Fréttablaðið - 03.03.2015, Side 21
BÍLAR
FRÉTTABLAÐIÐ
33. mars 2015 ÞRIÐJUDAGUR
B
íla- og tækjafjármögnun
Arion banka hóf starfsemi í
september árið 2012. Þá var
ákveðið að stofna nýja deild
og byrja að bjóða upp á nýjar
leiðir í bílafjármögnun til
einstaklinga sem ekki höfðu
verið í boði áður hjá bankanum,“ segir
Sævar Bjarnason, forstöðumaður bíla- og
tækjafjármögnunar Arion banka. Hann
segir markaðinn hafa tekið vel á móti
þessari nýju þjónustu. „Við hjá bíla- og
tækjafjármögnun Arion banka veitum í
dag fjölmörgum viðskiptavinum Arion
banka almenna ráðgjöf sem tengist fjár-
mögnun á ökutækjum.“
Samstarfsaðilar
„Okkar samstarfsaðilar eru sölumenn
bílaumboða jafnt sem sölumenn notaðra
bíla sem eru allir með aðgang að um-
sóknarkerfi bíla- og tækjafjármögnun-
ar Arion banka. Stór hluti bílaflota lands-
manna er fjármagnaður með lánum og
fer afgreiðsla og undirritun lánapappíra
fram hjá samstarfsaðilum okkar. Það er
mikilvægt að viðskiptavinir Arion banka
fái tækifæri á að sækja um góð kjör hjá
sínum viðskiptabanka í gegnum bílaum-
boð og bílasölur notaðra bíla sem eru með
umsóknarkerfi Arion banka.“
Skjót og góð þjónusta
Hagkvæmar lausnir við fjármögnun
hvers kyns ökutækja eru mikilvægur
liður í þjónustu bankans að sögn Sæv-
ars. „Hjá bíla- og tækjafjármögnun Arion
banka eru starfsmenn með áralanga
reynslu af ráðgjöf sem tengist fjármögn-
un til einstaklinga,“ segir Sævar og bend-
ir á að starfsmenn deild-
arinnar séu ávallt til-
búnir að finna bestu
fjármögnunarleið sem
henti hverjum og einum.
Sveigjanlegur greiðslumá-
ti og hagkvæm kjör
Kaupleigusamningar
eða bílalán Arion banka
eru sérstaklega ætluð til fjármögnunar á
bifreiðum til einstaklinga.
„Arion banki fjármagnar allt að 75 pró-
sent af kaupverði bifreiðarinnar og getur
lánstíminn verið allt að 84 mánuðir,“ upp-
lýsir Sævar. Hann segir að einnig sé hægt
að fá allt að níu ára fjármögnun á nýrri
bifreið frá bílaumboði og þannig geti fólk
lækkað greiðslubyrði enn frekar.
„Viðskiptavinurinn er farinn að undir-
búa sig betur áður en hann fer og skoðar
bíla hjá bílaumboðum. Hann kannar fyrst
hvaða möguleikar eru í boði hjá sínum
viðskiptabanka, til dæmis kjör, lengd
samninga og greiðslubyrði. Fer síðan af
stað og skoðar hvað er í boði. Við leggjum
áherslu á að viðskiptavinurinn klári alla
þessu vinnu áður en hann fer að fjárfesta
í bíl,“ segir Sævar og bendir á að þess-
ar hagkvæmu leiðir bjóðist viðskiptavin-
um bankans og öðrum sem vilji við hann
skipta.
Komum til móts við okkar viðskiptavini
Bílafloti landsmanna er að eldast hratt og
samkvæmt Samgöngustofu er meðalald-
ur fólksbíla tæplega 12 ár. „Þetta segir
okkur að endurnýjunin er ekki eins hröð
og við var búist. Við viljum koma til móts
við okkar viðskiptavini og bjóða þeim fjár-
mögnun á nýjum jafnt sem 12 ára gömlum
bílum á meðan við erum að ganga í gegn-
um þetta tímabil,“ segir Sævar og bend-
ir í því sambandi á að Arion-banki bjóði nú
upp á fjármögnun á kaupum á bílum sem
eru allt að tólf ára gamlir. Allt að 75% fjár-
mögnun er í boði til kaupa á allt að níu ára
gömlum ökutækjum - og hægt er að slá lán
fyrir helmingi kaupverðs ökutækis sem er
tíu til tólf ára gamalt.
Endurnýjun borgar sig
Endurnýjunarþörfin á bifreiðum lands-
manna er mikil og rekstur á eldri bílum
getur verið óhagstæður. „Oft heyrum við
af því að sparnaður í formi bensín- og við-
haldskostnaðar á nýlegum bifreiðum geti
staðið undir hluta afborgana bílalána og
getur því verið mikil hagkvæmni í því
fólgin að endurnýja bifreiðina á heim-
ilinu,“ segir Sævar.
Þeir sem huga að kaupum á fólksbílum
geta haft samband með því að senda fyr-
irspurn á bilar@arionbanki.is eða kynna
sér reiknivél og lánaforsendur bíla- og
tækjafjármögnunar á heimasíðu Arion
banka, www.arionbanki.is.
HAGKVÆM FJÁRMÖGNUN FÓLKSBÍLA
Bíla- og tækjafjármögnun Arion banka er nýleg deild innan bankans sem hefur að markmiði að veita sveigjanlega
og hraða þjónustu sem er sniðin að þörfum hvers viðskiptavinar. Sérfræðingar deildarinnar aðstoða og finna
bestu fjármögnunina fyrir hvern og einn.
Sævar Bjarnason
Hjá bíla- og tækjafjármögnun Arion banka eru starfsmenn með áralanga reynslu af ráðgjöf sem tengist fjár-
mögnun til einstaklinga.
ARION BANKI KYNNIR
Hagkvæm
bílafjármögnun
Við bjóðum kaupleigu og bílalán til að
fjármagna bílakaup. Viðskiptavinir í
Vildarþjónustu Arion banka njóta
hagstæðra kjara.
Reiknivélin á arionbanki.is hjálpar þér að
sjá hvaða fjármögnunarkostir henta þér.
Hafðu samband í síma 444 8800 eða sendu
fyrirspurn á bilar@arionbanki.is
Nánari upplýsingar er að finna á
arionbanki.is
0
2
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:2
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
3
F
B
-5
3
C
0
1
3
F
B
-5
2
8
4
1
3
F
B
-5
1
4
8
1
3
F
B
-5
0
0
C
2
8
0
X
4
0
0
4
B
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K