Fréttablaðið - 03.03.2015, Side 6

Fréttablaðið - 03.03.2015, Side 6
3. mars 2015 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 6 1. Hvaða lið hlaut bikarinn í Coca- Cola-bikar kvenna? 2. Hvert var umfang póstverslunar við Kína 2013? 3. Í hvaða sveitarfélagi á að gera til- raun með styttingu vinnudags án launaskerðingar? SVÖR: 1. Grótta. 2. 292 milljónir króna. 3. Reykjavík. Magnús Emilsson Löggiltur fasteignasali. Glæsilegt einbýli á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr samtals skráð um 300 fermetrar. Húsið er á staðsett á frábærum útsýnisstað í hæðarhverfi í Garðabæ. Eignin skiptist í forstofu, gestasnyrtingu, hol, eldhús, borðstofu, stofu, arinstofu, gang, tvö herbergi, baðherbergi, þvottahús/ geymslu og bílskúr. Á efri hæð er gott sjónvarpshol, þrjú góð herbergi, baðherbergi, hjónaherbergi með fataherbergi inn af. Fallegar innréttingar og gólfefni. Verð 95 millj. Allar nánari upplýsingar veitir Þorbjörn Helgi sölumaður s. 896 0058 Glæsilegt endaraðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr samtals 179,7 fm. vel staðsett. Eignin er hönnuð af Hjördísi Sigurðardóttur innanhúsaarkitekt og er smekklega innréttuð með vönduðum innréttingum og gólfefnum. Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, borðstofu, sjónvarpshol, eldhús, snyrtingu, þvottahús og bílskúr. Á efri hæð er hol, hjónaherbergi með fataherbergi inn af, tvö góð barnaherbergi og baðherbergi. Verð 65 millj. Jökulhæð 4 – Garðabær – Einbýli Lerkiás – Garðabær – Raðhús Opið hús í dag milli kl. 17 – 17.30 OPI Ð H ÚS VIÐSKIPTI Viðskiptabankar, sparisjóðir og lánafyrirtæki hafa náð góðum árangri í að fækka eignarhlutum í fyrirtækjum með starfsemi sem fellur ekki undir almennar starfsheimildir þeirra og einungis er heim- ilt að stunda tímabundið. Þetta kemur fram í skýrslu frá fjármálaráðuneytinu um tíma- bundna starfsemi fjármálafyrirtækja. Fjármálafyrirtækjum er heimilt samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki að stunda tíma- bundið starfsemi í óskyldum rekstri í þeim tilgangi að ljúka viðskiptum eða til að endur- skipuleggja starfsemi viðskiptaaðila. Miðað við stöðuna 1. mars, sjá súlurit, eiga fjármálafyrirtæki hluti í 41 félagi í tímabund- inni starfsemi. Félög sem fjármálafyrirtæki eiga minna en tíu prósenta eignarhlut í eru ekki meðtalin í þessari samantekt. Af umræddum fjölda félaga er 21 félag í yfir 40 prósenta eignar haldi fjármálafyrir- tækis, í 15 félögum er eignarhaldið á bilinu 20 til 40 prósent og í fimm félögum er eignar- haldið tíu til 20 prósent. Þegar fjöldi eignarhluta fjármálafyrirtækja í félögum í tímabundinni starfsemi þann 1. mars síðastliðinn er borinn saman við fjölda þeirra í nóvember 2011 má sjá að þeim hefur fækkað um 91 félag. Ef þróun síðustu 18 mán- aða er skoðuð má sjá að félögum í tímabund- inni starfsemi hefur fækkað um 31. -ngy Í dag eiga fjármálafyrirtæki meira en tíu prósent í 41 félagi í tímabundinni starfsemi: Fækkun eignarhluta fjármálafyrirtækja KJARAMÁL Samninganefnd Félags framhaldsskólakennara kemur saman á miðvikudag til að ræða þá stöðu sem upp er komin eftir að vinnumat framhaldsskólakenn- ara var fellt í atkvæðagreiðslu síð- astliðinn föstu- dag. Guðríður Arnardóttir, for- maður Félags framhaldsskóla- kennara, gerir ráð fyrir að í vik- unni, eftir fund samninganefnd- arinnar, verði líka fundað með samninganefnd ríkisins. Nýtt vinnumat mætti einna mestri andstöðu hjá kennurum iðn- greina, sem töldu það ógagnsætt og fela í sér aukna vinnu. Um leið og vinnumatið var fellt féllu niður launahækkanir sem það átti að hafa í för með sér fyrir kennara, 9,5 pró- sent strax og tvö prósent til viðbót- ar um næstu áramót, alls 11,69 pró- senta launahækkun. „Þetta þýðir bara að kjarasamn- ingurinn er laus og að nú þurfum við að endurmeta stöðuna,“ segir Guð- ríður. Félagið þurfi að greina hvað það hafi verið sem félagsmönnum hugnaðist ekki við nýja vinnumatið. „Ýmsar ástæður geta verið að baki því að fólk sagði nei, og sjálfsagt mismunandi út frá einstaklingum hvað hverjum fannst.“ Hvort stefni í harða deilu við ríkið segist Guðríður ekki þora að spá um. „Fyrir lá samkomulag um vinnumat sem félagsmenn felldu. Þeim bara hugnast þetta ekki. Þá leggjum við eðlilega ekki fyrir sama samkomulagið heldur þurfa að eiga sér stað einhverjar breytingar.“ Þá þurfi að velta fyrir sér hvort stéttin sé yfirleitt tilbúin að fara í breyting- ar og að hversu miklu marki þurfi að fara í breytingar til að laga kjara- samninga félagsins að nýjum lögum um lengingu skólaársins í 180 daga. Kröfugerð félagsins liggi ekki fyrir. „Við þurfum að setja okkur samn- ingsmarkmið og til þess að gera það þurfum við náttúrlega að vera með góða yfirsýn yfir stöðuna eins og hún er núna og heyra í okkar félags- mönnum,“ segir Guðríður og bætir við að haldinn verði fulltrúafundur Félags framhaldsskólakennara 19. þessa mánaðar og þá verði tilefni til að fara yfir stöðuna. „En það mun ekkert draga til tíð- inda í þessum mánuði. Við þurfum bara að skoða stöðuna, vanda okkur og taka yfirvegaðar ákvarðanir um næstu skref.“ olikr@frettabladid.is GUÐRÍÐUR ARNARDÓTTIR Í VERKFALLI Frá samstöðufundi framhaldsskólakennara í mars í fyrra. Kjarasamningur framhaldsskólakennara er nú laus á ný eftir að nýju vinnumati var hafnað. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Sama samkomulag ekki lagt fram aftur Formaður Félags framhaldsskólakennara segir að vandlega verði farið yfir þá stöðu sem upp er komin eftir að kennarar höfnuðu nýju vinnumati fyrir helgi. Samninga- nefnd framhaldsskólakennara fundar á miðvikudag og með ríkinu í framhaldinu. 132 nóv. 2011 72 1. sept. 2013 41 1. mars 2014 95 1. sept. 2012 LÖGREGLUMÁL Lögregluembættið á Suðurnesjum greindi frá því að lögreglan þar hefði stöðvað og handtekið eftirlýstan ökumann á sunnudag. Ökumaðurinn var handtekinn vegna ölvunaraksturs en hann hafði aldrei öðlast öku- réttindi á Íslandi. Auk þess hafði hann verið sviptur ökuréttindum í heimalandi sínu vegna ölvunar- aksturs. Þá var hann eftirlýstur vegna vararefsingar. Tveir farþegar sem voru í bifreiðinni með honum gátu ekki tekið við akstri hennar því þeir voru einnig ölvaðir. - kbg Handtekinn fyrir ölvun: Eftirlýstur öku- maður á ferð MENNING Á nítjándu öld hafði Biblían verið þýdd á arabísku í yfir eitt þúsund ár eða jafn- vel lengur. Um 1860 var Biblían gefin út í nýrri þýðingu sem náði metsölu í heimi araba, að því er greint er frá á vefnum for- skning.is. Þar er haft eftir Rana Hisham Issa að það hafi ekki bara verið kristnir sem keyptu þessa þýð- ingu sem þótti auðveld til lestrar, heldur einnig múslímar. Þeim hafi þótt þessi nýja Biblíuþýðing hentug til þess að æfa sig í lestri. Biblían hafi auk þess verið ódýr. - ibs Lestraræfingar múslíma: Biblía á arab- ísku rokseldist Vinnumat grunnskólakennara var samþykkt síðastliðinn föstudag með 57,8 prósentum greiddra atkvæða. 1.701 sagði já, en nei sögðu 1.160 eða 39,4 prósent. Auðir seðlar voru 81, eða 2,8 prósent. „Vegna þeirra breytinga á vinnuumhverfi kennara, sem kjarasamningurinn felur í sér, hækka laun kennara um 9,5 prósent þann 1. maí næstkomandi og um 2,0 prósent þann 1. janúar 2016,“ segir á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga. Að þeim hækk- unum loknum hafa laun grunnskólakennara því hækkað um 11,69 prósent. Grunnskólakennarar samþykktu matið EIGNARHLUTIR FJÁRMÁLAFYRIRTÆKJA í tímabundinni starfsemi 8 fjármálafyrirtækja ORKUMÁL Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) bein- ir þeim tilmælum til aðildarríkja sambandsins að þau efli samteng- ingar flutningskerfa raforku, svo sem með aukinni uppbyggingu sæstrengja. „Árið 2020 er hverju aðildar- ríki ætlað að búa að flutnings- getu til annarra ríkja á sem svar- ar að minnsta kosti 10 prósentum allrar raforku sem framleidd er í landinu,“ segir í umfjöllun Sam- orku. Stefnunni sé ætlað að efla orkuöryggi og bæta nýtingu raf- orkukerfa. Með því sé dregið úr þörfinni á að auka vinnslu- getu raforku með virkjunum eða öðrum raforkuverum. Bretland og Írland eru meðal tólf ríkja ESB sem ekki upp- fylla kröfurnar í dag. „Ætla má að þessar kröfur, auk kröfunn- ar um aukinn hlut endurnýjan- legra orkugjafa og aukið orkuör- yggi, skýri þann áhuga sem bresk stjórnvöld hafa sýnt á tengingu um sæstreng við Ísland og fleiri ríki,“ segir á vef Samorku. - óká GRÍSKAR VINDMYLLUR ESB leggur áherslu á bætta orku- nýtingu og hefur þrýst á margvíslegar aðgerðir til að draga úr mengun. NORDICPHOTOS/AFP Evrópusambandið eykur kröfur um samtengingar raforkukerfa sambandsins: Skýrir áhuga á sæstreng hingað VEISTU SVARIÐ? 0 2 -0 3 -2 0 1 5 2 2 :2 8 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 3 F B -5 D A 0 1 3 F B -5 C 6 4 1 3 F B -5 B 2 8 1 3 F B -5 9 E C 2 8 0 X 4 0 0 5 B F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.