Akureyri - 17.05.2012, Qupperneq 10
10 17. MAÍ 2012
Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir starfsemi Sagaplasts ehf.
við Rangárvelli, Akureyri. Samkvæmt tillögunni verður heimilt að taka á móti allt
að 600 tonnum af spilliefnum og 300 tonnum af raf- og rafeindatækjaúrgangi til
meðhöndlunar á ári. Samkvæmt tillögunni verður gildistími starfsleyfis til næstu
sextán ára.
Tillagan, ásamt starfsleyfisumsókn og fylgigögnum, mun liggja frammi til kynn-
ingar í afgreiðslu Ráðhúss Akureyrar, Geislagötu 9, Akureyri, til 4. júlí 2012. Starfs-
leyfistillögu og önnur gögn má einnig nálgast á heimasíðu Umhverfisstofnunar.
Öllum er frjálst að gera athugasemdir við starfsleyfistillöguna en þær skulu vera
skriflegar, undirritaðar með nafni og heimilisfangi og sendar Umhverfisstofnun.
Frestur til að skila inn athugasemdum er til 4. júlí 2012.
TILLAGA AÐ STARFSLEYFI
Athugasemdafrestur er til 4. júlí 2012
Akureyri - Egilsstaðir - Ísaörður - Mývatn - Patreksörður
Reykjavík - Snæfellsnes - Vestmannaeyjar
AÐSEND GREIN
Eyjafjörður; vagga nýj-
unga í menntamálum
Undanfarin ár hef ég sótt metnað-
arfullar og áhugaverðar ráðstefn-
ur Miðstöðvar um skólaþróun við
Háskólann á Akureyri. Ég hef not-
ið velvilja og stuðnings yfirboðara
minna við Verzlunarskóla íslands í
þessari norðansókn minni og skólinn
vonandi notið góðs af lærdómi mín-
um. Undanfarin tvö skipti hef ég svo
skeytt heimsókn í framhaldsskóla á
Eyjafjarðarsvæðinu ýmist framan
eða aftan við ráðstefnurnar.
Vorið 2011 sótti ég ráðstefnuna
Að vefa serk þann er ekki bíta járn.
Einkum er mér minnisstætt erindi
Dr. Monika Vinterek um rannsóknir
hennar á framúrskarandi kennslu,
og frásögn Ágústs Ólasonar af þró-
unarstarfi í Norðlingaskóla. Degin-
um áður heimsótti ég Menntaskólann
á Akureyri, einkum með það fyrir
augum að kynna mér Íslandsáfang-
ann sem hefur verið þar í þróun.
Áfanginn er stór, þverfaglegur og
mjög metnaðarfullur. Ég hef ríka
faglega ástæðu til að sýna þessu
áhuga þar sem þarna er verið að
vinna frumkvöðlastarf í anda nýrra
skólalaga og námskráa. Eldmóður
og áhugi kennaranna leyndi sér
ekki, og var ekki alveg fjarverandi
hjá nemendum heldur. Þarna þurfa
nemendur að nota nýja tækni til að
nálgast viðfangsefni á fjölbreyttan
og skapandi hátt, þau þurfa að sýna
frumkvæði, ábyrgð og nota sam-
skiptahæfileika í mikilli hópvinnu.
Áherslan á Ísland og nærumhverfið
er mjög spennandi, og sú mikla þver-
faglega samvinna kennara sem felst
í verkefninu er greinilega krefjandi,
en jafnframt gefandi.
Ég sótti svo núna rétt um daginn
ráðstefnuna Hugur ræður hálfum
sigri, og fræddist þar um söguað-
ferðin (storyline) og þróun leiklist-
arbrautar við Fjölbrautaskólann
í Garðabæ og ýmislegt fleira. Í
kjölfarið heimsótti ég svo Mennta-
skólann á Tröllaskaga. Ég verð að
segja að ég er mjög hrifinn af nafn-
inu ‚Menntaskóli‘ – jafnvel smá, tja,
pönk í því.... Þarna er að vaxa úr
grasi nýr skóli, og hugsanlega ný
gerð af skóla. Ég hef áður heimsótt
skólann á Grundarfirði sem sver
sig í sömu ætt og verð að segja að
mér finnst þetta spennandi þróun.
Þarna er líka verið að vinna með
nýju lögin og ný sjónarmið en í öðru
samhengi og við aðrar aðstæður en
í MA. Lára Stefánsdóttir er þarna
með góðum hópi kennara og nem-
enda að þróa þetta áfram og margt
flott að gerast. Stór hluti nemenda
er á listabraut og svo eru þau að
þróa útivistarbraut í samstarfi við
björgunarsveitirnar. Stór hluti af
námi nemenda (u.þ.b. einn fjórði)
er svo frjálst val og áhugavert að
spá í hvernig þeir munu nýta það.
Skólinn er í samstarfi við Versló um
fjarnám og ég var í heimsókn í því
samhengi og ég held að þetta sé gott
dæmi um hvernig nútímatækni og
byggðaþróun getur spilað vel saman,
ef haldið er rétt á málum.
Skólaþróun er sem sagt í bullandi
gangi í Eyjafirðinum og spennandi
að fylgjast með því áfram! a
Ármann
Halldórsson
framhaldsskólakennari
Góð til að mossa
Nýlega setti hljómsveitin Brák smá-
skífu sína Tómhyggja á netið. Brák
er hugarsmíði Þorsteins Kára úr
Buxnaskjónum, hann sá alfarið um
að semja lögin og spila inn á plötuna.
Þetta er ótrúlega skemmtileg
plata og hún greip mig við fyrstu
hlustun. Það sem heillar mig er fjöl-
breytni laganna. Ef þig langar til að
dansa, liggja og stara upp í loftið eða
vera ber að ofan og mossa þá er þetta
platan fyrir þig.
Við fengum okkur kaffi saman og
ég spurði hann nokkurra leiðinlegra
spurninga.
“Nú er þetta ný hljómsveit, er þið
búnir að spila eitthvað?”
“Við höfum aðeins komið fram
einusinni en ætlum að koma fram
meira í sumar.”
“Hefur þú verið að vinna lengi að
þessari stórbrotnu plötu?”
“Vandamálið er að ég er alltof
fljótur að semja. Ég er búinn að vera
að semja lögin í vetur en ég fór síðan
og tók hana upp á tveimur dögum.
“Er eitthvað á plönunum hjá Brák?”
“Já, ég stefni á að flytja út en áður
ætla ég að gefa eina stærri plötu út
í sumar. Hún væri í svipuðum fíling
og Tómhyggja.
“Hvernig verður útgáfunni háttað?”
Það er góð spurning. Mér finnst
hallærislegt að gefa út brennanlega
diska. Ástæðan fyrir því er að ég
hugsa um þetta eins og listaverk.
Það kæmi líka til greina að gefa
þetta út á kassettum. Eintökin verða
líka gefins, gróði skiptir mig ekki
máli.
Þorsteinn fær frá mér fjóran og
hálfan brotinn trommukjuða fyrir
þessa meistaralegu plötu. Þannig að
þú ættir að fara inn á http://brak.
bandcamp.com, niðurhala plötunni
og láta alla ættingja þína hlusta á
hana.
Einnig geta áhugamenn um
draugapönk og pönk almennt sótt
sér tónlist eftir hljómsveitirnar Norn
og Ofvitarnir sem spila keimlíka tón-
list á síðunni http://www.pbppunk.
com/main/. a
Músík með
TRYGGVA ÞÓR
Hólmatún 1-3 og 5-9 – breyting á deiliskipulagi,
niðurstaða bæjarstjórnar
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 8. maí 2012 samþykkt breytingu á deiliskipulaginu
Hólmatún 1-3 og 5-9.
Það deiliskipulag sem nú er í gildi gerir ráð fyrir tveggja hæða verslunar- og þjónustuhúsi ásamt kjallara
og fjögurra hæða fjölbýlishúsi með 25-30 íbúðum ásamt bílakjallara. Með þessari deiliskipulags-
breytingu verður þess í stað gert ráð fyrir fimm tveggja hæða fjölbýlishúsum, hverju með fjórum
íbúðum, alls 20 íbúðir.
Tillagan var auglýst 29. febrúar með athugasemdafresti til 11. apríl 2012. Auglýsingar birtust í
Lögbirtingarblaðinu og Dagskránni. Skipulagsgögn voru aðgengileg í þjónustuanddyri Akureyrarkaup-
staðar, Geislagötu 9, 1. hæð og á heimasíðu Akureyrarkaupstaðar: www.akureyri.is/skipulagsdeild.
Þrjár athugasemdir bárust á auglýstum athugasemdatíma og var þeim svarað á fundi skipulags-
nefndar þann 25. apríl 2012. Gerðar eru eftirfarandi breytingar á áður auglýstum gögnum vegna
athugasemdanna: Byggingarreitur norðan Hólmatúns 1 er styttur og færður um 2 metra til suðurs.
Einnig eru lóðarmörk Hólmatúns 9 færð um 1.5 metra til vestur og byggingarreitur hússins er
stækkaður um 1.5 metra til vesturs.
Frekari upplýsingar er hægt að nálgast á skipulagsdeild Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð.
Hverjum þeim sem telur á rétt sinn hallað með samþykkt þessari er heimilt að skjóta máli sínu til
úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála með kæru sbr. 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
17. maí 2012
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar
Rangárvellir – breyting á deiliskipulagi,
niðurstaða bæjarstjórnar
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 8. maí 2012 samþykkt breytingu á deiliskipulagi
Rangárvalla.
Í tillögunni er gert ráð fyrir að gatnatengingu frá Hlíðarfjallsvegi verði hliðrað um 28 m til austurs
og að jarðvegsmön verði komið upp á lóðarmörkum að vestan meðfram Síðubraut og vestast á
lóðarmörkum að sunnan meðfram Hlíðarfjallsvegi. Þá verða byggingarreitir sameinaðir og stækkaðir
í einn byggingarreit til að mæta breytingum á sviði endurvinnsluiðnaðar og væntanlegri þörf fyrir
frekari byggingar og mannvirki á lóðinni.
Tillagan var auglýst 15. febrúar með athugasemdafresti til 28. mars 2012. Auglýsingar birtust í
Lögbirtingarblaðinu og Dagskránni. Skipulagsgögn voru aðgengileg í þjónustuanddyri Akureyrarkaup-
staðar, Geislagötu 9, 1. hæð og á heimasíðu Akureyrarkaupstaðar: www.akureyri.is/skipulagsdeild.
Athugasemd sem barst á auglýstum athugasemdatíma var svarað á fundi skipulagsnefndar þann
25. apríl 2012. Ekki var gerð breyting á áður auglýstum gögnum vegna athugasemdarinnar.
Frekari upplýsingar er hægt að nálgast á skipulagsdeild Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. Hæð.
Hverjum þeim sem telur á rétt sinn hallað með samþykkt þessari er heimilt að skjóta máli sínu til
úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála með kæru sbr. 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
17. maí 2012
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar