Fréttablaðið - 03.03.2015, Side 16

Fréttablaðið - 03.03.2015, Side 16
FÓLK|HEILSA NÆRUMHVERFIÐ NÝTT Fyrirtækið Móðir Jörð frá Fljótsdals- héraði var einnig í Hörpu um helgina. Á Fljótsdalshéraði fer fram lífræn ræktun á korni og grænmeti en fyrir- tækið framleiðir úrval af hollustu- og sælkeravörum. Að sögn Eyglóar Bjarkar Ólafsdóttur, annars eiganda fyrirtækisins, nýta þau til dæmis ber og jurtir úr nánasta umhverfi við framleiðslu sína. „Hvönnin er nýtt til að bragðbæta hrökkbrauðið okkar og ýmsar jurtir eru nýttar í nuddolíur og te. Við notum einnig brenninetlu sem er vel þekkt fyrir hollustu en er van- nýtt hér á landi en hún inniheldur járn og C-vítamín. Eins hafa bláber mikið af andoxunarefnum og vítamínum og þykja góð fyrir sjónina.“ Hún segir styrkleika íslenskra afurða helst felast í hreinleika vatns og jarðvegs. „Hér er auk þess lítil eða engin þörf á notkun skordýraeiturs og við búum almennt ekki við það álag sem ræktunarlönd eru undir víða erlendis í kjölfar þaulræktunar og mengunar sem því getur fylgt. Hér eru einnig góðar aðstæður til að stunda lífræna ræktun þar sem landrými er til staðar og ekki miklir árekstrar við mengandi starfsemi.“ Þeir landsmenn sem ekki hafa heimsótt matar- markað Búrsins áður en vilja kynna sér fjölbreytta og holla afurðir innlendra framleiðenda geta heimsótt Hörpu í lok ágúst þegar næsti markaður verður haldinn. FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs- ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 Hönnun: Silja Ástþórsdóttir FemiBalance er dásamleg jurtablanda sem kemur á góðu hormónajafn- vægi hjá konum á besta aldri. FemiBalance er í dag eitt vinsælasta bætiefnið í þessum flokki á Norðurlöndunum. Þegar tekist er á við breytingaskeiðið þarf að huga að mörgum þáttum og FemiBalance inniheldur jurtir sem draga m.a. úr nætursvita, svefnvandamálum, stoðkerfisverkjum, depurð, þreytu og þurrki. Hér er vandað til verka því í hverju hylki eru 465 mg af sérvöldum jurtum, en þær eru: rauðsmári, granateplakjarnar, jamrót og hindberja- blöð, grikkjasmárafræ, grávalhnetu- börkur og fennikufræ. Allt eru þetta afar kvenlegar jurtir sem gera miklum mun meira en að aðstoða við hliðarverkanir breytinga- skeiðsins. Ýmsar jákvæðar „aukaverk- anir“ kunna því að fylgja með, t.d. betri líðan, meiri orka og aukið úthald. FEMIBALANCE: ● Getur dregið úr nætursvita og svefn- vandamálum ● Vinnur gegn verkjum í stoðkerfi ● Byggir upp slímhúðir og dregur úr þurrki ● Hefur mjög jákvæð áhrif á andlega líðan ● Eykur orku og úthald Í hverju glasi af FemiBalance eru 100 hylki, en mælt er með 2 hylkjum á dag. Fæst aðeins í apótekum og heilsuvöru- verslunum. FEMIBALANCE FRÁ SOLARAY HEILSA KYNNIR FemiBalance – strax í aðdrag- anda breytingaskeiðsins. Íslendingar hafa nýtt afurðir nátt-úrunnar til matargerðar svo öldum skiptir. Undanfarin ár hefur þeim innlendu framleiðendum fjölgað jafnt og þétt sem nýta afurðir á borð við söl, þara, fjallagrös, ber og ætihvönn og búa til fjölbreyttar, gómsætar og ekki síður bráðhollar afurðir. Margir slíkir framleiðendur kynna vörur sína og selja á matarmarkaði Búrsins sem haldinn er nokkrum sinnum á ári. Síðustu helgi var átt- undi matarmarkaður Búrsins haldinn í Hörpu og eins og venjulega var hann vel sóttur. Um 50 innlendir framleið- endur kynntu þar og seldu afurðir sín- ar og eru margir þeirra frumkvöðlar á sínu sviði sem bæði hafa brennandi áhuga á nýtingu íslenskra auðlinda og sjá mikil tækifæri í þessari grein. Aðsóknin að matarmarkaði Búrsins er alltaf mjög góð og virðist áhugi neytenda á íslenskum hollustuvörum aukast með hverju árinu sem líður. Íslensk hollusta var eitt þeirra fyrirtækja sem kynntu afurðir sínar um helgina en það framleiðir ýmsar matvörur úr sölum, þara, berjum og fjallagrösum. Eyjólfur Friðgeirsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, var ánægður með afrakstur helgarinnar og segir landsmenn sýna þaranum mikinn áhuga. „Margir Íslendingar vilja læra að nýta hann til matargerðar og það sama má segja um sölin. Stórþar- inn er afar hollt hráefni og ríkur af af kalki, magnesíum, járni og snefil- efnum. Þar sem hann er ríkur af nátt- úrulegri glútamatsýru skerpir hann og dregur fram hið eiginlega bragð hráefnisins á hollan og eðlilegan máta. Þarinn gefur góðan kraft í allar græn- metis- og kjötsúpur og er einnig góður í grænmetis-, bauna- og fiskpottrétti.“ Sölin eru að sögn Eyjólfs helst nýtt sem snakk en hann segir bæði sölin og þarann innihalda mikið af steinefnum og snefilefnum sem nauðsynleg séu fyrir bein, hár og tennur. Fjallagrösin eru annað hráefni sem Íslendingar hafa notað í margar aldir. „Íslendingar eru mjög áhugasamir um fjallagrösin sem ýmist eru seld heil eða möluð. Þau eru virkilega holl og talin hafa mýkjandi og græðandi áhrif á slím- húð í öndunarfærum og meltingarvegi og styrkja ónæmis- kerfið. Grösin eru góð í mat eins og brauð, grauta og te og í bakstri eru þau mjög góð saman við spelt.“ AFURÐIR NÁTTÚRU HOLLT OG GOTT Mörg smærri matvælafyrirtæki hérlendis sérhæfa sig í fram- leiðslu hollra matvæla úr afurðum íslenskrar náttúru. Nokkur þeirra voru mætt á matarmarkað Búrsins í Hörpu um helgina þar sem gestir gátu smakk- að á fjölbreyttum kræsingum og verslað um leið. BRÁÐHOLL Fjallagrösin er mjög holl og henta til dæmis í brauð, grauta og út í te. MYND/HARI NÝTIN Eymundur og Eygló nýta ber og jurtir úr nánasta umhverfi sínu við fram- leiðsluna. Þar má nefna ætihvönn, brenninetlu og bláber. MYND/HELGA BJÖRNSDÓTTIR FJÖLBREYTNI Um 50 framleiðendur kynntu afurðir sínar í Hörpu um helgina. Uppi- staða margra þeirra kemur úr íslenskri náttúru. MYND/HELGA BJÖRNSDÓTTIR NOTUÐ LENGI Ætihvönnin er talin ein merkasta lækn- ingajurt Íslandssögunnar og hefur verið notuð frá landnámi. MYND/ÚR EINKASAFNI Til hvers að flækja hlutina? 365.is | Sími 1817 SJÁLFKRAFA í BESTA ÞREP! 0 2 -0 3 -2 0 1 5 2 2 :2 8 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 3 F B -5 3 C 0 1 3 F B -5 2 8 4 1 3 F B -5 1 4 8 1 3 F B -5 0 0 C 2 8 0 X 4 0 0 4 B F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.