Austurland - 16.05.2013, Qupperneq 12
karl- og kvenheimar renna saman?
Líkast til er það vegna síðastnefndu
spurningarinnar sem við erum enn
að gæla við staðalmyndir kynjanna,
en eigum við að láta óraunhæfar
hugmyndir um karlmennsku og
kvenleika standa í vegi fyrir þroska
fólks? Er ekki mikilvægt að við ræðum
og ályktum um hvaða gildi og dyggðir
skipta okkur mestu máli í dag? Eru
það ef til vill gildi og dyggðir sem geta
orðið okkur leiðarljós í átt að friði og
sjálfbærni? Getur ekki verið að til að
nálgast markmið um frið og sjálfbærni
þá þurfum við e.t.v. að rækta til jafns
auðmýkt og valdsækni, þolinmæði og
hugrekki, sköpunargáfu og þörf fyrir
formfestu svo eitthvað sé nefnt? Gildi
samfélagsins þurfa að vera sameign
okkar allra og til þess að þroska þau er
mikilvægt að allir taki þátt í opinberri
umræðu sem oftar en ekki virðist vera
vígvöllur andstæðra sjónarmiða, ekki
sátta og lausna
Urðunarsvæði við Bakkafjörð, Langanesbyggð
Tillaga að deiliskipulagi fyrir urðunarsvæði á Bakkafirði,
Langanesbyggð, auk umhverfisskýrslu auglýsist hér
með skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 7. gr. laga
um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.
Um er að ræða 3.75 ha svæði norðaustan þéttbýlisins
á Bakkafirði en með deiliskipulaginu er þar gert
ráð fyrir áframhaldandi rekstri urðunar-, námu
og geymslusvæði. Skipulagstillagan er gerð með
fyrirvara um staðfestu og gildistöku Aðalskipulags
Langanesbyggðar 2007-2027.
Tillagan verður til sýnis frá og með þriðjudeginum 14.
maí 2013 til miðvikudagsins 26. júní 2013 á skrifstofu
Langanesbyggðar að Fjarðarvegi 3 á Þórshöfn og í
anddyri skrifstofunnar að Skólagötu 5 á Bakkafirði.
Tillagan verður einnig aðgengileg á heimasíðu
sveitarfélagsins:
– www.langanesbyggd.is –
Skriflegar athugasemdir og ábendingar skulu hafa
borist umhverfis-, skipulags- og bygginganefnd eigi
síðar en kl. 16:00 miðvikudaginn 26. júní 2013.
Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests,
teljast samþykkir tillögunni.
Sveitarstjóri Langanesbyggðar
Auglýsing
deiliskipulagstillögu og
umhverfisskýrslu
Tölvulesum flestar tegundir bíla
Bosch þjónusta
OPIÐ
8-18 MÁNUD. - FIMMTUD.
8-17 FÖSTUD. / OPIÐ Í HÁDEGINU
Bílaverkstæði Austurlands
Miðási 2 - 700 Egilsstöðum
S. 470-5070 / www.bva.is
Strandhreinsun skáta í Stapavík
Þann 11. maí stóð skátafélagið Héraðsbúar fyrir strandhreinsun
á gönguleiðinni út í Stapavík. Mættir
voru 74 sjálfboðaliðar en veðrið lék
við mannskapinn og vonandi er vetur
konungur kominn í sumarfrí. Tíndir
voru um 16 rúmmetrar af rusli sem
skolað hafði á land. Vel heppnaður
dagur endaði með grilli auk þess sem
þeir yngstu busluðu í sjónum.
Hreinsunin er liður í
umhverfisverkefni sem elsti hópur
Héraðsbúa tekur þátt í ásamt 20
ríkjum í Bandaríkjunum og 20 löndum
víðsvegar um heiminn en skátarnir
vinna sitt verkefni með skátum frá
Ohio. Þann 5. júní munu 18 skátar
(15 krakkar og 3 fullorðnir) leggja
leið sína til Ohio til að taka þátt í
strandhreinsunarverkefni og snúa aftur
heim 14. júní. Það er Alcoa Foundation
sem styrkir Wagggs (heimsbandalag
kvenskáta) í þessu verkefni.
Skátar vilja hvetja fólk til að hugsa
sig aðeins um áður en það hendir rusli
á víðavangi og á hafi úti. Við verðum
öll að huga betur að náttúrunni okkar.
Þórdís Kristvinsdóttir
Félagsforingi Héraðsbúa
Austfirskar krásir á matvæladegi
Austfirskar Krásir, klasasamstarf m a t v æ l a f r a m l e i ð e n d a ,
veitingastaða og mataráhugafólks
á Austurlandi, blása til viðburðar
á Hótel Héraði fimmtudaginn 16.
maí. Á Matvæladeginum munu
matvælaframleiðendur Austurlands
kynna sig og sínar afurðir. Boðið
verður upp á léttar veitingar í anda
fjórðungsins sem geta gefið gestum
hugmyndir um notkun á austfirsku
hráefni.
Boðinu er beint til innkaupaaðila
stofnana og fyrirtækja mötuneyta),
ferðaþjónustuaðila og veitingahúsa.
Nú fer í hönd ferðamannatími þar
sem matur getur og á að gegna
lykilhlutverki í upplifun ferðamannsins
á Austurlandi. Viðburðinum er ætlað
að vekja athygli fyrirtækja og stofnana
á því framboði matvæla sem í boði er
á Austurlandi.
Dagskráin er sem hér segir:
16.00 Húsið opnar
17.00 Opnun - Eygló Björk
Ólafsdóttir, formaður Austfirskra
Krása
17.10 Matur í upplifun
ferðamannsins - erindi frá
Nýsköpunarmiðstöð
17.30 – 19.00 Kynning
matvælaframleiðenda á
Austurlandi
Austfirskar Krásir hvetja veitingahús
á svæðinu til þess að vekja athygli á
austfirsku hráefni á matseðlum sínum
í tengslum við Matvæladaginn.
Unnið að hreinsun í Stapavík
Stoltur hópur í lok dags
12 16. MAÍ 2013
Framhald bls.11
Fjórhjólalagerinn
Stapahrauni 7 • 220 Hfj • Sími 588 3355
www.4h.is
Mikið úrval auka og varahluta
í flestar gerðir hjóla.
Fjórhjólalagerinn
Stapahrauni 7 • 220 Haf • S. 588 3355
www.4h.is
Eigum til reimar í miklu
úrvali í flestar gerðir
snjósleða og fjórhjóla.