Fréttablaðið - 03.03.2015, Síða 26
BÍLAR
FRÉTTABLAÐIÐ
8 3. mars 2015 ÞRIÐJUDAGUR
N
ý Corsa frá Opel
verður frumsýnd
hjá Bílabúð Benna
laugar daginn 7.
mars. Hér er á ferð-
inni afar sportleg-
ur fimm manna bíll
sem kemur virkilega á óvart
fyrir óvenju fullkominn tækni-
og öryggisbúnað, ferska hönn-
un, sprækar vélar, sparneytni og
frábært verð. Opel-merkið hefur
verið á mikilli uppleið í Evrópu
og hlotið ótal hönnunar- og gæða-
verðlaun að undanförnu. Lykill-
inn að þessum árangri er 4 millj-
arða evra fjárfesting fyrirtækis-
ins í þróun á nýjum bílgerðum.
Metnaður Opel er gríðarlegur en
fram til ársins 2018 áætlar fyrir-
tækið að kynna eina 27 nýja bíla
og 17 nýjar bílvélar. Afrakstur
þessa er að skila sér, jafnt og þétt
og nú er það fimmta kynslóðin af
Corsa.
12,3 milljón eintök seld
Mikil eftirvænting hefur ríkt
fyrir komu hans, enda ein mest
selda einstaka bílgerðin sem
framleidd hefur verið í Evrópu,
með 12,3 milljónir eintaka seld frá
markaðssetningu hans árið 1982.
Nýi bíllinn hefur greinilega staðið
undir væntingum jafnt gagnrýn-
enda sem neytenda, en í desem-
ber, aðeins þremur mánuðum eftir
frumsýningu bílsins í Frankfurt,
höfðu borist yfir 55 þúsund pant-
anir. Nú gefst Íslendingum tæki-
færi til að skoða gripinn. Sam-
kvæmt upplýsingum Björns Ragn-
arssonar, framkvæmdastjóra
bílasviðs hjá Bílabúð Benna,
verður nýja Corsan frumsýnd
í Reykjavík og í Reykjanesbæ,
laugardaginn 7. mars og eru allir
hjartanlega velkomnir.
BÍLABÚÐ BENNA
FRUMSÝNIR OPEL CORSA
Hefur hlotið ótal hönnunar- og gæðaverðlaun að undanförnu.
Nú í janúar sl. lauk fyrsta námskeiði er Bílgreinasambandið stóð fyrir í
samvinnu við Opna háskólann í Reykjavík. Námið var sérsniðið að þörf-
um millistjórnenda og stjórnenda í bílgreininni en námslínan byggðist á
víðtækri þekkingu sérfræðinga HR í stjórnendaþjálfun og til hliðsjónar
þarfagreiningu stjórnenda úr greininni, starfsfólks Bílgreinasambandsins
og kennara innan HR. Námið fór af stað í september sl. og að jafnaði fór
kennsla fram tvo heila daga í mánuði að desember undanskildum. Þau
fög sem farið var í voru:
● Markaðsmál og almannatengsl
● Persónuleg þróun stjórnenda, tímastjórnun og markmiðasetning
● Þjónustu- og gæðastjórnun
● Samningatækni
● Samfélagsleg ábyrgð
● Fjármál og áætlanagerð
● Mannauðsstjórn og leiðtogafræði
Tuttugu og fi mm skráðu sig á námskeiðið sl. haust og er skemmst frá því
að segja að nemendur voru mjög ánægðir með allt sem að þessu námi
laut og fékk námskeiðið hæstu einkunn en nemendur lögðu mat á nám
og kennslu í lok hvers kennsludags. Að öllu óbreyttu, miðað við jákvæðar
niðurstöður af þessu námskeiði, mun Bílgreinasambandið athuga með
áframhaldandi samstarf við Opna háskólann um sambærilegt námskeið
nú í haust ef næg þátttaka verður.
Stjórnendanámskeið
BGS og Opna háskólans
Subaru Outback hefur ávallt verið einn af glæsilegustu fulltrúum Subaru
og er nýi bíllinn þar engin undantekning. Blaðamanni Fréttablaðsins
gafst tækifæri á dögunum til að reynsluaka þessum nýja bíl frá Subaru
og mun verða allað ítarlega um hann í næsta bílablaði Fréttablaðsins.
Subaru-menn hafa ávallt lagt allt sitt í fullkomið órhjóladrif sem vinnur
með lárétt hönnuðum Boxer-vélum. Nýr Outback er með nýja og upp-
færða Boxer-dísilvél sem notar einungis 6,0 lítra á hverja 100 km.
EyeSight-öryggistækni
Eitt það athyglisverðasta við þessa nýju útgáfu af Subaru er nýtt
öryggismyndavélakerfi sem Subaru-menn kalla EyeSight. Kerfi ð, sem er
eitt það fullkomnasta sem völ er á, aðstoðar ökumenn við að koma í veg
fyrir árekstra. Subaru hefur unnið að þróun kerfi sins síðastliðin 20 ár og
hefur öryggisbúnaðurinn verið til reynslu í bílum frá Subaru á Japans-
markaði síðastliðin fi mm ár. EyeSight-öryggiskerfi ð tengir saman tvær
myndavélar sem staðsettar eru innan við framrúðuna. Myndavélarnar
senda litmyndir í þrívídd til tölvu sem kennt hefur verið að bera kennsl á
lögun hluta og greina hraða og arlægðir með næstum sömu nákvæmni
og mannsaugað býr yfi r. EyeSight-kerfi ð gerir einnig greinarmun á
gangandi vegfarendum, reiðhjólum, mótorhjólum og bílum auk þess að
skynja hemlaljós svo eitthvað sé nefnt. Subaru Outback Premium Boxer
dísil, sjálfskiptur, kostar 6.590.000 krónur. Eyðslan í blönduðum akstri er
6,0 l/100 km samkvæmt uppgefnum tölum framleiðanda.
Nýr Subaru Outback
frumsýndur um næstu helgi
0
2
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:2
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
3
F
B
-4
0
0
0
1
3
F
B
-3
E
C
4
1
3
F
B
-3
D
8
8
1
3
F
B
-3
C
4
C
2
8
0
X
4
0
0
2
B
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K