Fréttablaðið - 03.02.2015, Side 43

Fréttablaðið - 03.02.2015, Side 43
ÞRIÐJUDAGUR 3. febrúar 2015 | SPORT | 23 HÆSTA EINKUNN HÆSTA EINKUNN HÆSTA EINKUNN HÆSTA EINKUNN HÆSTA EINKUNN HÆSTA EINKUNN GÓÐ KAUP HÆSTA EINKUNN HANDBOLTI Sigurbjörg Jóhanns- dóttir, leikstjórnandi Fram í Olís- deild kvenna í handbolta, meiddist í fyrri hálfleik í leik liðsins gegn ÍBV á laugardaginn eins og kom fram í Fréttablaðinu í gær. Eftir að hún reyndi við skot að marki ÍBV meiddist hún á hné og þurfti að fara af velli. „Ég var í uppstökki í gær (fyrra- dag) og það kom snúningur eða slinkur á hnéð og eitthvað gaf sig,“ sagði Sigurbjörg við Fréttablaðið á sunndaginn. Þegar blaðið ræddi við Sigur- björgu í gær kvaðst hún hafa það ágætt en það væri vissulega vegna þess að engin áreynsla væri á hnénu. „Mér líður alveg bærilega en ég er líka bara frekar róleg og er að hvíla mig. Þá er ég ekki með mikla verki,“ segir Sigurbjörg sem hefur ekki tilfinningu fyrir því hvort krossbandið sé slitið eins og ótt- ast var. „Ég held í vonina um að þetta sé ekki eins alvarlegt og maður ótt- ast. Ég vona bara að þetta sé ekki jafn alvarlegt og ég geti náð mér á skemmri tíma,“ segir þessi frá- bæri leikstjórnandi, en hún fær ekki að vita hvað amar að fyrr en undir lok vikunnar. „Ég fæ tíma hjá lækni á fimmtu- daginn og vonandi myndatöku í kjölfarið. Þá fæ ég að vita hversu alvarlegt þetta er,“ segir Sigur- björg við Fréttablaðið. Það er ljóst að hún verður ekki með Fram þegar liðið mætir HK næsta laugardag, en það yrði mikið áfall fyrir Safamýrarstúlk- ur að missa Sigurbjörgu í lang- varandi meiðsli. Hún hefur verið besti leikmaður deildarinnar til þessa og var kjörin sá besti þegar fyrri helmingurinn deildarinnar var gerður upp fyrir áramót. Fyrir utan það að stýra leik Framliðsins hefur hún verið drjúg í markaskorun og er næstmarka- hæst í liðinu með 72 mörk, aðeins fimm mörkum minna en ungstirn- ið Ragnheiður Júlíusdóttir. Fram er í öðru sæti Olís-deildar- innar, aðeins stigi á eftir toppliði Gróttu sem gerði óvænt jafntefli við Fylki um helgina. - tom Sigurbjörg hittir lækni á fi mmtudaginn Leikstjórnandi Fram í Olís-deild kvenna heldur í vonina um að krossband hafi ekki slitnað um helgina. FRÁBÆR Sigurbjörg hefur spilað mjög vel fyrir Fram. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI ÚRSLIT KR fer í Höllina og fær tækifæri til að hefna ófaranna gegn Stjörnunni frá 2009. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ POWERADE-BIKAR KK KR - TINDASTÓLL 88-80 (44-35) KR: Michael Craion 26/16 fráköst, Pavel Ermolinskij 19/8 fráköst, Björn Kristjánsson 12, Brynjar Þór Björnsson 12, Helgi Már Magnússon 7/6 fráköst, Finnur Atli Magnússon 6/9 fráköst, Darri Hilmarsson 4/7 fráköst, Þórir Guðmundur Þorbjarnarson 2. Tindastóll: Darrel Keith Lewis 18, Ingvi Rafn Ingvarsson 13/4 fráköst, Helgi Freyr Margeirsson 12, Darrell Flake 10/6 fráköst, Helgi Rafn Viggós- son 9/7 fráköst/6 stoðsendingar, Pétur Rúnar Birgisson 9, Myron Dempsey 5/8 fráköst, Svavar Atli Birgisson 4/4 fráköst. POWERADE-BIKAR KVK GRINDAVÍK - NJARÐVÍK 81-47 (46-12) Grindavík: Petrúnella Skúladóttir 16, María Ben Erlingsdóttir 12/5 fráköst/3 varin skot, Jeanne Lois Figeroa Sicat 9, Lilja Ósk Sigmars- dóttir 9/15 fráköst, Katrín Ösp Rúnarsdóttir 7, Guðlaug Björt Júlíusdóttir 6/4 fráköst, Berglind Anna Magnúsdóttir 6, Pálína Gunnlaugsdóttir 5/7 fráköst, Hrund Skuladóttir 5, Kristina King 4, Jóhanna Rún Styrmisdóttir 2/6 fráköst, Ingibjörg Jakobsdóttir 0/5 stoðsendingar. Njarðvík: Andrea Björt Ólafsdóttir 15/7 fráköst, Erna Hákonardóttir 11, Ása Böðvarsdóttir-Taylor 5, Karen Dögg Vilhjálmsdóttir 4/4 fráköst, Andrea Ösp Böðvarsdóttir 4, Júlia Scheving Steindórs- dóttir 2, Guðbjörg Ósk Einarsdóttir 2, Svala Sigurðadóttir 2. FÓTBOLTI Chelsea gerði fram- herjaskipti á lokadegi félaga- skiptagluggans í gær. Lundúna- liðið seldi Þjóðverjann André Schürrle til Wolfsburg fyrir 27 milljónir punda, en hann kom til liðsins sumarið 2013 frá Bayer Leverkusen og spilaði 44 leiki úrvalsdeildinni. Schürrle, sem var í heimsmeistaraliði Þýska- lands síðasta sumar, fær 85 þús- und pund á viku hjá Wolfsburg. Chelsea var fljótt að leysa hann af en eins og lá í loftinu gekk félagið frá kaupum á kólumbíska landsliðsmanninum Juan Cuad- rado frá Fiorentina fyrir 26 millj- ónir punda. Cuadrado vakti verðskuldaða athygli á HM í Brasilíu þar sem hann fór með Kólumbíumönnum í átta liða úrslit. - tom Schürrle út og Cuadrado inn FLÓRENS-LUNDÚNIR Juan Cuadrado er mættur til Chelsea. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY 0 2 -0 2 -2 0 1 5 2 2 :2 8 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 3 9 C -D B E 0 1 3 9 C -D A A 4 1 3 9 C -D 9 6 8 1 3 9 C -D 8 2 C 2 8 0 X 4 0 0 5 B F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.