Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 16.05.1991, Blaðsíða 1

Fréttir - Eyjafréttir - 16.05.1991, Blaðsíða 1
rF- rR- rÉ- rT- rT- r I - rR- rF' rR- rÉ- rT- rT- r I rR- rF-i rR- rÉ' rT-i rT-i r I - rR- rF' rR- rÉ' rT- rT- r I' rR- rF- rR- rÉ' rT' rT' r I - rR- rF- rR' rÉ' rT- rT- r I - rR' rF- rR- rÉ' rT' rT' r | ' rR- rF' rR" rÉ' rT' rT' r I' rR- 18. drgangur vestmannaeyjum, 16. mai 1991 21. tölublod Gagnvarið girðingaeíni Timbur 1X6 og 1X4 úti i L SKIPAVIÐGERÐIR H.F. v/Friöarhöfn Vestmannaeyjum 0 Sturla Arnarsson, með hjálminn góða í fanginu. Skipalyfftan: Viðgerd á Guðbjarti gekk vel -þrátt ffyrir efasemdir Vestfirðinga „Þrátt fyrir miklar efasemdir á fsafírði um hæfni Skipalyftunnar í Vestmannaeyjum til að klára viðgerð á togaranum Guðbjarti ÍS á þeim tíma sem þeir gáfu sér, þá stóðust þeir prófið.“ segir í Vestfirska frétta- blaðinu 2. maí sl. um viðgerðina á togaranum sem skemmdist mikið þegar færeyskur togari sigldi á hann í höfninni á ísafirði í vetur. Fyrst eftir óhappið var álitið að tjónið skipti tugum milljóna og jafn- vel að Guðbjartur væri ónýtur. En þegar verkið var boðið út kom annað í ljós og var Skipalyftan með lægsta tilboðið og skyldi verkinu lokið á sex vikum. Samkvæmt upplýsingum Gunn- laugs Axelssonar framkvæmdastjóra Skipalyftunnar gekk viðgerð mjög vel, tók styttri tíma en áætlað var og kostaði þegar upp var staðið 7,9 milljónir króna. En nú skulum við gefa Vestfirska fréttablaðinu orðið: „Þegar þetta var ljóst (tilboð Skipalyftunnar innsk. FRÉTTA) var varla von á öðru en að ýmsir hristu höfuðið og gerðu góðlátlegt grín að Skipalyftumönn- um sem taldir voru hafa hlaupið verulega á sig varðandi tilboð í viðgerðina. Þrátt fyrir efasemdir, þá þótti ekki stætt á öðru en að taka lægsta tilboði og var það gert. Svo leið og beið og áttu flestir von á að það yrði komið vel fram í maí í það minnsta þegar skipið kæmi aftur, en afhending átti samkvæmt samn- ingi við Skipalyftuna að fara fram klukkan 19:00 föstudaginn 26. apríl. Hinsvegar, þá gerðist það öllum á óvörum (nema kannski Skipalyftu- mönnum), að skipið var afhent vel fyrir réttan tíma. Og þegar klukkuna vantaði korter í sjö að kvöldi föstu- dagsins 26. apríl og afhending átti að eiga sér stað, þá leystu skipverjar á Guðbjarti landfestar á ÍSAFIRÐI og héldu til veiða.“ „Hjólmurinn bjargadi honum" -segir Jakobína Sígurbjörnsdóttir, módir sturlu Arnars- sonar, sem ekið var ó, á Hásteinsvegí á sunnudaginn. Á sunnudaginn var ekið á 7 ára dreng sem var að hjóla á Hásteins- veginum. Drengurinn kastaðist upp á bílinn og í götuna. f fyrstu var álitið að drengurinn væri alvarlega slasað- ur og var hann sendur til Reykjavík- ur til rannsóknar. Meiðsli hans reyndust þó ekki alvarleg en að sögn sjónarvotta og lögreglu má það telj- ast mikil mildi og er talið að hlífðar- hjálmur sem drengurinn var með á höfði hafi bjargað lífi hans. Slys þetta hefur vakið upp mikla umræðu um öryggisgildi slíkra hjálma og hefur Ágúst Birgisson, lögregluþjónn, haft frumkvæði að því að á næstunni mun öllum krökk- um sem voru í 1. bekk í vetur, og ekki eiga slíka hjálma, verða færður hjálmur að gjöf. Drengurinn sem ekið var á heitir Sturla Arnarsson. FRÉTTIR heim- sóttu Sturlu að heimili hans á Há- steinsveginum í gær og ræddu við hann og móður hans, Jakobínu Sig- urbjörnsdóttur. Jakobína sagði að Sturla væri bú- inn að eiga hjálminn í a.m.k. eitt ár. Fyrst hafi hann verið duglegur að nota hann en þar sem fáir aðrir hafi verið með slíka hjálma hafi hann ekki viljað vera með slíkan hjálm einn. „Én ég hef verið stíf á að láta hann nota hjálminn þegarhann hefur verið á hjólinu. Stundum hef ég elt hann langar leiðir hér í hverfinu til að setja á hann hjálminn ef hann hefur farið af stáð án hans. Mér fannst svo mikið öryggi í honum,“ sagði Jakobína. Hún sagði að þau hefðu verið nýkomin heim frá skóla- deginum í Barnaskólanum þegar slysið varð á sunnudaginn. Sturla hefði ætlað út að Ieika sér og hún hafi skellt á hann eyrnabandi til þess að hlífa eyrunum við kulda því hann hafi verið eyrnaveikur. Þá hafi hann litið á hana, tekið af sér eyrnabandið og sagt: „Veist þú ekki mamma að ég 0 Eins og sjá má á þessari mynd brotnaði hjálmurinn við höggið. á að nota hjálminn þegar ég fer út að hjóla,“ og síðan hafi hann tekið af sér eyrnabandið, sett upp hjálminn og farið út. Jakobína segist hafa verið nýkom- inn inn úr dyrunum frá því að gefa í Rauða kross söfnunina þegar slysið varð, skömmu eftir að Sturla fór út að leika sér. „Ég heyrði ægileg Fyrstubekkingarfó: Öryggishjólma Ágúst Birgisson lögreglumaður fór í vikunni af stað með söfnun til kaupa á öryggishjálmum á alla krakka í 1. bekkjum grunnskólanna. Hann sagði við FRÉTTIR í gær- kvöldi að tvö fyrirtæki, Eyjaís og Eimskip hefðu þegar gefið jákvætt svar og málið væri í athugun hjá Skeljungi að forgöngu Birgis Sveins- sonar. Nemendur í 1. bekk eru rúmlega 90 og átti Ágúst von á að einhver þeirra ættu þegar hjálma og sennilega væru milli 60 og 70 krakkar sem þyrftu hjálma. Cuðbrandur Þorkelsson ■œknir: Hjólmar hafa þegar sannad gildi sitt í kjölfar slyssins á sunnudaginn, þegar sjö ára drengur varð fyrir bíl, Fiskmarkaður Á fundi sem Ágúst Einarsson var með hér fyrir skömmu upplýsti hann að samningaviðræður um nýjan fisk- markað í Vestmannaeyjum væru í burðarliðnum. Samkvæmt því sem kom frqm á fundinum eru Gámavinir og Hafnar- eyri í viðræðum við Faxamarkað í Reykjavík um samstarf. „Þetta er enn á undirbúnings- og viðræðu- stigi,“ sagði Sigurður Þórarinsson hjá Hafnareyri. „Enn er verið að kanna hverjir vilja vera með í þessu og hvort húsnæði fæst. Fiskmarkaður á eftir að koma hérna, spurningin er bara hvenær,“ sagði Sigurður. hafði blaðið samband við Guðbrand Þorkelsson lækni og spurði hann hvort hlífðarhjálmur sem drengurinn var með hefði skipt sköpum. „Hlífðarhjálmarnir hafa greini- lega sannað gildi sitt, svo ekki sé meira sagt,“ svaraði Guðbrandur. „Ég hvet foreldra til að kaupa hjálma handa börnum sínum því þeir geta forðað þeim frá ýmsum skakkaföll- um, bæði stórum og smáum. Sama hvort þau eru á reiðhjólum, hjóla- brettum eða hjólaskautum og við þurfum að fá krakkana í lið með okkur því hjálmarnir eru gagnlausir uppi í skáp,“ sagði Guðbrandur. óhljóð, bremsuhljóð og högg og það fyrsta sem kom upp í huga minn var Sturla. Ég var alveg viss um að það hefði eitthvað komið fyrir hann. Ég hljóp strax út og þegar ég kom út á tröppur og sá barnið liggjandi í götunni kom mér ekki annað til hugar en að það væri alla vega stórslasað," segir hún. Jakobína segist ekki muna vel það sem gerðist þarna, þar sem hún hafi „sjokkerast" mikið en þegar kallað hafi verið í hana og sagt að strákur- inn kallaði á mömmu sína hafi hún hlaupið til hans. Sturla hafi síðan strax verið fluttur á sjúkrahúsið þar sem hann var rannsakaður lítillega en síðan var strax ákveðið að senda hann í rannsókn til Reykjavíkur þar sem óttast var að hann væri alvarlega slasaður. Á Borgarspítalanum hafi hann verið rannsakaður mjög ítar- lega og niðurstöður þeirra rannsókna hafi verið að Sturla væri fingurbrot- inn, marinn og skrámaður en hefði ekki hlotið nein alvarleg meiðsl. „Ég held að það sé engin spurning að hjálmurinn sem hann var með bjargaði lífi hans. Það er talið að hann hafi skollið á bílnum með höfuðið og síðan kastast yfir hann og skollið í götuna. Hjólið er lítið skemmt þannig að höggið virðist allt hafa Ient á honum sjálfum þannig að það er með ólíkindum hversu vel hann slapp,“ segir Jakobína. Sturla vill ekkert tala um slysið og segir mamma hans að hann virðist ekki muna eftir því, þó finnst henni á stundum eins og hann sé eitthvað hræddur að tala um þetta og kannski finnist honum hann hafa gert eitt- hvað rangt því það eina sem hann hefur viljað segja um slysið er að þetta hafi bara verið draumur. Sturla man þó eftir öllu eftir að hann kemur á Borgarspítalann og lýsir því sem þar vargert í smáatriðum. Jakobína segist alltaf hafa haft áhyggjui af Sturlu þegar hann hafi verið að leika sér við götuna þar sem bílarnir aki svo hratt. „Mér finnst fólk ekki þurfa að flýta sér svona mikið hér og aka svona hratt. Hér eru vegalengdirnar svo stuttar að svona hraðakstur sparar engan tíma en skapar óskaplegar hættur því börnin eru um allt að leika sér. Ég beini þeim orðum til ökumanna að það geti ekki verið þess virði að flýta sér svo, miðað við þá hættu sem það skapar, því slysin gera ekki boð á undan sér.“ Jakobína segir að henni hafi alltaf fundist hjálmur Sturlu veita honum mikið öryggi og það öryggi hafi sannast á sunnudaginn. „Það er slæmt að það skuli alltaf þurfa slys til þess að fólk vakni upp og geri einhverjar öryggisráðstafanir en svona er þetta nú. Ég vona bara að sú umræða sem hefur vaknað við þetta slys og sú umræða sem öryggis- hjálmarnir hafa fengið verði til þess að enn fleiri börn beri þá á höfði því ég held að það sé alveg ótvírætt eftir þetta slys að hjálmarnir geta skipt sköpum ef slys hendir," segir Jako- bína. FJÖLSKYLDUTRYGGING © FASTEIGNATRYGGING TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN HF Umboö í Vestmannaeyjum. Strandvegi 63 S 11862

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.