Fréttablaðið - 03.03.2015, Qupperneq 28
BÍLAR
FRÉTTABLAÐIÐ
10 3. mars 2015 ÞRIÐJUDAGUR
2,2 l dísilvél, 200 hestöfl
Fjórhjóladrif
Eyðsla 6,7 l/100 km
í bl. akstri
Mengun 174 g/km CO2
Hröðun 9,6 sek.
Hámarkshraði 203 km/klst.
Verð 7.590.777 kr.
Umboð Askja
● Vel búinn
● Rúmt innanrými
● Fallegur
● Skortir nýja vélarhönnun
● Eyðsla
● Verð í hærri kanti
KIA SORENTO
KIA SORENTO
Finnur Thorlacius reynsluekur
L
aglegar útlitsbreyting-
ar hafa orðið á Sorento
og hann er nú troðinn
nýrri tækni. Bíllinn er
með sömu 2,2 lítra dísil-
vélinni sem nú er 3
hestöflum aflmeiri en í
fyrri kynslóð.
Bæði Hyundai og systurfyrir-
tækið Kia hafa fundið útúr því að
ef bílar eru snotrir útlits, hlaðnir
tækni, endast vel og eru á fram-
bærilegu verði muni þeir selj-
ast. Ofan á það hafa báðir fram-
leiðendur bætt langri ábyrgð
bílanna og hefur það vafalaust
aukið sölu þeirra. Bæði Kia og
Hyundai keppa í flokki fremur
stórra jepplinga með bílana Sor-
ento og Santa Fe og þar er ekki
auðvelt að keppa og margir góðir
keppinautarnir. Þeim hefur þó
gengið vel með báða þessa bíla og
þeir selst vel. Áhyggjuatriði er þó
hátt gengi suðurkóreska wonsins
og afleiðing þess, að bílar þeirra
verði of dýrir. Kia kynnti á dög-
unum fyrir bílablaðamönnum
nýja þriðju kynslóð Sorento-jepp-
ans í hinum fagra bæ Sitges í ná-
grenni Barcelona. Sorento af síð-
ustu kynslóð var nokkuð laglegur
bíll og víst er að hann er nú orð-
inn miklu snotrari og útlitsbreyt-
ingarnar afar jákvæðar og ekki
síst hinn flotti vindkljúfur að
aftan. Bíllinn hefur lengst nokk-
uð og er allur orðinn meiri bíll að
sjá. Sor ento er nú 9,5 cm lengri,
0,5 cm breiðari og 1,5 cm lægri
til þaksins og sportlegri allur
fyrir vikið.
Troðinn af tækninýjungum
Ef til vill eru mestu breytingarn-
ar í bílnum fólgnar í alls konar
tæknibúnaði og þá koma fyrst
upp í hugann 3 akstursstillingar,
360 gráðu myndavél og búnaður
sem bremsar sjálfur við aðsteðj-
andi hættu og heldur réttri fjar-
lægð frá næsta bíl við lang akstur.
Einnig var voða flott að sjá að
bæði er hita- og kuldastilling í
framsætum bílsins og aftursætin
eru einnig með hita. Þetta er eitt-
hvað sem maður á ekki að venj-
ast í bílum í þessum verðflokki.
Einnig er innrétting bílsins orðin
talsvert flottari, mikil gæði eru í
frágangi hennar og takkar stór-
ir og góðir og vænir fyrir þá sem
aka með hanska. Ein eftirtekt-
arverð breyting enn er sú að nú
er Sorento eingöngu 7 sæta, þ.e.
ekki sem valkostur heldur staðal-
búnaður. Bíllinn er nú 14% stífari
að sögn Kia og fyrir því finnst og
Kia hefur einnig tekist að minnka
hliðarhalla í beygjum með góðu
aðstoðarkerfi og gripið er ári gott
þegar tekið er á bílnum. Fjöðrun
bílsins er ágæt og étur vel ójöfn-
ur. Kia Sorento er því ágætur
akstursbíll en hann á samt nokk-
uð í akstursgetu margra af dýrari
bílum þýsku lúxusbílaframleið-
endanna, Audi, BMW og Benz. En
hver átti von á öðru, a.m.k. ekki
undirritaður.
Orðinn mun flottari að innan
Framsætin í bílnum er þokkaleg
en alls ekki með þeim bestu, til-
tölulega hörð og gætu þreytt far-
þega í langakstri. Rýmið frammi
í er til fyrirmyndar og það á einn-
ig við aftur í, en þar er bæði yfrið
pláss fyrir fætur og höfuð. Einn
af mjög flottum kostum Sor ento
er risastórt glerþak sem loka
má með einum takka, en ávallt
fannst mér best að hafa það opið,
en það gerir bíla bjartari og ekki
veitir af ef innréttingarnar eru
í dekkra lagi. Einn mjög flott-
ur kostur í bílnum er fólginn í
því að aftursætin eru á sleða og
flytja má bekkinn heilmikið fram
og aftur. Gaman var líka að sjá
að loka má skotthleranum með
takka, búnaður sem algengari var
í dýrari bílum. Einnig gladdi gott
hljóðkerfi bílsins en það er með
10 hátalara og býsna gott. Þá má
einnig finna USB aftur í. Blind-
punktsviðvörun í hliðarspegli er
einnig vel þegin í þessum nýja
bíl. Sorento er 7 sæta bíll og þeir
tveir sem nota eiga öftustu röðina
þurfa annaðhvort að vera smá-
vaxnir eða börn, eins og gjarn-
an á við sjötta og sjöunda sætið í
bílum.
Sama dísilvélin
Það kom undirrituðum á óvart
að með nýrri kynslóð Sorento
væri ekki komin ný dísilvél í bíl-
inn, en sama 2,2 lítra dísilvél-
in er í honum og áður og hefur
hún fengið 3 auka hestöfl og er nú
200 hestöfl slétt. Þarna er Kia að-
eins eftir á í vélarþróun og hefði
verið eðlilegra að komin væri þró-
aðri vél með meira afl og minni
eyðslu, enda er eyðsla bílsins einn
af ókostum hans. Eyðsla bílsins
er uppgefin 5,7 lítrar en langur
vegur var frá þeirri tölu í reynslu-
akstri, eins og reyndar oftast. Með
sjálfskiptingu mengar hann 177
g/km og er það í hærri kantinum.
Þessi vél dugar alveg bílnum, en
skemmtilegra hefði verið að búa
að meira afli, líkt og fyrirfinnst
í mörgum öðrum bílum í þessum
flokki. BMW er t.d. með 218 hest-
afla dísilvél í X5-jeppanum sem
er þó aðeins með 2,0 lítra sprengi-
rými. Vonandi gerir Kia brag-
arbót á þessu áður en kemur til
næstu kynslóðar. Í heildina litið er
Kia Sorento ári mikill bíll og víst
er hann miklu betri en forverinn,
nú hlaðinn tækni og fyrir augað
að utan sem innan. Hann á þó
verðuga keppinauta. Helsta þeirra
skal nefna Toyota RAV4 sem kost-
ar 6.850.000 frá kr. með 2,2. dísil-
vél og sjálfskiptingu. Honda CR-V
eins búinn kostar 6.740.000 kr.
Mitsubishi Outlander með 2,2
lítra 150 hestafla dísilvél og 7
sæti kostar 6.450.000 kr. Hyundai
Santa Fe, 7 manna með 200 hest-
afla dísilvél kostar 8.050.000 kr.
Kia Sorento kostar 7.590.777 kr.
Hann er nokkru stærri en Honda
CR-V og Toyota RAV4 og með öfl-
ugri vél og því er verðið réttlæt-
anlegt.
JÁKVÆÐAR BREYTINGAR EN SAMA VÉLIN 02-03
-2
0
1
5
2
2
:2
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
3
F
B
-5
3
C
0
1
3
F
B
-5
2
8
4
1
3
F
B
-5
1
4
8
1
3
F
B
-5
0
0
C
2
8
0
X
4
0
0
4
B
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K