Akureyri - 30.04.2014, Síða 4
4 16. tölublað 4. árgangur 30. apríl 2014
EYFIRSKI SAFNADAGURINN
Handverk
laugardaginn 3. maí
Verið velkominhttps://www.facebook.com/eyfirskisafnadagurinn2014
Frítt á söfnin | Opin 13-17
Þ
ó
rh
a
ll
u
r
-
w
w
w
.e
ff
e
k
t.
is
/
2
0
1
3
30 mánaða fangelsi vegna nauðgana
Fjölskipaður Héraðsdómur Norð-
urlands eystra hefur dæmt 22ja ára
gamlan Akureyring í tveggja og
hálfs árs fangelsi vegna kynferð-
isbrots gegn konu sem hann átti í
sambandi við.
Kolbrún Benediktsdóttir ríkissak-
sóknari sótti málið og var ákært fyrir
nauðganir, framdar á árinu 2012.
Náin kynni voru með parinu um
tíma. Ber þeim saman um að þau
hafi haft samfarir þar sem ákærði
beitti brotaþola valdi með samþykki
beggja, einkum með flengingum.
Einnig með því að ákærði hafi yfir-
bugað hana líkamlega og síðan haft
samfarir við hana.
Konan sleit sambandinu 25. október
2012, daginn fyrir atvik sem nú hefur
verið dæmt sem brot. Konan kom á
lögreglustöðina á Akureyri 8. desember
2012 og kærði þá verknaði mannsins.
Samkvæmt skýrslu lögreglu hringdi
konan í lögreglu viku síðar klukkan
fimm að morgni og óskaði aðstoðar
þar sem henni væri haldið nauðugri.
Brotaþoli og ákærði tóku aftur upp
náin kynni en upp úr slitnaði.
Verkefni héraðsdóms var að
greina hvað væru sadó-masókískar
aðfararir með vilja beggja og hvað
nauðung. Þar réði framburður vitna
nokkuð. Í dóminum kemur fram að
heilsa konunnar hafi orðið slæm í
kjölfar atvika og mikill kvíði vegna
málsmeðferðar.
Ákærði var tvítugur að aldri
þegar hann framdi brotin. Hann hef-
ur ekki áður sætt refsingum. „Refs-
ing ákærða ákveðst að þessu gættu
fangelsi í tvö ár og sex mánuði, sem
ekki þykir fært að skilorðsbinda,“
segir í dómsniðurstöðu.
Maðurinn bakaði sér skyldu til
greiðslu miskabóta, „sem með hlið-
sjón af öllum atvikum þykja hæfilega
ákveðnar 1.200.000 krónur, með vöxtum.
Málið dæmdu héraðsdómararnir
Erlingur Sigtryggsson, Hildur Briem
og Þorsteinn Davíðsson. -BÞ
Meirihluti vill áfengi í matvörubúðir
Meirihluti Akureyringa vill heimila
sölu áfengis í matvörubúðum sam-
kvæmt skoðanakönnun sem Há-
skólabrú-Keilis vann á dögunum.
Spurt var: Á að leyfa sölu á léttvíni
og bjór í matvöruverslunum. 54%
sögðu já en 46% nei.
Nokkuð er mismunandi eftir
stjórnmálaskoðunum hvaða viðhorf
bæjarbúar á Akureyri hafa til sölu
áfengis í búðum. Mest er andstaðan
hjá VG en 39% þeirra sem styðjast
þann flokk svara spurningunni ját-
andi en 61% segir nei. Sjálfstæð-
ismenn, framsókn og Björt framtíð
hafa mestar óskir um sölu áfengis í
búðum. 66% sjálfstæðismanna vilja
að þetta skref verði stigið en 62%
framsóknarmanna eru jákvæðir
gagnvart auknu frelsi. Sama við um
fylgismenn Bjartrar framtíðar. -BÞ
54% VILJA LEYFA sölu léttvíns og bjórs
í matvörubúðum en 46% eru andvíg. Til
vinstri sést sést stuðningur og andstaða
við sölu áfengis í búðum eftir stjórnmála-
flokkum.
Segir vanda Leikhússins Hofi að kenna
Ragnheiður Skúladóttir, leikhússtjóri Leikfé-
lags Akureyrar, segir það vonbrigði ef fram-
leiðsla atvinnuleikefnis á Akureyri verður
úr sögunni. Svo gæti farið vegna fjárhags-
vanda LA. Uppsagnir eru hafnar hjá félaginu
og óljóst hvort eða hvaða starfsemi verður í
Samkomuhúsinu næsta vetur.
Bæjarráð Akureyrar hefur lýst yfir ánægju
með að viðræður um samrekstur Leikfélags
Akureyrar, Menningarfélagsins Hofs og Sin-
fóníuhljómsveitar Norðurlands, séu komnar á
skrið. Sigurður Guðmundsson, bæjarfulltrúi
lét bóka að hann teldi eðlilegt í ljósi fjárhags-
vandans að framkvæmdastjóri og stjórn LA í
heild sinni víki eigi síðar en 1. júní nk. Blaðið
náði ekki tali af framkvæmdastjóra.
Spurð um stöðu leikhússtjóra, hvort Ragn-
heiður líti svo á sem nú styttist í hennar dvöl á
Akureyri sem leikhússtjóra, segir hún að engar
breytingar séu fram undan hjá sér.
En hvað skýrir að mati Ragnheiðar að svo
fór sem fór?
„Það er erfitt að segja, en ég tel reyndar að
Hof hafi mikið að segja í þessu máli.“
Spurð hvort ekki hafi verið raunhæft sam-
band milli fjárveitinga og hins metnaðarfulla
starfs sem LA hefur staðið fyrir síðastliðin tvö
misseri, segir leikhússtjóri:
„Ef til vill er það með Leikhúsið okkar eins
og svo margt í sögunni að einhvern tímann
kemur að vendipunkti. Stundum er það já-
kvætt og stundum neikvætt. Við vonum það
besta fyrir Leikhúsið okkar.“
Fundað var um framtíð leikhússins í gær-
kvöld eftir að blaðið fór í prentun. -BÞ
RAGNHEIÐUR SKÚLADÓTTIR SEGIST ekki vita af
breytingu á eigin högum. Völundur