Fréttir - Eyjafréttir - 16.05.1991, Síða 8
Fimmtudaginn 16. mai 1991 ■ fréttir
Hreinsunarvika 21. - 28. maí
Eins og áöur mun Vestmannaeyjabær hafa vörubifreiö-
ar til aö aðstoða bæjarbúa viö hreinsun bæjarins.
Lóöaeigendur eru beönir aö koma því rusli, er þeir
óska að láta hiröa af lóðum sínum, í hrúgu utan
lóðarmarka, þar sem hægt er aö hirða þaö meö góöu
móti og þannig skal búiö um rusl aö þaö fjúki ekki.
Eftirfarandi skipulag veröur viöhaft.
Þriðjudaginn 21. maí: Svæöið frá hraunjarðri til og meö
Skólavegi, neöan Kirkjuvegar.
Miövikudaginn 22. maí: Svæðiö frá Skólavegi til og meö
lllugagötu.
Fimmtudag og föstudag 23. og 24. maí: Svæöiö ofan
Kirkjuvegar.
Mánudag og þriðjudag 27. og 28. maí: Vesturbærinn.
Allar nánari upplýsingar veröa veittar í síma 11533,
föstudaginn 17. maí og fyrrgreinda daga milli kl. 14 og
17.
Þeim sem sjá um flutning á brennanlegu rusli, er bent á
sorpbrennsluþróna austur á hrauni. Óbrennanlegu rusli
skal ekiö í Helgafellsgryfju. Brotajárni skal ekið á
brotajárnssvæði noröan hitaveitusvæöis. Einnig eru
ruslagámar stasettir viö Áhaldahús, austan íþróttamiö-
stöðvar og á þvottaplani viö Goöahraun.
Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum
Allir í garðinn
Sumarblómasalan hefst á föstu-
dag
^ Fræ og laukar, stjúpur, petóníur, brúðaraugu,
DQ dalíur, morgunfrúr, nemesíur, hádegisblóm,
^ skrautkál og flauelisblóm.
= Úrval af áburði (þó ekki róg)
^ Mosaeyðir
h-
o Ný pottablómasending föstudag
^15% afsláttur
á pottablómum
Umskorin blóm á hvítasunnuborðið
Blómaverslun Ingibjargar Á. Johnsen
Bárustíg 2
011167
Þakkir frá Hraunbúðum
Nú þegar vetrarstarfi hinna ýmsu félagasamtaka á Hraunbúðum er lokið, fá
eftirtaldir aðilar innilegar þakkir fyrir allar þær ánægjustundir sem þau hafa veitt
vistmönnum.
Eykyndill, Félag eldri borgara, Félagsmálaráð, íþróttafélagið Þór, Kirkjukórinn,
Knattspyrnufélagið Týr, Kvenfélag Landakirkju, Kvenfélagið Líkn, Rebekku-
stúkan Vilborg, Sinawik, Sjálfstæðiskvennafélagið Eygló, Starfsmannafélag
Vestmannaeyjabæjar og Stúkurnar Sunna og Eyjarós.
Stórglœsileg afmœlisveisla Týs
• Guöjón Magnúíiíion og Adoif Ósk-
arsson voru sæmdir gullmerki fsf.
Á laugardaginn liéldu Týrarar
glæsilega afmælisveislu í tilefni 70
ára afmælis félagsins sem var þann 1.
inaí sl. Tý barst tjöldi gjafa og
heillaóska á þessum merku tímamót-
um og margir Týrarar fengu viður-
kenningar fyrir vel unnin störf, bæði
frá félaginu og landssamböndum
íþróttahrcyfingarinnar. Veislan var
haldin í hinu nýja íþróttahúsi félags-
ins og fór hið besta fram í alla staði.
Birgir Sveinsson formaður Týs
setti veisluna og rakti í stuttu máli
sögu félagsins og það helsta sem
fram undan er. Ber þar hæst SHELL-
mótið, áður Tommamót, og Þjóð-
hátíðina sem Týrarar halda í ár.
Alls hlutu 75 Týrarar silfurmerki
fyrir vel unnin störf í þágu félagsins,
51 hlaut gullmerki og tíu voru gerðir
aö heiðursfélgögum: Anna Gríms-
dóttir, Gísli Friðrik Johnsen, Gunn-
laugur Gunnlaugsson, Karl Guð-
mundsson. Magnús Magnússon,
Marteinn Guðjónsson, Páll Guð-
jónsson, Sigríður Ólafsdóttir og
Sigurður Jónsson og eru heiðursfé-
lagar orðnir 18.
Margir fluttu ávarp og árnuðu Tý
heilla á þessum merku tímamótum.
Fyrstur tók til nráls Guðjón Hjör-
leifsson hæjarstjóri og fyrir hönd
bæjarstjórnar færði hann félaginu
100 vélavinnutíma. Ómar Garðars-
son formaður ÍBV flutti félaginu
kveðiur stjórnar Bandalagsins og
sem virðingarvott fyrir framlag
Knattspyrnufélagsins Týs til íþrótta-
mála í Eyjum færði hann félaginu
peninga til tækjakaupa í nýja íþótta-
húsið.
Lovísa Einarsdóttir, fulltrúi ÍSÍ
flutti félaginu árnaðaróskir og sæmdi
Adolf Óskarsson og Guðjón Magn-
ússon gullmerki ÍSÍ fyrir framlag
þeirra til íþrótta og voru þeir vel að
þessum heiðri komnir. Guðmundur
Péturssonm frá KSÍ kom inn á
samskipti Eyjmanna og Knatt-
spyrnusambandsins sem eiga sér
langa sögu og þar hefur hlutur Týrara
verið stór, hafa átt menn í fremstu
röð frá upphafi. Guðmundur sæmdi
Jóhann Ólafsson og Martein Guð-
jónsson gullmerki samtakanna og
tólf fengu silfurmerki. Þór Valtýsson
frá HSÍ óskaði Týrurum til hamingju
með stórglæsilegt íþróttahús og flutti
þeim kveðjur. Stefán Örn Jónsson
fékk gullmerki HSÍ og sjö voru
sæmdir silfurmerki. Allir komu full-
trúarnir færandi hendi. ÍSf gaf lista-
verk, KSf kiukku og HSI áritaðan
stein.
Félaginu bárust ýmsar fleiri gjafir
t.d. uppstoppuð súla frá ættingjum
Guöjóns Magnússonar. gjafabréf
frá Gísla Magnússyni, Sigurði Inga
Ingólfssyni. Viktori Helgasyni og
Hafsteini Guðfinnssyni upp á ljósa-
skilti með nrerki félagsins. Hermann
Einarsson gaf Tý öll blöð sem féiagið
hefur gefið út frá árinu 1976. inn-
bundin og hét að á meðan hans nyti
við héldi hann áfram að safna blöð-
um félagsins og fengi Týr þau til
varðveislu.
Fleiri fluttu ávörp og Jóhannes
Kristjánsson eftirherma flutti gam-
anmál eins og honum einum er lagið
en að því loknu var stiginn dans til
klukkan fimm um morguninn.
9 10 Týrarar voru gerðir að heiöursfélögum á afmælishófinu. Á niyndinni eru þeir 7 sem voru i hófinu.
Ódvrir bflaleicautsflar f útlöndum
Loksins getum viö boöiö íslendingum Budget bílaleigubílafrá3600 skrifstofum í 140 löndum
Einnig bíla á íslandi Gullfoss bílaleiga sf.
á hagkvæmum kjörum. Færum þér bílinn á flugvöllinn. Dalvegi 20 Kópavogi © 91 -641255