Akureyri


Akureyri - 30.04.2014, Side 6

Akureyri - 30.04.2014, Side 6
6 16. tölublað 4. árgangur 30. apríl 2014 AÐSEND GREIN ODDUR HELGI HALLDÓRSSON .....verður fróðlegt að sjá L-listinn hefur þá sérstöðu að hann tengist ekki neinum ákveðnum hópi inni á Alþingi. L-listinn hefur alltaf haldið fram að hagsmunum Akureyrar og Akureyringa, sé betur borgið þannig. Ef á að vera kostur fyrir bæjarfull- trúa á Akureyri að hafa flokkstengingu á landsvísu, inn í ríkisstjórn og Alþingi er vert að velta fyrir sér hvernig flokkarnir muni taka á ýmsum málum. Rennum aðeins yfir málið. Eitt af þeim málum sem hafa verið áberandi í umræðunni er staðsetning Reykjavíkurflugvallar. Bæjarstjórn hef- ur m.a. ályktað um að hann skuli vera í Reykjavík og hafa góðar tengingar við stjórnsýslu og hátæknisjúkrahús. Það er ljóst að staðsetning vallarins er ekki bara eftir flokkslínum heldur fer hún líka þvert á flokka. Samt er ljóst að núverandi meirihluti í Reykjavík vill völlinn burt. Því er eðlilegt að maður spyrji sig hvernig þessir sömu flokkar á Akureyri muni taka á málinu. Það kemur alltaf annað slagið upp að fulltrúar flokkana hafa viljað fá um- ræðu í bæjarstjórn um hápólitísk mál á landsvísu. Kvótamál, veiðileyfagjald og svo framvegis. Núna nýlega var til dæmis óskað eftir umræðu um aðildar- umsókn Íslands í Evrópubandalagið. Á svona umræða heima í bæjarstjórn? Finnst Akureyringum bæjarstjórn rétti vettvangurinn fyrir landsmálapólitík? Mér finnst stundum að mesti tími okkar bæjarfulltrúa, bæjarstjóra og starfsmanna bæjarins fari í það að gæta hagsmuna Akureyrar í ráðuneytum. Að kökunni sé réttlátlega skipt og sann- girnis gætt. Stundum finnst okkur eins og Akureyri sé “gleymda miðjubarnið” vegna þess að okkur gengur vel, sýnum frumkvæði í bættri þjónustu og og erum að gera hér góða hluti. Nokkur af þeim málum sem er ekki vanþörf á að gæta að og leiðrétta eru m.a: Framlag til Heilsugæslustöðvar- innar er mun minna hér heldur en til heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæð- inu. Akureyrarbær hefur því tekið á sig rekstrarhalla undanfarin ár, frekar en að skerða þjónustu of mikið. Verst er þó að vita að við höfum ekki fengið fjármagn frá ríkinu til að mæta þeim launaleið- réttingum sem aðrir heilbrigðisstarfs- menn hjá ríkinu hafa fengið. Þetta er óviðunandi og verður að laga. Svipaða sögu er að segja um fjár- framlög til Öldrunarheimilanna, Hlíðar- skóla, menningarmála og rekstrar Hofs. Það verður fróðlegt að sjá þegar stefnuskrárnar fara að birtast hvernig flokkarnir ætla að taka á þessum málum og hvort tengingarnar verði til gagns. Það er reynsla mín gegnum árin, að flokkstengingar hafa ekki hjálpað Ak- ureyringum í mörgum málum og síðustu fjögur ár hafa styrkt mig í þeirri trú að betra er að hafa ekki þessar beinu tengingar, því vegna hlutleysis í lands- málum höfum við í L-listanum haft betri aðgang að stjórnvöldum, sama hvaða flokkar hafa verið í stjórn eða stjórnarandstöðu. Kom þetta berlega í ljós þegar baráttan fyrir Vaðlaheiðar- göngunum stóð sem hæst, þá gátum við leitað til allra, án þess að flokksmúrar væru hindrun. Þessi stutta yfirferð sannfærir mig enn meira um sérstöðu L-listans og að hann sé besti valkosturinn fyrir Akur- eyri. Höfundur er bæjarfulltrúi fyrir L-listann VILTU SEGJA SKOÐUN ÞÍNA? Akureyri vikublað óskar eftir að komast í samband við bæjabúa sem sjaldan eða aldrei hafa veitt viðtöl en væru til í að segja skoðun sína í blaðinu eða veita stutt viðtöl. Vinsamlegast sendið okkur tölvu- póst á bjorn@akureyrivikublad.is eða hringið í síma 862 0856. LOF OG LAST VIKUNNAR LOF fær starfsmaður Gleraugna þjónustunnar við Skipagötu „sem kom með plastpoka handa fínni frú sem var með hund sinn á göngu og gerði stykki sín á gangstéttina“ segir lesandi sem sendi blaðinu póst. „Svo langar mig að benda hjólafólki á að fá sér bjöllu á stýrið en ekki bara bruna framhjá og skelfa gangandi vegfarendur, bætir bréfritari við og segir líka að það mætti sópa sandinn af gangstéttum... LAST fá þeir sem véla um „ákaflega skringilega stjórnun opnunartíma í Hlíðarfjalli“ segir maður sem sendi blaðinu bréf. „Samkvæmt opinberri tímatöflu sem gefin er út í upphafi vetrar er gert ráð fyrir að síðasti opnunardagur sé 27. apríl sem er sunnudagur eftir Andrésarleikana. Síðustu opnunardagana frá þriðjudegi til sunnudags (tíminn yfir Andrés innifalinn) er bara opið til kl. 16:00 á daginn meðan venjulegt fólk er enn í vinnu og fjallið væntanlega fullt af Andrésarkrökkum þannig að það er varla pláss fyrir hinn venjulega skíðamann. Yfir allan veturinn er opið til kl. 19:00 á kvöldin meira að segja í svartasta skammdeginu en núna þegar það er orðið bjart og sólin skín í fjallinu fram á kvöld þá loka þeir um miðjan dag! Það hlýtur að vera eitthvað að inni í höfðinu á þeim sem stjórnar þessu,“ segir maðurinn í bréfi... LOF fær Tölvutek á Akureyri fyrir frábæra þjónustu. Svo mælti glaður kúnni sem hringdi í blaðið. Hann segir að skilningur á þörfum viðskiptavina sé einstakur þar á bæ. Frábærar lausnir í boði við margskonar vandmálum viðskiptavina og framúrskandi viðmót hjá starfsmönnum... LAST fær skóladeild Akureyrarbæjar fyrir að vera „algjörlega ferköntuð“ segir móðir sem sendi blaððinu bréf. Skóladeildin fer að sögn móðurinnar „eingöngu eftir tölulegum upplýsingum þegar kemur að því að raða börnum niður á leikskóla“ segir móðirin. Hún er í þeirri stöðu að yngsta barn hennar fær ekki inni á sama leikskóla og systkinin. Viðkomandi hefur verið með börn á sama leikskólanum í 8 ár en þarf nú að leita annað að sögn. „Akureyri öll lífsins gæði HVAÐ!!!!“ Spyr móðirin vonsvikin og reið... AKUREYRI VIKUBLAÐ 16. TÖLUBLAÐ, 4. ÁRGANGUR 2014 ÚTGEFANDI Fótspor ehf. ÁBYRGÐARMAÐUR Ámundi Ámundason 824 2466, amundi @ fotspor.is. FRAMKVÆMDASTJÓRI Ámundi Steinar Ámundason, as @ fotspor.is. AUGLÝSINGASTJÓRI Ámundi Steinar Ámundason, as @ fotspor.is. 578-1193. RITSTJÓRI Björn Þorláksson, bjorn @ akureyrivikublad.is, 862 0856 MYNDIR Björn Þorláksson, Völundur Jónsson og fleiri. UMBROT Völundur Jónsson PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja - Svansmerkt prentun. DREIFING 14.500 EINTÖK ÓKEYPIS – UM ALLT NORÐURLAND Finnst Akur eyringum bæjarstjórn rétti vett- vangurinn fyrir lands- málapólitík? ODDUR HELGI HALLDÓRSSON Að leggja niður at- vinnuleikhús Í könnun sem Háskólinn á Akureyri lét gera haustið 2011 kom í ljós að mikill meirihluti bæjarbúa á Ak- ureyri vildi starfrækja áfram atvinnuleikhús. Þá fór fram umræða um hvort til væru peningar fyrir slíku en vilji bæjarbúa var skýr. Áfram atvinnuleikhús. Enn stendur LA fyrir miklum fjárhagsvanda en ekki er vitað hvort kannað hafi verið sérstaklega upp á nýtt hvort bæjarbúar vilji áfram skapandi atvinnustarfsemi með fjölda afleiddum störfum eða séu sáttir við að loka og læsa hinu fornfræga Samkomuhúsi. Það er óneitanlega einkennilegur bragur á þeirri afgreiðslu bæjarstjórnar Akureyrar, að spyrna ekki fastar við fótum en raun ber vitni. Að reikna tap eða hagnað af menningarstarfsemi er ekki hægt. Lífsgæði verða ekki mæld í krónum og aurum. Að njóta faglegrar og skapandi leiklistar í héraði getur kveikt hugmynd í kolli áhorfanda sem verður samfélagi hans til ómældra heilla síðar. Sú uppljómun getur líka skilað fleiri af- leiddum krónum í kassa en fólk gerir sér grein fyrir og laðað að sér verðmætt fólk fyrir samfélög. Forræði hugmynda skiptir máli. Að geta alið upp kynslóðir komandi áratuga við atvinnuleiklistarstarf á Akureyri skiptir máli. Það virðst sem bæjarstjórn Akureyrar rugli saman tveimur óskyldum málum. Annað snýr að taprekstri sem verður að bregðast við. Hitt varðar framtíð at- vinnuleikhúss á Akureyri. Tökum dæmi úr einkageiranum sem þó hefur allt aðrar og minni skyldur en hið opinbera: Nú drullar ritstjóri Akureyrar vikublaðs upp á bak með galinni frétt eða óráðsíu og er rekinn. Er þá rökleg niðurstaða að leggja niður blaðið? Varla. Nýr maður kæmi í brúna og blaðið myndi halda áfram að þjónusta Norðlendinga. Með sama skapi getur vel verið að nýtt fólk þurfi að einhverju leyti í áhöfn LA. Mannskapnum sem stýrt hefur fleyinu sl. misseri verður þó seint fullþakkað fyrir mikinn listrænan og ögrandi metnað en breytir ekki því að gera verður þær kröfur til atvinnuleikhúss að það höfði bæði til fjöldans og leggi líka undir á hinu listræna sviði. Seinna atriðið tókst vel – hitt síður. Það læðist að manni sá grunur að í meðvirknis- samfélaginu hér norðan heiða, þar sem það telst stór ákvörðun ef pólitíkus opnar munn og gagnrýnir emb- ættismenn því þá gæti einhver farið í fýlu, að menn heykist á að taka á stöðunni heldur leiti limbólausna sem gæti þýtt menningarlegt stórslys. Pólitíkusar hafa komið sér undan því að segja upphátt hverjum staða LA er að kenna. Ekki næst í framkvæmdastjóra LA. Til að styggja engan planar elítan að hætta kannski bara rekstri atvinnuleikhúss hér í bæ! Hvurslags vitleysa er þetta eiginlega? Baráttukveðjur Björn Þorláksson PREBEN OG „LÖGGAN“ Aðdáendur Beck raðarinnar sænsku þekkja vel mikael persbrandt sem veitir Beck ómetanlega aðstoð iðulega við að leysa flókin sakamál og ræður jafnvel ferðinni sem persónan Gunvald Larsson. Í síðustu Beck myndinni sem Ríkissjónvarpið sýndi þurfti Gun- vald að leggja nokkuð undir, jafnvel lífið í baráttu gegn mansali og heiftarlegri aukaverkunar nýrra lyfja. Ekki verður annað sagt en Preben leggi einnig undir en hann skipar 3ja sætið fyrir BF á Akreyri fyrir kosningarnar í vor. Preben og Persbrandt eru tvífarar vikunnar. Akureyri vikubkað mun næstu vikur kynna til sögunnar nokkur tvífarapör – áhugasamir megja senda ábendingar á bjorn@akureyrivikublad.is TVÍFARAR VIKUNNAR Mikael Presbrandt Preben Jón Pétursson

x

Akureyri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.