Austurland - 16.05.2013, Side 11
Hvað er jafnrétti?
Austurland hefur frá upphafi verið í samstarfi við Tengslanet
Austfirskra Kvenna (TAK) um
kynningu á konu mánaðarins sem
valin er af handahófi hverju sinni
úr félagaskrá. Einhverjir kunna að
hafa velt fyrir sér af hverju ekki karl
mánaðarins o.fl. Okkar markmið hefur
verið að taka þátt í því að stuðla að
auknu jafnrétti kynjanna í fjölmiðlum.
En hvað er jafnrétti?
Þátttaka kvenna í samfélaginu er
oftar en ekki falin, t.d. innan skóla-
og heilbrigðiskerfis þar sem ábyrgð
byggir á trúnaði, ekki viðurkenningu
samfélagsins. Fjölmiðlar beina athygli
sinni að ímynd hinnar fullkomnu konu
fremur en verkum og viðfangsefnum
kvenna. Markaðurinn fyrir
megrunarkúra, sjálfshjálparnámskeið,
menningu og endurmenntun
samanstendur að stórum hluta af
konum sem vilja læra, upplifa, breyta
og bæta. Konur eru oftar skilgreindar
sem ákveðin tegund fólks í fjölmiðlum
á meðan karlar sleppa oftast við
þessa áráttu fyrir utan lífseiga ímynd
(fordóma) hellisbúans.
En jafnrétti snýst ekki um sérstakar
ívilnanir til kvenna, það snýst um
jafnrétti í raun, einnig fyrir karla. Þegar
horft er til stöðu kvenna í veröldinni
í dag þá virðist þeim almennt ganga
vel að fóta sig í síbreytilegu samfélagi
sköpunar og þekkingar. Sé horft til
karlmanna þá blasa við ákveðnir
erfiðleikar, í skólunum eiga drengir
oftar í erfiðleikum en stúlkur, karlmenn
fremja fleiri glæpi en konur og
aðalleikendurnir í hruninu voru karlar.
Þrátt fyrir framþróun jafnréttismála
þá virðist sem veröldin verði stöðugt
kynjaskiptari, karlar eru orðnir
sjaldséðir í kennarastétt, þeim fer
fækkandi í þjónustustörfum og margir
eru enn í aukahlutverki á heimilunum.
Á meðan þátttaka karla í innviðum
samfélagsins fer minnkandi þá verða
þeir meira áberandi í fjölmiðlum sem
eru yfirfullir af fréttum af körlum á
verðbréfamarkaði, í skemmtanaiðnaði,
í fótboltanum og í stjórnmálunum.
Í bók Gunnars Hersveins um
þjóðgildin fjallar hann um karllæg
og kvenlæg gildi. Kvenlæg gildi eru
m.a. samvinna, skilningur, umhyggja,
sköpun, innsæi, þolinmæði og
hlutlægni á meðan karllæg gildir eru
skilvirkni, völd, árangur, regluveldi,
íhaldssemi, agi og formfesta. Á meðan
konur áttu að tileinka sér dyggðir á
borð við trú, von, kærleika, þakklæti,
iðni, auðmýkt og virðingu þá var
horft til þess að karlar tileinkuðu sér
dyggðir á borð við heiðarleika, forystu,
hugrekki, stefnufestu og ábyrgð.
Yfirleitt er ekki ætlast til þess að karlar
tileinki sér kvenlægar dyggðir né að
konur tileinki sér karllægar dyggðir.
En hvað er þá jafnrétti og hvernig
náum við því? Skilning manna á
jafnrétti má til að mynda finna í
stjórnarskrám, að allir menn séu fæddir
jafnir og að öllum lýðræðissamfélögum
beri að stuðla að því að allir menn
hafi tækifæri til að þroskast og
leita hamingjunnar. Af hverju eru
staðalmyndir kynjanna enn við lýði?
Er ef til vill hætt við því að við munum
lifa í kynlausri veröld ef þessir meintu
Skemmtileg og fjölbreytileg
fjölskylduhelgi í Grímsey
31. maí – 2. jún
í!
Hvernig væri að koma til Grímseyjar
og eyða þar skemmtilegri helgi?
Ratleikur
Bjargsig
Harmonikkuspil og söngur úti á fæti
Sjómannadagskrá við höfnina
Leikir á fótboltavellinum
Sjávaréttahlaðborð að hætti eyjaskeggja
Idolkeppni fyrir yngri kynslóðina
Dansleikur
Listaverkagerð við höfnina í umsjón Bildu listakonu
Norlandair ýgur til eyjarinnar alla dagana.
Ferjan Sæfari kemur frá Dalvík á föstudeginum
og aftur á mánudeginum.
Hægt er að bóka gistingu á gistiheimlinu Básum í síma 467-3103
eða á gagga@simnet.is og hjá Gallerí Gullsól í síma 467-3190
eða á idajons@simnet.is.
Einnig er hægt að gista á tjaldstæði við félagsheimilið Múla.
Upplýsingar í síma 898 2058 (Unnur) og 861 1813 (Hulda Signý)
Framkvæmdasvið Fjarðabyggðar
auglýsir starf eigna- og fram-
kvæmdafulltrúa laust
til umsóknar
Eigna- og framkvæmdafulltrúi hefur umsjón og eftirlit
með öllum fasteignum Fjarðabyggðar og heldur utan um
viðhalds- og nýframkvæmdir sveitarfélagsins í samvinnu
við mannvirkjastjóra.
Helstu verkefni:
• Gerð útboðs- og verklýsinga vegna framkvæmda.
• Skipulagning og eftirlit með framkvæmdum,hönnun- og
byggingastjórn vegna nýframkvæmda og viðhalds-
verkefna.
• Gerð skammtíma- og langtímaáætlana..
Æskilegt er að viðkomandi hafi:
• Verkfræði, tæknifræði eða sambærileg menntun á
háskólastigi.
• Reynslu af og þekkingu á fasteignamálum sveitarfélaga
og á stefnumótandi áætlanagerð og gerð rekstrar- og
fjárhagsáætlana.
• Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagshæfni.
•Hæfni til að miðla upplýsingum í töluðu og rituðu máli.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum LN við við-
komandi stéttarfélag.
Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um
stöðuna og gott er ef viðkomandi getur hafið störf með
stuttum fyrirvara.
Allar frekari upplýsingar veitir Guðmundur Elíasson
mannvirkjastjóri, í síma 470 - 9019.
Umsóknir skulu sendar á netfangið
gudmundur.eliasson@fjardabyggd.is merkt
eigna- og framkvæmdafulltrúi
Umsóknarfrestur er til og með 26. maí 2013.
Framhald bls.12