfir voru ættarlandi“ undir stjórn Daníels Þorsteinsson- ar. Að flutningi þessa lags loknum vottuðu tónleikagestir aðkomu- og heimamönnum þakklæti sitt með langvinnu lófataki. Það var við hæfi. Samverustundin var einkar ánægju- leg. a Haukur Ágústsson Skrifar tónleikagagnrýni RÁÐVILLTUR GEKK HANN svanurinn yfir ísinn á Másvatni. Vissi kannski af veðrabrigð- unum sem í loftinu lágu, snjókomunni, kuldanum. BÞ Helga Kvam allskonar.is MATARGATIÐ ALLSKONAR.IS Bláskel með tómötum & chili UNDIRBÚNINGSTÍMI 5 MÍNÚTUR ELDUNARTÍMI 8-10 MÍNÚTUR Kræklingurinn er ljúffengur og full- ur af próteini og járni og því bráð- hollur og fyrir utan að taka stuttan tíma að útbúa þá er hann alls ekki dýr matur. Auðvelt er að stækka þessa upp- skrift, þú reiknar með 500gr af kræk- lingi á mann og eykur annað hráefni í hlutfalli við það. Með kræklingnum er nýbakað brauð og smjör til að dýfa í sósuna alveg nauðsynlegt. BLÁSKEL FYRIR 2 » 3 tómatar, grófsaxaðir » 2 msk ólífuolía » 1 hvítlauksrif, saxað » 2 skallotulaukar, saxaðir » 1 rautt chili, fræhreinsað og saxað » 1 glas hvítvín » 1 msk tómatpúrra » smá sykur » 1 kg bláskel » nokkur lauf fersk basilikka Settu olíuna í stóran pott og hit- aðu. Þegar olían er orðin heit þá seturðu hvítlauk, skallottulauk og chili út í og steikir í 3 mínútur þar til mjúkt. Helltu nú víninu út í ásamt tómötunum, tómatpúrrunni og sykri. Þú getur notað grænmetissoð eða eplasafa í staðinn fyrir vínið, eða bjór /pilsner. Sjóddu í 2 mínútur til að blanda öllu vel saman. Settu nú bláskelina út í pottinn, hrærðu í og settu lokið þétt á pottinn. Þú þarft að sjóða í 4-5 mínútur og hrista pottinn vel annað slagið, eða þar til kræklingurinn hefur opnað sig. Ef einhverjar skeljarnar eru lok- aðar eftir suðuna, þá hentu þeim. Settu í stóra skál og stráðu gróf- saxaðri basilikku yfir. Njóttu vel!

x

Akureyri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.