Akureyri - 20.03.2014, Page 24
14.500 EINTÖK FRÍTT UM ALLT NORÐURLAND Á HVERJUM FIMMTUDEGI | AUGLÝSINGAR 578 1190 & AUGLYSINGAR@FOTSPOR.IS | RITSTJÓRN 862 0856 & BJORN@AKUREYRIVIKUBLAD.IS
VI
KU
BL
AÐ
UM DAGINN OG VEGINN
JÓN ÓÐINN WAAGE
SKRIFAR
Paratabs®
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
/
A
ct
av
is
3
1
9
0
3
0
KLÁM
Ég þoli ekki klám. Get ekki
horft á það, hef enga ánægju
af því. Ég hef prófað. Þá hefur
mér alltaf liðið illa, hef blygð-
ast mín og fundist ég vera eins
og ómerkilegur gluggagægir.
Einu sinni vann ég á vinnu-
stað þar sem bara karlmenn
voru. Það voru oft langar
stundir þar sem ekkert var að
gera. Þá var oft horft á sjón-
varpið. Einu sinni setti einn
klámmynd í myndbandstækið.
Fimm karlmenn sátu og gláptu,
ég líka. Svo hringdi síminn.
Hann var í næsta herbergi.
Það þurfti að svara, þetta var
þannig starf. Menn litu vand-
ræðalega á hvorn annan. Það
var pínlegt. Að endingu spratt
einn á fætur og hljóp í keng
fram til að svara.
Mér fannst þetta undarleg
stemming, að sitja með stand-
pínu í hópi af karlmönnum.
Til hvers?
Þegar myndin var búin
sátu menn vandræðalegir og
reyndu að grínast á einhvern
stórkallalegan hátt meðan
þeir biðu eftir að blóðstreymið
jafnaði sig.
Ég skil heldur ekki það sem
fram fer í þessum myndum.
Þetta er ekki mín reynsla, ég
kann þetta ekki. Ég hef alltaf
talið þessar athafnir vera til
þess fallnar að vera góður
við einhvern sem manni þyk-
ir vænt um. Að njóta þess að
vera góður við viðkomandi og
að njóta þess að einhverjum
þyki vænt um mann á móti og
vilji vera góður við mann. Að
njóta ásta.
Margir horfa mikið á fót-
bolta. Merkilegt hversu margir
þeirra geta ekkert í fótbolta
og taka jafnvel aldrei þátt í
honum sjálfir.
Er ég að móðga einhvern?