Fréttablaðið - 03.03.2015, Side 4
3. mars 2015 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 4
LEIÐRÉTT
Ekki er rétt að mengun hafi fundist í
Kópavogslæk í lok janúar eins og sagði
í Fréttablaðinu í gær heldur bárust
mengunarefni í skolpkerfi bæjarins.
„Vart varð við mengun í skolpdælustöð
á Kársnesi í Kópavogi og var tilkynnt
um hana til réttmætra aðila, það er
heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar og
Kópavogs, sem hefur eftirlit með
starfsemi fráveitukerfisins,“ segir í til-
kynningu frá Kópavogsbæ.
Í Fréttablaðinu föstudaginn 27.
febrúar var vitnað til Öldu Hrannar
Jóhannsdóttur aðstoðarlögreglustjóra í
umfjöllun blaðsins um fíkniefnasölu á
samfélagsmiðlum. Ekki er rétt að rætt
hafi verið við Öldu Hrönn heldur Aldísi
Hilmarsdóttur aðstoðaryfirlögreglu-
þjón. Beðist er velvirðingar á þessu.
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Stein-
grímsson hlynur@365.is, Hjalti Egilsson hjalti@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402:
Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson
jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason
hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Uniq 4202
Glæsilega hannaður og
vandaður sturtuklefi.
Auðveldur í uppsettningu
FRÁBÆR
GÆÐI /
GOTT VERÐ
460.270 ungar til slátrunar
urðu til í hænsnabúum í janúar.
Árið 2013 voru ungarnir 422.480 í
sama mánuði og er fjölgunin tæplega
38 þúsund fuglar.
Elísabet Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
STORMUR Á MORGUN Veðrið verður ágætt á landinu í dag en versnar heldur
norðaustan til síðdegis með hvassari vindi og snjókomu. Gengur í suðaustan storm
með á morgun með mikilli úrkomu sunnan og suðvestan til.
-2°
7
m/s
-1°
6
m/s
-1°
7
m/s
0°
11
m/s
Hvöss
SA-átt
og sums
staðar
stormur S-
og SV-til.
10-20 m/s.
Gildistími korta er um hádegi
1°
27°
3°
10°
15°
3°
8°
4°
4°
20°
7°
24°
24°
20°
13°
7°
4°
8°
-2°
7
m/s
0°
8
m/s
-3°
7
m/s
-2°
10
m/s
-3°
8
m/s
-3°
8
m/s
9°
7
m/s
3°
2°
0°
1°
2°
2°
-3°
0°
-2°
-2°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
FIMMTUDAGUR
Á MORGUN
KJARAMÁL „Þetta er sérkennilegt á
allan máta,“ segir Sigurður Bessa-
son, formaður stéttarfélagsins Efl-
ingar, um launahækkanir Bjarna
Bjarnasonar, forstjóra Orkuveitu
Reykjavíkur.
Fram kom í Fréttablaðinu á
laugardag að laun Bjarna hafa
hækkað úr 1.340 þúsund krónum
frá því hann settist í forstjórastól
OR fyrir fjórum árum í 2,4 millj-
ónir í dag.
„Við sömdum fyrir ári og
almenn hækkun var 2,8 prósent
og hækkun á launatöflum var frá
4,2 prósentum upp í 5,1 prósent. Í
krónutölu var það 9.750 krónur á
lægstu launum,“ segir Sigurður.
Frá því Bjarni tók við forstjóra-
starfinu hefur hann sest í stjórn
tveggja dótturfélaga Orkuveit-
unnar og fær fyrir það 400 þúsund
krónur aukalega.
„Það er íhugunarefni að hér
áður fyrr féll þetta undir hlutverk
forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur
að sjá um öll þessi fyrirtæki þann-
ig að ég veit ekki hver eðlismunur
hafi orðið á starfi hans sem gerir
það að verkum að það var nauðsyn-
legt að greiða sérstaklega fyrir að
það væri búið að setja upp þessi
þrjú félög,“ segir Sigurður.
Laun Bjarna forstjóra voru sögð
hækkuð í samræmi við niðurstöð-
ur starfskjaranefndar OR. „Ég veit
ekki hvert þessi starfskjaranefnd
hefur sótt sínar viðmiðanir, það er
að minnsta kosti ekki í almennar
launabreytingar á vinnumarkaði,“
segir Sigurður.
Samningar Eflingar við OR eru
að renna út. Sigurður býst við að
kröfur gagnvart fyrirtækinu verði
settar fram í næsta mánuði. „Auð-
vitað hafa svona ákvarðanir áhrif
á það sem gerist í framhaldinu.
Forstjórar eru ekkert í öðru sam-
félagi en við hin. Og ef fyrirtæk-
in eru svona vel stöndug til þess
að greiða svona launatölur þá er
eðlilegt að starfsmennirnir krefj-
ist sambærilegra launabreytinga.“
Fréttablaðið hafði eftir Har-
aldi Flosa Tryggvasyni, formanni
stjórnar OR, að Bjarni væri ákaf-
lega hæfur og það skýrði nauðsyn
þess að hækka laun hans. Sigurð-
ur segir alla í fyrirtækjum mikil-
væga til þess að þau séu vel rekin.
Líka starfsmenn á gólfinu:
„Það er einfaldlega enginn mis-
kunn á því. Ef forstjórinn er ekki
með góða starfsmenn þá er lítill
árangur í rekstri fyrirtækisins.
Þessi rök ná því ekkert mjög langt
en menn hafa nýtt sér þau í allt-
of langan tíma til að draga fram
óraunhæfar hækkanir til forstjóra.
Menn eiga að sýna af sér hógværð
og huga að því að fyrirtækið er ein
eining þar sem allir starfsmenn
hafa ákveðnu hlutverki að gegna
– að sjálfsögðu forstjórinn eins og
aðrir en hann á ekki að skapa óein-
ingu með svona óhóflegum launa-
breytingum.“
gar@frettabladid.is
Öll laun hækki jafnt
og hjá forstjóranum
Formaður Eflingar segir launahækkanir forstjóra Orkuveitunnar sérkennilegar en
að þær hljóti að hafa áhrif á kröfur sinna félagsmanna í komandi samningsgerð.
BJARNI BJARNASON Forstjóri Orkuveitunnar fékk launahækkun með nýjum samn-
ingi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
DÓMSMÁL Marcel Wojcik, tæp-
lega þrítugur karlmaður, var á
dögunum dæmdur í héraðsdómi í
tveggja ára fangelsi fyrir nauðg-
un með því að hafa sleikt kyn-
færi konu þar sem hún lá sofandi
í rúmi og notfært sér ölvun og
svefndrunga hennar.
Þau höfðu verið saman í partíi
hjá sameiginlegum vini á síðasta
ári en verið tvö eftir í íbúðinni
á meðan aðrir héldu út á lífið. Í
dómi héraðsdóms segir að fram-
burður konunnar sé trúverðugur
og fái stuðning í framburði vitna
og niðurstöðu DNA-rannsóknar.
Marcel bar fyrir sig minnisleysi
og var framburður hans ekki tal-
inn afdráttarlaus. - ngy
Dæmdur í fangelsi í tvö ár:
Notfærði sér
svefndrunga
HÉRAÐSDÓMUR Maðurinn var dæmd-
ur fyrir að nýta sér ölvun konunnar.
AKUREYRI Skipulagsnefndarfulltrúa
á Akureyri og skipulagsstjóra bæj-
arins greinir á um hvort þær breyt-
ingar sem skipulagsstjóri samþykkti,
án aðkomu nefndarinnar, á umdeildu
húsi við göngugötuna á Akureyri, séu
smávægilegar eða ekki.
Í nýju miðbæjarskipulagi er lagt
til að húsið víki og það talið þunga-
miðja miðbæjarskipulagsins. Nefnd-
armenn bókuðu á síðasta skipu-
lagsnefndarfundi að Pétur Bolli
Jóhannesson skipulagsstjóri hefði
átt að láta skipulagsnefnd vita af
umræddum breytingum á húsinu.
Skrifuðu nefndarmenn undir grein-
argerð með bókun sinni.
„Undirritaðir nefndarmenn
Skipulagsnefndar og áheyrnar-
fulltrúi telja breytingarnar þó alls
ekki minni háttar heldur þvert á
móti verulegar. Þær fela í sér mikla
breytingu á notkun og útliti húss-
ins. Þessar verulegu breytingar
urðu nefndinni fyrst ljósar eftir
að nefndarmenn sáu teikningar af
framkvæmdinni í byrjun árs 2015.“
Skipulagsstjóri sagðist hafa fulln-
aðarheimild til að afgreiða öll bygg-
ingarmál.
„Til þess að koma í veg fyrir
ágreining af svipuðum toga og um
ræðir þurfa verklagsreglur fyrir
skipulagsdeild að vera skýrar,“
segir í greinargerð skipulagsstjóra.
„Að þessu sögðu mun undirritaður
frá næstu mánaðamótum ekki sam-
þykkja nýjar umsóknir um bygg-
ingarleyfi er varða breytingar á
útliti eða formi mannvirkis nema að
undangengnu samþykki skipulags-
nefndar.“ - sa
Skipulagsnefnd Akureyrarkaupstaðar telur nefndina hafa átt að koma að breytingu á Hafnarstræti 106:
Ósammála um breytingar á umdeildu húsi
HAFNARSTRÆTI 106 Deilt er um breyt-
ingar á umdeildu húsi.
VIÐSKIPTI Björgólfur Thor Björg-
ólfsson fjárfestir er aftur kominn
á lista yfir ríkasta fólk heims
samkvæmt nýrri úttekt banda-
ríska tímaritsins Forbes.
Hann er í 1.415. sæti og er
eini Íslendingurinn á listanum.
Forb es metur eignir hans á um
173 milljarða íslenskra króna.
Björgólfur var á listanum síðast
árið 2009 og var þá í 701. sæti.
Bill Gates er enn eina ferðina
í toppsætinu en hann hefur verið
ríkasti maður heims sextán af 21
síðasta ári. Auðæfi hans jukust
um 3,2 milljarða dollara á liðnu
ári og nema nú 79,2 milljörðum
dollara. - ngy
Björgólfur Thor í 1.415. sæti:
Einn af ríkustu
mönnum heims
MILLJARÐAMÆRINGUR Björgólfur Thor
er eini Íslendingurinn á lista Forbes.
STJÓRNMÁL „Eftir nokkrar
umræður um málið lá engin
niður staða fyrir og ákveðið að
skila ekki umsögn,“ segir í bókun
eftir fund bæjarráðs Fljótsdals-
héraðs sem í gær tók fyrir beiðni
frá Alþingi um að veita umsögn
um tillögu þingmanna Bjartrar
framtíðar um seinkun klukkunn-
ar og bjartari morgna.
Ef Alþingi samþykkir tillöguna
verða morgnarnir bjartari en síð-
degin dimmari. - gar
Skiptar skoðanir á Héraði:
Ekki niðurstaða
um klukkuna
Hann á
ekki að skapa
óeiningu með
svona óhóf-
legum launa-
breytingum.
Sigurður Bessason,
formaður Eflingar
0
2
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:2
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
F
B
-4
9
E
0
1
3
F
B
-4
8
A
4
1
3
F
B
-4
7
6
8
1
3
F
B
-4
6
2
C
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K