Akureyri


Akureyri - 20.03.2014, Síða 12

Akureyri - 20.03.2014, Síða 12
12 11. tölublað 4. árgangur 20. mars 2014 Eru íþróttafélög Akureyrar mikilvægir óvinir hvers annars? Það hefur blossað upp hrepparígur á Akureyri í kjölfar könnunar Capacent sem sýndi meiri stuðning en minni við að Þór og KA myndu sameinast í einu íþróttafélagi. Ýmsar af stærri pólitískum ákvörðunum síðari tíma sem lúta að útdeilingu á almannafé til uppbyggingar íþróttamannvirkja hafa miðast við að hér væru tvö ríki í rkinu og annað héti KA en hitt Þór. Svo heiftarlegur reynist rígurinn enn milli liðanna að sést hefur á Facebook eftir að könnunin var gerð opinber að fyrr muni menn dauðir liggja en sameinast „erkifjandanum“. Rígurinn milli Þórs og KA er bundinn sögu, ýmsum tilf-inningum og hefur flóknar tengingar sem ekki er hægt að leggja fullnægjandi mat á í stuttri blaða- grein. Hins vegar hefur verið skrif- uð BA-ritgerð um hrepparíg í norð- lenskum samfélögum sem e.t.v. má nýta til að velta því upp hvað kunni að vera að gerast í höfðum þeirra sem hatast við hugmyndina um sam- einingu Þórs og KA. Í lokaritgerð sem undirritaður skrifaði í þjóðfé- lagsfræði árið 2012 og birtist endur- rituð í ritrýnda fræðiritinu Skírni sama ár, er fjallað um hrepparíg eins og hann birtist í rannsókn sem unnin var á vegum Háskólans á Akureyri og Vegagerðarinnar vegna tilkomu Héðinsfjarðarganga. Tilurðin var skoðun á áhrifum ganganna á líf íbúa í Fjallabyggð, annars vegar Ólafasfirðinga en hins vegar Sigl- firðinga. Greinin í Skírni bar titilinn: Þarna hittust þeir og þarna börðust þeir - Hrepparígur á Tröllaskaga – til góðs eða ills. Í Skírnisgreininni segir að hrepp- arígur sé gamalkunnugt fyrirbrigði hér á landi og hafi fram til þessa eink- um verið talinn af hinu illa. Í rann- sókn Tinnu Halldórsdóttur á stöðu og viðhorfum kvenna á Austurlandi kom fram að rígur, flokkadrættir og hópamyndanir hafi haft hamlandi áhrif á skólamál, heilbrigðisþjónustu, atvinnu og samgöngur. Í rannsókn um samkeppnishæfni Austur-Húna- vatnssýslu kom fram að samstöðu- leysi og hrepparígur haefði veikt héraðið. Formaður Fjórðungssam- bands Norðurlands brýndi árið 1988 sína menn með þessum orðum: „Við þurfum bara að yfirstíga brestina í okkur sjálfum, vinna bug á lítil- sigldum hrepparíg og sameinast um stóru málin“. Hrepparígur hefur líka ratað inn á Alþingi, t.d. þegar Árni Johnsen sagði árið 1996 „mjög sorglegt hvernig hrepparígur hefur verið vakinn milli Háskóla Íslands og Háskólans á Akureyri.“ Þá hafði slegið í brýnu milli Vestmannaeyinga og Akureyringa í menntamálum. Í greininni og þá komum við að sam- einingu Þórs og KA segir að íþrótta- fólk og þá ekki síst félagslið í hóp- íþróttum skerpi á hinni tvískiptu veröld annar vegar „okkar“ og hins vegar „hinna“. Hrepparígur kunni að vera birtingarmynd aðgreiningar hópa þar sem stolt kemur við sögu. Bandaríski félagsfræðingurinn Lew- is Coser (1913–2003) skrifaði um það sem hann kallaði virkni átaka og setti fram rök fyrir því að átök innan samfélaga væru ekki alltaf hamlandi fyrir samfélagskerfi. Undir vissum kringumstæðum losuðu átök um spennu sem annars hlæðist upp og yrði óhindrað hið mesta mein. „So foul a sky clears not without a storm,“ sagði Shakespeare. Sumar- ið 2010 gerði greinarhöfundur sem starfsmaður Háskólans á Akureyri rannsókn á Siglufirði sem ól af sér vangaveltur um „gagnsemi“ hrepp- arígs. Lengi hafði þá verið ljóst að rígur ríkti milli Ólafsfirðinga og Siglfirðinga, nágrannasveitunganna á Tröllaskaga. Samkvæmt rannsókn- inni birtist rígurinn öldruðum íbúum bæjanna tveggja ekki endilega sem neikvætt fyrirbæri. Kannski hefur það haft áhrif að bæði Ólafsfjörð- ur og Siglufjörður gengu í gegnum miklar upp- og niðursveiflur á til- tölulega skömmum tíma og þegar hraðar breytingar verða á samfé- lagsgerðinni skapast mest hætta á siðrofi samkvæmt Durkheim. Rann- sóknin í Fjallabyggð leiddi m.a. af sér spurningar hvort átök Siglfirðinga og Ólafsfirðinga hefðu skerpt á gild- um íbúa sem annars hefðu mögulega gengið í gegnum siðrof og orðið til að treysta böndin milli íbúa þessara bæja? Siglufjörður var árið 1948 fimmti stærsti þéttbýliskjarni landsins með ríflega 3.000 íbúa. Bærinn hafði byggst upp hratt og óskipulega. Svo kom langt samdráttarskeið. Sextíu árum síðar voru íbúar á Siglufirði aðeins tæplega 1þ300 talsins og með sama hætti fjölgaði Ólafsfirðingum hratt áður en við tók samdráttar- skeið. Breytingar á fólksfjölda þýða tilfærslu á valdi, því með sama hætti og hnignun byggðar, fólksfækkun, felur í sér skert vald er aukinn fólks- fjöldi ávísun á fjármuni og sterka stöðu. Í slíku ljósi má einnig skoða eina harðvítugustu skóladeilu seinni tíma sem varð í Mývatnssveit fyrir tæpum tveimur áratugum. Á tíunda áratug síðustu aldar sendu foreldrar í öðrum hluta sveitarinnar aðeins þrjú börn af 24 í skólabílinn vegna þess að þeim fannst börnin ættu að halda áfram að ganga í skóla sunn- an við vatnið. Valdaumskipti höfðu orðið með iðnvæðingu sveitarfélags- ins og nýju þéttbýli í Reykjahlíðar- þorpi. Suðursveitungar sem höfðu áður verið fleiri og farið með völdin í sveitarfélaginu urðu í minnihluta þegar þorp byggðist upp með nýjum atvinnutækifærum við Kísiliðju og Kröfluvirkjun. Þá þótti eðlilegt að byggður yrði nýr skóli í Reykjahlíð sem þjóna myndi öllum íbúum sveit- arinnar en þetta þýddi að í stað þess að skólabörn væru flutt úr norðri til suðurs í Skútustaðaskóla, þótti um síðir hagkvæmast og lýðræðislegast að flytja börn sunnanmanna norður í Reykjahlíð. Þetta kostaði mikil átök. ÁHUGAVERÐAR NIÐURSTÖÐUR Einn angi af vinnu Háskólans á Akureyri og Vegagerðarinnar var að undirritaður vann viðtalsrannsókn sumarið 2010 á Tröllaskaga þar sem tekin voru opin viðtöl við 12 öldunga, sex af Siglufirði og sex úr Ólafsfirði. Ástæða þess að aðeins var talað við aldraða var sú að gamlir muna lengri sögu en ungir og geta borið saman tímana tvenna. Greinarhöfundur PÆLING Björn Þorláksson SAMEINAÐIR ÍSLANDSMEISTARAR! Mikill fögnuður braust út á Þórsvelli á Ak- ureyri þegar Þór/KA varð Íslandsmeistari í knattspyrnu kvenna í fyrsta sinn í sögu félagsins sumarið 2012. Stelpurnar okkar virðast ekki þurfa hrepparíg innan bæjar til að ná frábærum árangri. Thorsport.is / Páll Jóhannesson

x

Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.