Fréttablaðið - 03.03.2015, Side 10
3. mars 2015 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 10
Laugavegi 170-174 · Sími 590 5000 · hekla.is
BREMSAÐU AF ÖRYGGI
20%
AFSLÁTTUR
BREMSUVÖRUR OG
BREMSUVINNA VIÐ
HEKLUBÍLA
Renndu við hjá HEKLU við Laugaveg og við skiptum um bremsuklossa/bremsudiska
á meðan þú bíður.
Hjá HEKLU er óþarfi að panta tíma fyrir smærri viðgerðir. Ef þú vilt ekki bíða skilur þú
bílinn eftir hjá okkur og við skutlum þér þangað sem þú vilt fara – og sækjum þig aftur!
Forstjóri Íslandspósts vísar gagn-
rýni á rekstur fyrirtækisins á bug
og heldur því staðfastlega fram að
engir árekstrar séu á milli einka-
leyfis- og samkeppnishluta rekst-
ursins. Að miklum hluta sé gagn-
rýni byggð á misskilningi. Um
tugur mála er varða Íslandspóst er
til skoðunar hjá Samkeppniseftir-
litinu eins og Fréttablaðið greindi
frá í gær.
Allt í sama farvegi
Ingimundur Sigurpálsson, for-
stjóri Íslandspósts, segir í viðtali
við Fréttablaðið að gagnrýni Ólafs
Stephensen, framkvæmdastjóra
Félags atvinnurekenda, renni í sama
farvegi og öll gagnrýni hingað til.
Þar sagði Ólafur í hnotskurn
að Íslandspóstur notaði tekjur af
einkaréttarhluta fyrirtækisins til
að niðurgreiða margvíslega sam-
keppni við einkafyrirtæki á mörk-
uðum. Það sem hér er vísað til væri
brot á tveimur aðskildum greinum
samkeppnislaga – grein sem fjallar
um bann við misnotkun fyrirtækja
á markaðsráðandi stöðu og annarri
um fjárhagslegan aðskilnað.
Ingimundur segir um mjög flókna
hluti að ræða en spurningin sé ekki
síst sú hvernig niðurgreiðslur séu
skilgreindar. „Af því að þetta er
flókið þá er það sett í hendur eftir-
litsstofnana að hafa eftirlit með
okkar rekstri. Á það bæði við um
Póst- og fjarskiptastofnun og Sam-
keppniseftirlitið, og í báðum tilvik-
um hefur þetta verið lengi til skoð-
unar vegna þess misskilnings úti á
markaðnum um hvernig þessi kostn-
aðar greining er,“ segir Ingimundur.
Að taka sér stöðu
Um sáttameðferðina hjá Sam-
keppniseftirlitinu, sem hófst árið
2013 vegna mála sem þar eru til
skoðunar, segir Ingimundur að
lengi hafi staðið yfir viðræður
við eftirlitið um þau kærumál
sem hafa komið upp. „Frumkvæð-
ið að þessari málsmeðferð var
Samkeppniseftir litsins, en ekki
okkar. Síðan hafa staðið yfir sam-
skipti um hvernig hægt væri að
gera rekstrarumhverfi Íslands-
pósts skýrara, þannig að svona
kærumál og tortryggni grasseruðu
ekki í umhverfinu, sem er mjög
bagalegt fyrir okkur sem fyrir-
tæki og viðskiptavini okkar. En
það er engin niðurstaða fengin og
ekki augljós niðurstaða sem getur
skýrt þetta allt saman svo allir geti
við unað. Enda þegar um einkarétt
er að ræða, eins og Pósturinn er
með og stendur til að afleggja, þá
er það hluti af aðferðafræðinni
við að koma sér inn á markaðinn
að búa til ágreiningsmál og taka
sér stöðu. Þó við komumst að nið-
urstöðu er engin trygging fyrir því
að ekki verði áframhald á kærum
og gagnrýni,“ segir Ingimundur en
hafnar því að nefna hvaða fyrir-
tækis eða fyrirtækja hann vísar
til. Alls telur hann að sex mál séu
uppi á borðum. Um þessi mál hafi
Íslandspóstur fjallað, hvort mis-
brestur hafi orðið, og ekkert komið
upp sem bendir til þess, að sögn
Ingimundar.
Linnulítil gagnrýni
Spurður nánar um gagnrýnina, sem
hefur verið linnulítil árum saman,
og hversu óvægin hún hefur verið
segir Ingimundur: „Ég, og við
hér, lesum sama tóninn í gegnum
öll þessi skrif og teljum okkur sjá
þræðina í því. Þetta hefur átt sér
margra ára aðdraganda og búið að
taka þau í gegnum Samtök verslun-
ar og þjónustu, Samtök iðnaðarins,
og núna Félag atvinnurekenda. Eins
í gegnum innanríkisráðuneytið,
fjármálaráðuneytið og ríkisendur-
skoðanda. Við höfum orðið varir
við alla þessa slóð sem aðallega er
tengd einum aðila,“ segir Ingimund-
ur. „Ég hef hins vegar ekki fengið
neinar meldingar frá eftirlitsaðilum
okkar um að við séum að gera eitt-
hvað rangt; hvorki frá Póst- og fjar-
skiptastofnun varðandi pósthlutann
né Samkeppniseftirlitinu varðandi
misnotkun á markaðsráðandi stöðu.
Það ferli sem málið er í hjá sam-
keppnisyfirvöldum þýðir að verið
er að leiða málið til lausnar án þess
að í því felist einhver brot. Sáttin er
tilraun til að skýra málin.“
Ástæða samkeppnisrekstrar
„Mín sýn á þetta mál er einfaldlega
þannig, og ástæðan fyrir því að við
erum í samkeppnisrekstri og ég
tala nú ekki um rekstri fyrirtækja
sem eru utan þeirrar alþjónustu-
skyldu sem við höfum, er að hann
skilar okkur hundruðum milljóna í
tekjur og í beinan hagnað upp á á
þriðja hundrað milljóna, eins og árs-
skýrsla okkar mun sýna. Það kemur
beinlínis þeirri starfsemi til góða
sem okkur er skylt að halda úti,
en enginn vill sinna þar sem tekj-
urnar standa ekki undir því. Það er
hægt að segja við fólk að við séum
á kafi í samkeppni þar en það er
bara enginn sem við erum að keppa
við. Þvert á móti vilja samkeppnis-
aðilarnir skipta við okkur, af því að
það þarf að borga með þessu,“ segir
Ingimundur.
Hér er um að ræða eina aðal-
gagnrýnina á starfsemi Íslands-
pósts, nefnilega umsvif á sam-
keppnismarkaði, eða „allt frá
póstsendingum og prentsmiðju-
rekstri til sendibílaþjónustu og
sælgætissölu“, eins og Ólafur
Stephensen orðar það í grein sinni
í Fréttablaðinu.
Fullyrt er úr öllum áttum að
ríkið eigi ekki að skipta sér af
viðskiptum með þennan varn-
ing. „Það er stóra spurningin, af
hverju ríkið á að skipta sér. Það er
bara allt önnur spurning og hvort
ríkið eigi að eiga fyrirtæki eins og
Íslandspóst,“ segir Ingimundur.
Gagnrýnin byggist á misskilningi
Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts, segir að gagnrýni á fyrirtækið byggist á misskilningi að mestu. Eins sé um herbragð sam-
keppnisaðila að ræða sem séu að koma sér fyrir á markaði. Samkeppniseftirlitið hafi viljað mál Íslandspósts í sáttaferli, ekki fyrirtækið.
Þó við
komumst að
niðurstöðu er
engin trygg-
ing fyrir því
að ekki verði
áframhald á
kærum og gagnrýni.
Ingimundur Sigurpálsson
PÓSTURINN Forstjórinn vill einkaleyfi fyrirtækisins burt. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Svavar Hávarðsson
svavar@frettabladid.is
Lengri útgáfu viðtalsins má lesa
á visir.is
visir.is
HEILBRIGÐISMÁL Áréttað er í bréfi
landlæknis til yfirmanna á hjúkr-
unarheimilum, heilbrigðisstofnun-
um og sjúkrahúsum að brýnt sé að
koma í veg fyrir „lyfjaatvik“ í heil-
brigðisþjónustu.
Á vef landlæknis segir að bréfið
hafi verið sent 12. febrúar til að
bregðast við fjölda fyrirspurna til
landlæknis um lyfjagjafir á hjúkr-
unarheimilum. Af öryggisástæð-
um mæli embættið gegn því að
ófaglært starfsfólk gefi stungulyf.
- óká
Brugðist við ábendingum:
Ófaglærðir gefi
ekki stungulyf
DÓMSMÁL Ingvar Dór Birgisson,
þrítugur karlmaður, var dæmdur í
þriggja og hálfs árs fangelsi í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur þann 19. janú-
ar síðastliðinn, fyrir að nauðga fjór-
tán ára gamalli stúlku vorið 2010.
Maðurinn, sem var 25 ára þegar
brotin voru framin, hitti stúlkuna
í tvígang á heimili sínu í miðborg
Reykjavíkur. Í fyrra skiptið áreitti
hann hana kynferðislega en í hið síð-
ara nauðgaði hann henni.
Maðurinn viðurkenndi að hafa
verið í samskiptum við stúlkuna á
samfélagsmiðlum en neitaði að hún
hefði komið heim til hans. Aðspurð-
ur hvernig stúlkan hefði getað gefið
greinargóðar lýsingar á húsnæði
hans hélt hann því fram að hver
sem er ætti auðveldan aðgang að
húsnæðinu.
Í dómnum segir að framburður
stúlkunnar sé trúverðugur og fái
stuðning í gögnum málsins. Engar
trúverðugar skýringar hafi komið
fram hjá Ingvari Dór á hvernig
stúlkan gat lýst húsnæðinu með jafn
ítarlegum hætti og hún gerði. - ngy
Dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að nauðga 14 ára gamalli stúlku:
Stúlkan lýsti íbúðinni ítarlega
HÉRAÐSDÓMUR REYKJAVÍKUR Mað-
urinn braut í tvígang gegn stúlkunni í
íbúð sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
BANDARÍKIN Benjamín Netan-
jahú, forsætisráðherra Ísraels,
kom til Bandaríkjanna í gær og
hyggst ávarpa Bandaríkjaþing í
dag. Barack Obama Bandaríkja-
forseti ætlar ekki að vera við-
staddur.
Heimsókn Netanjahús hefur
verið umdeild, ekki síst vegna
þess hve stutt er í þingkosning-
ar í Ísrael. Þær verða haldnar á
laugardaginn kemur.
Netanjahú hyggst nota tæki-
færið til þess að fá bandaríska
þingmenn ofan af því að fallast
á samninga við írönsk stjórn-
völd, sem myndu leyfa Írönum að
halda óáreittir áfram kjarnorku-
vinnslu. Netanjahú hefur sagt
Ísrael vera í stórhættu fari svo
að Íranar komi sér upp kjarn-
orkuvopnum.
Reuters-fréttastofan hefur
hins vegar eftir Mohammed
Javad Zarif, utanríkisráðherra
Írans, að samkomulag muni
takast ef Bandaríkjamenn geta
hugsað sér að hætta refsiaðgerð-
um gegn Íran.
„Ef þeir vilja samning, þá
verður refsiaðgerðunum að
linna,“ sagði Zarif í Genf í gær.
„Við teljum að öllum refsiaðgerð-
um þurfi að aflétta.“ - gb
Netanjahú ávarpar Bandaríkjaþing í dag:
Óttast samninga
við Íransstjórn
BENJAMÍN NETANJAHÚ Heimsækir
Bandaríkjaþing í óþökk Bandaríkjafor-
seta. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
SVÍÞJÓÐ Notkun eftirlitsmynda-
véla á heilbrigðisstofnunum í Sví-
þjóð er í mörgum tilfellum ólög-
leg. Eftirlitið var ólöglegt hjá 53
af 195. Sumstaðar hafði leyfi ekki
fengist fyrir notkun myndavél-
anna.
Sérstakt leyfi yfirvalda þarf til
að fá að hafa eftirlit með svæðum
sem almenningur hefur aðgang
að, eins og til dæmis anddyrum,
göngum og biðstofum. Yfirvöld
þurfa jafnframt að kanna hvort
eftirlitið sé löglegt. - ibs
Heilbrigðisstofnanir:
Myndavélaeftir-
lit víða ólöglegt
Ef þeir vilja samning,
þá verður refsiaðgerð-
unum að linna,“ sagði
Zarif í Genf í gær.
Mohammed Javad Zarif,
utanríkisráðherra Írans
0
2
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:2
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
F
B
-4
4
F
0
1
3
F
B
-4
3
B
4
1
3
F
B
-4
2
7
8
1
3
F
B
-4
1
3
C
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K