Fréttablaðið - 03.03.2015, Page 12
3. mars 2015 ÞRIÐJUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
FRÁ DEGI
TIL DAGS
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI: Sævar Freyr
Þráinsson ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI:
Sigurjón M. Egilsson sme@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á
höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið
áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is AÐSTOÐARFRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Erla Björg Gunnarsdóttir erla@frettabladid.is MENNING: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is
VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Ég ætla að segja ykkur litla lífsreynslusögu.
Hún gerist fyrir tuttugu árum í Austurríki.
Ég stundaði þar nám um tíma, í borginni
Graz sem er í austurhluta landsins, skammt
frá landamærum Ungverjalands. Múrinn
hafði fallið fáum árum áður og mikill fjöldi
fólks leitaði frá austri til vesturs í von um
betra líf.
Ég var upptekin af hinu bráðskemmti-
lega stúdentalífi og velti lítið fyrir mér
aðstæðum Austur-Evrópumanna. Ég var
frá Íslandi, fékk alls staðar hlýjar móttökur,
og já, var bara nokkuð montin af því að vera
Íslendingur. Það þótti þá, og þykir enn, svo-
lítið töff.
Svo var það dag einn að ég fór í litla
sérvöruverslun og bauð góðan dag. Talaði
þýskuna með hörðum hreim, var alls ekki
austurrísk í útliti, hvað þá skandinavísk,
með mitt svarta hár. Af útlitinu og hreimn-
um mátti dæma að ég kæmi „að austan“. Í
sakleysi mínu beið ég róleg eftir afgreiðslu
og áttaði mig ekki strax á því kuldalega við-
móti sem ég fékk. Eftir dúk og disk fékk ég
afgreiðslu og eftir nokkra stund kom fram
að ég væri frá Íslandi. Og viti menn! Við-
mótið breyttist á svipstundu. Ég fékk bros,
almennilegheit og já, framkomu sem allir
eiga rétt á að fá; hvernig sem þeir líta út,
hvaðan sem þeir koma og hverjir sem þeir
eru.
Svona er þá að vera hataður. Svona er
þá að vera útlendingur. Þarna lærði ég mína
lexíu.
Ég óska engum þess að verða fyrir for-
dómum. Hvað á fólk með að dæma aðra út frá
ytri mælikvörðum? Hver einasta manneskja
er einstök.
Aðflutningur erlendra ríkisborgara til
Íslands á 21. öldinni er nærri helmingi íbúa-
fjölgunar á Íslandi. Á síðasta ári var hlutfall
erlendra ríkisborgara á Íslandi 7,4%. Þess
má einnig geta að fjöldi leik- og grunnskóla-
barna með erlent ríkisfang hefur sjöfald-
ast á öldinni. Nú hafa 11% leikskólabarna og
6% grunnskólabarna annað móðurmál en
íslensku.
Fjölmenningarsamfélag er framtíðin. Við
eigum að taka vel á móti fólki sem hér vill búa
og og hjálpa því á allan hátt við að aðlagast
íslensku samfélagi. Það eykur hagvöxt og síð-
ast en ekki síst auðgar það menningarlífið og
víkkar sjóndeildarhring okkar allra.
Vertu velkominn
SAMFÉLAG
Silja Dögg
Gunnarsdóttir
þingmaður Fram-
sóknarfl okksins
➜ Svona er þá að vera hataður.
Svona er þá að vera útlendingur.
Þarna lærði ég mína lexíu. Ég óska
engum þess að verða fyrir fordóm-
um. Hvað á fólk með að dæma aðra
út frá ytri mælikvörðum?
G
rímseyingar lifa í ótta. Með öllu er óvíst hvort byggð
helst áfram í eynni. Vilji heimamanna er skýr. Þeir
vilja viðhalda byggðinni. Vilji Íslandsbanka er skýr.
Hann vill innheimta skuldir Grímseyinga. Bankinn
mun ráða. Byggðin er í mikilli óvissu. Tilraun um að
viðhalda henni og atvinnu er við að mistakast.
Fyrir fáum árum var drjúgur hluti fiskveiðikvóta Grímseyinga
til sölu. Nokkrir heimamenn gerðu hvað þeir gátu, slógu lán og
keyptu hluta kvótans. Þar með töldu þeir, og aðrir Grímseyingar,
að byggðinni væri bjargað. Dæmið gekk ekki upp. Vonlaust er og
var að láta enda ná saman, gera út með öllum kostnaði, borga laun
og svo af kvótaláninu við bankann. Innst inni vissu eflaust flestir
að svona myndi fara. Bankinn tók þátt, lánaði til kvótakaupanna
og hann mun síðastur allra axla sína ábyrgð á því sem gert var.
Bankinn tók þátt í öllu með lánveitingunum. Hann verður víst að
fá sitt. Bankans er valdið um framtíð Grímseyjar. Ekki heima-
manna eða stjórnmálamanna.
Bæjarstjórn Vestmannaeyja,
þess sjávarpláss sem einna
mestrar velgengni hefur notið,
gerir athugasemdir við þetta
og finnur greinilega til með
Grímseyingum. Í bókun bæjar-
stjórnarinnar segir að fjár-
málastofnanir hafi ráðandi vægi
í rekstri margra útgerðarfyrir-
tækja og illu heilli virðist það háð geðþótta þeirra hverjum sé gert
kleift að gera út og hverjum ekki. Og þar með virðist byggðaþró-
un á Íslandi ákveðin í höfuðstöðvum bankanna þriggja. Ekki af
Byggðastofnun eða Alþingi. Framgangurinn er í höndum við-
skiptabankanna. Þar er ekki spurt um hagsæld fólks eða hvernig
er best að byggð þróist, viðhaldist eða ekki.
Ísland hefur verið gagnrýnt fyrir að hafa ekki markverða
byggðastefnu. Kannski er hún óþörf. Eftir skuldsetningaræðið
í aðdraganda hrunsins er valdið sem fyrr segir hjá bönkunum.
Þeirra samfélagslegu skyldur koma á eftir arðsemiskröfu eig-
endanna.
Bæjarstjórn Vestmannaeyja, sem er tengdari sjávarútvegi en
almennt gerist, sér að staðan er afleit. Nú beinist kastljósið að
Grímsey, sem er sérlega áberandi tilfelli, síðast var það Djúpi-
vogur, Þingeyri og Húsavík. Hvar það verður næst er vont um að
segja, en það verður einhvers staðar.
Enn vantar að tekist verði á um hvað beri að gera. Á að
hámarka arðsemi í sjávarútvegi, halda áfram að færa kvótann á
færri hendur eða á að nota hann líka til byggðaverkefna? Íslenska
ríkið útdeilir fimm prósentum kvótans og tekist er á um hvort
auka eigi ríkiskvótann.
Stóri áhrifavaldurinn í byggðaþróun eru bankarnir. Þeir ráða
mestu vegna skuldsetningar fjölda útgerða, oft útgerða sem eru
örlagavaldar um hvort byggð helst á viðkomandi stað eða ekki.
Grímsey er skýrt dæmi um það.
„Þar með ráða þessar fjármálastofnanir orðið byggðaþróun
á Íslandi í gegnum lánsveð í aflaheimildum. Þau tengsl sem
hingað til hafa verið milli útgerða og íbúa sjávarbyggða eru þar
með rofin,“ segir bæjarstjórn Vestmannaeyja og lýsir þar með
ágætlega hinni raunverulegu byggðastefnu á Íslandi. Fyrsti liður
hennar tryggir að rukkararnir fái sitt og svo er séð til með aðra.
Þetta er vonlaust fyrirkomulag. Að baki er fólk sem á allt sitt
undir öðrum framgangsmáta.
Hin raunverulega byggðastefna á Íslandi:
Bankarnir ráða
Sigurjón Magnús
Egilsson
sme@frettabladid.is
Bændur blása til sóknar
Sindri Sigurgeirsson, fjárbóndi og
formaður Bændasamtakanna, blés
til sóknar gegn versluninni, sem er jú
veigamesti þátturinn í að koma vörum
bænda til okkar neytenda. Hann full-
yrðir að forráðamenn verslunarinnar
hugsi á allt annan hátt en þeir tala.
Þeir beri ekki hag neytenda fyrir
brjósti, heldur einungis eigin hag.
Segja má að Sindri og hans fólk hafi
nú stigið áður óþekkt skref. Þeir hnykla
vöðvanna, segjast ekki gefa
fet eftir hvað varðar
verndartollana. Víst er
að þeir hafa tryggt bak-
land þar, sjálfan flokk
landbúnaðarráðherra
og forsætisráðherra,
sem báðir taka undir með
bændum Íslands.
Að vonum
Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri
Félags atvinnurekenda, hefur farið
fyrir gagnrýni á verndartolla.
„Það eru gríðarlega háir tollar á inn-
fluttum búvörum, jafnvel búvörum sem
eru ekki framleiddar á Íslandi, jafnvel
búvörum sem er skortur á á Íslandi.“
Álagning á innfluttar búvörur er samt
meiri en á innlendar búvörur, að sögn
Sindra Sigurgeirssonar. Innflutningur
var með mesta móti í fyrra án þess að
verðið lækkaði. Ólafur segir það ekkert
skrýtið. Tollarnir eru áfram um 50
prósent á kjúklingi og milli 30 og
40 prósent á innfluttu svínakjöti.
„Sindri verður bara að biðja
landbúnaðarráðherra að laga
það ef hann vill að
innflutningurinn
lækki í verði.“
Eigin skrímsli
Jónas Kristjánsson ritstjóri liggur ekki
á skoðunum sínum. Hann segir fyndið
að stjórnmálamenn heimti aðgerðir
gegn eigin skrímslum. „Bankarnir eru
bezta dæmið um slík skrímsli. Fyrr-
verandi ríkisstjórn gerði ekki handtak
til að bremsa bankana og núverandi
ríkisstjórn hefur ekki heldur lyft hendi
til þess. Samt þykjast pólitíkusar
fjórflokksins geta rifið sig hása um
bankana. Þar fer auðvitað fremstur
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
forsætis, sem frægastur er fyrir
að vera enn í stjórnarandstöðu.
Hann segir framkomu bankanna
ótæka og ekki ásættanlega.
Tekur svo fram, að hann sé
sjálfur valdalaus.“ Þannig
skrifar Jónas.
sme@frettabladid.is
A Ð A L F U N D U R
Brú félag stjórnenda heldur aðalfund sinn mánudaginn
16. mars kl. 19:00 í húsnæði félagsins að Skipholti 50d
D A G S K R Á:
Venjuleg aðalfundastörf
Kosning til stjórnar
Kjósa skal um:
- Formann til 2ja ára
- Ritara til 2ja ára
- Varamann til 2ja ára
Félagar fjölmennum !!
Stjórnin.
0
2
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:2
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
F
B
-3
1
3
0
1
3
F
B
-2
F
F
4
1
3
F
B
-2
E
B
8
1
3
F
B
-2
D
7
C
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K