Fréttir - Eyjafréttir - 13.12.1990, Síða 1
17. órgangur Vestmannaeyjum, 13. desember 1990 50. tölublað
r-
urracar vern
Talsvert hefur borið á því að
perurnar á jólatrjánum hafa ekki
fengið að vera í friði.
Virðist sem einhverjir finni hjá sér
þörf á að brjóta perurnar sem settar
eru upp til að lýsa upp fyrir okkur
svartasta skammdegið yfir jólahátíð-
ina. Væri óskandi að þessir aðilar láti
af þessari iðju sinni þannig að jóla-
trén geti áfram veitt okkur birtu.
Baejarráð:
ðbreytt gjaldastefna
# Þessar ungu dömur, sem skörtuðu jólasveinabúningi, voru meðal þeirra
fjölmörgu sem mættu þegar kveikt var á jólatrénu á Stakkagerðistúni á
laugardaginn. Lúðrasveitin lék jólalög, Bragi I. Ólafsson forseti bæjarstjórn-
ar flutti ávarp og séra Kjartan Örn flutti hugvekju og kveikti að því loknu á
trénu sem lýsti skemmtilega upp í skammdegismyrkrinu, ungum sem öldnum
til óblandinnar ánægju.
Hraunveitan biluð:
Óvíst hvort viðgerð borgar
sig ó hraunhitaveitunni
Hraunhitaveitan hilaði á laugar-
daginn og ekki hefur enn verið tekin
ákvörðun um viðgerð, m.a. vegna
rekstrarkostnaðar
„Hraunhitaveitan er stopp eins og
er,“ sagði Eiríkur Bogason veitu-
stjóri við FRÉTTIR í morgun. „Bil-
unin er alvarleg og dýrt verður að
gera við hana. Það er óvíst hvenær
hún verður sett í gang aftur. Ákvörð-
un verðu tekin i næstu viku.“
Að lokum sagði hann litlar líkur á
að rekstur hraunhitaveitunnar borgi
sig. „Kostnaður við hana er allt að
því jafn mikill, ef ekki meiri en að
framleiða orkuna í rafskautakötl-
í bæjarráði á mánudaginn var
lagði meirihluti Sjálfstæðismanna
fram tillögu um óbreytta gjalda-
stefnu fyrir árið 1991 í anda þjóðar-
sáttar. Jafnframt kemur fram að til
að ná niður skuldum bæjarins verði
framkvæmdir á vegum bæjarins í
lágmarki. Minnihlutinn harmar þann
uppgjafartón sem fram kemur í til-
lögu Sjálfstæðismanna en fagnar
óbreyttrí gjaldastefnu.
Útsvar verður áfram 6.7%, sem er
með því lægsta. Flest bæjarfélög eru
með 7 - 7.5% útsvar. Sama á við um
fasteignagjöldin, þar verður óbreytt
álagningaprósenta og ellilífeyrisþeg-
ar sem eingöngu njóta tekjutrygging-
ar og og 75% öryrkjar fá niðurfelld
fasteignagjöld af eigin húsnæði ef
tekjur eru innan tiltekinna marka.
Fasteignaskattur af nýjum húseign-
um fellur niður í allt að tvö ár eftir
útgáfu fokheldisvottorðs.
f greinargerð með tillögunni er
vísað til erfiðrar stöðu bæjarsjóðs,
skuldir séu miklar og því um tvennt
að velja til ná fram því markmiði
Sjálfstæðisflokksins, að ná niður
skuldum, annað hvort að hækka
álögur eða draga úr framkvæmdum
og rekstri bæjarins. „Meirihluti Sjálf-
stæðismanna hefur í anda þjóðarsátt-
ar ákveðið að hækka ekki gjöld,
þrátt fyrir að gjöld í Vestmannaeyj-
um séu með því lægsta sem gerist í
landinu, enda erfitt um vik fyrir
sveitarfélög að hækka gjöld meðan
þjóðarsátt er í gildi. Sú stefna sem
valin hefur verið til að ná niður
skuldum hefur óhjákvæmilega í för
með sér að framkvæmdir bæjarsjóðs
verða í lágmarki og jafnframt verður
skorið niður í rekstri bæjarins til þess
að ná sparnaði og lækka þannig
skuldir þrátt fyrir óbreyttar álögur á
bæjarbúa."
Guðmundur Þ.B. Ólafsson lét
bóka að gjaldastefnan væri sú sama
og vinstri meirihlutinn fylgdi á síð-
asta kjörtímabili og fagnar hann því.
„Það ber hins vegar að harma þann
uppgjafartón sem fram kemur í
bókun meirihlutans hér að framan
um niðurskurð í framkvæmdum og
rekstri. Ef til vill er sá boðskapur í
samræmi við þá slæmu fjármála-
stjórn sem ríkt hefur nú í upphafi
kjörtímabilsins á þeim tíma hefur
Sjálfstæðismeirihlutinn aukið skuldir
bæjarfélagsins um tugi milljóna
króna á þeim örfáu mánuðum sem
liðnir eru af kjörtímabilinu,“ segir
Guðmundur í bókun sinni.
Tankprófun frestast:
Herjólfsmenn tilbúnir með sitt
Nú liggur fyrir aö einhver dráttur
verður á aö líkanið af HerjólFi verði
prófað þar sem ekki rcyndist unnt að
fá inni í prófunartanknum í Ilan-
mörku í dag cins og ákveðið var.
„Það verður að fresta prófunum
eitthvað, en við vitum ekki enn hvað
lengi,“ sagði Ragnar Óskarsson í
viðtali við FRÉTTIR. „Danirnir
gátu ekki staðið við þessa dagsetn-
ingu, en okkar hönnuðir eru búnir
að gera þær breytingar sem gera
þurfti."
Ekki sagðist Ragnar vita hvað
lengi prófunin getur dregist, en í dag
' er fundur í smíðanefndinni og þá
gætu málin skýrst.
Jólablad
PRÉTTA
nœsta
fimmtudag
Jólablað FRÉTTA kemur út
næsta fimmtudag, 20. desember og
að venju verður mjög til þess
vandað.
Af efni í jólablaðinu má nefna
FRÉTTAannálinn, þar sem farið er
yfir fréttir ársins í máli og myndum.
íþróttir fá sömu meðferð og þar
kennir margra grasa enda hafa Eyja-
menn náðglæsilegum árangri í mörg-
um íþróttagreinum á árinu.
Björn Guðmundsson, Bjössi á
Barnum, lætur móðan mása íTTflegu
viðtali þar sem hann í gamni og
alvöru líturyfirfarinnæviveg. Hefur
hann frá mörgu að segja enda víða
komið við og markaði spor í sögu
Eyjanna á meðan hann var upp á sitt
besta.
Magnús og Sjöfn á Kletti segja frá
því helsta sem fyrir augu þeirra bar á
ferð um Suður Áfríku á þessu hausti
og fleira má nefna. Eins verða al-
mennar fréttir og tilkynningar í blað-
inu.
Þeir sem hafa hug á að auglýsa í
jólablaðinu eru beðnir um að skila
þeim inn í síðasta lagi á mánudag,
sama gildir um jólakveðjur.
FJÖLSKYLDUTRYGGING
FASTEIGNATRYGGING
©
Plasthúðað
hilluefni
40 og 60 cm breitt
16 og 18 mm. þykkt
SKIPAVIÐGERÐIR H.F.
v/Friðarhöfn Vestmannaevium S11821
TRYGGINGAMIDSTODIN HF
Umboð í Vestmannaeyjum, Strandvegi 63 S 11862
Glæsilegt
JÓLAHLAÐBORÐ
um helgina
Á borðinu er
meðal annars
VILLIGÆS
IGRÍSASTEIK
LAMB
SJÁVAR-
RÉTTIR
VERÐ
KR. 1.690,-
Jólaglögg
og
piparkökur
HUGINN
ATH
afpizzum
Erum meö
| hamborgara og
pastarétti