Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.03.2015, Qupperneq 42

Fréttablaðið - 03.03.2015, Qupperneq 42
3. mars 2015 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 22 Í gamla daga hefðu menn líklega fengið sér bjór en nú voru menn bara í símanum. Kári Árnason SPORT FÓTBOLTI „Þetta gerist ekki oft hjá mér en þetta var hrikalega gaman. Ekki síst í ljósi þess hvað þetta var mikilvægt marki,“ segir landsliðsmaðurinn Kári Árnason en hann var hetja síns liðs, Rot- herham, í enska boltanum um síð- ustu helgi. Þá skoraði Kári sigurmark Roth erham gegn Millwall í rosa- legum fallslag. Mark Kára kom fimm mínútum fyrir leikslok og markið hans sá til þess að Rot- herham er nú sex stigum á undan Millwall sem er í fallsæti. „Þetta var eiginlega sex stiga skalli hjá mér. Þetta var ekki fal- legasti knattspyrnuleikur sem ég hef tekið þátt í. Þetta var mikill kraftabolti en skemmtilegur. Við vorum búnir að fá mikið af mörk- um á okkur í síðustu leikjum og töldum okkur vera betri en við vorum. Ég rann á rassinn um dag- inn og gaf mark og það var gott að snúa taflinu við í næsta leik og tryggja sigur.“ Biðu inni í klefa í 90 mínútur Stuðningsmenn Millwall eru alræmdir og þeir tóku tapinu ekki með neinu jafnaðargeði. Þeir slógust við lögregluna eftir leik og í raun við alla sem vildu slást. Fyrir vikið gátu Kári og félagar ekki farið heim á þeim tíma sem þeir vildu. „Okkur var haldið inni í klefa í 90 mínútur út af þessum látum. Það var lítið við því að gera. Í gamla daga hefðu menn sennilega fengið sér bjór meðan þeir biðu en núna sátu menn bara með símann úti í horni og drápu tímann,“ segir Kári og hlær dátt. Cardiff óvænt í basli Það er lítill tími til þess að hvíla lúin bein því í kvöld fær Rother- ham lið Cardiff, með Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliða, í heimsókn. „Þeir eru líka í helvítis basli. Það er svolítið skrítið miðað við mannskapinn hjá þeim. Það hefur bara ekkert gengið hjá þeim í ár eins og gerist stundum. Þetta verð- ur hörkuleikur. Við náðum jafn- tefli við þá á útivelli og vonumst eftir því að vinna þá heima. Við sjáum hvað setur.“ Það er stutt í næsta landsleik hjá Íslandi þannig að Kári ætlar ekkert að vera allt of harðleikinn við Aron Einar í leiknum. „Það er allt of stutt í landsleik til þess að vera í einhverju rugli. Ég leyfi honum bara að skora ef hann kemst í færi,“ sagði Kári léttur. Myndi þiggja vikufrí Næsta verkefni landsliðsins er ein- mitt leikur gegn Kasakstan þann 28. mars næstkomandi. Kári er búinn að bíða eftir þeim leik. „Ég hlakka til. Það er búið að vera mikið álag á mér samt. Ég hef spilað alla leiki og sloppið við meiðsli. Ég myndi því alveg þiggja frí í svona viku en það gleymist allt þegar maður mætir í landsliðs- verkefni,“ segir Kári sem er svo- lítið spenntur fyrir því að koma til Kasakstans í fyrsta skipti. „Það verður gaman að koma þangað. Það hafa ekki allir fengið tækifæri til að koma þangað. Verk- efnið sem slíkt leggst vel í mig. Það er alveg ljóst að við verðum að bæta okkur frá því í síðasta leik.“ Tékkaleikurinn ekki boðlegur Síðasti alvöruleikur liðsins var einmitt úti í Tékklandi þar sem Ísland tapaði, 2-1. Þrátt fyrir það eru strákarnir enn í öðru sæti síns riðils en Hollendingar eru þó aðeins þremur stigum á eftir Íslandi. Tékkar eru á toppnum. „Það þarf að fara vel yfir hvað fór úrskeiðis í þeim leik því það var ansi margt. Við verðum að líta inn á við og laga það sem þarf því þetta var ekki boðlegt. Í kjölfar- ið leggjum við þann leik til hlið- ar þegar við erum búnir að læra af honum. Við verðum líka að ein- blína á það sem við höfum gert vel og það er líka heilmargt,“ segir Kári ákveðinn en hann hefur litlar áhyggjur af sóknarleik liðsins þó framherjar liðsins séu annaðhvort lítið að spila eða meiddir. „Ég hef engar áhyggjur af þessu. Við erum með það mikið af hæfileikaríkum strákum þarna.“ henry@frettabladid.is Leyfi Aroni Einari að skora Kári Árnason ætlar ekki að taka fast á félaga sínum í landsliðinu, Aroni Einari Gunnarssyni, er þeir mætast í kvöld. Það sé stutt í landsleik og enginn má við því að meiðast. Kári var hetja Rotherham um síðustu helgi. MIKIÐ ÁLAG Kári spilar 90 mínútur í hverjum einasta leik og segist alveg vera til í svona vikufrí. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY HANDBOLTI „Þetta verður tekið mjög alvarlega og nú tekur bara við hvíld hjá mér. Það er ómögu- legt að segja hvenær ég get farið að æfa aftur,“ segir FH-ingurinn Ísak Rafnsson sem fékk heilahrist- ing í bikarúrslitaleik FH og ÍBV. Það munaði mikið um fjarveru hans í æsispennandi leik sem ÍBV vann. „Við förum eftir ákveðnum próf- um og fylgjumst með. Svo verður tekin ákvörðun í kjölfarið um hve- nær ég má byrja aftur. Nú má ég ekki verða fyrir neinu utanaðkom- andi álagi og þarf bara að hvíla mig.“ Ísak segist hafa dottið aðeins út er hann meiddist en hann var fljót- lega kominn í samband aftur. „Þetta er auðvitað hundfúlt. Til að byrja með ætlaði ég mér að verða bikarmeistari og svo er ég meiddur núna. Þetta stóð ekki beint til. Ég verð samt að taka þessu og reyna að vera skynsam- ur. Það verður ekkert svindlað enda alvarlegt mál. Við förum eftir öllum ráðleggingum og tefl- um ekki á tvær hættur með svona meiðsli,“ segir Ísak fúll en nú tekur við slökun og myndbanda- gláp. „Ég nýti kannski frítímann líka til að finna kærustu. Mamma er farin að hafa áhyggjur af því að ég verði einhleypur. Nú hef ég tíma til þess að skoða þau mál,“ sagði Ísak léttur þrátt fyrir mótbyrinn sem hann berst nú í gegnum. - hbg Nýti kannski frítímann til að fi nna kærustu Stórskytta FH-inga, Ísak Rafnsson, fékk heilahristing í bikarúrslitaleiknum og er úr leik næstu vikurnar. ÁFALL FH á eftir að sakna Ísaks mikið á næstu vikum. FRÉTTABLAÐIÐ/ÞÓRDÍS HANDBOLTI ÍBV er bikarmeistari karla í handbolta eftir sigur á FH, 23-22, í úrslitaleik í Laugardalshöll. Þetta er í annað sinn sem ÍBV verður bikarmeistari en það vann þann fyrri fyrir 24 árum með sigri á Víkingi í Höllinni, 26-22. Það sem einkenndi bikarúrslitahelgina hjá Eyjamönnum voru endurkomurn- ar. ÍBV var sex mörkum undir, 18-12, gegn Haukum í undanúrslitum en skoraði níu mörk í röð og breytti stöðunni í 21-18. Það vann svo leikinn, 23-21. Í úrslitaleiknum sjálfum gegn FH var ÍBV mest fjórum mörkum undir í fyrri hálfleik, 11-7. Eins og í undanúrslitunum gafst ÍBV ekki upp enda ekki þekkt fyrir það. Eyjamenn skoruðu fjögur síðustu mörk fyrri hálfleiks og tvö fyrstu í seinni hálfleik. Samtals skoraði ÍBV sex mörk í röð og breytti stöðunni í 13-11. Þessar endurkomur voru vel við hæfi því þegar ÍBV vann sinn fyrsta bikar- meistaratitil gegn Víkingi árið 1991 lenti liði fjórum mörkum undir í fyrri hálfleik, 7-3, og missti besta varnarmann liðsins, Sigurbjörn Óskarsson, út af með rautt spjald fyrir kjaftbrúk og læti. Eyjamenn svöruðu því mótlæti með átta mörkum í röð. Þeir breyttu stöðunni í 11-7, létu forystuna aldrei af hendi og unnu nokkuð óvæntan sigur á sterku liði Víkings, 26-22. - tom Ekki fyrstu endurkomur ÍBV í Höllinni MEISTARAR ÍBV er ríkjandi Íslands- og bikarmeistari. FRÉTTABLAÐIÐ/ÞÓRDÍS HANDBOLTI Ólafur Stefánsson, fyrrverandi landsliðsfyrirliði í hand- bolta, tekur fram skóna og hefur æfingar með danska meistaralið- inu KIF Kolding Köbenhavn á fimmtudaginn. Hann hefur ekki spilað síðan hann kvaddi þjóðina með stórleik gegn Rúmeníu í Laugardalshöll 16. júní 2013. „Það er smá rými hjá mér í verkefninu mínu þannig ég get skipt um umhverfi í smá tíma. Kannski æfi ég bara í eina viku og fer svo heim en kannski kýli ég á þetta,“ sagði Ólafur við Fréttablaðið í gær. Málið er að danska liðið, sem þjálfað er af Aroni Kristjáns- syni, er í meiðslavandræðum. Sænska stórskyttan Kim And- ersson er meidd. „Ef það er einhver sem getur komið inn með svona stuttum fyrirvara er það Óli,“ sagði Aron við Fréttablaðið. Ólafur stefnir ekki á að klára tímabilið með KIF heldur bara spila tvo leiki í Meistaradeildinni gegn króatíska stórliðinu Zagreb. Hann segist þó ekki ætla að spila sé hann ekki klár. - tom Ólafur æfi r með KIF í Danmörku FRJÁLSAR Aníta Hinriksdóttir, hlaupakona úr ÍR, og liðsfélagi hennar, Guðmundur Sverrisson spjótkastari, voru útnefnd frjáls- íþróttakona og frjálsíþrótta- karl ársins 2014 á uppskeruhátíð Frjálsíþróttasambands Íslands sem haldin var um helgina. Aníta var einnig útnefnd frjáls- íþróttamaður ársins og var því best allra á árinu 2014. Auk þess fékk hún, eins og langhlauparinn Kári Steinn Karlsson, viðurkenn- ingu fyrir Íslandsmet sín í 800 og 1.500 metra hlaupi innanhúss sem hún setti í janúar í fyrra. Kári Steinn setti Íslandsmet í hálfu maraþoni í Kaupmannahöfn í lok árs 2014. - tom Aníta var best á síðasta ári BEST Aníta fékk þrenn verðlaun á upp- skeruhátíð FRÍ. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FÓTBOLTI Íslenska kvennalands- liðið í fótbolta kom saman á Al- garve í Portúgal í gær þar sem það hefur leik í Algarve-mótinu á miðvikudaginn. Eins og undan- farin ár leika stelpurnar okkar í A-deild þessa firnasterka æfinga- móts. Fyrsti leikur Íslands er á mið- vikudaginn gegn Sviss sem var með okkar stelpum í riðli í undan- keppni HM 2015. Sviss vann fyrri leikinn gegn Íslandi í Dalnum, 2-0, og heimaleikinn, 3-0. Sviss vann níu leiki af tíu og gerði eitt jafntefli. Auk Sviss er Ísland í riðli með Bandaríkjunum og Noregi, en öll liðin komust á HM sem fram fer í Kanada í júní. Freyr Alexandersson lands- liðsþjálfari stýrir Íslandi í annað sinn á Algarve-mótinu, en hann náði í brons á sínu fyrsta móti fyrir ári. Ísland mætir fyrst Sviss á mið- vikudaginn klukkan 15.00, Nor- egi á föstudag klukkan 17.00 og svo Bandaríkjunum á mánudag- inn klukkan 17.30. - tom Mættu til Algarve í gær KOMIN AFTUR Margrét Lára er með liðinu í Portúgal. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM 0 2 -0 3 -2 0 1 5 2 2 :2 8 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 3 F B -5 D A 0 1 3 F B -5 C 6 4 1 3 F B -5 B 2 8 1 3 F B -5 9 E C 2 8 0 X 4 0 0 5 B F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.