Fréttablaðið - 03.03.2015, Qupperneq 46
3. mars 2015 ÞRIÐJUDAGUR| LÍFIÐ | 26
SÍÐI BOBBINN
SÆKIR Í SIG VEÐRIÐ
Klippingin „long bob“ eða síður bobbi hefur átt talsverðum vinsældum að fagna
upp á síðkastið. Síði bobbinn er skyldur hinum klassíska bobba sem Victoria
Beckham skartaði í kringum árið 2007 en hann er bæði síðari og afslappaðri.
Emma Stone er alltaf
smart og með síðan
bobba, sem er þó í
styttri kantinum og
afslappaða og nátt-
úrulega liði í hárinu.
Hér skartar Kim
Kardashian West
umræddri klippingu.
Hér er hún með síðan,
sléttan bobba og ber
hann vel.
Leikkonan Naomi
Watts með síðan
bobba með liðum og
bylgjum á Óskarsverð-
laununum, hressandi
og frísklegt lúkk.
Hin breska Alexa
Chung er alltaf með
puttann á púlsinum
og er hér með síðan
bobba og hárið greitt
á bak við eyrun.
Svokallaður „long bob“ eða síður bobbi hefur verið
vinsæl klipping hjá stjörnunum vestanhafs og er
að sama skapi að sækja í sig veðrið á hárgreiðslu-
stofum landsins.
Bobbi er stutt klipping þar sem hársíddin mark-
ast við kjálkalínu. Hinn klassíski bobbi er slétt-
ur og eru vinsældir hans í Bretlandi oft raktar til
fyrrverandi kryddpíunnar Victoriu Beckham en
hún skartaði slíkri klippingu í kringum árið 2007
og svo hefur ritstjóri bandaríska Vogue, Anna
Wintour, lengi skartað stuttum bobba með renni-
sléttum topp. Upphaf bobbans má þó rekja talsvert
lengra aftur.
Svavar Örn, hágreiðslumeistari á Senter í
Tryggvagötu, segist hafa orðið var við auknar
vinsældir klippingarinnar.
„Allir þessir bobbar eru með smá liðum í, eins
og þeir hafi fengið að þorna með saltspreyi í,“
segir Svavar og leggur áherslu á að lúkkið sé
afslappað og skemmtilegt.
„Síðast þegar þeir voru áberandi
var þegar Victoria Beckham sem
var með stutta bobbann sinn, þá
var sléttujárnið svo svakalega
inn,“ segir Svavar en nú segir
hann sléttujárnið mest megnis
notað til þess að búa til bylgjur
og liði í hárið og minna beri á
rennisléttum lokkum.
„Þetta er afslappað og
skemmtilegt,“ segir hann og bætir
við: „Getur tekið þetta upp í gos-
brunn, lítið tagl eða eitthvað. Það
er ekki búið að taka það af þér.“
Svavar er ánægður
með vinsældir síða
bobbans og stemn-
inguna sem honum
fylgir. „Það er mjög
skemmtilegt að vera
hárgreiðslumaður í
dag, maður er ekki
bara að særa hárið,“
segir hann hress að
lokum.
gydaloa@frettabladid.is
SÍÐI BOBBINN VINSÆLL VESTANHAFS
Klippingin er vinsæl meðal stjarnanna vestanhafs. Meðal þeirra sem skarta klippingunni eru Kim Kar-
dashian West, Emma Stone, Naomi Watts og Alexa Chung. Möguleikarnir og útfærslurnar eru margar.
Það er mjög skemmti-
legt að vera hárgreiðslu-
maður í dag, maður er
ekki bara að særa hárið.
KLASSÍSKUR
BOBBI
Kryddpían fyrr-
verandi Vict-
oria Beckham
með stuttan
bobba með
styttum
árið
2007.
M
YN
D
/ÍRISAN
N
SIG
U
RÐ
ARD
Ó
TTIR
ÁNÆGÐUR
MEÐ STÍLINN
Svavar Örn hár-
greiðslumeist-
ari er hrifinn
af klippingunni
sem hann segir
afslappaða og
skemmtilega.
„Ég fæ mer oftast búst og þá skelli
ég hreinu skyri, frosnum ávöxtum
og engifer saman. En stundum er ég
latur og þá er það skál af Special-K“
Davíð Arnar Oddgeirsson, eigandi fram-
leiðslufyrirtækisins Mint Production og
þáttarstjórnandi á Vísi.
MORGUNMATURINN
Rakel Tanja Bjarnadóttir, kennari
við Álftamýrarskóla, fékk nem-
endur sína í 5. bekk til þess að
taka mynd á snapptsjattið hennar.
Myndina sendi hún svo á fimmtán
vini sína í þeim tilgangi að sýna
nemendunum hversu langt ein
mynd getur farið á netinu.
Myndina sendi Rakel um klukk-
an eitt þann 2. mars. Klukkan
14.50 sama dag var myndin komin
á Facebook og búið að deila henni
390 sinnum. „Þetta er eiginlega
dálítið klikkað. Ég er að kenna
tímann Lýðræði og mannréttindi
og langaði að poppa námsefnið
aðeins upp og valdi að tala um
netöryggi,“ sagði Rakel, og bætti
við: „Það tók einn vinur skjáskot
af myndinni, sem hann svo deildi
á Facebook.“
Hún segir að krakkarnir hafi
haldið að þetta færi bara á vini
hennar. „Einn í hópnum sagði að
ef þetta færi á Facebook fengi
það kannski 17 læk,“ segir Rakel.
Hún segir tilganginn með þessu
að fá krakkana til þess að átta sig
á hversu hratt mynd dreifist um
netið og að kenna þeim að vera
ekki kærulaus á samfélagsmiðl-
um. - asi
Athugar afl eiðingar Snapchat
Tilgangurinn er að skoða hversu hratt og víða mynd fer á netinu.
Þetta er eiginlega
dálítið klikkað. Ég er að
kenna tímann Lýðræði
og mannréttindi og
langaði að poppa náms-
efnið aðeins upp og valdi
að tala um netöryggi.
MYNDIN
Skjáskotið af
Snapchat-mynd-
inni sem hefur
nú farið af stað
um netið.
0
2
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:2
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
3
F
B
-4
4
F
0
1
3
F
B
-4
3
B
4
1
3
F
B
-4
2
7
8
1
3
F
B
-4
1
3
C
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K