Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 16.05.1991, Blaðsíða 2

Fréttir - Eyjafréttir - 16.05.1991, Blaðsíða 2
Fimmtudaginn 16. maí 1991 - FRÉTTIR Guðmunda Bjarnadóttir er ósigrandi i tippinu um þessar mundir. Síðast lagði Guð- munda að veili, Tómas Jó- hannesson í ísfélaginu, og fór létt með þrátt fyrir hástemmd- ar yfirlýsingar Tomma og dygga aðstoð félaga hans sem lágu yfir tippseðli hans dögum saman. Nú er komið að síðustu leik- viku getrauna í þessari törn en spurningin er hver byrjar slag- inn næsta haust. Guðmunda skoraði á svila sinn, hand- boltafrömuðinn , Stefán örn Jónsson og mætir hann gal- vaskur til leiks. 1. Notlh. Forest - Tottenham ■ @ H S1 2 Dundee United - Motherwell ■ Œ1 S CZI 3. Inter Mtlan - Lazio ■ ©E ffl 4 Bari - AC Mtlan ■ m m æ 5 Sampdoria - Lecce ■ m qo m 6. AS Roma - Napolt ■ m ® m 7. Juventus - Pisa ■ e m m 8. Stjarnan - Valur ■ m m æ 9 Fram - Breiðablik ■ m m m 10. K.A -Í.B.V. ■ m m ra 11. Viðir-K.R. ■ m m œ 12. F.H. - Vikingur ■ mm m Guðmunda Bjarnadóttir Tommi Jóh var léttur þrátt fyrir drýgindi hans og yfirlýsingar. Næst skora ég á Stebba Jóns, handboltaáhugamann. Stebbi hefur ekki gripsvit á knattspyrnu og þar sem framundan er sumar- hlé er í lagi að velja einn léttan andstæðing svo ég geti byrjað aftur í keppninni í haust. Þá verð ég í enn betra formi og set stefnuna á metið hans Lalla. 1. Notth. Forest - Tottenham '>0 S B 2 Dundee Umted - Motherwell B E 3. Inter Milan - Lazio______________■ g) GD [H 4 Bari - AC Mtlan ■ m m 5. Sampdoria - Lecce ■ ca m m 6 AS Roma - Napoli ■ m m 7 Juventus - Pisa ■ 0 m m 8 St|arnan - Valur ■ cq m ffl 9 Fram - Breiðablik ■ LH m m 10. K.A. - i.B.V. ■ m m 11 Vidir - K.R. ■ m m tö 12. F.H. - Vikmqur ■ m m Stefán örn Jónsson Ég skil ósköp vel að Guðmunda skori á mig í tippinu, því þá getur hún verið viss um að tapa. Enda má hún ekkert vera að þessu lengur þar sem hún er ákveðin í að koma íbúum Vestmannaeyja í 5000 sem fyrst. Annars er það misskilningur að Viðar, maður hennar, sé hennar aðal aðstcð- armaður. Það er sonur hennar Bjarni Geir. Viðar er ekki enn búinn að jafna sig eftir að upp komst að hann var ekki valinn í landsliðið fyrir 2 árum, þar sem því miður var aðeins mikill prent- villupúki á ferðinni í einu dag- blaðanna. Eyjastemma Finns • Myndin er tekin í Akoges í gær þar sem Finnur vann við uppsetningu sýningarinnar. Sigurfínnur Sigurfinnsson verður með sýningu á myndverkum í Akó- geshúsinu um hvítasunnuhelgina. Finnur sýnir 47 myndverk, flest gerð á síðasta ári og það sem af er þessu. Mest eru þetta pastelmyndir og sækir Finnur efnivið í náttúru og mannlíf Eyjanna, sumar, vetur, vor og haust. Þetta er þriðja einkasýning Finns og enn oftar hefur hann tekið þátt í samsýningum. Hann nam list sína við Myndlista og handíðaskóla íslands, fyrst á árunum 1962 til 1965 og aftur 1970 til 1972 og lauk hann þá kennaraprófi. Sýningin opnar klukkan 14:00 á laugardaginn, 18. og stendur fram á mánudag og er opin frá kl. 14:00 til 22:00 alla dagana. Vormót Sunddeildar ÍBV og flxels Ó. Skóverslun ‘Áxels Ó. aðstoðaði við útvegun verðlauna á mótinu en ýmiskonar „sundgræjur" voru í verð- laun. Þakkar sunddeildin þeim sérstak- lega fyrir aðstoðina. Vormót sunddeildar IBV og skó- verslunar Axels Ó. fór fram fyrir skömmu og urðu úrslit eftirfarandi. 100 m. bringusund kvenna. 1. Anna Lilja Sigurðardóttir..... 1:20,94 mín • Hluti af verðlaunagripum Flugleiðamótsins. Hvítasunnan: Eins og vcnjulcga um hvítasunn- una er mikið um að vera hér í Eyjum og bera hæst Flugleiðamótið í golfi og Hvítasunnumót Sjóstangveiðifé- lagsins. Kylfingarnir byrja sláttinn kl. 10:00 á laugardagsmorguninn og mótinu lýkur á sunnudag. Flugleiðamótið er opið stigamót og er gert ráð fyrir sterkum keppend- um af fastalandinu. Ekki er vitað um fjölda keppenda, en þeir hafa verið 70 til 80 undanfarin ár. Keppt er um óvenju glæsileg verðlaun. skraut- muni og ferðavinninga. Sjóstangveiðimótið verður sett á föstudagskvöldið og er ætlunin að stofna landssamband stangveiðifé- laga við það tækifæri. Róðrar hefjast við sólris á laugardagsmorgun og hafa 77 keppendur skráð sig til keppni. Mótinu lýkur á sunnudag og verðlaun verða veitt á glæsidansleik þá um kvöldið í Samkomuhúsinu. Þakkir Þökkum auösýnda samúð við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föðurokkar, fósturföður, tengdaföður ogafa Bjarna Brynjars Víglundssonar Foldahrauni 40 A Vestmannaeyjum Hafdís Sveinsdóttir Víglundur Br. Bjarnason, Ævar Þór Bjarnason Brynhildur Pétursdóttir, Jóhann Pálsson Hafdís Erla Jóhannsdóttir 400 m. fjórsund kvenna. 1. Auður Ásgeirsdóttir .......... 5:36,05 mín Vm.met 2. Ingunn Amórsdóttir .................. 6:14,86 mín 3. Jónína Sigurðardóttir ............... 6:24,87 mín 400 m. fjórsund karla. 1. Pétur Eyjólfsson...........’. 5:18,62 mín Vm.met. 400 m. skriðsund kvenna. 1. Anna G. Magnúsdóttir ................ 6:16,91 mín 2. Halldóra I. Magnúsdóttir............. 6:17,92 mín 3. Sjöfn Halldórsdóttir ................ 6:22,59 mín 400 m. fjórsund karla. l.lvarð.Bergsson ....................... 5:47,64 mín 2. Ólafur H. Olafsson................... 6:38,16 mfn 3. Egill Valgarðsson.................... 6:40,64 mín 100 m. bringusund telpna. 1. Guðrún Haraldsdóttir ............... 1:51,53 mín 2. Berglind Ýr Ólafsdóttir ............. 2:12,23 mí.: 3. Donna Ýr Krístinsdóttir.............. 2:15,23 mín 4. Eyrún Jónsdóttir .................... 2:17,19 mín 5. Bryndís Gísladóttir.................. 2:27,59 mín 6. Rannveig Rós Ólafsdóttir............. 2:55,45 mín 7. Elísabet Á. Þorleifsdóttir.................ógild 100 m. bringusund drengja. 1. Biarki ÞórTryggvason................. 1:45,56 mín 2. Ingimar Á. Guðmarsson ............... 2:02,% mín 3. BorgþórÁsgeirsson ................... 2:03,99 mín 4. Gunnar M. Kristjánsson .............. 2:04,52 mín 5. Björgvin Ámundason .................. 2:09,80 mín 6. Haukur Þorsteinsson...................... ógildur Tvö Vestmannaeyjamet litu dags- ins ljós á mótinu. Auður Ásgeirs- dóttir bætti 7 ára gamalt met Sigfríð- ar Björgvinsdóttur í 400 metra fjór- sundi og synti á 5:36,05 mín. sem hefði dugað í 4. sæti á íslandsmótinu sem fram fór hér í Eyjum á dögun- um. Pétur Eyjólfsson bætti eigið met í 400 m. fjórsundi synti á 5:18,62 mín. sem er4. besti árangur í hans aldurs- flokki á árinu (yfir landið). 0 Þesslr krakkar hafa öll tekið þátt í barnfóstrunámskeiðunum. Þau heita Hrefna Haraldsdóttir, Fjóla Finnbogadóttir, Björgvin Hrafn Amundason, Kristín Inga Grímsdóttir og Signv Magnúsdóttir. Barnfóstrunámskeid Raudakrossins: Aldrei fleiri nemendur í vor hélt Rauði krossinn nám- skeið fyrir verðandi barnfóstrur og hafa nemendur aldrei verið fleiri, eða 43 og þar af sex strákar. Fyrsta árið voru nemendur 22 og í fyrra 20. Þessi mikla aðsókn kom forráða- mönnum námskeiðanna mjög á óvart og þar sem færri komust að en vildu er fyrirhugað að hafa eitt nám- skeið enn og verður það þegar próf- um er lokið. Sex krakkar, ellefu og tólf ára. sem voru á námskeiðunum í vor litu við á FRÉTTUM og var það sam- dóma álit þeirra að þau hefðu verið mjög gagnleg og fræðslan ætti eftir að koma þeim til góða í barna- pössuninni í sumar. Krakkarnir heita. Hrefna Haraldsdóttir. Fýóla Finnbogadóttir, Björgvin Hrafn Ámundason, Kristín Inga Gríms- dóttir og Signý Magnúsdóttir sem ætla að sjálfsögðu öll að passa börn í sumar. Þau sögðust hafa komist að því. að það var margt sem þau vissu ekki um meðferð ungra barna fyrir námskeiðið. Nú væru þau öruggari og vita hvernig á að bregðast við t.d ef slys ber að höndum. Þau læra skvndihjálp og síðast en ekki síst slysavarnir og fyrirbyggjandi ráðstaf- anir. því víða leynast hættur ekki síst í heimahúsum s.s. rafmagnsinn- stungur. eiturefni í vaskaskápum og heitir pottar á eldavélum og revnt er að hafa kennsluna eins og raunveru- lega og aðstæður leyfa. Krakkarnir fá að blása í dúkku og þeim er sýnt hvað aðskotahlutir. sem festst geta í koki barna. geta verið stórir. ..Við höfðum ekki spáð í þetta fyrir nám- skeiðið.” sögðu krakkarnir. sann- færð um að þau eru betri og öruggari barnfóstrur eftir námskeiðið.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.