Fréttablaðið - 03.03.2015, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 03.03.2015, Blaðsíða 28
BÍLAR FRÉTTABLAÐIÐ 10 3. mars 2015 ÞRIÐJUDAGUR 2,2 l dísilvél, 200 hestöfl Fjórhjóladrif Eyðsla 6,7 l/100 km í bl. akstri Mengun 174 g/km CO2 Hröðun 9,6 sek. Hámarkshraði 203 km/klst. Verð 7.590.777 kr. Umboð Askja ● Vel búinn ● Rúmt innanrými ● Fallegur ● Skortir nýja vélarhönnun ● Eyðsla ● Verð í hærri kanti KIA SORENTO KIA SORENTO Finnur Thorlacius reynsluekur L aglegar útlitsbreyting- ar hafa orðið á Sorento og hann er nú troðinn nýrri tækni. Bíllinn er með sömu 2,2 lítra dísil- vélinni sem nú er 3 hestöflum aflmeiri en í fyrri kynslóð. Bæði Hyundai og systurfyrir- tækið Kia hafa fundið útúr því að ef bílar eru snotrir útlits, hlaðnir tækni, endast vel og eru á fram- bærilegu verði muni þeir selj- ast. Ofan á það hafa báðir fram- leiðendur bætt langri ábyrgð bílanna og hefur það vafalaust aukið sölu þeirra. Bæði Kia og Hyundai keppa í flokki fremur stórra jepplinga með bílana Sor- ento og Santa Fe og þar er ekki auðvelt að keppa og margir góðir keppinautarnir. Þeim hefur þó gengið vel með báða þessa bíla og þeir selst vel. Áhyggjuatriði er þó hátt gengi suðurkóreska wonsins og afleiðing þess, að bílar þeirra verði of dýrir. Kia kynnti á dög- unum fyrir bílablaðamönnum nýja þriðju kynslóð Sorento-jepp- ans í hinum fagra bæ Sitges í ná- grenni Barcelona. Sorento af síð- ustu kynslóð var nokkuð laglegur bíll og víst er að hann er nú orð- inn miklu snotrari og útlitsbreyt- ingarnar afar jákvæðar og ekki síst hinn flotti vindkljúfur að aftan. Bíllinn hefur lengst nokk- uð og er allur orðinn meiri bíll að sjá. Sor ento er nú 9,5 cm lengri, 0,5 cm breiðari og 1,5 cm lægri til þaksins og sportlegri allur fyrir vikið. Troðinn af tækninýjungum Ef til vill eru mestu breytingarn- ar í bílnum fólgnar í alls konar tæknibúnaði og þá koma fyrst upp í hugann 3 akstursstillingar, 360 gráðu myndavél og búnaður sem bremsar sjálfur við aðsteðj- andi hættu og heldur réttri fjar- lægð frá næsta bíl við lang akstur. Einnig var voða flott að sjá að bæði er hita- og kuldastilling í framsætum bílsins og aftursætin eru einnig með hita. Þetta er eitt- hvað sem maður á ekki að venj- ast í bílum í þessum verðflokki. Einnig er innrétting bílsins orðin talsvert flottari, mikil gæði eru í frágangi hennar og takkar stór- ir og góðir og vænir fyrir þá sem aka með hanska. Ein eftirtekt- arverð breyting enn er sú að nú er Sorento eingöngu 7 sæta, þ.e. ekki sem valkostur heldur staðal- búnaður. Bíllinn er nú 14% stífari að sögn Kia og fyrir því finnst og Kia hefur einnig tekist að minnka hliðarhalla í beygjum með góðu aðstoðarkerfi og gripið er ári gott þegar tekið er á bílnum. Fjöðrun bílsins er ágæt og étur vel ójöfn- ur. Kia Sorento er því ágætur akstursbíll en hann á samt nokk- uð í akstursgetu margra af dýrari bílum þýsku lúxusbílaframleið- endanna, Audi, BMW og Benz. En hver átti von á öðru, a.m.k. ekki undirritaður. Orðinn mun flottari að innan Framsætin í bílnum er þokkaleg en alls ekki með þeim bestu, til- tölulega hörð og gætu þreytt far- þega í langakstri. Rýmið frammi í er til fyrirmyndar og það á einn- ig við aftur í, en þar er bæði yfrið pláss fyrir fætur og höfuð. Einn af mjög flottum kostum Sor ento er risastórt glerþak sem loka má með einum takka, en ávallt fannst mér best að hafa það opið, en það gerir bíla bjartari og ekki veitir af ef innréttingarnar eru í dekkra lagi. Einn mjög flott- ur kostur í bílnum er fólginn í því að aftursætin eru á sleða og flytja má bekkinn heilmikið fram og aftur. Gaman var líka að sjá að loka má skotthleranum með takka, búnaður sem algengari var í dýrari bílum. Einnig gladdi gott hljóðkerfi bílsins en það er með 10 hátalara og býsna gott. Þá má einnig finna USB aftur í. Blind- punktsviðvörun í hliðarspegli er einnig vel þegin í þessum nýja bíl. Sorento er 7 sæta bíll og þeir tveir sem nota eiga öftustu röðina þurfa annaðhvort að vera smá- vaxnir eða börn, eins og gjarn- an á við sjötta og sjöunda sætið í bílum. Sama dísilvélin Það kom undirrituðum á óvart að með nýrri kynslóð Sorento væri ekki komin ný dísilvél í bíl- inn, en sama 2,2 lítra dísilvél- in er í honum og áður og hefur hún fengið 3 auka hestöfl og er nú 200 hestöfl slétt. Þarna er Kia að- eins eftir á í vélarþróun og hefði verið eðlilegra að komin væri þró- aðri vél með meira afl og minni eyðslu, enda er eyðsla bílsins einn af ókostum hans. Eyðsla bílsins er uppgefin 5,7 lítrar en langur vegur var frá þeirri tölu í reynslu- akstri, eins og reyndar oftast. Með sjálfskiptingu mengar hann 177 g/km og er það í hærri kantinum. Þessi vél dugar alveg bílnum, en skemmtilegra hefði verið að búa að meira afli, líkt og fyrirfinnst í mörgum öðrum bílum í þessum flokki. BMW er t.d. með 218 hest- afla dísilvél í X5-jeppanum sem er þó aðeins með 2,0 lítra sprengi- rými. Vonandi gerir Kia brag- arbót á þessu áður en kemur til næstu kynslóðar. Í heildina litið er Kia Sorento ári mikill bíll og víst er hann miklu betri en forverinn, nú hlaðinn tækni og fyrir augað að utan sem innan. Hann á þó verðuga keppinauta. Helsta þeirra skal nefna Toyota RAV4 sem kost- ar 6.850.000 frá kr. með 2,2. dísil- vél og sjálfskiptingu. Honda CR-V eins búinn kostar 6.740.000 kr. Mitsubishi Outlander með 2,2 lítra 150 hestafla dísilvél og 7 sæti kostar 6.450.000 kr. Hyundai Santa Fe, 7 manna með 200 hest- afla dísilvél kostar 8.050.000 kr. Kia Sorento kostar 7.590.777 kr. Hann er nokkru stærri en Honda CR-V og Toyota RAV4 og með öfl- ugri vél og því er verðið réttlæt- anlegt. JÁKVÆÐAR BREYTINGAR EN SAMA VÉLIN 02-03 -2 0 1 5 2 2 :2 8 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 3 F B -5 3 C 0 1 3 F B -5 2 8 4 1 3 F B -5 1 4 8 1 3 F B -5 0 0 C 2 8 0 X 4 0 0 4 B F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.