Fréttablaðið - 03.02.2015, Blaðsíða 19
ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2015
Reynsluakstur Opel Corsa
Hættulegustu og öruggustu bílarnir
Porsche 3 ár á undan sölumarkmiðum
McLaren endurnýjar kynnin við Honda BÍLAR
L
ítið sem ekkert er að marka
niðurstöður mælinga á
mengun frá nýjum dísilbíl-
um, hvorki fólks- né vöru-
bílum. Evrópuráðið ýtir því
á að nýjar reglur um þess-
ar mælingar verði lögfest-
ar hið bráðasta. Nýju reglurnar eiga
að tryggja það að mælingarnar, sem
bílaframleiðendur sjálfir sjá um, gefi
rétta mynd af mengun frá bílunum í
raunverulegri notkun sem þær alls
ekki gera nú. Sumir bílaframleiðend-
urnir þumbast hins vegar við og vilja
fá lengri aðlögunartíma. Félag ís-
lenskra bifreiðaeigenda hefur vakið
athygli á þessu í grein á vef sínum.
Sjöfalt meiri mengun
Kirsten Brosbøl, umhverfisráðherra
Danmerkur, hefur mælst til þess að
að dönsku fulltrúarnir í bílanefnd
Evrópuráðsins greiði atkvæði með
innleiðingu nýju reglnanna sem átti
sér stað 26. janúar síðastliðinn, á
næsta fundi nefndarinnar. Sérstak-
ar rannsóknir og prófanir hafa leitt
í ljós að útblástur natríumoxíðsam-
banda (NOx) frá nýjum dísilbílum er
að meðaltali sjöfalt meiri í raunveru-
legri notkun bílanna heldur en hann
má vera samkvæmt reglum. Þetta
þýðir einfaldlega það að flestir dís-
ilbílar sem fengið hafa gerðarviður-
kenningu í seinni tíð hefðu alls ekki
með réttu átt að fá hana, en fengu
hana vegna þess að mælingaaðferð-
ir sem beitt var voru rangar og gáfu
kolrangar niðurstöður.
Danir þrýsta á nýjar reglur
Þess vegna vill danski umhverfisráð-
herrann, Kirsten Brosbøl, að ný mæl-
ingaaðferð og -tækni verði lögfest
hið allra fyrsta svo að bílaframleið-
endur geti brugðist sem fyrst við og
ERU MENGUNARMÆLINGAR DÍSILBÍLA TÓM TJARA?
Evrópusambandið krefst nýrra og marktækra mæliaðferða á mengun frá nýjum dísilbílum. Margir vilja losna við dísilbíla.
endurbætt bílana og vélarnar þann-
ig að mengunin frá þeim verði innan
settra marka. Nokkrir bílaframleið-
endur telja það ómögulegt og hafa
óskað eftir lengri aðlögunartíma. Í
tillögum að nýjum mælingareglum
og -aðferðum segir að mælingarn-
ar skuli framvegis sýna NOx-meng-
un frá nýjum bílum í raunverulegri
notkun. Allir dísilknúnir fólks- og
vörubílar sem sótt er um gerðarvið-
urkenningu fyrir í Evrópu skuli í
mengunarpróf og standast lágmarks-
kröfur laga og reglna áður en gerðar-
viðurkenning fæst.
Frakkar vilja losna við dísilbíla
Frakkar hafa vaknað upp við vondan
draum hvað mengun frá dísilbílum
áhrærir og nýjar niðurstöður um
mengun þeirra hefur orðið til þess að
ríkisstjórn Frakklands hefur tekið
til þess ráðs að skattleggja dísilbíla
helst út af markaðnum. Markmið
lagasetningarinnar er greinilega á þá
lund að losna við dísilbíla af götum
Frakklands, en á undanförnum árum
hafa hátt í 80% allra nýrra seldra
bíla þar í landi verið með dísilvélum,
sökum lítillar eyðslu þeirra. Borgar-
stjóri London, Boris Johnson, hefur
einnig skorið upp herör gegn dísilbíl-
um og reyndar í leiðinni notkun allra
bíla í borginni. Johnson hefur lagt til
að breska ríkið greiði eigendum dís-
ilbíla allt að 2.000 pund ef þeir skipta
úr dísilbíl í bensínbíl. Það gæti hins
vegar kostað breska ríkið 300 millj-
ónir punda og því stendur tillaga
hans í mörgum. Skemmst er að minn-
ast þess að Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunin hefur nýverið skilgreint út-
blástur frá dísilbílum krabbameins-
valdandi og það með óyggjandi hætti,
en ekki sem líklegum krabbameins-
valdi.
Ríkisstjórn
Frakklands
hefur
tekið til
þess ráðs
að skatt-
leggja
dísilbíla
helst út
af mark-
aðnum.
ÖRUGGT START
MEÐ EXIDE RAFGEYMUM
Endingargóðir og sterkbyggðir rafgeymar fyrir flestar gerðir
bifreiða. Veldu þaulreynda vöru frá gæðaframleiðanda.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
13
18
58 Exide rafgeymarnir fást hjá:
0
2
-0
2
-2
0
1
5
2
2
:2
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
3
9
C
-E
5
C
0
1
3
9
C
-E
4
8
4
1
3
9
C
-E
3
4
8
1
3
9
C
-E
2
0
C
2
8
0
X
4
0
0
6
B
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K