Fréttablaðið - 03.03.2015, Síða 8
3. mars 2015 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 8
Samtal á
afmælisári50
Gamla bíó
Miðvikudagur 4. mars, kl. 14-17
Allir velkomnir!
Ábyrgð fyrirtækja
í loftslagsmálum
Dagskrá:
Hlutverk Landsvirkjunar í loftslags-
málum
Ragnheiður Ólafsdóttir, Landsvirkjun
Loftslagsbreytingar og áhrif þeirra,
hvað er til ráða?
Bjarni Diðrik Sigurðsson,
Landbúnaðarháskóla Íslands
Uppgræðsla lands
Jóhann Þórsson, Landgræðsla ríkisins
Breytum lofti í við – kolefnisbinding með
skógrækt
Arnór Snorrason, Rannsóknarstöð
skógræktar, Mógilsá
Landgræðsluskógar og skógrækt
við Búrfell
Einar Gunnarsson, Skógræktarfélag
Íslands
Skógrækt undir merkjum Kolviðar
Reynir Kristinsson framkvæmdastjóri
Mýrviður – loftslagsáhrif skógræktar
á framræstu mýrlendi
Brynhildur Bjarnadóttir, Háskólanum
á Akureyri, Bjarki Þór Kjartansson,
Rannsóknarstöð skógræktar, Mógilsá
Endurheimt votlendis
Hlynur Óskarsson, Landbúnaðarháskóli
Íslands
Tækifæri og framtíðarsýn íslenskra
fyrirtækja í loftslagsmálum
Bryndís Skúladóttir, Samtök iðnaðarins
Umræður
Fundarstjóri er Ragna Sara Jónsdóttir,
forstöðumaður samfélagsábyrgðar hjá
Landsvirkjun.
ÍRAK Um 30 þúsund manna lið
íraskra hermanna og stuðnings-
manna þeirra er byrjað að herja á
liðsmenn Íslamska ríkisins í borg-
inni Tikrit í von um að ná henni
aftur úr höndum þeirra.
Tíkrit er heimaborg Saddams
Hussein. Vígamenn Íslamska rík-
isins náðu henni á sitt vald í júní á
síðasta ári. Þar hafa búið um 250
þúsund manns, en ekki er vitað hve
mörgum hefur tekist að flýja undan
ofríki vígasveitanna. Þetta er ein
stærsta borgin sem vígasveitir Ísl-
amska ríkisins hafa náð á sitt vald.
Herinn ætlar að senda 27 þús-
und manns en að auki eru um 3.500
herskáir sjía-múslimar sagðir ætla
að taka þátt í hernaðinum gegn Ísl-
amska ríkinu. Bandaríkin og fleiri
ríki hyggjast styrkja aðgerðirnar
með loftárásum.
„Markmið okkar er að frelsa fólk
undan þessum hryðjuverkahópum,“
sagði Haidar al Abadi, forsætisráð-
herra Íraks, á sunnudaginn og lagði
á það sérstaka áherslu að vernda
þyrfti almenna borgara og hús í
Tíkrit.
Fregnir hafa borist af því að
íbúar í Tíkrit og nágrenni óttist
yfirvofandi átök um borgina og séu
þegar byrjaðir að forða sér til norð-
urs og austurs.
Bandaríkin kynntu nýlega áform
um að ná borginni Mosúl, sem er
nokkru norðar, úr höndum Íslamska
ríkisins með tilstyrk bæði íraska
hersins og liðsmanna Kúrdasveita.
Þetta myndi gerast í apríl eða í maí,
væntanlega í framhaldi af þessum
átökum um Tíkrit sem nú eru að
hefjast.
Það virðist því ljóst að langvar-
andi stríðsátök séu að hefjast við
vígasveitir Íslamska ríkisins í Írak.
Í gær hvatti Nickolaí Mladenov,
fulltrúi Sameinuðu þjóðanna í Írak,
alla þátttakendur í þessum átök-
um til þess að gæta sérstaklega að
öryggi almennra borgara.
Þegar liðsmenn Íslamska ríkis-
ins náðu á sitt vald stórum svæð-
um í vestanverðu Írak á síðasta ári
flúðu íraskir hermenn unnvörpum
miskunnarleysi innrásarliðsins og
skildu víða eftir vopn sín og búnað.
Íbúarnir í þessum hluta Íraks eru
flestir súnní-múslimar en stjórnin í
Bagdad er að mestu í höndum sjía-
múslima, sem njóta stuðnings frá
Íran.
Íraski herinn hefur áður reynt
nokkrum sinnum að ná Tíkrit úr
höndum Íslamska ríkisins, en án
árangurs.
gudsteinn@frettabladid.is
Íbúar Tíkrit
óttast átökin
Íraski herinn hefur tekið höndum saman við bardaga-
sveitir sjía-múslima um að ná Tíkrit aftur úr höndum
Íslamska ríkisins. Hafa stuðning frá Bandaríkjunum.
Á LEIÐ TIL TÍKRIT Um þrjátíu þúsund manna herlið hyggst hrekja vígasveitir Ísl-
amska ríkisins frá borginni. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
FÓLK Tveir starfsmenn 365 voru meðal þeirra
sem hlutu verðlaun fyrir verk sín við afhendingu
Blaðamannaverðlauna fyrir árið 2014 og verð-
launaafhendingu Blaðaljósmyndarafélagsins
fyrir myndir ársins um helgina.
Ólöf Skaftadóttir blaðamaður hlaut verðlaun
fyrir viðtal ársins 2014 sem var við tvíbura-
bræðurna Kára og Halldór Auðar- og Svanssyni.
Í viðtalinu lýsa bræðurnir reynslu sinni af geð-
sjúkdómum af mikilli hreinskilni. Í umsögn dóm-
nefndar sagði að fordómaleysi Ólafar og virðing
gagnvart viðfangsefninu hefði skinið í gegnum
textann og lýsti það sér ekki síst í léttleikanum
sem einkenndi viðtalið.
Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari hlaut verð-
laun fyrir íþróttamynd ársins. Myndin, sem sýnir
Valsmenn fagna þegar þeir urðu deildarbikar-
meistarar í handbolta, er
sögð sýna samfélagið í
kringum íþróttina, sam-
stöðu og sanna gleðistund.
Það sem enn fremur gerir
myndina heillandi er hve
lengi er hægt að virða hana
fyrir sér og ávallt sjá nýjan
svip, nýtt atriði, nýjan
vinkil, að því er segir í
umsögn dómnefndar. - ibs
Blaðamannaverðlaunin 2014 og verðlaunaafhending Blaðaljósmyndarafélagsins fyrir myndir ársins:
Fordómalaust viðtal og sönn gleðimynd
VERÐLAUNAHAFAR Vilhelm
Gunnarsson og Ólöf Skaftadóttir.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
ÍÞRÓTTAMYND ÁRSINS Valsmenn
fagna sigri. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
NEYTENDUR Ítölsku neytendasam-
tökin Altroconsumo fara fyrir
hópmálsókn á hendur bílaframleið-
endum sem sagðir eru hafa gefið
rangar upplýsingar um eldsneytis-
eyðslu bíla sinna. Á vef Neytenda-
samtakanna segir að málið hafi
verið þingfest fyrir helgi.
Framleiðendurnir eru sagðir
hafa haldið fram 20 til 50 prósent-
um minni eyðslu en raunin var.
„Bílarnir sem voru prófaðir voru
Fiat Panda 1.2 og Volkswagen Golf
1.6 TDI,“ segir á vef ns.is. - óká
Bílaframleiðendur fyrir dóm:
Kæra rangar
tölur um eyðslu
ELDGOS Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur segir mikl ar lík ur á
gosi und ir jökli í Bárðabungu og í kjöl farið megi vænta ösku falls og
flóða.
,,Þá fáum við flóð í Jökulsá á Fjöllum og öskufall um leið og vatnið kemst
í snertingu við kvikuna,“ segir Ármann. Bárðarbunga er eitt stærsta
eldfjall landsins og er að mestu leyti hulin jökli.
Ármann segir legu eldstöðvarinnar og sögu gosstöðvarinnar gefa það
til kynna að eldgos sé á næsta leyti.
,,Nú er stóra kerfið komið í gang og við þekkjum það í gegnum sög-
una að þegar kerfið fer í gang þá tekur það fimm til fimmtán ár að losa
spennuna og kvikuna. Á þessum forsendum erum við ennþá með mikla
skjálftavirkni í Bárðarbungu og á meðan það er enn ókyrrð á svæðinu
þá er ekki hægt að afgreiða að þetta sé búið.“ - ngy
Lega eldstöðvarinnar gefur til kynna að gos sé að byrja:
Miklar líkur á gosi undir jökli
0
2
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:2
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
F
B
-5
8
B
0
1
3
F
B
-5
7
7
4
1
3
F
B
-5
6
3
8
1
3
F
B
-5
4
F
C
2
8
0
X
4
0
0
5
A
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K