Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 16.05.1991, Síða 10

Fréttir - Eyjafréttir - 16.05.1991, Síða 10
Fimmtudaginn 16. mai 1991 • FRÉTTIR iTaiianmaeuaatyti ÍÞRÓTTASÍÐA FRÉTTA Ballskák: Eddi hafnad í 2. sœti i islandsmeistaramótinu í Ballskák. Eðvarð Matthíasson sem bar sigur úr bítum í stigamóti íslandsmótsins í snoker lék úrslitaleik um íslands- meistarntitilinn gegn Brynjari Valdi- marssyni. Þeir félaga voru tveir efstu eftir stigamótið og þurftu þeir því að leiða saman hesta sína og berjast um titilinn. Eðvarð þurfti að lúta í lægra haldi að þessu sinni en Brynajar sigraði 10 - 2. og verður því fslandsmeistara- titillinn Brynjars. En Eðvarð er alls ekki af baki dottinn því í byrjun júní mánaðar heldur hann til Indlands þar sem hann mun taka þátt í heimsmeistaramóti spilara yngri en 21. árs. Þar munu takast á þeir 70 bestu spilarar heims og verður þetta því stórt skref fyrir Edda. • Eðvarð Matthíasson. Knqttspyrna: Frá old boys snillingum ÍBV Undirbúningur fyrir komandi keppnistímabil er hafinn af fullum krafti. Æfingasókn og áhugi er með betra móti, breiddin í liðshópnum er mikil og að öllum líkindum stefnir í topp í sumar. Nú þegar höfum við spilað nokkra æfingaleiki og unnið þá alla. Hin nýstofnuðu knattspyrnulið hér í Eyjum eiga ekki minnstu mögu- leika gegn okkur, og um daginn spiluðum við á móti 2. flokki ÍBV og er skemmst frá því að segja að við unnum þá, að vísu ekki nema 2-1, enda óviðbúnir leik og undirbúning- ur þá í lágmarki. Keppnistímabilið sem í hönd fer verður mjög annríkt. Um miðjan júní spilum við sýningarleik á Akur- eyri og í sömu ferð verðum við með knattþrautasýningu á Húsavík. Um mánaðamótin júní - júlí syngjum við inn á hljómplötu og mun Geim- steinn, hljóðver Rúnars Júlíussonar aðstoða hópinn. í byrjun ágúst mun Old boys hópurinn mæta í Kringluna og árita væntanlega hljómplötu. íslandsmótinu lýkur í lok ágúst og þá munum við lyfta íslandsmeistar- abikarnum á Stakkagerðistúninu. með tilheyrandi skemmtidagskrá og hátíðarhöldum. Sú uppákoma verð- ur auglýst síðar. Að lokum minnum við á æfinga- daga Old boys snillinganna, en þeir eru á fimmtudögum kl. 19:30 og á sunnudögum kl. 17:00. Nefndin Sunddeilcnn: Sumarmót ÍBV Sumarmót ÍBV í sundi verður um helgina og hefst á föstudagskvöld. Kl. 20:00 á föstudagskvöldið eiga keppendur að vera mættir í upphitun en sjálft mótið byrjar kl. 20:30. A laugardaginn kl. 15:30 er upphitun og mótinu verður framhaldið kl. 16:00. Frétt frd ÍBlí: Hópferð Knattspyrnuráð ÍBV verður með hópferð á leik KA og ÍBV. Leikurinn, sem er fyrsti leikurinn í 1. deildinni verður á Akureyri n.k. mánudag. Tilkynna þarf þátttöku til Lalla í s. 11754 eða 12689 fyrir föstudags- kvöld. Verð aðeins kr. 6.500. Unglingabikqr HSÍ: Afhentur ö sunnudag Eins og komið hefur fram kom Unglingabikar HSÍ í hlut Eyjamanna að þessu sinni. Það voru Handknattleiksráð kvenna ÍBV, Þór og Týr sem fengu bikarinn fyrir unglingastarfið í vetur og er þetta mikil viðurkenning. Ákveðið er að afhending Ungling- abikarsins fari • fram í lþróttamið- stöðinni kl. 16:00 á sunnudaginn og mun Jakob Sigurðsson fyrirliði ís- lenska landsliðsins afhenda bikarinn. Handboltakrakkar og aðstandendur þeirra eru hvattir til að mæta. • Úrleik ÍBV og ÍBK. Knattspyma: ÍBV í 3. sœti en Keflavík sigradi Esso motid. Um síðustu helgi fór fram hér í Eyjum Esso mótið í knattspyrnu. Þetta er í annað skiptið sem mótið er haldið og að þessu sinni voru það ÍBV, KA, FH og ÍBK sem áttust við og var leikið bæði á malarvellinum við Löngulág og á grasvellinum við Helgarfell. Ekki tókst Eyjamönnum að halda í bikarinn annað árið í röð því Keflvíkingar sigruðu að þessu sinni. ÍBV hafnaði í 3. sæti áeftir Hafnfirð- ingum en KA rak lestina einnig með 2. stig en þeir töpuðu gegn ÍBV og þurftu því að láta sér linda fjórða sætið. Það sást á leik ÍBV að Sigurlás Þorleifsson þjálfari ÍBV notaði þessa leiki til að skoða sína menn og fengu margir að spreyta sig. En úrslit úr leikjum ÍBV í Esso mótinu urðu annars eftirfarandi. ÍBV - KA 4 - 1. Hlynur 1, Leifur 1, Sigurlás 1 og Friðrik 1. ÍBV-ÍBK0- I ÍBV- FH2-5. Sindri 1 og Hlynur 1. N.k. mánudag leikur ÍBV sinn lyrsta leik i íslandsmótinu og munu þeir heimsækja KA menn á Akur- eyii. i Jn" v. *,v I r Colf: Forgjafa- keppni GV Keppnin fór fram s.l. laugardag í ágætis veðri og voru allar aðstæður til golfiðkunnar þær ákjósanlegustu. Keppendur voru 26 talsins og var leikið með forgjöf. Keppnin var mjög jöfn og spenn- andi og meðal annars voru fjórir efstu keppendurnir jafnir á 68 högg- um nettó. Það var forgjöfin sem réð úrslitum að þessu sinni en í fyrsta sæti varð Guðmundur Guðlaugsson og á eftir honum kom Jóhann Péturs- son. Þeir Sigbjörn Óskarsson og Haraldur Júlíusson léku best án for- gjafar en þeir þurftu að sætta sig við þriðja og fjórða sætið þar sem þeir hafa aðeins fimm og þrjá í forgjöf. Leiðrétting í 19 tbl. FRÉTTA voru birt úrslit úr 1. ínaí mót Týs. Prentvillupúkinn gerði okkur lífið leitt eins og stund- um vill verða og birtust röng úrslit úr leikjum hjá 2. flokki kvenna og 4. flokks karla. 2. flokkur kvenna. Týr - Þór 8 - 0. 4. flokkur karla. Týr - Þór 5 - 2. Leikur 3. flokks karla milli Týs og Þórs var leikinn s.l. laugardag og sigraði Týr í þeirri viðureign, 2 - 1. Lokuhóf hondbolta- stelpna • Þær hlutu verðlaun í 5. flokki. F.v. Oddný Friðriksdóttir, besti leik- maðurinn, Kristín Inga Grímsdóttir, efnilegasti leikmaðurinn og Elena Einisdóttir, sem sýndi mestu fram- farirnar. • Þær hlutu verðlaun í Byrjenda- flokki. F.v. Indiana Auðunsdóttir, mestu framfarir (eldri stelpna), Telma Tómasdóttir, efnilegust (yngri stelpna), Hjördís Jóhannes- dóttir, mestu framfarir (yngri stelpna) og Iris Sigurðardóttir, efni- legust (eldir stelpna). 0 Þær hlutu sérstök verðlaun frá þjálfurunum í 5. flokki og byrjenda- flokki. F.v. Stefanía Guðjónsdóttir, þjálfari, telma Róbertsdóttir, já- kvæðasta manneskjan, Sigríður Asa Friðríksdóttir, mesti fjörkálfurínn, Ólöf Gunnlaugsdóttir, saklausasta sálin, Anita Ársælsdóttir, besta ástundunin, Valgerður Friðriksdótt- ir, hvatningarverðlaunin og Elísabet Benónýsdóttir, þjálfari.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.