Fréttablaðið - 03.02.2015, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 3. febrúar 2015 | SKOÐUN | 13
Í umræðunni sem
spannst í kringum
umdeilda skipun vara-
manns Framsóknar og
flugvallarvina í mann-
réttindaráð Reykjavíkur-
borgar hefur lítið farið
fyrir alvarlegum punkti
sem með réttu á að gagn-
rýna borgarstjórnar-
meirihlutann fyrir.
Það er ótækt að full-
trúar meirihlutans, þar
með taldir bæði borgar-
stjóri og forseti borgarstjórnar,
hafi skipt sér af þessari skip-
un með því að sitja hjá við kjör
varamannsins á borgarstjórn-
arfundi og rökstyðja það með
andúð sinni á viðkomandi full-
trúa. Það skiptir engu hversu
umdeild skipunin var eða mað-
urinn sem skipa átti. Það er ein-
faldlega ótækt í öllum tilvikum
að meirihlutinn skipti sér þann-
ig af því hvernig aðrir flokkar
nota sitt lýðræðislega umboð til
að skipa fólk í ráð og nefndir.
Sé framferði meirihlutans í
þessu máli ekki gagnrýnt strax
er hætta á að hættulegt og ólýð-
ræðislegt fordæmi skapist.
Sumum finnst kannski að það sé
allt í lagi að segja þannig skoðun
sína með hjásetu – en það er ekki
hefðin í borgarstjórn Reykjavík-
ur, og það er ástæða fyrir því.
Það er sjálfsagt að fólk gagn-
rýni að flokkur, sem hefur langt
frá því gert hreint fyrir sínum
dyrum varðandi andúð í garð
minnihlutahóps, skipi yfirlýst-
an andstæðing réttinda minni-
hlutahópa í það ráð borgarinnar
sem á að passa upp á slík mann-
réttindi. En það breytir því ekki
að það er framboð Framsóknar
og flugvallarvina sem
ber, og á að bera, alla
ábyrgð á þeirri ákvörð-
un. Hefðin í borgarstjórn
hefur einmitt undirstrik-
að þetta; verklagið er að
þótt reglur kveði á um
að fulltrúar í nefndir og
ráð séu kosnir á borgar-
stjórnarfundi greiðir
borgarstjórn öll atkvæði
með þeim fulltrúum
sem flokkarnir tilnefna.
Það hefur ekki verið
litið svo á að með atkvæði sínu
væru borgarfulltrúar að styðja
við, lýsa velþóknun á eða taka
ábyrgð á fulltrúum einstakra
flokka.
Öryggisventill
Hjáseta meirihlutans leiddi ekki
af sér að fulltrúi Framsóknar og
flugvallarvina hlyti ekki kjör,
en ef menn eru búnir að bregða
út af hefðinni má spyrja hvort
eitthvað útiloki að með svip-
uðum rökum felli meirihlutinn
hreinlega fulltrúa minnihlutans,
sem honum hugnast ekki að hafa
í nefndum og ráðum. Raunar
var spurt í fjölmiðlum af hverju
meirihlutinn hefði ekki beitt
valdi sínu á þann veg. Það segir
sig þó sjálft hversu fullkomlega
óeðlilegt það væri að meirihlut-
inn gæti stýrt á þann hátt hverj-
ir veljast í ráð og nefndir fyrir
minnihlutann.
Á borgarstjórnarfundi í dag
verður kosinn nýr varamaður
Framsóknar og flugvallarvina
í mannréttindaráð. Megum
við gera ráð fyrir að formaður
borgarráðs sitji hjá af því að
hann ætlar aldrei aftur að „taka
nokkra ábyrgð á þessu fólki“?
Sú afstaða hans er ágætt dæmi
um að nú þegar er búið að búa
til skrýtilegt fordæmi þar sem
reynt er að færa ábyrgðina á
vali fulltrúa í ráð og nefndir frá
flokknum sem tilnefnir þá. Eini
alvöru öryggisventillinn gegn
vondum ákvörðunum stjórn-
málaflokka er hins vegar að þeir
beri pólitíska ábyrgð gagnvart
kjósendum.
Meirihlutinn ætti að sjá sóma
sinn í að bregðast strax við,
viðurkenna mistök sín og stuðla
að því að girða fyrir pólitísk-
ar freistingar eins og hann féll
fyrir sjálfur með því að breyta
strax reglunum. Þær ættu að
vera þannig að flokkarnir skipi
einfaldlega sína fulltrúa án þess
að aðrir þurfi að samþykkja,
hafna eða sitja hjá við kosningu
þeirra. Meirihlutinn hlýtur að
sjá að það er það skynsamlega
í stöðunni; að setja ábyrgðina
nákvæmlega þangað sem hún á
heima og sleppa ólýðræðislegum
popúlisma eftir hentugleik. Það
er einsýnt að verði reglunum
ekki breytt er hætta á að meiri-
hlutinn freistist til að festa enn
frekar í sessi æfingar með póli-
tíska afskiptasemi þar sem hún
á engan veginn heima.
Ólýðræðislegur popúlismi
meirihlutans
Svarbréf til Þór-
hildar Egilsdóttur
frá velferðarsviði
Reykjavíkurborg-
ar.
Árið 2006 fóru
þrír einstakling-
ar sem notuðu
Ferðaþjónustu
fatlaðra á höf-
uðborgarsvæð-
inu frá Sjálfs-
bjargarhúsinu
niður að Reykja-
víkurtjörn. Það
er kannski ekki í
frásögur færandi
nema fyrir þær sakir að þessir þrír
einstaklingar voru búsettir í þrem-
ur sveitarfélögum á höfuðborg-
arsvæðinu og það komu því þrír
bílar hver frá sínu sveitarfélaginu
að sækja þá. Eftir þetta skraut-
lega atvik bentum við í Sjálfsbjörg
sveitarfélögunum á þetta og vorum
ávallt tilbúin að vinna að úrlausn að
bættri þjónustu. Aldrei fórum við
fram á að þjónustan yrði boðin út!
Í framhaldi af þessari ábendingu
var stofnaður starfshópur á vegum
SSH (Samtaka sveitarfélaga á höf-
uðborgarsvæðinu) sem skilaði af
sér skýrslu þann 19. ágúst 2011
þar sem lögð var til samvinna um
ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk á
höfuðborgarsvæðinu. Í þeim hópi
sat hvorki fulltrúi frá Sjálfsbjörg
né fulltrúi frá öðrum hagsmuna-
félögum. Annar vinnuhópur var
skipaður af SSH sem hélt áfram
þessari vinnu frá 1. mars 2012 og
enn var ekkert samráð haft við
Sjálfsbjörg né önnur hagsmuna-
félög.
Eftir að starfs- og vinnuhóp-
ar SSH luku sinni vinnu var haft
s a mba nd v ið
verkfræðistof-
una Verkís um
að kanna hag-
kvæmni þess
að bjóða ferða-
þjónustuna út.
Verkís skilaði af
sér skýrslu um
málið þann 23.
maí 2012. Þar
lagði Verkís til að
samdar yrðu sam-
eiginlegar reglur
um þjónustuna
fyrir allt höfuð-
borgarsvæðið á
grundvelli laga um málefni fatl-
aðra og leiðbeininga frá velferðar-
ráðuneytinu. Ári seinna, eftir fund
hagsmunasamtaka og Verkís, var
lagt til að farið yrði í forval um
aðila sem gætu tekið að sér akstur-
inn. Eftir þetta var verkefni Verkís
lokið og byrjaði Strætó ásamt VSÓ
ráðgjöf að semja útboðsgögn til að
bjóða þjónustuna út.
Þann 20. júní 2013 var rætt um
stöðu útboðsmála á fundi velferðar-
ráðs og í framhaldi var eftirfarandi
minnisblað sent til Sjálfsbjargar og
annarra hagsmunafélaga:
„Í minnisblaði fjármálastjóra
velferðarsviðs um stöðu útboðs-
mála í ferðaþjónustu fatlaðs fólks
þar sem fram koma tillögur starfs-
hóps Samtaka sveitarfélaga á höf-
uðborgarsvæðinu segir að drög að
reglum hafi verið unnin í samráði
við hagsmunasamtök. Í gögnum er
ekkert sem getur staðfest umrætt
samráð. Því er óskað eftir form-
legri umsögn hagsmunaaðila. Jafn-
framt er óskað eftir greiningu vel-
ferðarsviðs á því hvaða breytingar
yrðu miðað við núverandi reglur
ef tillögur starfshóps SSH yrðu að
veruleika.“
Ekki ásættanlegt
Í kjölfarið sendum við hjá Sjálfs-
björg inn umsögn þar sem lagt
var til að úttekt yrði gerð á núver-
andi þjónustu og að notendur yrðu
spurðir álits, enda eru það þeir sem
hafa reynslu af slíkri þjónustu og
vita hvar er hægt að bæta hana.
Ekkert var gert með þá umsögn og
þjónustukönnun var aldrei gerð.
Því skiljum við ekki hvernig
hægt er að tönnlast á því að sam-
ráð hafi verið haft við notendur
og hagsmunafélög þegar ekkert
er því til stuðnings. Enn þann dag
í dag hefur Reykjavíkurborg ekki
sýnt nokkurn áhuga á að vinna
með hagsmunafélögunum, þó þess
hafi verið óskað bæði af okkur og
minnihluta borgarstjórnar. Þetta
eru því ekki ásættanleg vinnu-
brögð sem hafa verið stunduð í
þessu máli.
Við skorum því á borgarstjórn
og velferðarráð að stofna samráðs-
hóp með fulltrúum allra hagsmuna-
félaga, kjörnum fulltrúa frá öllum
sveitarfélögunum sem koma að
þessu verkefni ásamt starfsmönn-
um viðkomandi ráða, fulltrúa frá
Strætó, Hópbílum, minni verktök-
um og bílstjórum til að reyna að
koma þessari þjónustu í rétt horf
og halda henni gangandi.
Ferðaþjónusta fatlaðra –
Rétt skal vera rétt
SAMGÖNGUR
Andri
Valgeirsson
málefnafulltrúi
Bergur Þorri
Benjamínsson
varaformaður/
málefnafulltrúi
f.h. Sjálfsbjargar,
landssambands
fatlaðra
Frá grunni að viðurkenndum bókara
Það hefur vakið athygli hversu margir nemendur
okkar hafa fengið vinnu eftir að hafa lokið
bókhaldsnámi.
Viðurkennt bókaranám er bæði skemmtileg og
krefjandi námsbraut sem býr nemendur undir
próf sem leiðir til vottunar frá efnahags- og
viðskiptaráðuneytinu sem Viðurkenndur bókari.
Helstu námsgreinar
Verslunarreikningur - 24 stundir
Excel-töflureiknir - 30 stundir
Bókhald - 36 stundir
Tölvubókhald í Navision - 54 stundir
Excel við áætlanagerð - 30 stundir
Launakerfi - 18 stundir
Lánardrottnar og viðskiptamenn - 15 stundir
Fyrningar - 15 stundir
Virðisaukaskattur - 9 stundir
Lán - 21 stundir
Gerð og greining ársreikninga - 36 stundir
Lokaverkefni - 24 stundir
Skattaskil - 18 stundir
Reiknishald, viðbætur - 36 stundir
Upplýsingatækni, viðbætur - 6 stundir
Upprifjun fyrir próf - 42 stundir
Lengd námskeiðs: 2-3 annir - 414 kennslustundir
Verð: 384.000 kr. (hægt er að dreifa greiðslum)
Næstu námskeið:
Morgunnámskeið: 18. feb. 2015 - 30. maí 2016
Kvöldnámskeið: 17. feb. 2015 - 30. maí 2016
Síðdegisnámskeið: 9. mars. 2015 - 30. maí 2016
VIÐURKENNT
BÓKARANÁM
Liggurðu á skoðunum þínum? Það er algjör óþarfi . Sendu greinina þína á greinar@
visir.is og við komum henni á framfæri hið snarasta.
➜ Því skiljum við ekki
hvernig hægt er að tönnlast
á því að samráð hafi verið
haft við notendur og hags-
munafélög þegar ekkert er
því til stuðnings.
➜ Meirihlutinn ætti að sjá
sóma sinn í að bregðast
strax við, viðurkenna mistök
sín og stuðla að því að girða
fyrir pólítískar freistingar
eins og hann féll fyrir sjálfur
með því að breyta strax
reglunum.
STJÓRNMÁL
Hildur
Sverrisdóttir
borgarfulltrúi
0
2
-0
2
-2
0
1
5
2
2
:2
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
3
9
C
-B
9
5
0
1
3
9
C
-B
8
1
4
1
3
9
C
-B
6
D
8
1
3
9
C
-B
5
9
C
2
8
0
X
4
0
0
2
A
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K