Fréttablaðið - 03.02.2015, Side 14

Fréttablaðið - 03.02.2015, Side 14
3. febrúar 2015 ÞRIÐJUDAGUR| TÍMAMÓT | 14TÍMAMÓT Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, TRYGGVI HJÖRVAR kerfisfræðingur, Landsbanka Íslands, Austurbrún 35, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Áskirkju, föstudaginn 6. febrúar kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem vildu minnast Tryggva er bent á Minningarsjóð öldrunardeildar Landspítalans, Landakoti. Erla Hafliðadóttir Tryggvi Hjörvar Kjartan T. Hjörvar Elskulegur sonur okkar, faðir, tengdafaðir og afi, ÓLAFUR EINARSSON skipstjóri, Gesthúsum, Álftanesi, lést þriðjudaginn 27. janúar. Útför hans fer fram frá Bessastaðakirkju miðvikudaginn 4. febrúar kl. 13.00. Einar Ólafsson Sigrún Ásta Guðlaugsdóttir Sigrún Ósk Ólafsdóttir Pétur Daníelsson Einar Ólafsson Auður Ösp Kristbjörnsdóttir Bjarki Ólafsson Aldís Sunna Ólafsdóttir Bjarni Bjarkason og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, EVA ÓSKARSDÓTTIR sem lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni fimmtudaginn 22. janúar, verður jarðsungin frá Langholtskirkju fimmtudaginn 5. febrúar kl. 13.00. Hjartans þakkir til starfsfólks Sóltúns fyrir auðsýnda ást og umhyggju í veikindum Evu. Margrét Stefánsdóttir Ingvar J. Karlsson Ingvar Stefánsson Áslaug Hartmannsdóttir Ásta Edda Stefánsdóttir Birgir Björgvinsson Ellert K. Stefánsson barnabörn og barnabarnabarn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, RÖGNVALDUR ÞÓR RÖGNVALDSSON Sautjándajúnítorgi 3, Garðabæ, áður Brimhólabraut 23, Vestmannaeyjum, lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold, þriðjudaginn 20. janúar. Útför hans fer fram frá Vídalínskirkju, föstudaginn 6. febrúar kl. 13.00. Þeir sem vilja minnast hans láti Krabbameinsfélag Íslands njóta þess. Ásta Sigurbjörg Guðjónsdóttir Guðjón Rögnvaldsson Ragnheiður Einarsdóttir Bryndís Rögnvaldsdóttir Unnar Guðmundsson Hörður Rögnvaldsson Sigrún Gísladóttir Hallgrímur Rögnvaldsson Wendi Zeng Rannveig Rögnvaldsdóttir Halldór Halldórsson barnabörn og langafabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓRÓLFUR BECK JÓNSSON trésmíðameistari, Heiðarhjalla 14, Kópavogi, lést á Landspítalanum sunnudaginn 25. janúar. Útförin fer fram frá Kópavogs- kirkju miðvikudaginn 4. febrúar kl. 13.00. María Einarsdóttir Jón Þór Þórólfsson Hafdís Héðinsdóttir Helga Þórólfsdóttir Agnes Þórólfsdóttir Joachim Lehmann Ólafur Þórólfsson Chanida Sasopa Þórunn Þórólfsdóttir Örn Arnarson barnabörn og barnabarnabörn. Faðir okkar, SIGURÐUR JÓNSSON vélstjóri, Lindargötu 57, Reykjavík, lést föstudaginn 30. janúar. Ásgeir Sigurðsson Jón Viðar Sigurðsson Ólöf Lilja Sigurðardóttir Ástkær bróðir okkar, mágur og frændi, RAGNAR JENS LÁRUSSON lést á Sankt Lukas Hospice í Kaupmanna- höfn sunnudaginn 11. janúar. Útförin fór fram í Kaupmannahöfn föstudaginn 23. janúar. Sigfús Lárusson Jóna Guðmundsdóttir Ásta Lárusdóttir Snorri F. Welding Guðbjartur Lárusson Gerður Steinarsdóttir og frændsystkini. MERKISATBURÐIR 1488 Bartholomeu Dias og áhöfn hans sigla fyrir Góðrarvonar- höfða, fyrstir Evrópubúa. 1505 Víkurkirkja í Reykjavík er vígð af Stefáni Jónssyni Skálholtsbiskupi. 1517 Tyrkjaveldi nær Kaíró á sitt vald. 1815 Fyrsta ostabúið tekur til starfa í Sviss. „Það verður ekkert tilstand, bara smá veisla fyrir vini og vandamenn,“ segir Jón Karl Helgason spurður um afmælishald í tilefni sextugsafmælis- ins í dag. Jón Karl byrjaði rétt rúmlega tví- tugur í kvikmyndagerð og hún hefur átt hug hans síðan. Hann vinnur sjálf- stætt að sínum verkefnum og er með mörg í gangi í einu. Segir kvikmynda- gerðina hafa gefið sér ánægju en enga aðra fjársjóði. „En ég ætlaði alltaf í kvikmyndun,“ segir hann og kveðst ábyggilega vera fyrsti íslenski karl- maðurinn sem lærði förðun. „Ég fór í snyrtiskólann sem Margrét Hjálmtýs- dóttir stýrði og veturinn 1981, mán- uði eftir morðið á John Lennon, fór ég til New York að læra meira í leikhús- og kvikmyndaförðun.“ Heimkominn frá Ameríku kveðst hann hafa farðað persónur í myndunum Jón Oddur og Jón Bjarni, Punktur punktur komma strik og verið aðstoðarhljóðmaður í Á hjara veraldar. „Ég lærði kvikmynda- tökur bara með því að vinna við þær, meðal annars með Friðriki Þór og Ara Kristins. Það þótti svolítið gott að ráða mig því ég gat farðað og verið aðstoð- armyndatökumaður og jafnvel í bún- ingum. Svo var ég auðvitað að hjálpa til í leikmyndum líka. Eftir að Frið- rik Þór var búinn að frumsýna Njáls- brennu í Háskólabíói fórum við austur í Hornafjörð og gerðum myndina Eld- smiðinn. Þar var ég hljóðmaður og í Rokki í Reykjavík sem við framleidd- um var ég með eina af mörgum kvik- myndavélum. Ég hef tekið nokkrar bíó- myndir. Sú síðasta var Vildspor, dönsk mynd frá 1998 með Mads Mikkelsen og Nikolaj Coster Waldau. Þeir voru rís- andi stjörnur þá í Danmörku og orðnir stórstjörnur á alheimsvísu núna. Eftir það hef ég verið í heimildarmyndum og unnið við sjónvarp, til dæmis með Völu Matt, síðast í Heilsugenginu.“ Mótmælandi Íslands, Heimsmet- hafinn í Vitanum, Sundið og Álfahöll- in eru meðal heimildarmynda eftir Jón Karl. Nú er hann með mynd um Tómas R. Einarsson tónlistarmann í vinnslu og aðra um taílenska fjölskyldu, sem hann hefur fylgst með í tíu ár. „Ég er líka með mynd um Pompei norðurs- ins, húsin sem fóru undir vikur í Vest- mannaeyjum og aðra um sundlaugar. Svo safna ég ísbjarnarsögum þannig að ef einhver lumar á slíkum sögum þá má hann eða hún hafa samband.“ En hver er maðurinn Jón Karl? laumast ég til að spyrja. „Maðurinn sem er alltaf að grúska í einhverju. Ég hef voða gaman af sögum og sekk mér ofan í viss efni,“ svarar hann. Jón Karl kveðst iðka sund reglu- lega og hafa gert lengi. „Ég byrjaði í líkamsrækt fyrir tveimur árum og þá yngdist ég um tíu ár. Svo byrjaði ég með nýrri konu, Friðgerði Guðmunds- dóttur, og þá yngdist ég um önnur tíu. Þannig að ég er ekki einu sinni orðinn fertugur!“ gun@frettabladid.is Maðurinn sem er alltaf að grúska í einhverju Jón Karl Helgason kvikmyndagerðarmaður er sextugur í dag. Hann segist samt alltaf vera að yngjast og nefnir að minnsta kosti tvær ástæður fyrir því, ræktina og ástina. Tónlistarmaðurinn Gunnar Þórðarson var í hópi þeirra sem veitt voru lista- mannalaun þennan dag árið 1975. Það var í fyrsta skipti sem íslenskum popp- eða rokktónlistarmanni hlotnaðist slíkur heiður. Var það þó mál manna að Gunnar væri vel að þeirri viðurkenningu kominn. Gunnar Þórðarson var einn af stjörnunum í Hljómum frá Keflavík og í framvarðarsveit poppara á þessum tíma. Reyndar hafði hann verið í fremstu röð í þeim geira í meira en áratug þegar hér var komið sögu, og var dáður og dýrkaður af þeim hluta þjóðarinnar sem tilheyrði bítlakynslóðinni. Hann var líka orðið eitt mikilvirkasta tónskáld á sviði popptónlistar og lög eins og Þú og ég, Fyrsti kossinn og Bláu augun þín höfðu notið gífurlegra vinsælda. ÞETTA GERÐIST: 3. FEBRÚAR 1975 Listamannalaun til poppara í fyrsta sinn KVIKMYNDAGERÐARMAÐURINN „Ég hef voða gaman af sögum og sekk mér ofan í viss efni,“ segir Jón Karl. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Ég byrjaði í líkams- rækt fyrir tveimur árum og þá yngdist ég um tíu ár. Svo byrjaði ég með nýrri konu, Friðgerði Guð- mundsdóttur, og þá yngd- ist ég um önnur tíu. 0 2 -0 2 -2 0 1 5 2 2 :2 8 F B 0 4 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 3 9 C -B E 4 0 1 3 9 C -B D 0 4 1 3 9 C -B B C 8 1 3 9 C -B A 8 C 2 8 0 X 4 0 0 2 B F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.