Austurland - 16.05.2013, Page 14
14 16. MAÍ 2013
Þjálfar skæruliða!
Þóranna K. Jónsdóttir er kona með markmið. Markmiðið er að þjálfa
upp öfluga íslenska skæruliða sem geta
sigrað heiminn. Ekki með byssum
og sprengjum, heldur með öflugri
markaðssetningu!
Þóranna hefur starfað við markaðs-
og auglýsingamál fyrir stór fyrirtæki
bæði hérlendis og erlendis síðan
upp úr aldamótum, en eftir að hafa
komið að ráðgjöf hjá frumkvöðlum
og litlum fyrirtækjum, m.a. á vegum
Frumkvöðlasetursins á Ásbrú, sá hún
að minni fyrirtæki klikkuðu oftast
á markaðsmálum. „Það er súrt að
vita til þess að fólk sé með frábæra
vöru eða þjónustu í höndunum,
en það verði aldrei neitt úr neinu
vegna þess að fyrirtækin klikka á
markaðsmálunum – sem eru þó
engir galdrar. Markaðsstarfið nær jú í
viðskiptavinina og án þeirra er maður
víst ekki lengi í rekstri,“ segir Þóranna.
Minni fyrirtæki hafa ekki efni á að
ráða starfsmann eða kaupa dýra
markaðsráðgjöf til að bæta úr þessu og
því hefur Þóranna, í samstarfi við fjölda
íslenskra fyrirtækja og frumkvöðla,
þróað þjálfun í markaðsmálum sem
veitt er á netinu.
MáM þjálfunin (MáM stendur fyrir
Markaðsmál á mannamáli) leiðir fólk í
gegnum frumskóginn og fer skref-fyrir-
skref í gegnum skýrt ferli sem leggur
sterkan grunn að markaðsstarfinu
og setur upp markaðskerfi sem
viðkomandi getur svo fylgt áfram.
„Ég líki þjálfuninni stundum við
þekkta sænska húsgagnavöruverslun,“
segir Þóranna og brosir,
„fólk fær tækin, tólin og
leiðbeiningarnar en setur
hlutina sjálft saman og
þannig er hægt að hjálpa því
á verði sem það ræður við”.
MáM þjálfunin er
sérstaklega hönnuð fyrir
minni fyrirtæki sem ekki
hafa mikið fjármagn á
milli handanna. Þjálfunin
byggist að miklu leyti á
hugmyndafræði skæruliða-
markaðssetningar sem
gerir ráð fyrir að eyða
heldur tíma, orku og hugmyndaflugi í
markaðsstarfið heldur en peningum.
„Ég stefni að því að framleiða fullt af
markaðsskæruliðum!“ segir Þóranna.
Á vef þjálfunarinnar, mam.is, má
sjá meira um þjálfunina og þar á
meðal ummæli nokkurra þeirra sem
reynslu hafa af henni. Á mam.is/press
má einnig finna frekari upplýsingar
og myndir.
Þóranna K. Jónsdóttir, MBA
Sími 841 5800 - thoranna@mam.is
Blaðið Austurland óskar eftir að komast í samband við íbúa sveitarfélaganna á Austurlandi sem sjaldan eða
aldrei hafa veitt viðtöl en væru til í að segja skoðun sína í blaðinu eða veita stutt viðtöl. Vinsamlega sendið
okkur tölvupóst á stefania@einurd.is eða hringið í síma 891-6677.
vIlTU SeGjA þÍnA SkoðUn?
Árbókarferð FÍ um
Norðausturland
Árbók Ferðafélags Íslands 2013 fjallar að þessu sinni
um Vopnafjörð, Bakkafjörð og
Langanes, Þistilfjörð, Melrakkasléttu,
Núpasveit, Öxarfjörð og Hólsfjöll.
Afréttum og fjalllendi viðkomandi
byggðarlaga er einnig lýst í árbókinni.
Höfundur árbókarinnar er Hjörleifur
Guttormsson.
Efnt verður til árbókarferðar helgina
22.–23. júní nk. og verður höfundurinn
fararstjóri. Þetta er 2 daga rútuferð frá
Egilsstöðum norður um Vopnafjörð og
árbókarsvæðið allt vestur í Öxarfjörð,
upp á Hólsfjöll og til baka um þjóðveg
1 í Egilsstaði.
Fyrri daginn er farið frá Egilsstöðum
eftir komu morgunflugs frá Reykjavík
og ekið um Hellisheiði. Áning og létt
ganga á völdum stöðum í Jökulsárhlíð,
Vopnafirði og Bakkafirði. Gisting á Ytra
Lóni á Langanesi. Árbókarkynning og
spjall um kvöldið.
Síðari daginn er skroppið út að
Heiði á Langanesi, síðan um Þórshöfn,
vestur Þistilfjörð, til Raufarhafnar og
út fyrir Sléttu. Komið við á Kópaskeri
og stansað síðdegis í Ásbyrgi. Upp
með Jökulsá að austan að Dettifossi.
Viðkoma á Grímsstöðum og
Biskupshálsi og síðan sem leið liggur í
Egilsstaði fyrir síðasta flug suður.
Hugsanlega má byrja rútuferð á
Norðfirði kl. 8 að morgni og skila fólki
þangað í lokin.
Verð í ferðina er kr. 15.000 / 18.000
( miðað við brottför frá Egilsstöðum ).
Innifalið er rúta, gisting og fararstjórn.
Tilboð í flug með Flugfélagi Íslands
Reykjavík – Egilsstaðir – Reykjavík er
kr. 26.300.
Fólk hafi með sér svefnpoka og
nestisbita fyrir báða dagana, en kostur
gefst til að kaupa hressingu á Vopnafirði,
og kvöldverð og morgunverð á Ytra-
Lóni. Hugsanlega léttan miðdegisverð
á Hótel Norðurljósum á Raufarhöfn.
Ferðin er öllum opin. Nánari
upplýsingar og skráning í síma 568
2533 eða á netfangið fi@fi.is í síðasta
lagi 20. maí.
Fréttatilkynning
Skeggjastaðakirkja í Bakkafirði er einn
þeirra staða sem heimsóttir verða.
Sauðaneshús á Langanesi.