Fréttablaðið - 03.03.2015, Síða 30

Fréttablaðið - 03.03.2015, Síða 30
BÍLAR FRÉTTABLAÐIÐ 12 3. mars 2015 ÞRIÐJUDAGUR Toyota Corolla hélt titlinum mest seldi bíll heims til margra ára og í dag er hann framleiddur í mörgum löndum, þ.e. Japan, Bandaríkjunum, Brasilíu, S-Afríku, Tyrklandi, Pakistan, Kína, Taívan og í Taílandi. Í Bandaríkjunum er Corolla nú framleidd í Blue Springs í Mississippi og þar hefur bíllinn verið framleiddur frá árinu 2011, en þar áður í Kaliforníu. Á þeim tæplega 4 árum sem hann hefur verið framleiddur þar hefur verk- smiðjan nú skilað frá sér 500.000 eintökum af bílnum og var því fagnað í síðasta mánuði. Í fyrra framleiddi verksmiðjan í Blue Springs 180.000 Corolla-bíla, en í verksmiðjunni starfa 2.000 manns. Alls hafa verið seldar 10 milljónir Toyota Corolla-bíla í Bandaríkjunum frá upphafi , en sala hans hófst árið 1968. Toyota hefur alls framleitt 21 milljón Toyota-bíla í Banda- ríkjunum frá því fyrsta verk- smiðja Toyota var opnuð þar vestanhafs. 500.000 Toyota Corolla á 4 árum Hyundai mun svipta hulunni af nýjum ix35-jepplingi á komandi bílasýningu í Genf. Hyund- ai hefur selt ix35 í Evrópu frá því árið 2009. Í fyrra var hann  órði mest seldi bílinn í þessum flokki með 93.827 bíla selda. Sá sem seldist mest var Nissan Qashqai með 204.500 bíla, svo Volkswagen Tiguan með 150.154 bíla, þá Kia Sportage með 97.459 bíla og sló þar við móðurfyrirtækinu Hyundai. Þessi flokkur bíla óx um 6% á síðasta ári, sem er sami vöxtur og bílasalan í heild í fyrra í álfunni. Meira afgerandi og grimmari línur leika nú um Hyundai ix35 og segja hönnuðir hans að fram- hallandi línur hans láti hann virka á ferð þó hann standi kyrr. Nýr Hyundai ix35 verður boðinn með tveimur gerðum 1,6 lítra bensínvélar og þremur gerðum dísilvéla. Sala Hyundai í Evrópu í heild á síðasta ári var 424.467 bílar og nam það 3,3% heildarsölunnar þar. Stefna þeir hjá Hyundai að því að ná um hálfrar milljónar bíla sölu í Evrópu á þessu ári. Nýr Hyundai ix35 verður smíðaður í Tékklandi og verður hann á glænýjum undirvagni. Nýr Hyundai ix35 í Genf Þriðja kynslóð Skoda Superb var kynnt í Prag um daginn í heimalandi Skoda, Tékklandi. Bíllinn hefur stækkað nokkuð milli kynslóða og þessi nýi þriðju kynslóðar bíll er nú orðinn stærri en Volkswagen Passat og nálgast hressilega stærð Audi A6. Þessi bíll er hrikalega vel búinn og í honum eru einar 23 nýjungar sem ekki hafa sést í bílnum áður og 10 hafa ekki sést í neinum Skoda-bíl hingað til. Meðal þeirra er falinn dráttarkrókur sem tekinn er í notkun með einu handtaki og uppdraganlegar gardínur í aftur- gluggum. Rými fyrir farþega er stóraukið og nóg var það nú fyrir. Skoda Superb býðst nú með 8 mismunandi vélarkostum, 125-280 hestafla bensínvélum og 120-190 hestafla dísilvélum. Allar eru þær tengdar við tveggja kúplinga sjálfskiptingu og suma bílana má fá beinskipta. Með  órum af þessum vélargerðum er bíllinn  órhjóladrifi nn. Með gullfallegu útliti, nýrri tækni og sniðugum lausnum sem Skoda er þekkt fyrir mun þessi bíll vafalaust tryggja Skoda góða sölu en hann hefur alls selst í 700.000 eintökum frá því hann fyrst var kynntur árið 2001. Nýr Skoda Superb Stór og stæðilegur alvöru jeppi á frábæru verði! Rexton jeppinn frá SsangYong er loksins fáanlegur aftur á Íslandi og það á einstaklega góðu verði. Rexton stenst allan samanburð við aðra stóra jeppa á markaðnum. Og það skín í gegn að ekkert hefur verið til sparað í frágangi og þægindum. Rexton er fullvaxinn jeppi byggður á grind og með háu og lágu drifi. Rexton er alltaf til í tuskið. Komdu og reynsluaktu nýjum Rexton. Hann er alvöru. Opið alla virka daga frá 9 til 18 og laugardaga frá 12 til 16. Verið velkomin í reynsluakstur. Verð: 6.890 þús. kr. • Bíll byggður á grind • Millikassi með læsingu og lágu drifi • Sjálfstæð fjöðrun að framan • E-tronic 5 þrepa sjálfskipting með skiptirofum í stýri • ABS hemlakerfi • ESP stöðugleikastýring • HDC, heldur á móti niður brekkur • Tölvustýrð loftkæling • Loftpúðar í stýri, farþegamegin og í hliðum • Styrktarbitar í hurðum • 16” álfelgur • Dráttargeta 2,6 tonn • Varadekk • Langbogar á þaki • Leðurstýri með útvarpsstýringu • Hraðastillir (Cruise control) • Útvarpstæki og geislaspilari/MP3 • 6 hátalarar og USB tengi • Bluetooth tenging við farsíma • Dagljósabúnaður • Þokuljós - framan/aftan • Hæðarstillanlegt leðurstýri • Aðfellanlegir, rafdrifnir hliðarspeglar með hita • Hiti í sætum • 7 manna • Fjarstýrðar samlæsingar • Rafdrifnar rúður í fram- og afturhurðum • Opnanlegur gluggi á afturhlera • Hiti undir þurrkum í framrúðu • Vindskeið að aftan • Litað gler • Þjófavörn BYGGÐUR Á GRIND HÁTT OG LÁGT DRIF 7 SÆTA Rexton DLX • dísel túrbó • sjálfskiptur benni.is NÝR STÓRGÓÐUR Reykjavík Tangarhöfða 8 Sími: 590 2000 Reykjanesbær Njarðarbraut 9 Sími: 420 3330 Akureyri Glerárgötu 36 Sími: 461 3636 2WD Há-drifs stilling 4WD Há-drifs stilling 4WD Lág-drifs stilling Bíll á mynd Rexton HLX 0 2 -0 3 -2 0 1 5 2 2 :2 8 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 3 F B -6 7 8 0 1 3 F B -6 6 4 4 1 3 F B -6 5 0 8 1 3 F B -6 3 C C 2 8 0 X 4 0 0 6 B F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.