Fréttir - Eyjafréttir - 24.01.1991, Side 11
FRÉTTIR • fimmtudagínn 24. janúar 1991
lccalc
Vestmannaeyjamótið hófst þann
17. janúar. Þátttakendur eru 8, sem
er of fátt að mínum dómi því það eru
svo margir sem eiga erindi ef þeir
bara gefa sér tíma í það og það ætti
nú ekki að vera neinum sem hefur
virkilegan áhuga fvrir skák að mæta
eitt kvöld í viku.
Tefldar verða sjö umferðir og þá
hafa allir teflt við alla. Þessi fyrsta
umferð fór svolítið einkennilega af
stað því það var sem menn væru eins
og annars hugar og sést þaö ó sumum
skákunum. Kannski hefur stríðið við
Persaflóa haft þar einhver áhrif án
þess að ntenn gcrðu sér grein fyrir
því en það hófst einmitt þennan dag
og er ljóst vitni um hvað mönnunum
miðar lítið á vegferð sinni.
Sigurjón tefldi við Klemens sem
kom með svolitla nýjung í 3. leik en
hafði ekki árangur sem erfiði af þvt
það var með honum sem hann tapaði
skókinni eftir 22 leiki.
Ágúst Omar og Sigmundur Sig-
urðsson áttust við og var Ágúst með
hvítt og náði skiptamun og þar með
var draunrurinn búinn.
Stefán Gíslason tefldi með hvítu
gegn undirrituðum og gaf gott for-
dæmi um að nú skyldi hann tefla
..köflótt" sem er lians uppáhald. I 6.
leik lét undirritaður það eftir honum
að gefa skiptamun. en um leið var
drottning Stefáns nokkuð utangátt-
ar. Skákin var á margan hátt ævin-
týraleg en þar kom að að samið var
um jafntefli þegar cftir voru nokkur
peð og hrókur hjá hvorum.
Styttsta skákin var svo hjá Páli
Árnasyni og Val Sævarssyni og tók
það „múrbrjótinn" aðeins 18 leiki að
máta andstæðinginn.
Önnur umferðin verður svo í
kvöld kl. 20:00.
Hér kemur svo skák þeirra Páls og
Vals:
I. e4 e5.2. Rf3 Rcó. 3. Bc4 Bc5.4. c3
Rf6.5. d4 exd. 6. cxd Bb6.7. Bg5 d6.
8. h3 h6. 9. Bh4 De7. 10. 0-0 0-0. 11.
Rc3 Kh7?. 12. Rd5 Dd8, 13. e5 dxe,
14. dxe Be6, 15. Dd3+ Kg8. 16. Bf6
gxf6. 17. Rf6+ Kh8. 18. Dh7 mát:
Yngrí deíldin:
Skákþing T.V.. yngri deildar.
stendur nú yfir. Eftir tvær umferðir
er staðan þessi:
Ágúst Örn Gíslason........2 v.
Guðjón Ágúst Guðmundsson . 2 v.
Oddur Helgi .............1.5 v.
Egill Þorvarðarson ..........I v.
Jón Þ. Klemensson ............1 v.
Gunnar Geir Guðmundsson . 1 v.
Davíð Friðgeirsson ..........1 v.
Bjarni Halldórsson ..........1 v.
Þorsteinn Þorsteinsson ......1 v.
BaldurSch. Edvardsson . . . 0.5 v.
Andrés Sigmarsson ............0 v.
Páll Árni ....................0 v.
Signiundur Andrésson
ÁRNAÐ
HEILLA
Ég. þessi? Átti afmæli þann 21
janúar sl.
Sjáunrst á barnum.
Tryggvi B.
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR
Fasteignamarkaðurinn NÝR SÖLULISTIVIKULEGA Skrifstofa í Vestmannaeyjum aö Heima- götu 22. götuhæð. Viðtalstími kl. 15:30- 19:00 þriðjudaga til föstudaga. 0 11847. Skrifst. i Rvk. Garðastræti 13. Viðtalstími kl. 15:30-19:00 mánudaga.E 13945. Jón Hjaltason, hrl. Allar almennar bifreiða- viðgerðir. Sprautun í full- komnumsprautuklefa. t |. i . Réttingar, sjálfskiptingar 1 1 j V / ogfleira. ' C
BIFREIÐAVERKSTÆÐI VESTMANNAEYJA H.F. S12782 & 12958
EYJARADÍÓ h.f. Flötum 31 /TXV\ S 98-12182 L—J og 985-22191 Rafeindaþjónusta Jóns og Stefnis Öll almenn heimilistækja- og raflagnaþjónusta. Einar Hallgrímsson Verkstæði að Hilmisgötu 2 S 73070 & heima 012470 TVISTURINN Nætursala um helgar.
Okukennsla, æfingatímar Stefán Helgason Brimhólabraut 38 S11522 NOVA - billjardstofa Munið einnig ísinn okkar góða. Opið alla daga frá kl. 9-23.30. Veitingar- billjardstofa SÓLARLAMPI VATNSNUDDPOTTUR Opið alladaga Félagsheimili Þórs við Hamarsveg
Trésmíðaþjónusta Allt frá grunni upp í þak. Sólhús, útihuröir, gluggar, mótauppsláttur og teikningar. Nýsmíði, breytingar og viðgerðir. Ágúst Hreggviðsson Heima S 11684 Verkstæði ® 12170. ÁRSÆLL ÁRNASON Húsasmíðameistari Bessahrauni 2, S12169 -Tm-v-b)- Alhliða trésmíði Ökukennsla - æfingatímar Kenni allan daginn! Arnfinnur Friðriksson Strembugötu 29, sími12055
A' 0D > Þú PÁLL& EGILL trésmíöaverkstæði S 12564 & 11233 Alhliðatrésmíðavinna nefnir það, við smíðum það ÞÓR VALTÝSSON - Sími12386 1 M-V-B 1 Tek að mér trésmíðar inni og úti. Hef umboð fyrir iSPAN gler. < Bilasimi 985- 22136 s s-,,,36- ÍUÓifiSÓAHLL
mgéSÍiÍ} Bilaverkstæðiö Bragginn Flötum 20 - símt 1 1 535 Hárgreiðslu- og rakarastofa i hjarta bæjarins. Hárgreiðslustofa Þorsteinu Kirkjuvegi 10 S11778 Gröfuþjónusta Sfjtv Einars og GuðjónJ^k Gröfuþjónustaog murbrot f-^LrMÍ >B S 002-2100& 002-2129 Heima S12022 & 11883
KIRKJURNAR
Landakirkja
Fimmtudagur 24. janúar.
Barnastarf 9 -12 ára í Safnaðar-
heimilinu i dag kl. 17:00.
Sunnudagur 27. janúar.
Sunnudagaskóli kl. 11:00.
Messa fellur niður.
Sóknarprestur
Sfi} . JÍJ _ '
ptg i m
Aðventkirkjan
Laugardagur .
Biblíurannsókn kl. 10:00.
Betel
Sunnudagur.
Brotning brauðsins kl. 11:00.
Sunnudagaskólinn kl. 13:00.
Vakningarsamkoma kl. 16:30.
Skrifstofa safnaðarins verður
opin frá kl. 14 - 17 þriðjudaga til
föstudaga © 12030.
Styrkveitingar 1991
Eindagi vegna umsókna um styrkveitingar til fqlaga og
samtaka er 28. janúar nk. vegna ársins 1991.
Staðgreiðsluafsláttur
Greiðendur fasteignagjalda eru minntir á, að séu gjöldin
greidd að fullu eigi síðar en 1. febrúar 1991, er veittur
10% afsláttur af fasteignagjöldum.
Frá Bókasafninu
Komandi laugardag kl. 14:00 verður upplestur úr nýjum
bókum í lesstofu safnsins. Verið öll velkomin.
Bókaverðir
Afgreiðslutími í Safnahúsi
Bókasafnið: Frá mánudegi til föstudags kl. 14:00 -
19:00 og á laugardögum frá kl. 11:00 - 15:00.
Skjalasafnið: Mánudagaog miðvikudaga frá kl. 14:00-
17:00.
Byggðarsafnið: Laugardaga og sunnudaga frá kl.
13:00- 16:00.
Til skipstjórnarmanna
Ykkur sem leið eigið um Vestmannaeyjahöfn er bent á
að hlusta á rás 12, sem er vinnutíðni hafnarvarða.
Veiðifélög
Eindagi vegna umsókna nýrra leigusamninga um lunda-
veiði og eggjatöku er 31. janúar 1991.
FRETTnE
Utgefandi: Eyjaprent h.t. Vestmannaeyium • Ritstjori og abyrgðarmaður: Gisli Valtýsson. • Fréttastjóri: Omar
Garðarsson. • iþróttafréttamaður: Erlingur Birgir Richardsson. • Prentvinna: Eyjaprent hf • Aðsetur ritstjórnar:
Strandvegi 47. II. hæð, simi 98-1 í 210 •Telefaxnúmer: 98-11293 * * Frettir koma ut síðdegis alla fimmtudaga. Blaðinu er
dreift ókeypis í allar verslanir Eyjanna. Auk þess fæst blaöið a afgreiðslu Flugleiða i Reykjavik. afgreiðslu Hególfs i
Reykjavík, Duggunni og Skálanum i Þorlákshófn. Sportbæ á Selfossi. Ásnum a Eyrarbakka. Ritvali i Hveragerði og
versluninm Svalbarö við Framnesveg i Reykjavik. • Blaðið Fréttir eru aðili að Samtokum bæjar- og héraðsfrettablaða
• Fréttir eru prentaðar i 2700 eintókum.