Austurland - 16.05.2013, Blaðsíða 10

Austurland - 16.05.2013, Blaðsíða 10
10 16. MAÍ 2013 Góður kostur fyrir fjölskyldufólk Það vita það ef til vill ekki allir en að jafnaði stunda ríflega tvö hundruð manns háskólanám á Austurlandi og á hverju ári eru tekin um átta hundruð próf á vegum háskólanna í starfsstöðvum Austurbrúar víðsvegar um fjórðunginn. Einn þessara nemenda heitir Alma Sigurbjörnsdóttir en hún stundar nám í sálfræði við Háskólann á Akureyri. Hún hóf námið haustið 2011og hyggst klára það vorið 2014 með BA-prófi. Hún hefur stundað allt námið á Reyðarfirði og blaðamaður spyr hana fyrst hvers vegna hún hafi valið fjarnám. „Það er ekki hlaupið að því að rífa sig upp til flutnings með heila fjölskyldu og því var fjarnám góður kostur fyrir mig þar sem að ég á mann í fastri vinnu hér á staðnum og syni á grunnskóla- og leikskólaaldri. Fjölskylda mín býr hérna á Reyðarfirði og hjá henni fæ ég ómældan stuðning og aðstoð sem ég gæti illa hugsað mér að vera án. Ég er líka svoddan sveitalúði og vil bara vera í rólegheitunum í mínum heimabæ þar sem að flestir þekkja flesta.“ Hvernig er náminu háttað? Passar það vel við daglegt líf? „Þar sem ég er þriggja barna móðir og þarf að vera sveigjanleg heimavið þá hentar þetta fyrirkomulag afar vel. Ég „vinn“ mína vinnudaga eftir hentisemi og get hagrætt deginum mun meira en þeir sem sækja daglega vinnu á vinnustöðum. Yngsti sonur minn fæddist „korter í próf “ þegar ég var við það að ljúka fyrsta árinu mínu og því hef ég verið heima með hann síðasta árið. Staðarnámið hefði ekki verið í boði fyrir mig í þessari aðstöðu en fjarnámið gerði mér kleift að halda mínu striki því ég ákvað vinnutíma minn.“ Hvernig fer námið fram? „Námið fer að mestu leyti fram í gegnum vefinn og eru fyrirlestrar teknir upp og settir inn á kennsluvefinn Moodle ásamt verkefnum sem sett eru fyrir. Námsefnið er síðan til staðar þar til önninni lýkur og því er það nemandans að ákveða hvenær hann hlustar á kennslu. Það er líka frábært að geta „mætt aftur í tíma“ þegar prófatörnin er að hefjast til að rifja upp og fara yfir efnið. Við mætum í lotur bæði á haust-og vorönn og tökum þá þátt í kennslustundum. Það er bæði hressandi og skemmtilegt og auk þess kynnumst við fólki úr öllum áttum sem stundar sama nám og hittum kennarana okkar til að spjalla og kynnast þeim betur.“ Getur þú mælt með þessu námi og fyrir hverja þá? „Fjarnám er góður kostur fyrir alla sem vilja setjast á skólabekk. Sér í lagi fyrir fólk sem er ekki tilbúið að flytja sig og fjölskyldu sína á annað landssvæði. Möguleikarnir og fjölbreytnin er alltaf að aukast sem gerir þetta meira spennandi.“ Hverjir eru að þínu mati helstu kostir og gallar við svona námsfyrirkomulag? „Kostir fjarnáms eru að mínu mati að mestu leyti fólgnir í að geta skipulagt daginn sinn sjálfur og unnið heimavið ef þannig stendur á. Þó eru alltaf vissir gallar líka. Aðgangur að kennurum er ekki eins mikill hjá fjarnemum og hjá staðarnemum.“ Er góð aðstaða fyrir ykkur? „Við lærum mikið í starfsstöð Austurbrúar á Reyðarfirði og aðstaðan er til fyrirmyndar. Ég hef ekki heyrt um eða rekist sjálf á aðra eins aðstöðu og við höfum aðgang allan sólahringinn.“ Saknar þú einhvers úr „venjulegu“ staðarnámi? „Það er tvennt ólíkt að vera í fjarnámi og staðarnámi. Staðarnám veitir bæði aðhald og félagsskap, ætli maður sakni þess ekki bara að vera hluti af stærri hóp í daglegri rútínu.“ Ef þú mættir gera einhverjar breytingar á fjarnámi hverju myndirðu vilja breyta? „Eins og staðan er í dag myndi ég helst vilja breyta og bæta aðgengi fjarnema að kennurum námskeiða.“ Þeir lesendur blaðsins sem hafa áhuga á háskólanámi eru hvattir til að skoða heimasíður skólanna sem gefa greinargóðar upplýsingar um framboð á fjarnámi. Þá getur fólk líka haft samband við fræðslusvið Austurbrúar og fengið upplýsingar. Jón Knútur Ásmundsson . Sjálfbærniverkefni Austurlands Ársfundur Sjálfbærniverkefnis Alcoa Fjarðaáls og Landsvirkjunar var haldinn í Fróðleiksmolanum á Reyðarfirði 7. maí síðastliðinn. Verkefnið hefur staðið yfir frá því árið 2004 og er ætlað að halda utan um áhrif virkjunar og álvers á Reyðarfirði á samfélag, umhverfi og efnahag á Austurlandi. Á ársfundinum var farið yfir niðurstöður sjálfbærnimælinga árið 2012 auk þess sem Hugi Ólafsson skrifstofustjóri í umhverfisráðuneytinu ræddi stöðu og hlutverk Íslands í alþjóðlegu samstarfi um aðgerðir til að sporna við loftslagsbreytingum. Í kynningu Huga kom fram að loftslagsvandinn í heiminum sé að stærstum hluta tilkominn vegna orkuvinnslu eða um 80% í Evrópu á meðan vandinn á Íslandi er vegna stóriðju og samgangna. Ísland tekur þátt í Kyoto bókuninni auk þess sem verið er að innleiða evrópskt viðskiptakerfi og kerfisbundna skráningu á losun þar sem byrjað var á stóriðjunni. Nefnd á vegum umhverfisráðuneytisins hefur unnið að stefnumótun og tillögugerð varðandi þátttöku Íslands í umræddu samstarfi en þar hefur verið farið í ýmsar aðgerðir til að sporna við aukinni mengun svo sem kolefnisgjald, skattlagning, efling almenningssamgangna, aukin notkun lífeldsneytis í stað olíu, rafvæðing fiskimjölsverksmiðja, aukin skógrækt og landgræðsla, endurheimt votlendi, aukinn stuðningur við rannsóknir og nýsköpun sem stuðlar að sjálfbærni. Auk Huga fjölluðu sérfræðingar frá Alcoa Fjarðaáli, Landsvirkjun og Austurbrú um niðurstöður mælinga 2012. Í máli þeirra kom m.a. fram að virkjun og álver virðast ekki hafa haft áhrif á hreindýrastofninn á Austurlandi.Erfitt er að meta áhrif á gæsastofninn og jarðvegsrof í Lagarfljóti er minna en áætlað var en affall virkjunarinnar hefur haft þau áhrif að fljótið er gruggugra en áður og hefur það komið niður á fiskistofnum í fljótinu. Steinsmiðja Akureyrar • Glerárgötu 36 • S: 466 2800 • sala@minnismerki.is • www.minnismerki.is Opnunartímar: Mán. - fim. kl. 13:00-18:00, föst. kl. 13:00-17:00 ÓKEYPIS FLUTNINGUR! Fráb ært úrv al Gott verð Gæði 25 ára reynsla Skoðið úrvalið á www.minnismerki.is Alma Sigurbjörnsdóttir, háskólanemi á reyðarfirði katrín María Magnúsdóttir er verkefnisstjóri Sjálfbærniverkefnisins hjá Austurbrú fjarnám á austurlandi

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/1094

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.