Akureyri - 20.03.2014, Síða 6
6 11. tölublað 4. árgangur 20. mars 2014
Söfn ekki nýtt sem skyldi í skólastarfi
Safn er námsvettvangur – þar sem
gesturinn getur skoðað það sem
landslag og upplifað náttúru og
menningu í senn. Þetta kom fram á
ráðstefnu um söfn í óhefðbundnum
rýmum sem fram fór í Háskólanum
á Akureyri sl. föstudag.
Þar kom í erindum fyrirlesara
ítrekað fram að söfn væru ekki nýtt
sem skyldi í skólastarfi hérlendis.
Söfn eru talin vannýtt auðlind, ein
sérstaða þeirra umfram hefðbundið
nám í kennslustofu er að börn læra
að meðtaka list safna með öllum
líkamanum en ekki bara höfðinu
og huganum eins og það var kallað.
Hvatt er til þess að skólabörn fái að
snerta hluti á söfnum, spegla, ímynda
sér, enda sé leikur grundvallarat-
riði í sköpun og reynslu, uppspretta
þekkingar.
Í safnalögum segir að menningar-
og náttúruarfi skuli skilað óspilltum
til komandi kynslóða, veita aðgang
að honum, stuðla að aukinni þekk-
ingu og skilningi í tengslum við um-
heiminn. Sjálfbær hugsun er í fyrsta
skipti komin í safnalög. Alma Dís
Kristinsdóttir doktorsnemi í safna-
fræðum benti á að rof hefði orðið í
því að almenningur væri læs á um-
hverfi safna, umfjöllun sé ekki næg
um söfn. Í skýrslu sem fram kom
árið 2011 var ein helsta niðurstað-
an að söfn mættu hafa meiri vægi
í námskrá skóla, þau ætti að nýta
meira sem námsuppsprettu.
FLUGSAFNIÐ VIN-
SÆLL VALKOSTUR
Í rannsókn sem Alma Dís vann á
fimm söfnum í Eyjafirði kom fram
að Flugsafnið á Akureyri er vinsæll
valkostur en safnið höfðar fremur til
flugáhugafólks, en almennings. Vin-
sælt er að börn fái að setjast upp í
raunverulegar flugvélar, fá tilfinn-
ingu fyrir efninu en skilaboðin eru
ögn misvísandi að sögn Ölmu Dís-
ar, að börnum sé bannað að snerta
nokkurn hlut þegar inn í vélarnar
er komið.
Rósa Kristín Júlíusdóttir, dósent
við HA, benti á að söfn byggju yfir
töfrum, þau kveiktu fagurfræðilegar
upplifanir leik- og grunnskólabarna.
Söfn gæfu börnum tækifæri til að
umbreyta hlutum og líkömum sínum,
opna nýja heima, gætu breytt dag-
legri sýn barna á daglegt líf. „Börn
spegla sig í listaverkum, tjá sig við
þau.“
EF MAÐUR ER MEÐ BÍL...
Í vettvangsferðum sem framhalds-
skólakennarar við VMA hafa staðið
fyrir með nemendum sínum þegar
nám hefur verið fært utan kennslu-
stofunnar í annar konar rými kom
fram að nemendum finnst aðrar
reglur gilda um samskipti þegar
börn fara utan skólastofu, þau þora
fremur að rökræða, tjá sig betur
„setja meira fútt í þetta – það er mjög
jákvætt, sagði Valgerður Dögg Jóns-
dóttir, kennari við VMA. Í hópi gam-
ansagna sem hún sagði var að einn
nemandinn hafði orðað það þannig
þegar hann vissi að færa ætti námið
í skólanum út fyrir veggi skólans
og niður í bæ á söfn: „Mér finnst
ágætt að fara út úr kennslustofunni
og breyta til þegar maður er með bíl.“
Arna Valsdóttir, kennari við VMA,
sagði m.a. um nám í óhefðbundn-
um rýmum að um leið og manneskja
gengi inn í tómt rými væri hún
orðinn punktur í myndflettinum
sem hefði áhrif á hugsun og verund
hennar. -BÞ
Hraustir krakkar
í Varmahlíð
Það var líf og fjör í Íþróttahöllinni á
Akureyri þegar nýtt keppnistímabil
Skólahreysti hófst í síðustu viku en
þá fóru fram fyrstu tveir undan-
riðlar keppninnar. Áhorfendamet
keppninnar á Akureyri var slegið
því um 2.000 litríkir stuðningsmenn
mættu í Höllina til að hvetja skóla-
félaga sína. Keppnin var tekin upp
og verður sýnd í sérstökum þáttum
um Skólahreysti á RÚV á föstudags-
kvöldum í apríl.
Í fyrri undanriðli dagsins
kepptu skólar af Norðurlandi.
Eftir mjög jafna baráttu varði
Varmahlíðarskóli titil sinn og því
fer skólinn í úrslit annað árið í röð.
Varmahlíðarskóli hlaut 54 stig en
í öðru sæti var lið Dalvíkurskóla
með 48 stig. Lið Grunnskóla
Hólmavíkur tryggði sér loks þriðja
sætið með 41 stig. Þess má geta
að lið Hólmavíkur var að keppa í
fyrsta sinn í Skólahreysti.
Í seinni riðli dagsins mættust
skólar frá Akureyri og Eyjafirði
og börðust hart um sæti í úrslit-
um. Síðuskóli hafði sigur með 45
stig, Hrafnagilsskóli náði öðru sæti
með 30 stig og í þriðja sæti varð lið
Oddeyrarskóla með 28,5 stig. Rétt
er að geta þess að þeir tveir skólar
sem ná besta árangri í öðru sæti
úr öllum undanriðlum komast lík í
úrslitakepppnina Lið Dalvíkurskóla
og Hrafnagilsskóla bíða því eftir
úrslitum úr öðrum riðlum. a
TÁP OG FJÖR. Nemendur Varmahlíðarskóla komust annað árið í röð í úrslit í Skólahreysti og krakkar úr Síðuskóla fóru einnig áfram af Norðurlandi.
ALMA DÍS KRISTINSDÓTTIR flytur erindi sitt, fundarstjóri Ágúst Þór Árnason til vinstri.