Akureyri


Akureyri - 17.05.2012, Síða 13

Akureyri - 17.05.2012, Síða 13
1317. MAÍ 2012 “ svo, hefur hreinlega staðið yfir í allt of langan tíma. Er tómt mál að innprenta ungmennum gildi þegar fyrirmyndirnar láta svona? Það er alveg ljóst að í þessum skóla gefumst við ekki upp við að innprenta ungmennum gildi skólans en við getum ekki leitað til þingmanna sem góðra fyrirmynda í augna- blikinu, ekki sem hóps, þótt auðvitað séu margar góðar undantekningar. Menn svífast einskis í umræðu um krónur og aura – en þú ert að benda á að það geta orðið alvarlegar afleiðingar af ýmsu öðru en skorti á krónum og aurum? Orð meiða. Já og þótt nemendur hjá okkur séu ekki að kalla eftir neinni bómull, enda takast þeir daglega á við krefjandi verkefni, þá eiga þeir betra skilið en þetta. Myndi 63 MA-nemum jafnvel sumpart ganga betur að stjórna landinu ef þú skutlaðir þeim suður á Alþingi heldur en þeim sem sitja þar nú? Þingmenn gætu a.m.k. sumt lært af fram- haldsskólanemum. Kosning í embætti skólafélagsins er ný lokið. Margir voru í framboði sem er frábært, margir vilja stjórna skólafélaginu Að kosningum og úrslitum loknum kemur iðulega sú staða upp að þeir sem áður öttu kappi þurfa að ná fullum sáttum og vinna saman. Og þá gera nemendur það. Það tekur þá bara örfáa daga að búa til heildstæðan hóp sem vinnur saman. Þau átta sig fljótt á því að ef þetta á að vera metnaðarfullt starf sem stendur undir þeim loforðum og væntingum sem þau hafa gefið þá verða þau að gleyma fyrri átökum. Þau bjóða sig fram til þjónustu fyrir nemendur. 63 nemendur á þingi yrðu fljótir að átta sig á að stjórn landsins er verkefni sem verður að leysa saman með virðingu og trausti að leiðarljósi. Starfa minna vegna þarf ég stundum að fylgj- ast með umræðu á Alþingi og eins og Helgi Seljan sjónvarpsmaður segir þá líður honum stundum eins og skilnaðarbarni þegar hann nálgast þinghúsið. Er kannski bara hreinlega best að slökkva á þingrásinni þegar mennta- skólaneminn á heimilinu gengur fram hjá? Eiga ungmenni betra skilið en verða vitni að þessum ósköpum? Já en ég held að framhaldsskólanemar eigi að fylgjast með þingmönnum og veita þeim aðhald. Kjósendur hafa vald til að kjósa þá sem hafa staðið sig vel en hafna þeim sem gera það ekki. Ég held að framhalds- skólanemendum sé því mjög hollt að fylgjast með þjóðmálum og láta þau sig varða. Víkjum talinu að öðru. Skólameistari VMA ræddi fyrir skemmstu fordóma, þ.e. að þeir sem séu góðir á bókina eru í umræðunni oft nánast þvingaðir til að ganga götuna í MA. Sumir kalla þetta elítisma og skírskota til sögunnar þegar aðallega fóru hér um forréttindabörn af einhverju tagi. Upplifirðu það enn þann dag í dag að snobbað sé fyrir MA? Er dvölin hér upphafin? Ég held það sé ekki þannig. Hér á Akureyri erum við svo heppin að hafa tvo frábæra framhaldsskóla sem sérhæfa sig, hvor á sínu sviði. Við sérhæfum okkur í því að undirbúa nemendur undir háskólanám og gefum okkur ekki út fyrir annað og stöndum okkur mjög vel samkvæmt úttekt HÍ. Ef snobb tengist því þá er snobb tengt þeirri háskólamenntun sem við búum nemendur undir meðan V erkmenntaskólinn sérhæfir sig á fleiri sviðum. Fyrst og fremst gerir Verkmennta- skólinn það með verkmenntun eins og nafn skólans ber með sér og þar er unnið frábært starf. Það er í mínum huga hvorki verra né betra að vera í öðrum skólanum eða hinum, áherslurnar eru hins vegar ólíkar. Skólarnir tveir koma á móts við áhugasvið nemenda með mismunandi hætti. Ég býst við - eins og fólk þekkir með KA og Þór og alla þessa klúbba hér á Akureyri - að það sé talað á báða vegu um skólana tvo, bæði vel og illa. Þeir sem fara í VMA kunna að tala um snobbið í MA og öfugt. Er það ekki sama umræðan og í Þór og KA? Ég held að á meðan að við sem stjórnum skólanum reynum að halda okkur við málefnalegri umræðu en þetta þá áttum við okkur smám saman á því að hér eru tveir skólar sem styðja hvor við annan og hvorugur getur án hins verið. Þú nefnir málefnalegri umræðu. Fram kom í máli nemenda VMA sjálfra á málþingi fyrir skemmstu að þeirra tilfinning hefði verið sú að „samfélaginu“ þætti ekki nógu fínt að þeir færu í VMA. Samkvæmt reynslusöguum nem- endanna sjálfra er það umræðan hér, a.m.k. meðal hluta bæjarbúa? Heldurðu að hér mætist kannski tveir tímar og takist á? Já ég held að svo sé. Það er ekkert launungar- mál að báðir skólarnir eru á sama upptöku- svæði, þeir eru báðir að reyna að laða til sín nemendur af sama svæði en þar, eins og í öllu öðru, eiga menn að spila heiðarlega. Ég held að það skipti máli að við í skólanum séum heiðarleg og tölum af virðingu um nemendur okkar en ölum ekki á fordómum. Var það ekki einu sinni hugmyndin að MA „fleytti rjómann“ af norðlenskri æsku. Hér komust mun færri nemendur að en vildu á tímabili og þurfti að hafa býsna góðar einkunn- ir til að fá séns en það var líka mikið fall á fyrsta ári. Var ekki dálítill darwinismi í skóla- starfinu, svo maður tali bara hreint út? Umræðan kann að hafa verið á ein- hverju þannig plani. Mér finnst hins vegar skipta mestu að umræðan sé heiðarleg. Hvað viltu segja að lokum? Við í MA erum önnum kafin við að innleiða ný framhaldsskólalög og gera skólanum nýja námsskrá. Frelsið og sjálfstæði sem nýjum lögum fylgir er spennandi en við erum mjög meðvituð um ábyrgð og og skyld- ur sem fylgja. Við erum ákveðin í að sinna hvorutveggja. Við rekum okkur á að það hefur ekki verið hugsað fyrir fjárveitingu með nýjum lögum. Framhaldsskólanum er ætlað að mennta hvern nemenda fyrir um 400 þúsund króna lægri fjárhæð en yngri skólastig og einnig háskólastigið, þau skóla- stig eru ekki ofhaldin af sínum fjárveiting- um. Ég átta mig ekki alveg á þessu og hugsa stundum ætli almenningur í landinu viti af þessu? Skólar eiga að vera óskabörn þjóðar- innar og það á að vænta mikils af þeim. TEXTI Björn Þorláksson MYNDIR Þórhallur Jónsson ... sem þýðir að samfelldur vinnutími nem- enda er frá átta á morgnana til sjö á kvöldin ...

x

Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.