Akureyri


Akureyri - 17.05.2012, Síða 12

Akureyri - 17.05.2012, Síða 12
12 17. MAÍ 2012 “ Óábyrg umræða skaðar mennta- skólanema Menntamál hafa verið nokkuð til umfjöllunar á síðum Akureyrarblaðsins síðustu vikur. Nú er röðin komin að Jóni Má Héðinssyni, skólameistara Menntaskólans á Akureyri, en hann er harðorður í garð þingmanna og segir neikvæða umræðu þeirra bæði meiða og mæða ungmenni í framhaldsskólum. Jón Már, Akureyri vikublað hafði eftir skóla- meistara VMA á dögunum að fátækt kostaði suma nemendur skólans skólavist. Kannastu við sama vandamál í nemendahópi MA? Nei ekki beint en það koma á öllum tímum upp einhver tilvik þar sem nemendur mæta fyrirstöðu í skólagöngu sinni, veikindi for- eldra eða annað sem getur leitt til þess að fjárhagur þrengist. Í MA er styrktarsjóður, Nemendasjóður, nánast jafngamall skólan- um. Í hann hafa nemendur greitt og í hann geta þeir sótt og sjóðurinn hefur getað létt undir með nemendum í erfiðleikum. Úthlut- að er tvisvar á ári en stjórn sjóðsins skipa hagmunaráð, námsráðgjafi, skólameistari ofl. Aðsókn í þennan sjóð hefur ekki stór- lega aukist eftir hrun þannig að ég get ekki merkt að fátækt sé vaxandi vandamál með- al nemenda. Helsta breytingin sem við hér urðum vör við var, skömmu eftir hrun, þegar við fórum að merkja að nemendur sem komu langt að og höfðu hug á að koma til okkar fóru frekar í framhaldsskóla sem var nærri þeirra heimbyggð. Er fylgst vel með félagslegum aðstæðum nem- enda? Alla tíð hefur verið brugðist við ef áföll koma upp. Námsráðgjafar og umsjónar- kennarar fylgjast vel með hvort upp koma atvik sem kunna að hafa áhrif á námsfram- vindu. Já, ég tel að það sé vel fylgst með. Þú kannast þá ekki við að nemar í MA hafi orðið að hætta og fara á bætur til að afla þannig fjár fyrir heimilin – eins og fram kom hjá skóla- meistara VMA? Nei, við höfum ekki heyrt af slíkum dæm- um. Nú hefur Katrín Jakobsdóttir menntamála- ráðherra viðrað leiðir til að skoða félagsstöðu nemenda. Mikil umræða hefur farið fram um ástæður hás brottfalls hér á landi sem þó er enn ráðgáta. Hver er þín skoðun á þessu? Brýnt er að við veltum alvarlega fyrir okk- ur hvernig umræðan í þjóðfélaginu snertir nemendur líkt og reyndar alla aðra lands- menn. Stöðug umræða um að ekkert sé að gerast í þessu landi, að enginn bregðist við neinu, að þessi svokölluðu hjól atvinnulífs- ins fari aldrei í gang, að þau séu stirð og óhreyfanleg, þessi umræða hefur auðvitað áhrif á þennan skóla eins og alla aðra skóla og við sjáum að henni fylgir aukaálag fyrir nemendur. Aukaálag vegna orðræðunnar í samfélaginu. Hvernig birtist það? Þröskuldurinn fyrir námsálagi nemenda lækkar. Þess vegna eiga þau að einhverju leyti erfiðara með nám. Ég geri mér þó ekki grein fyrir hve stór hluti er umræðunni að kenna, annar vandi er að skólarnir fylgjast ekki nægilega vel með samfélagsþróun- inni. Framhaldsskólinn þarf að koma sér að einhverju leyti saman um vinnutíma nemenda. Nemendur, eins og kennarar, eru misfljótir að vinna en óbreytt fyrirkomulag gengur ekki. Við förum fram á að nemend- ur sitji við heimanám sitt daglega tvo til þrjá klukkutíma eftir skóla sem þýðir að samfelldur vinnutími nemenda er frá átta á morgnana til sjö á kvöldin. Við fullorðna fólkið myndum sennilega kveinka okkur undan slíkum vinnutíma en samt ætlumst við til þessa ofurannríkis af nemendum. Skólinn þarf að breyta sér þannig að nem- endur klári sinn vinnudag að mestu innan veggja skólans á skólatíma því ónefndur er líka sá stóri hópur nemenda sem er á kafi í tónlist, félagsstarfi eða íþróttum. Mjög margir nemendur eru í slíku starfi fram á kvöld og þá eiga þeir eftir að læra fyrir morgundaginn. Þetta þurfum við að skoða um leið og við veltum alvarlega fyrir okkur hinni neikvæðu umræðu sem lækkar þol- mörk fyrir nemendur í skólastarfi. Þar ertu í rauninni að segja að þú kallir eftir ábyrgari orðræðu. Nákvæmlega. Við sjáum það til dæmis í að- sendum greinum í blöðum að þeir sem áður voru í stjórn en eru nú í stjórnarandstöðu og öfugt skrifa nákvæmlega sömu grein- ar og andstæðingar þeirra hinum megin við borðið skrifuðu þegar valdataumarnir lágu þannig. Enginn sér neitt jákvætt við það sem hinn hópurinn er að gera. Sveitar- félög hafa reynt að finna sameiginlegan vettvang til að eflast innbyrðis og kannski ættu landsfeður okkar og landsmæður nú á ríkisvísu að leita að því sem við eigum sameiginlegt fremur en að leita alltaf að því sem sundrar okkur. Ég held að það myndi létta ungu fólki lífið verulega ef unnið yrði eftir nýrri hugsun. Þorvaldur Þorvaldsson skáld sagði eitt sinn að stóriðjuumræðan hér á landi einkenndist af skorti á einhverju, en sjaldnar væri rætt allt það sem við höfum. Það er svipað stef - ekki satt? Jú, og nú sjáum við í viðkvæmu máli eins og landsdómsmálinu að menn taka það mjög persónulega og sjá ekki fyrir sér að hægt sé að mynda stjórnir með einum eða öðrum vegna þess að þessi eða hinn greiddi þannig atkvæði. Umræðurnar á Alþingi um Landsdómsmálið eru e.t.v. ágætt dæmi um það þegar hið faglega víkur fyrir hinu persónulega, ekki satt? Jú og ég held að nú sé svo komið að nemend- ur verði að fá þau skilaboð frá stjórnvöldum að ákveðnir fagþættir séu grundvallatriði, að heimurinn sé ekki alltaf persónulegur. Leiðindaorðræðan, sem hægt er að kalla

x

Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.