Austurland - 16.05.2013, Side 6

Austurland - 16.05.2013, Side 6
6 16. MAÍ 2013 - miðstöð Cittaslow hreyfingarinnar á Íslandi Cittaslow (Slow City) er hreyfing sem stofnuð var á Ítalíu árið 1999 og hefur það að meginmarkmiði að stuðla að sjálfbærni og fjölbreytni innan samfélaga. Í því skyni leggur Cittaslow m.a. áherslu á grænan lífstíl, gæði umhverfis og jákvæðni í mannlegum samskiptum. Cittaslow eru samtök bæjarfélaga víða um heim og er markmið þeirra að fá fólk til að staldra við í hraða nútímans og njóta þess sem umhverfið hefur upp á að bjóða. Einnig að bæta lífsgæði, sporna gegn einsleitni í verslunarháttum og halda í sérkenni lítilla bæjarfélaga. Til að sækja um inngöngu í Cittaslow þarf að setja fram aðgerðaáætlun um hvernig uppfylla skal ákveðin viðmið sem Cittaslow hreyfingin setur fram. Inngöngu í Cittaslow fá aðeins bæir og sveitarfélög með innan við 5000 íbúa. Saga Undir síðustu aldamót fannst nokkrum ítölskum bæjarstjórum nóg komið af hnattvæðingu og hraða nútímans og þeirri áráttu að vilja steypa ólíka menningarheima í sama mót. Þeir hrundu af stað Cittaslow hreyfingunni til að leggja áherslu á hið gagnstæða, þar sem virðing fyrir fólki, staðbundinni menningu og umhverfi væri í heiðri höfð. Í apríl sl. höfðu 176 bæir og sveitarfélög í 27 löndum víðsvegar um heiminn gerst aðilar að hreyfingunni. Cittaslow í framhaldi af aðalskipulagi Sveitarstjórn Djúpavogshrepps hefur um nokkuð langt skeið sýnt því áhuga að gerast aðili að Cittaslow hreyfingunni en það er í raun rökrétt framhald þeirrar stefnu sem rekin hefur verið í sveitarfélaginu um árabil. Aðalskipulag Djúpavogshrepps 2008 - 2020 markar stefnu sveitarstjórnar í fjölmörgum málaflokkum s.s. landnotkun, byggðaþróun og í umhverfismálum sem falla einkar vel að Cittaslow hugmyndafræðinni. Þar er m.a. sett fram viðamikil stefna um verndun náttúru og menningarminja. Þá er lögð áhersla á grænan lífsstíl og umhverfisgæði sem og fjölbreytta og sjálfbæra atvinnustarfsemi sem rekin er í sátt við náttúru og samfélag með áherslu á lítil og meðalstór fyrirtæki. Margt hefur verið gert nú þegar til að ná þessum markmiðum. Til dæmis er mikil áhersla lögð á sérstöðu náttúrunnar, endurvinnsla sorps hefur verið innleidd, leitað hefur verið leiða til að finna gömlum byggingum nýtt hlutverk og stór skref hafa verið tekin til fegrunar umhverfis. Það er mikill akkur í því fyrir Djúpavogshrepp að vera fyrsti Cittaslow bærinn á Íslandi og vinna þar með mikilvægt brautryðjendastarf. Það verður m.a. hlutverk þeirra sem koma að verkefninu að kynna hugmyndafræði Cittaslow innan sveitar sem og á landsvísu en það þykir nokkuð víst að fleiri bæjarfélög eiga eftir að ganga í hreyfinguna á næstu árum. Djúpivogur mun þá að öllum líkindum gegna hlutverki Cittaslow upplýsinga- og fræðslumiðstöðvar á landsvísu. Cittaslow viðurkenning Í byrjun marsmánaðar sl. var umsókn Djúpavogshrepps um inngöngu í Cittaslow hreyfinguna samþykkt formlega þegar Gauti Jóhannesson sveitarstjóri tók á móti viðurkenningu úr hendi framkvæmdastjóra Cittaslow. Athöfnin fór fram í Finnlandi og þar með var Djúpavogshreppur orðinn formlegur aðili að Cittaslow hreyfingunni. Í Finnlandi hitti Gauti m.a. fulltrúa nokkurra Cittaslow bæja á Norðurlöndum en sérstakt samstarf er milli þessara fámennu Cittaslow bæja innan Norðurlanda. Gauti sagðist hafa skynjað að það væru aðrar áherslur í verkefninu í Skandinavíu en í suður Evrópu, enda um að ræða ólík samfélög og menningu. Blaðamaður Austurlands hitti Gauta á skrifstofu Djúpavogshrepps fyrir stuttu og spurði hann nánar út í þetta spennandi verkefni. Gauti segir að með aðild sinni að Cittaslow hreyfingunni sé Djúpavogshreppur að leggja áherslu á að nýta tækifærin sem svæðið búi yfir og um leið að hefja náttúru og staðbundna menningu til vegs og virðingar. Hann segir það afar mikilvægt að það takist að skapa gott samstarf milli sveitarstjórnar, íbúa og fyrirtækja og að samfélagið þurfi að vera virkur þátttakandi í verkefninu. Hugmyndafræði Cittaslow fellur vel að þeirri stefnu sem sveitarfélagið hafi sett sér en ekki síður vel að andanum í sveitarfélaginu. Það þurfi enginn að gera sér upp gestrisni eða hlýlegt viðmót á Djúpavogi og þar ríki samhugur og væntumþykja um söguna og staðinn. Gauti sagði einnig að þegar samfélagið hefði aðlagast hugmyndafræðinni vel, gætu stofnanir og fyrirtæki sótt um að fá Cittaslow vottun, sem er mjög jákvætt t.d. fyrir matvælaiðnaðinn. Gauti sagði að nú í maí verði haldinn fundur þar sem vinnuhópur á vegum sveitarfélagsins muni leggjast yfir það hvernig best sé að útfæra verkefnið. Í haust verði síðan hafist handa við að hleypa verkefninu af stokkunum af fullri alvöru með markvissri íbúakynningu og vinnusmiðjum. Við innleiðingu Cittaslow í Djúpavogshreppi verður lögð áhersla á að stíga varlega til jarðar, vinna í anda snigilsins, hægt og rólega -með árangursríkum hætti í sátt við íbúana. Búið er að kynna Cittaslow á heimasíðu sveitarfélagins. BSBrammer Ísland ehf | Steinhella 17a | 221 Hafnarfjörður | Sími: 522 6262 | www.brammer.is Heimsþekkt vörumerki frá öllum helstu framleiðendum í iðnaðarvörum og þetta er aðeins brot af þeim merkjum sem við bjóðum upp á Legur og drifbúnaður Verkfæri og öryggisvörurLoft- og vökvakerfi djúpivogur Pier Giorgio oliveti framkvæmdastjóri afhendir Gauta viðurkenningarskjal Cittaslow.

x

Austurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/1094

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.