Akureyri


Akureyri - 20.03.2014, Side 4

Akureyri - 20.03.2014, Side 4
4 11. tölublað 4. árgangur 20. mars 2014 EX PO - w w w .ex po .is Gæði, reynsla og gott verð! REYKJAVÍK, Bíldshöfða 9, KÓPAVOGUR, Smiðjuvegi 4a, græn gata, HAFNARFJÖRÐUR, Dalshrauni 17 REYKJANESBÆR, Krossmóa 4, SELFOSS, Hrísmýri 7, AKUREYRI, Furuvöllum 15, EGILSSTAÐIR, Lyngás 13 MIKIÐ ÚRVAL VARAHLUTA Sími: 535 9000www.bilanaust.is 3 ÁRA ÁBYRGÐ BÆJARSTJÓRI ORÐ- LAUS VEGNA UM- MÆLA LEKTORS Ummæli lektors í kynjafræði við Háskóla Ís- lands um að flytja eigi Jafnréttisstofu suður til Reykjavíkur frá Akureyri hafa vakið hörð viðbrögð norðan heiða. Jón Þorvaldur Heiðar- sson, hagfræðingur og lektor við Háskól- ann á Akureyri segir með kaldhæðnina að vopni: „Þar sem Háskólinn á Akureyri er fjársveltur hef ég ákveðið að beita mér fyrir því að hann verði fluttur til Reykjavíkur. Einnig legg ég til að öll önn- ur fjársvelt starfsemi á Akureyri verði einnig flutt til Reykjavíkur. Sjúkrahúsið og framhaldsskólarnir. Sama verði gert um land allt. Þið sjáið að ég er framfarasinni og vil þessum stofn- unum vel!“ Lektorinn, Gyða Margrét Péturs- dóttir, sem lét ummælin falla í þætti á Stöð 2, segir að það veiki Jafnréttisstofu að vera staðsett norður í landi“. Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarsjóri á Akureyri, segir málflutning lektorsins endemis vitleysu. „Mín viðbrögð eru þau að ég er orðlaus - sem gerist ekki oft.” Að lektor við virtan háskóla skuli setja svona frá sér með ekki betri rökum er áhyggjuefni að mínu mati.” Jákvæð afkoma auðveld- ar starf Byggðastofnunar „Það er ekki markmið stofnunarinn- ar að skila eiganda sínum hagnaði heldur að styrkja atvinnulíf um allt land. Þessi jákvæða niðurstaða gerir stofnuninni kleift að sinna því hlut- verki enn betur á yfirstandandi ári,“ segir Þóroddur Bjarnason, stjórnar- formaður Byggðastofnunar. Hagnaður af starfsemi Byggða- stofnunar var 189 milljónir króna í fyrra. Þykir slík útkoma sæta tíð- indum en stofnunin hefur oft verið milli tanna fólks vegna ákvarðana sem ekki hafa þótt skila árangri. Þóroddur segir að lLánastarfsemi Byggðastofnunar sé ætlað að styrkja atvinnulíf um land allt með því að tryggja fyrirtækjum á viðkvæmum svæðum lánsfé á sambærilegum kjörum og bankarnir bjóða á höfuð- borgarsvæðinu. Við lánveitingar og úrvinnslu mála taki stofnunin jafn- framt tillit til hagsmuna veikburða samfélaga. „Lögum samkvæmt á stofnunin engu að síður að varðveita eigið fé sem er kannski ekki fyllilega raunhæft markmið þegar um slíkan stuðning við veikburða atvinnustarf- semi er að ræða. Byggðastofnun varð fyrir miklum búsifjum í bankahrun- inu þótt tap hennar væri reyndar hlutfallslega miklu mun minna en bankanna. Á árinu 2013 voru síðustu stóru afskriftirnar vegna hrunsins afgreiddar en jafnframt vann stofn- unin mál fyrir Hæstarétti þar sem bankainnstæða stofnunarinnar hjá SPRON var viðurkennd sem forgangskrafa. Heildarniðurstaða ársins er hagnaður um 188,9 millj- ónir og hækkun eiginfjárhlutfalls í 16%, en lögum samkvæmt skal það að lágmarki vera 8 prósent,“ segir Þóroddur. Hreinar vaxtatekjur á árinu 2013 voru 437,4 milljónir króna eða 43,8% af vaxtatekjum, samanborið við 593,8 milljónir (47,9% af vaxtatekj- um) hreinar vaxtatekjur á árinu 2012. Laun og annar rekstrarkostnaður nam 373,6 milljónum króna saman- borið við 312,7 milljónir árið 2012. Framlög í afskriftarreikning útlána, og matsbreytingar hlutafjár voru 51,0 milljónir króna en voru 444,9 milljónir 2012. Eignir námu 14.872 milljónum króna og hafa lækkað um 1.866 milljónir frá árinu 2012. Þar af voru útlán og fullnustueignir 11.570 milljónir. Skuldir námu 12.458 millj- ónum króna og lækkuðu um 2.091 milljón á árinu 2012. Veittar ábyrgðir utan efnahagsreiknings námu 22,6 milljónum króna. Stjórn Byggðastofnunar er skipuð af ráðherra byggðamála til eins árs í senn. Sigurður Ingi Jóhannsson sjáv- arútvegs- og landbúnaðarráðherra mun tilkynna um skipun stjórnar 2014-15 á ársfundi Byggðastofnunar á Sauðárkróki 29. apríl næstkom- andi. -BÞ Breytingar á Rúv koma á óvart Miklar áherslu- og skipulags- breytingar hafa verið boðaðar hjá RÚV sem snerta munu Norðlendinga sem og aðra landsmenn beint eða óbeint. Segir í tilkynningu frá nýj- um útvarpsstjóra að jafnrétti út frá búsetu verði í forgangi. Einnig segir að íþróttadeild og svæð- isstöðvar muni færast frá fréttastofu. Ákvörðun um nýtt lögheimili svæðis- stöðvanna innan skipurits Rúv verður kynnt síðar. Birgir Guðmundsson, dósent í fjölmiðlafræði við Háskólann á Akur- eyri, segir vekja sérstaka athygli að íþróttafréttir skuli ekki lengur flokkaðar sem fréttir. Hvað varðar færslu svæð- isstöðvar Rúv á Akureyri frá frétta- deild yfir á annað svið segir Birgir að sú breyting muni e.t.v. ekki leiða til straumhvarfa frá því sem verið hefur síðan svæðisútvörpin voru lögð niður. Síðari ár hafi fréttir í fréttatímum unnar af starfsfólki Rúv á Akureyri að verulegu leyti verið mjúkar fréttir eða fréttir sem veki athygli á lands- vísu auk Landa-innslaganna. Efni sem hafi verið unnið á vegum Rúv undanfarið á Norðurlandi hafi því að uppistöðu verið dagskrárefni en síður harðar fréttir . Birgir segir boðaðar breytingar á stefnu Rúv koma sér á óvart eftir miklar sviptingar fyrr í vetur. Ánægjulegt sé þó að landsbyggðaráherslur Rúv séu aftur á dagskrá. Því miður hafi Ríkisút- varpið eftir lokun svæðis- stöðvanna skilgreint sig út af umræðuvettangi sam- tals íbúa í héraði. Mörg dæmi séu um óánægju vegna þessa samanber könnun sem Birgir stóð sjálfur fyrir í aðdragandi kosninganna 2010 þar sem mikill meirihluti frambjóðenda í tíu stórum sveitarfélögum vítt um landið taldi það skaða lýðæðislega umræðu í héraði að ekki væri lengur vettvangur í héraði fyrir hendi. Um 82% svarenda úr hópi frambjóð- enda hafi lýst neikvæðu viðhorfi til breytinganna og þjónustuskerðingar Rúv á landsbyggðinni og 100% svar- enda á Akureyri. „Það er mín skoðun að skorið hef- ur verið of mikið niður á landsbyggð- inni og stofnunin ekki sinnt hlut- verki sínu nógu vel. Það er mín sýn að snúa þessari þróun við. Akureyri er lykilstaður og vil ég spýta í lófana þar,“ segir Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri. -BÞ/SA ÞÓRODDUR BJARNASON BIRGIR GUÐMUNDSSON

x

Akureyri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.