Fréttablaðið - 03.03.2015, Side 22
BÍLAR
FRÉTTABLAÐIÐ
4 3. mars 2015 ÞRIÐJUDAGUR
Þeir eru rausnarlegir hjá General
Motors við yfi rmenn sína, en
fyrirtækið gaf 12 stjórnendum
sínum hluti í GM fyrir alls 9,6
milljónir dollara um daginn, en
það samsvarar 1.250 milljónum
króna. Forstjórinn Mary Barra
fékk stærsta hlutinn, 3 milljónir
dollara, eða um 393 milljónir
króna. Laun hennar fyrir árið
í ár verða á bilinu 210 til 1.835
milljónir króna, allt eftir árangri.
Tveir næstráðandi yfi rmenn
fengu hvor um sig um 1 milljón
dollara virði í General Motors,
eða um 130 milljónir króna og
aðrir 9 yfi rmenn minna. Það er því ekki slæmt að vinna sem stjórnandi
hjá General Motors þessa dagana.
GM gaf stjórnendum
hlutabréf fyrir 1.250 milljónir
Öllum bílafyrirtækjum Japans gekk vel á síðasta ári og samanlagður
hagnaður þeirra nemur 4.453 milljörðum króna. Starfsfólk í verk-
smiðjum þeirra krefst nú hluta þess hagnaðar og lái því hver sem vill.
Kröfur stéttarfélaga starfsmanna hljóða nú upp á hækkun til þeirra allra
um 50 dollara á mánuði, eða um 6.600 krónur. Það virðist ekki há krafa
í samanburði við risahagnaðinn, en þessi hækkun myndi kre ast 1/56
af árshagnaðinum í fyrra fyrir þá 766.000 starfsmenn sem vinna í Japan
fyrir þessi fyrirtæki. Japönsku bílafyrirtækin hafa ekki verið svo viljug
að hækka laun starfsmanna sinna svo það gæti stefnt enn einu sinni í
verkföll í japönskum bílaverksmiðjum. Ástæða þess hve japönsku bíla-
fyrirtækin högnuðust vel í fyrra var lágt gengi japanska jensins og árið í
ár lítur jafn vel út.
Japanskir verkamenn í
bílaverksmiðjum vilja hluta
hagnaðar
Polestar er þekkt fyrir að ná ótrúlegu afli úr Volvo-vélum og enn á ný
hafa þeir sett nýja mælistiku með því að kreista 450 hestöfl út úr 2,0
lítra og ögurra strokka bensínvél Volvo. Það ætti að hræða suma af
þýsku lúxusbílaframleiðendunum. Víst er að enn er háð hestaflastríð
milli þeirra og Volvo tekur þátt í því með hjálp breytingafyrirtækisins
Polestar. Sumum þótti nóg um þegar Polestar náði 350 hestöflum úr
sex strokka vél í Volvo V60. Þá notaðist Polestar við gamla vél og tækni.
Öllu magnaðri er árangur þeirra með þessa litlu vél nú. Með henni slær
Polestar við AMG-hluta Mercedes Benz sem náði 360 hestöflum úr sömu
stærð vélar fyrir Mercedes Benz CLA45 AMG-bílinn og þótti mörgum þó
nóg um þar.
Tvær forþjöppur og keflablásari
Polestar notast við tvær forþjöppur frá Borg Warner og snúast þær allt
að 200.000 snúninga á hverri mínútu. Auk þess er keflablásari tengdur
vélinni sem snýst á 70.000 snúninga hraða á mínútu. Bensíndælan í bíln-
um vinnur undir 50 psi þrýstingi og er svo tengd stórum bensínþrýsti-
dælum með 3.625 psi þrýstingi. Segja má því að allt sé afar háþrýst
undir vélarhlífi nni. Sumir myndu halda að þetta væri ávísun á bilanir en
því eru þeir Polestar menn ekki sammála. Þessi Volvo S60-bíll er eðlilega
með breytta og stífari öðrun, öðruvísi stýringu og breiðari dekk.
450 hestafla Volvo S60
J
apanski bílaframleiðand-
inn Mazda verður 100
ára árið 2020. Bílatíma-
ritið Autocar hefur heim-
ildir fyrir því að í til-
efni þess ætli Mazda að
endur vekja sportbílinn
RX-7 og enn sem fyrr með rotary-
vél. Mazda RX-7 var framleidd-
ur á árunum 1978 til 2002 og voru
alls framleiddir 811.634 bílar.
Mikið hefur gengið á hjá Mazda
hvað varðar framtíð rotary-véla
fyrirtækisins, en sem stendur
framleiðir Mazda enga bíla með
slíkum vélum, enda hafa þær þótt
óhagstæðar í rekstri þrátt fyrir
mikið afl þeirra úr litlu sprengi-
rými.
Vilja ekki gefast upp
á rotary-vélum
Þeir hjá Mazda vilja þó alls ekki
gefast upp á framleiðslu rotary-
véla, sem hefur gefið fyrirtækinu
mikla sérstöðu meðal bílafram-
leiðenda. Árið 2009 heyrðist að
Mazda ætlaði að sýna nýjan RX-7
á bílasýningunni í Tókýó það ár,
en ekkert varð úr því. Sama ár
var því spáð að Mazda ætlaði að
hætta framleiðslu RX-8-sport-
bílsins til að rýma fyrir nýjum
RX-7 sem yrði þá kynntur árið
2012. Árið 2010 var Mazda víst að
vinna að 300 hestafla rotary-vél
fyrir RX-7 og átti sú vél að vera
hönnuð bæði sem bensín- og dísil-
vél og yrði mun eyðslugrennri en
fyrri rotary-vélar Mazda. Þá var
talað um kynningu á bílnum árið
2013.
Sífellt nýjar ákvarðanir
Svo heyrðist að nýr bíll Mazda
með rotary-vél myndi heita RX-9
og yrði byggður á sama undir-
vagni og MX-5 Miata. Árið 2012
komu svo þær fréttir að von væri
á slíkum bíl árið 2017 og var það
ári síðar borið til baka og sagt
að Mazda ætlaði að hætta alveg
að smíða bíla með rotary-vélar.
Ekki er það þó líklegt í ljósi þess
að enn vinna 30 verkfræðingar
hjá Mazda við þróun rotary-vél-
ar í samstarfi við háskóla í Japan.
Autocar segir nú að nýr bíll komi
með rotary-vél á afmælisárinu
2020 og að hann verði með vél-
ina að framan, drifið að aftan og
annaðhvort aðeins með 2 sæti
eða 2+2. Sá bíll gæti fengið eitt-
hvert af nöfnunum RX-6, RX-7
eða RX-9. Aðeins tíminn einn
leiðir í ljós hvort úr þessu verð-
ur, en Mazda virðist seint ætla að
ákveða sig varðandi framtíð rot-
ary-véla hjá fyrirtækinu.
MAZDA RX-7 GÆTI SNÚIÐ
AFTUR ÁRIÐ 2020
Það ár verður Mazda 100 ára og heyrst hefur að fyrirtækið vilji halda
upp á það með nýjum bíl með rotary-vél.
N
æsti alvöru keppi-
nautur Tesla Model
S gæti orðið Porsche.
Heyrst hefur að
Porsche sé að þróa bíl
undir heitinu Porsche
717 sem aðeins geng-
ur fyrir rafmagni. Sá bíll verð-
ur eitthvað minni en Panamera-
bíll Porsche og því líklega ámóta
að stærð og Tesla Model S. Hann
á að fást í 400, 500 og 600 hestafla
útgáfum og allar verða þær með
meiri drægni en 500 kílómetra.
Bíllinn verður byggður á sama
undirvagni og Porsche Panamera
og Bentley Continental. Porsche
framleiðir nú þegar nokkrar gerð-
ir Plug-In-Hybrid-bíla, svo sem
Cayenne, Panamera og ofurbíl-
inn 918. En þessi bíll yrði sá fyrsti
sem eingöngu verður drifinn
áfram af rafmagni.
Fjórhjóladrifi nn og órhjólastýrður
717-bíllinn verður fjórhjóladrif-
inn og með stýringu á öllum hjól-
um. Rafmótorar eru á hverju hjóli
og fjöðrun bílsins verður með raf-
eindastýrða loftpúðadempara.
Þrátt fyrir að smíði þessa bíls hafi
ekki verið staðfest af Porsche hafa
bæði Car Magazine og Auto Motor
und Sport í Þýskalandi greint frá
því að hann sé væntanlegur. Tesla
má sannarlega fara að passa sig
því enginn vill fá Porsche sem
keppinaut. Oft hefur verið ýjað að
minni gerð Panam era-bílsins og
han þá kallaður Pajun, eða „litli“
Panamera. Það skyldi þá aldrei
vera að fyrirhugaður Pajun yrði
aðeins rafmagnsdrifinn? Þeir sem
fjallað hafa um þessa smíði telja
að hann verði ekki tilbúinn til sölu
fyrr en árið 2019, svo Tesla hefur
góðan tíma til að mæta þessari
samkeppni frá Porsche.
PORSCHE AÐ SMÍÐA
RAFMAGNSBÍL?
Heyrst hefur að Porsche sé að þróa bíl undir heitinu Porsche 717 sem
aðeins gangi fyrir rafmagni.
0
2
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:2
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
F
B
-4
E
D
0
1
3
F
B
-4
D
9
4
1
3
F
B
-4
C
5
8
1
3
F
B
-4
B
1
C
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K