Fréttablaðið - 03.02.2015, Qupperneq 4
3. febrúar 2015 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 4
268 prósenta aukning varð á verðmæti hvers
tonns af útfluttum skelfiski milli
2003 og 2013.
Fyrra árið fengust tæplega 400
þúsund krónur á tonnið en nærri 1,5
milljónir króna á tonnið árið 2013.
Byggt á tölum Hagstofunnar
SAMFÉLAGSMÁL Hópur hælisleitenda
mótmælti í gær löngum málsmeð-
ferðartíma í málum þeirra. Allir
búa þeir í Reykjanesbæ og mót-
mæltu því hversu langan tíma það
taki að afgreiða umsóknir þeirra um
hæli hérlendis.
Fréttablaðið fylgdist með mótmæl-
unum. Meðal mótmælenda var Feri-
ane Amrouni, þriggja barna einstæð
móðir frá Alsír, sem beðið hefur í
tæp tvö ár í óvissu um það hvort hún
og börn hennar fái hæli hérlendis.
Hún mætti með börn sín þrjú á mót-
mælin. „Ég var blaðamaður í Alsír
og bjó við mjög slæmar aðstæður.
Ég kom hingað til þess að tryggja
öryggi barnanna minna,“ segir hún.
Hópurinn mætti fyrst til að mót-
mæla fyrir framan innanríkisráðu-
neytið en fékk þá þær upplýsingar
að kærunefnd útlendingamála sem
nýlega tók til starfa hefði aðset-
ur í húsnæði stjórnarráðsins við
Skuggasund. Hópurinn hélt þangað
í þeirri von að fá svör við spurning-
um sínum. „Við erum þreytt á því að
yfirvöld hundsi okkur, það vill eng-
inn tala við okkur. Við fáum engin
svör,“ segir Adam Ibrahim Pasha.
Útlendingastofnun synjaði umsókn
hans um hæli í október en hann
kærði synjunina til innanríkis-
ráðuneytisins í sama mánuði. Sam-
kvæmt lögum ráðuneytisins átti
hann að fá svör innan þriggja mán-
aða en hefur enn engin svör fengið.
Þegar komið var í húsnæði stjórn-
arráðsins stillti hópurinn sér upp
í anddyrinu með mótmælaskilti.
Niður kom formaður kærunefnd-
arinnar og hlustaði á hópinn sem
Adam er í forsvari fyrir.
„Ég bið ykkur að sýna þolinmæði.
Ég veit ég er að biðja um mikið
en ég get ekki lofað neinu. Það er
nýbúið að flytja þessi mál hingað og
við erum að setja okkur inn í þetta.
Það mun einhverjum málum ljúka í
þessum mánuði. Ég vildi að ég gæti
gefið ykkur einhverja dagsetningu
en ég get það ekki,“ sagði Hjörtur
Bragi Sverrisson, formaður nefnd-
arinnar.
„Getur þú þá allavega lofað að það
verði eitthvað gert í hennar málum?
Hún er með þrjú börn,“ sagði einn
í hópnum og benti á Feriane. „Hún
er búin að bíða í næstum tvö ár, hún
verður að fá einhver svör,“ sagði
hann.
„Ég hef enga von fyrir mig og
börnin. Okkur langar að búa hér,“
sagði Feriane.
Hjörtur hlustaði á raunalegar
sögur hælisleitendanna. Flestir
höfðu flúið föðurlandið ýmist vegna
ofsókna eða stríðsástands. Sumir
flækst milli landa í von um öruggan
stað undanfarin ár. Það var augljóst
að það reyndist þeim erfitt að segja
sögu sína. „Gerðu það, hjálpaðu
mér,“ sagði einn hælisleitendanna
með tárin í augunum. „Við viljum
bara vera örugg.“
Hælisleitendurnir segja allir að
biðin taki mikið á og eins óviss-
an sem fylgi því að vita ekki hvað
verði. Meðan þeir eru hér mega
þeir ekki vinna og bíða örlaga sinna
í algjörri óvissu.
viktoria@frettabladid.is
Þriggja barna móðir hefur
beðið í tvö ár eftir svörum
Hælisleitendur mótmæltu löngum málsmeðferðartíma. Hafa beðið í marga mánuði í óvissu um hvað taki við.
Blaðamaður frá Alsír með þrjú ung börn kom hingað fyrir um tveimur árum og bíður enn eftir svörum frá
ráðuneytinu. Hún vonast eftir að fá hæli hér fyrir sig og börnin sín þrjú til þess að geta skapað þeim öryggi.
„Það er mjög alvarlegt. Þetta er eitthvað sem ég vonast
til að komi ekki til með að gerast undir þessari nefnd,“
segir Hjörtur Bragi Sverrisson, formaður kærunefndar um
útlendingamál, um mál Feriane. Hann tók við starfinu 14.
janúar og segir 105 mál vera á borði nefndarinnar. Flest
málin séu frá 2014 en einhver þeirra frá 2013. Það verður
sett í forgang að afgreiða þau. Hjörtur segir það hafa
verið gott að hitta hælisleitendurna og heyra þeirra sögur.
„Mér finnst mjög mikilvægt að það sé þessi samræða
milli hælisleitenda og þeirra sem fara með þeirra mál.
Mér finnst gott að heyra frá þeim og skilja betur þeirra
sjónarmið.“
Hann segist telja að málsmeðferð í þessum málum
hafi hingað til verið vönduð og of snemmt sé að segja
til um hvort hún komi til með að breytast eitthvað með
nýstofnaðri kærunefnd.
„Hugmyndin er að tryggja að réttindi þeirra séu tryggð.
Að við förum að íslenskum lögum og þeim skuldbind-
ingum sem við erum bundin af á sviði mannréttinda og
flóttamannaréttar,“ segir hann.
ELSTU MÁLIN SETT Í FORGANG
MÓTMÆLENDUR
Hópurinn mót-
mælti því hversu
langan tíma tæki
að afgreiða mál
þeirra. Á meðan
bíði þeir í algjörri
óvissu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
NEYTENDUR Neytendastofa hefur
í kjölfar eftirlits með verðmerk-
ingum í sundlaugum á höfuðborg-
arsvæðinu sektað Reykjavíkur-
borg um 100 þúsund krónur þar
sem ekki hafði verið farið að fyr-
irmælum um að bæta merkingar
þegar eftirliti var fylgt eftir.
Á vef Neytendastofu segir að í
Vesturbæjarlaug og Árbæjar-
laug hafi vantað verðmerkingar á
söluvörur þegar farið var í seinni
heimsókn. Í þremur sundlaugum
af þeim fimm sem gerðar voru
athugasemdir við höfðu merking-
ar verið bættar.
- ibs
Vanræksla í sundlaugum:
Stjórnvaldssekt
lögð á borgina
LÍBERÍA, AP Fyrstu tilraunir með
bóluefni gegn ebólu hófust í Líb-
eríu í gær. Í höfuðborginni var
efnt til mikilla hátíðarhalda af
þessu tilefni.
Tónlistarmenn komu fram
og sungu lög með textum sem
útskýra tilganginn með tilraun-
unum, en margir íbúar landsins
eru afar tortryggnir gagnvart
bóluefninu.
Ebólufaraldurinn er á hægu
undanhaldi, en hann hefur smit-
að nærri 22 þúsund manns og
kostað nærri níu þúsund manns
lífið. Ástandið hefur verið verst í
Síerra Leóne, Líberíu og Gíneu.
- gb
Ebólufaraldurinn dvínar:
Tilraunir með
bóluefni hefjast
HJÚKRUNARFÓLK Í MONRÓVÍU Æ
færri smitast nú af ebóluveirunni en
áður. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STJÓRNMÁL Hafsteinn Þór Hauks-
son, lektor í lögfræði við Háskóla
Íslands, telur að tilefni kunni að
vera fyrir innanríkisráðherra til að
leggja skýrar línur um störf aðstoð-
armanna sinna.
Þetta kemur fram í minnisblaði
Hafsteins Þórs til Ólafar Nordal
innanríkisráðherra, en Ólöf bað Haf-
stein að rýna í álit umboðsmanns
Alþingis um samskipti Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur innanríkisráðherra
og Stefáns Eiríkssonar, lögreglu-
stjóra á höfuðborgarsvæðinu.
Hafsteinn
segir að í ljósi
tvíþætts hlut-
verks ráðherra
v ið pól it íska
stefnumótun ann-
ars vegar og sem
handhafa stjórn-
sýslunnar hins
vegar sé það ef
til vill eðlilegast
að ráðherra leggi þá línu að póli-
tískir aðstoðarmenn kalli ekki eftir
gögnum frá undirstofnunum er
varða mál sem eru til stjórnsýslu-
legrar meðferðar.
Hafsteinn Þór telur að því fylgi
augljóslega vandi að lögregla rann-
saki ráðherra, sem er æðsti yfir-
maður lögreglunnar. Samkvæmt
upplýsingum frá innanríkisráðu-
neytinu er fátt í minnisblaðinu sem
kallar á sérstök viðbrögð frá Ólöfu.
En minnisblaðið hefur verið sent til
forsætisráðuneytisins sem innlegg
í þá vinnu sem þar fer fram varð-
andi hlutverk aðstoðarmanna, siða-
reglur og formreglur. - ngy
Úr minnisblaði Hafsteins Þórs lektors til Ólafar Nordal innanríkisráðherra:
Leggja línur fyrir aðstoðarmenn
HAFSTEINN ÞÓR
HAUKSSON
STJÓRNMÁL Stuðningur við Pírata
hefur meira en tvöfaldast frá
kosningum. Fylgi við flokk-
inn mælist nú tæp 12 prósent en
hann hlaut 5 prósent í alþingis-
kosningum. Þetta kemur fram
í nýjum Þjóðarpúlsi. Samfylk-
ingin mælist með 18 prósent og
Vinstri grænir með 11 prósent.
Framsóknarflokkurinn bætir við
sig fylgi og er með rúmlega einu
prósenti meira fylgi en Píratar og
nýtur nú stuðnings 13 prósenta
kjósenda. - kbg
Flokkur á mikilli siglingu:
Píratar mælast
með 12 prósent
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Stein-
grímsson hlynur@365.is, Hjalti Egilsson hjalti@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402:
Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson
jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason
hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
HEYRNARSTÖ‹IN
Snjallara heyrnartæki
Beltone First™
Beltone First gengur með iPhone 5s, iPhone 5c, iPhone 5, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi.
Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum.
Ókeypis
heyrnarmælingsíðan 2004
Soff ía Sveinsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
HLÝNAR Það verður bjart og kalt veður fram eftir degi, þá hvessir og þykknar upp
NV- og V-til og horfur eru á úrkomu í nótt og fyrramálið. Á morgun eru horfur á
suðvestanstormi um tíma, einkum N- og NV-til. Það hlýnar heldur í veðri næstu daga.
-3°
9
m/s
-4°
10
m/s
-4°
5
m/s
0°
2
m/s
Víða
nokkuð
hvasst og
stormur
um tíma,
einkum
N-til.
Strekk-
ingur N-
til, annars
hægari
vindur.
Gildistími korta er um hádegi
-4°
18°
-6°
2°
15°
0°
0°
-1°
-1°
18°
5°
13°
15°
14°
3°
1°
-1°
0°
-6°
3
m/s
-1°
6
m/s
-6°
3
m/s
-5°
7
m/s
-2°
3
m/s
-2°
8
m/s
-12°
7
m/s
3°
4°
1°
3°
0°
1°
0°
0°
1°
1°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
FIMMTUDAGUR
Á MORGUN
0
2
-0
2
-2
0
1
5
2
2
:2
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
9
C
-C
8
2
0
1
3
9
C
-C
6
E
4
1
3
9
C
-C
5
A
8
1
3
9
C
-C
4
6
C
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K